Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
DV
M
agasm
í Helgarblaði DV á laugardag-
inn verður ítarlega fjallað um
menningarverðlaun DV sem eru
nú afhent í 25 sinn. Rætt er við
verölaunahafana og reynt að
varpa ljósi á stöðu þeirra í
hverri listgrein fyrir sig. Mynd-
ir frá afhendingunni, sem fram
fer á Apótekinu í Pósthússtræti,
setja einnig svip á blaðiö.
í blaðinu er einnig fjallað ítar-
lega um spádóma Nostradamus-
ar en um þessar mundir eru þau
átök í uppsiglingu í heiminum
sem margir telja hann hafa spáð
fyrir.
Blaðið fjallar um erfxðleika
McDonalds veitingakeðjunnar
sem er hin stærsta í heiminum
og merkisberi amerískra lífs-
hátta. McDonalds á undir högg
að sækja vegna sérstæðra mála-
ferla og keðjan sýndi tap á síð-
asta ársfjórðungi í fyrsta sinn í
sögunni.
Blaðið tekur saman sögur af
þjóðhöfðingjum sem hafa lifað af
banatilræði í gegnum söguna en
þeir eru fjölmargir. Það er aug-
ljóslega frekar hættulegt starf að
vera þjóðarleiðtogi.
1 (t) Cry me a river Justin Timberlake 7
2 (2) Beautiful Christina Aquilera 10
3 (4) l'm with you Avril Lavigne 7
4 (5) Shape Sugarbabes 4
5 (3) Sound of the underground Girls Aloud 7
6 (7) Clocks Coldplay 4
7 (9) Segðu mér í svörtum fötum 4
8 (12) Not gonna get us T.A.T.U 3
9 (6) Sorry seems to be.. Blue ft. Elton John 10
10 (13) Stole Kelly Rowland 3
11 (11) Hidden Agenda Craig David 4
12 (15) All i have J. Lo. ft. LL. Cool J 3
13 (18) Blowing me up JC Chasez 2
14 (8) Á einu augabragði Silin 6
15 (19) Tu es foutu In Grid 2
16 (10) 8 mile Eminem 5
17 (20) Naughty girl Holly Valance 2
18 (-) Get the party Pink ft. Redman 1
19 (-) Bump Bump Bump P. Diddi ft. B2K 1
20 B (-) = Nýtt Year 3000 Busted 1
ADDI ALBERTZ KYNNIR LISTANN
ÖLL MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL 22:00
Endurfluttur 6 sunnudögum kl. 20.00
www.sterio.is
vera skylda
„Óhætt er að segja að skákvakning
hafi orðið á íslandi nú á allra síðustu
misserum. Verði rétt á málum haldið
og áhersla lögð á æskulýðsstarfið tel ég
víst að skák verði brátt vinsælasta
tómstundagaman ungs fólks á íslandi,"
segir Hrafn Jökulsson, forseti Skákfé-
lagsins Hróksins.
Birgitta og tíu stórmeistar-
ar
Á þriðudag hófst á Kjarvalsstöðum í
Reykjavík Stórmót Hróksins, með
mjög svo fjölbreyttri dagskrá. Tíu stór-
meistarar í skák taka þátt í mótinu og
tefla allir á móti öllum. Skákskýringar
verða á leikjum þeirra og tefld verða
fjöltefli. Þá munu listamenn íslands í
skák kenna ungu kynslóðinni sóknar-
og vamarleiki hinna hvítu og svörtu
riddara - þannig að á endanum sé
hægt að segja skák og mát. Út á það
gengur skákin víst.
Á sunnudag verður fjölskyldudag-
skrá, sem miðast við þarfir og áhuga
æskufólks skáklistarinnar. Munu þar
tefla Birgitta Haukdal, KK, Bubbi
Morthens, Jónsi i hljómsveitinni í
svörtum fótum og Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í hand-
bolta - auk stórmeistara sem taka þátt
í mótinu.
Stórmeistararnir sem taka þátt í
mótinu em tíu eins og áður sagði. Úr
þeim hópi má nefna Michael Adams,
sem er númer 6 á stigalista heimsins
og Bosníumanninn Ivan Sokolov.
Gamli refurinn Viktor Kortsnoj, 71 árs,
mætir til leiks og lætur engan bilbug á
sér finna. Er hann, þrátt fyrir að vera
farinn að reskjast, enn númer 43 á
heimslistanum.
Fleiri keppendur mætti nefna, en ís-
lenskir meistarar sem taka þátt eru
Helgi Áss Grétarsson, Hannes Hlífar
Stefánsson og Stefán Kristjánsson.
Hinn síðastnefndi er tvítugur að aldri,
en þrátt fyrir ungan aldur orðinn
fimasterkur í skáklistinni.
Allir læra mannganginn
Hrafn Jökulsson segir að vissulega
hafi íslensk skáklist verið í lægð síð-
ustu ár, eftir blómaskeið í áratugi á
undan.
„Nú er þetta mikið að breytast aftur
og við viljum efla skákina enn frekar.
Sjáum fyrir okkur að hún verði tekin
sem skyldugrein inn í skólana, ein
kennslustund í viku. Ég skynja áhuga
fyrir því, enda er þetta holl og
skemmtileg iðja sem allir géta stundað.
Það geta ekki allir orðið afreksmenn í
fótbolta eða ekið formúlubh. En hver
sem er getur geta lært mannganginn í
skák og náð þar nokkrum tökum. Þjálf-
að einbeitni sína og rökhugsun, en út á
hana gengur skákin. Að hafa slíka
hluti á hreinu skiptir ekki svo litlu
máli í nútímanum."
-sbs
Drópu sig og hundana
Hjón á miðjum aldri frömdu saman sjálfsmorð á dögunum
en eiginmaðurinn átti að mæta fyrir rétti eftir nokkra daga.
Hann var ákærður fyrir að veitast að manni með hnífi.
David Mark Edwards, 40 ára og kona hans Christina, 32
ára, frömdu sjálfsmorðið í bílskúr og er lögreglan kom að
bílskúrnum var bifreiö þeirra hjóna í gangi en dymar lok-
aðar. Voru þau látin þegar lögreglan kom á staðinn og
einnig hundar þeirra tveir. Málið er ekki rannsakað sem
sakamál og talið fullvíst að um sjálfsmorð hafi verið að
ræða.
Var biöin einskis virði?
Sautján ára stúlka i Mexíkó er dauðvona eftir hjarta- og
lungnaígræðslu. Stúlkan hafði beðið í þrjú ár í Mexíkó eft-
ir nýju hjarta og lungum.
Kallið kom á dögunum frá háskólasjúkrahúsinu i Duke í
Bandaríkjunum. Stúlkan var flutt í ofboði á sjúkrahúsiö og
gekkst þar undir mikla aðgerð. Læknum og fjölskyldu
stúlkimnar til mikillar gremju uppgötvaðist það of seint að
líffæragjafinn var í öðrum blóðflokki en stúlkan frá Mexíkó.
Lungun virka ekki sem skyldi og sjá blóðinu ekki fyrir
nægjanlega miklu súrefni. Læknar hafa viðurkennt mistök-
in en stúlkan lifir líkast til ekki lengi.
Hryggbrotinn Brassi
Ungur maður í Brasilíu nær þvi ekki að ástkona hans til sex
ára hefur sagt skilið við hann. Hann hét því á dögunum að sá
sem gæti talið stúlkunni hughvarf fengi bíl að launum. Það hef-
ur ekki skilað árangri enn sem komið er.
Á dögunum dreifði hann peningaseðlum með árituðum ást-
arjátningum til stúlkunnar. Hann afhenti gangandi vegfarend-
um seðlana í þeirri von að þeir gætu hjálpað honum í vandræð-
unum. „Ef þið sjáið hana segið henni þá að ég sé að deyja úr
ástarsorg. Mér líður eins og ég hafi verið dæmdur til dauða,“
sagði ungi maðurinn en konan neitar að tjá sig við fjölmiðla.
PÓST
„En hver sem er getur lært mannganginn í skák og náð þar nokkrum tökum. Þjálfað elnbeitni sína og rökhugsun, en út á hana gengur skákin," segir
forseti Hróksins, Hrafn Jökulsson. Magasín-mynd E.OI.
m
a
cf
895
STERI
Steríó er líka á
Breiðbandinu
á tíðninni 95,2
STERÍÓ 895 OG MAGASÍN
KYNNA STERÍÓLISTANN TOPP 20
19.-25. FEBRÚAR. 2003
Nr. SÍÐAST LAG FLYTJANDI
VIKUR
Æskuskák, fjöltefli og meistarar á
Stórmóti Hróksins á Kjarvalsstöðum:
Skákin ætti áb
M