Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
M.
agasm
„Ég á kannski eitthvaö smá í munnsvipnum. Annars er hann mjög blandaöur," segir móöirin. María Maronsdóttir
og Ragnar Heiöar Karlsson meö soninn sem fæddist 9. febrúar.
María og Ragnar eignuðust strák - en bjuggust við stelpu:
Þurfum að lesa nafna-
bækur upp á nýtt
„Viö héldum að þetta yrði stelpa,
vorum eiginlega handviss. Til dæmis í
ljósi þess hvemig kúlan var í laginu.
Við vorum búin að ákveða nafnið á
dótturina, enda þótt það sé leyndar-
mál. En síðan fæddist bara strákur og
það kom okkur alveg i opna skjöldu.
Því þurfum við að lesa allar nafnabæk-
ur upp á nýtt,“ segir María Marons-
dóttir. Hún ól sitt fyrsta barn þann 9.
febrúar, strák sem var fjórtán merkur
og rétt um 50 sentímetrar. Þetta er
fyrsta barn Maríu og fóðurins, Ragnars
Heiðars Karlssonar.
Ég á munnsvipinn
Sonurinn fæddist kl. 17.13 áður-
nefndan dag en þá hafði María verið
með fæðingarhríðir í um hálfan annan
sólarhring. „Fæðingin var samt sem
áður ekki nándar nærri jafn sársauka-
full og ég bjóst við - og ekki eins og
margar konur hafa lýst,“ segir Maria,
sem fæddi soninn á fæðingardeild
Landspitalans - háskólasjúkrahúss.
Þar var hún í góðum höndum ljós-
mæðranna Ingibjargar Hreiðarsdóttur
og Birnu Ólafsdóttur - og læknanem-
ans Ágústs Inga Ágústssonar.
„Okkur hefur heilsast ákaflega vel
eftir fæðinguna og lifum eins og blómi
i eggi,“ segir móðirin. Sonurinn ungi
er að hennar sögn dökkhærður með
svolitinn lubba. Augun þykir hann
hafa frá pabba sínum ... en ég á
kannski eitthvað smá í munnsvipnum.
Annars er hann mjög blandaður," seg-
ir hún enn fremur.
Alsæl í Rimahverfi
Maria og Ragnar Heiðar eiga bæði
rætur fyrir austan fjall - og segjast
þess fullviss að þar muni þau á endan-
um setja sig niður. Þau eru hins vegar
fædd og uppalin í Reykjavik og fyrir
skömmu keyptu þau sér smekklega
íbúð i Rimahverfi. Þar hafa þau komið
sér vel fyrir og eru alsæl.
María er lærð hárgreiðslukona og
hefur starfað sem slík. Á síðustu miss-
erum hefur hún hins vegar verið í leyfi
frá því og starfað sem aðstoðarmann-
eskja á tannlæknastofu. Ragnar Heiðar
er smiður og hefur víða komið við, nú
síðast við byggingu nýs hótels á Búð-
um á Snæfellsnesi.
-sbs
'pað besta
fyrir bamið
Skeifan 8 • simi 568 2200 • www.babysam.is
^ Leikarinn og milljarða-
v mæringurinn John Travolta
Þrælar sér út
Hl db geta etið
hamborgara
Leikarinn góökunni, John Travolta, hefur viðurkennt að vera fikill
þegar hamborgarar eru annars vegar og þá sérstaklega ostborgarar.
Travolta berst við
aukakilóin eins og
fleiri frægir karl-
menn en vinur hans
segir að Travolta
fari létt með að inn-
byrða fjóra ostbórg-
arar á einu og sama
kvöldinu.
Til að hlaupa ekki
í spik stundar hann
svo líkamsrækt af
miklu kappi og þá
gjaman eftir aö hafa
innbyrt skyndibit-
ann. Er Travolta svo
mikið í mun að
halda línunum í lagi
að hann stritar oft
klukkustundum
saman í leikfhnisal
sínum til að koma í
veg fyrir að þyngj-
ast.
Annars er það af
Travolta að frétta að
hann flýgur enn um
á einkaþotu sinni
sem er ekkert smá-
smíði. Hann þykir
vera gríðarlega efn-
aður og ekki líður
svo dagur að hann
fái ekki tekjur af
sínum frægustu . , _
mvndum Grease oa John Travolta er fíki" Þegar ostborgarar eru
mynuum, urease og annars yegar Hér yejfar hann tjj aödáenda sjnna
baturaay Night á Daytona kappakstrinum á dögunum og viröist
Fever. bara nokkuö „fit“ aö sjá.
^ Affleck er dó fara á taugum
Leikarinn Ben Affleck, verðandi eiginmaður Jennifer Lopez ef guð
lofar, er að fara á taugum. Nýverið lýsti hann því yfir að hjónaband
þeirra Lopez væri ekki á dagskrá í nánustu framtíð. Með þessari yfir-
lýsingu vildi AfEleck kveða niður endalausar fréttir í fjöimiölum.
Annan daginn skýra fjölmiðlar vestra frá því að hjónabandiö sé yfir-
vofandi en hinn daginn er allt að fara til fjandans hjá parinu. Affleck
er yfir sig ástfanginn og Lopez lika. Þau eru hins vegar sammála um að
hjónaband sé ekki á dagskrá á næstu vikum eða mánuðum.
Nia Vardalos meö Gary Götzman, framleiöanda og lan Gomez,
eiginmanni sínum til hægri á myndinni.
Halar inn milljarðana
Gríska leikkonan
• Nia Vardalos heldur
áfram að græða á tá og
fingri á ódýru kvik-
myndinni sinni My
Big Fat Greek Wedd-
ing. Vardalos þótti
sýna mikið hugrekki
þegar hún ákvað að
gera myndina þrátt
fyrir að kostnaðurinn
væri í algjöru lág-
marki eða um 100
milljónir króna.
Vardalos fer með
aðalhlutverkið í
myndinni en hún
skrifaði einnig hand-
ritið. Hún bjóst í raun
ekki við mörgum
áhorfendum en stað-
reyndin er sú að fólk
hefúr flykkst á mynd-
ina og hefur hún nú
þehar skilað grisku
leikkonunni milljörð-
um. Og á dögunum
var hún tilnefnd til
Óskarsverðlaunanna
fyrir handritið.