Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Blaðsíða 14
14
IV agasín
- ->
Veiðiþáttur í DV-Magasíni:
Þríkrælcjur
Gull 530 kr. 10 stk.
Silfur 470 kr. 10 stk.
Svart 470 kr. 10 stk.
Tvíkrækjur
Gull 390 kr. 10 stk.
Silfur 370 kr. 10 stk.
Svart 370 kr. 10 stk.
K ALLT FYRIR
J VEIÐIMANNINN
Gott úrval of hnýtingarefni
Hnýtingarkrókar
Mörkin 6 • 108 Reykjavík • Sími (354) 568 7090 • Fax (354) 588 8122
Veiðimenn hafa oft staðið frammi
fyrir óvæntum uppákomum i veiði.
Það eru alltaf aö gerast skemmtileg-
ir lilutir sem fá mann til að staldra
við og hugsa málin.
Fyrir margt löngu var ég staddur
við litla laxveiðiá á Vesturlandi.
Komið var fram yfir verslunar-
mannahelgina og veiðivon því góð.
Reyndar voru aldrei miklar laxa-
göngur í þessa á en því sterkari
bleikjugöngur. Alltaf var þó von á
laxi og á þessum árum var það mik-
il viðbót viö bleikjuveiðina.
Við vorum komin upp í gljúfur
fjögur saman. Miðja vegu frá þeim
stað sem við hófum veiðarnar og
niður að veiðihúsi var fallegur
veiðistaður. Einn fallegasti veiði-
staður árinnar á efra svæðinu. Eftir
að hafa kastað flugum yfir hylinn í
nokkurn tíma varð einum veiði-
manninum þaö á aö beita maðki.
Skipti engum togum að vænn lax
gerði sig líklegan til að taka
maökinn. Ég fann að það var ekki
smáfiskur sem var að fikta við
maðkinn. Ég gaf mér góðan tíma en
eftir dágóða stund lyfti ég stönginni
og mér til mikillar ánægju var lax-
inn fastur.
Baráttan var nokkuð löng.
Spenntir veiðifélagarnir fylgdust
með. Þegar viðureignin hafði staðið
yfir í um tuttugu mínútur sáum við
fiskinn og hann var nálægt tíu
pundum. Slíkur fiskur var og er
stórlax á þessum slóðum. Þegar lax-
inn var að gefa sig og ég hugðist
renna honum mjúklega í fjöruborð-
ið geröust þau ósköp að tveir að-
stoðarmannanna við löndunina
duttu hver um annan þveran. Skipti
engum togum aö línan slitnaöi og
laxinn fór með öngulinn. Varð hon-
um svo mikið um þessi ósköp að við
sáum á eftir honum niður úr hyln-
um.
Mér var þetta mjög á móti skapi.
Það var allt í lagi að sjá á eftir fisk-
inum eftir skemmtilega baráttu en
^RPSTUJÖBt
Umsjón: Stefán Kristjánsson
ekki með öngulinn í sér.
Það var ekki margt sagt næstu
tíu mínútumar. Við fengum okkur
kaffi og sátum hnípin við ána. Loks
spratt ég á fætur og hvatti veiðifé-
lagana til að halda ferð okkar áfram
niöur gljúfrið.
Einn félagi minn gekk þá að ánni
tíma var hann farinn að narta í
maðkinn. Félaginn var furðu róleg-
ur og beið átekta. Eftir einhverjar
mínútur tók hann á stönginni og
fiskurinn var á.
Skemmst er frá því að segja að
baráttan var í styttra lagi. Eftir
nokkrar mínútur var laxinum land-
„Stuttur girnisspotti laföi út úr kjafti fisksins og í koki hans voru tvelr
maökaönglar hllö vlð hlið. Nokkuö sem ekkert okkar haföi séö áöur.“ Hér
rennir velöimaöur fyrir fisk í Ölfusá.
og nam staðar við næsta veiöistað
fyrir neðan þar sem laxinn hafði
tekið áður. Skyndilega gaf hann
mér merki tun að koma til sín. Jú,
það fór ekki á milli mála. í miðjum
hylnum, bak við stóran stein, lá
vænn lax. Var lítill ágreiningur um
þaö í okkar herbúðum að þar væri
kominn laxinn sem ég haíði misst
skömmu áður.
Veiðifélaginn náði í stöngina og
beitti maðki. Lét hann maökinn
koma rólega fram hjá steininum og
hélt honum þar. Laxinn sýndi lítinn
áhuga í fyrstu. I annarri eða þriðju
tilraun virtist sem hann væri ekki
alls kostar sáttur við veru maðksins
í nágrenni við sig. Hann hreyfði sig
örlítið til hliðar og eftir ekki langan
að og aðstoðarmennirnir, sem voru
í sviðsljósinu í fyrri baráttunni,
höfðu sig nú lítið í frammi. Þegar
laxinn var kominn á þurrt og búið
að rota blasti við fúrðuleg sjón.
Stuttur gimisspotti lafði út úr kjafti
fisksins og í koki hans vont tveir
maðkaönglar hlið við hlið. Nokkuð
sem ekkert okkar haföi séð áður.
Nú hefur maður oft heyrt talað
um aö lax sem sleppur einhverra
hluta vegna taki ekki hjá veiði-
mönnum fljótlega eftir frelsið. Og
kannski allra síst þegar hann er
með magagleyptan maðkinn í sér.
Ellefu punda hængurinn fyrir vest-
an hafði afsannað kenninguna.
skfámagasin.is
Önglarnir
hliö vib hliö
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
Lúxusjeppinn Cayenne frá Porsche. „Þessir bílar eru hreint og klárt
listaverk - rétt eins og öll mannanna verk eru raunar aö vissu leyti,“
segir Benedlkt Eyjólfsson. Magasín-myndir hari
Bilabúð Benna kynnir
Cayenne frá Porsche:
Listasafnfó viáeig-
andi umgjörd
„Safnið var viðeigandi umgjörð
utan um sýningtma, enda er nýi
lúxusjeppinn Cayenne frá Porsche
algjört listaverk," segir Benedikt
Eyjólfsson í Bílabúð Benna. t
Listasafni Reykjavíkur var fyrir
skemmstu kynnt hin nýja jeppa-
tegund en þeir sem gerst til
þekkja segja að þar sameinist í
einum og sama bílnum bestu eig-
inleikar jeppa og lúxusbfis. !
kaupbæti fái fólk svo alvörusport-
bíl. Porsche Cayenne verður boð-
inn í tveimur útfærslum, Cayenne
S og Cayenne Turbo. Að sögn
Benedikts Eyjólfssonar er Porsche
nú kominn í fremstu röð framleiö-
enda lúxusjeppa hvað varðar
tæknfiegar lausnir. Cayenne er
nýr bíll frá grunni, með vél sem er
340 eða 450 hestöfl.
Hreint og klárt listaverk
Benedikt segir sérfræðinga
framleiðandans fullyrða að aldrei
fyrr hafi jafhöflugur lúxusjeppi
með jafngóða aksturseiginleika
boðist. Hafi bUarnir fengið ein-
róma lof allra sérfræðinga, þar
með talinna íslenskra blaða-
manna sem fóru i reynsluakstur
suður á Spáni seint á sl. ári.
„Það voru víst einhverjir að
gera athugasemdir við að lista-
safnið í Grófmni væri orðið vett-
vangur fyrir bUasýningu. Mér
finnast slíkar athugasemdir varla
eiga rétt á sér, enda eru þessir bU-
ar hreint og klárt listaverk - rétt
eins og öU 'mannanna verk eru
raunar að vissu leyti,“ segir Bene-
dikt Eyjólfsson.
Takmarkað magn
Hann segir útiitið með sölu
þessara bUa vera gott. Árleg fram-
leiðsla hjá Porsche sé áætiuð 25
þúsund btiar en fyrirliggjandi
pantanir séu 92 þúsund sem svar-
ar tU rúmlega þriggja ára fram-
leiðslu. Þetta geri það að verkum
að hingað tti lands berist tak-
markaður fiöldi af þessum bUum -
og raunar færri en umboðið hér,
sem er BUabúð Benna, kjósi.
-sbs
Dáöst aö listaverkinu: Fjölmenni mætti á bílasýninguna sem var í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í Grófinni.
Sitja í skottinu: ína Björk Helgadóttir og Kristín Eva Sigurðardóttir.