Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Page 15
■4
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
15
M
agasm
Einstakar
konur
Fjölmenni sótti heim systumar Erlu og
Ástríði Gunnarsdætur í Austurbrún 2 í
Reykjavík þegar sú síðarnefnda hélt upp á 75
ára afmæli sitt á dögunum. Uppi á tólftu hæð í
blokkinni, þar sem systumar eiga fimm íbúðir
af sex, héldu þær hóf fyrir vini sína og vanda-
menn og voru gestir um hundrað talsins.
„Þetta var alveg stórkostlegur dagur og mikið
ævintýri. Við systurnar erum alveg uppi í
skýjunum, þar sem sólin skín,“ sagði afmælis-
bamið Ástríður í samtali við DV-Magasín.
Henni barst fiöldi góðra gjafa - en sömuleiðis
segir hún að sér hafi þótt mikils um verður sá
einstaki hlýhugur sem hún fann frá gestum.
Ómar með fjöldasöng
Rætt var við systurnar í DV-Magasín fyrir
tveimur vikum, þar sem fram kom að Ástríður
væri meðal landnema í blokkinni háu í Aust-
urbrún. Mættu í afmælið á sunnudaginn þeir
sem bjuggu með henni á hæðinni á frumbýl-
ingsárunum þar fyrir um fiörutíu árum.
Þeirra á meðal er Ómar Þ. Ragnarsson
fréttamaður, sem sagði gestum sögur frá þeim
tíma þegar hann bjó þama, þá tvítugur strák-
ur. Stjómaði hann fiöldasöng í afmælinu
Ástríði til heiðurs.
Góðir gestgjafar
Meðal annarra gesta má nefna fólk sem
Ástriður kynntist og starfaði með á löngum
ferli sínum í bandaríska sendiráðinu. Einnig
fólk úr frændgarði þeirra systranna norðan úr
Skagafirði, auk margra annarra. „Þessar syst-
ur era einstakar. Kjarkmiklar, duglegar og
skemmtilegar eins og afmælið bar með sér,“
sagði einn gesta þeirra, Sverrir Sigfússon,
löngum kenndur við Heklu hf.
„Systurnar, Ástríður og Erla, em góðir gest-
gjafar og það er ævinlega ánægjulegt að koma
til þeirra. Þær hafa frá mörgu að segja, enda
hafa þær ferðast mikið og margt reynt," sagði
annar afmælisgestur, Kristín Hjartar, ritari í
Seðlabankanum. -sbs
Fjölmenni í afmæli systranna í Austurbrún:
mmm
Wmmm
I
■- .
Uti á Lífinu
Mikið var gaman að því. Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður, Júlíus Vífill Ingvarsson forstjóri og Ástriður Gunnarsdóttír. Að baki Ómars
sést í Einar Kr. Guðfinnsson alþingismann.
■r
U ■
: *
JR
Vinkonur. Súsanna Svavarsdóttir og Erla til hægri. Að ofan til vinstri eru Sigríður
Þorvaldsdóttir leikkona, Erla Gunnarsdóttir og Maria Haraldsdóttlr sem lengi bjó
vestur í Bolungarvík.
'j
vinaranni. Þorvaldur Þorvaldsson borgararktitekt og Steinunn Jónsdóttir kona hans. Til hægri Mar-
grét Eria Guðmundsdóttir og Sigurður Þorsteinsson.
Vinafundur. Kristín Hjartar, einkaritari í Seðlabankanum, Ríkey Ríkarðsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Jón Eiríksson Drangeyjaijari í Fagranesi í Skagafirðl.
% A
m ■
Landnemar. Frá vinstri talið: Sigurður Gunnarsson, Omar Ragnarsson, Karl Guömundsson, Ástríöur
Gunnarsdóttir og Jóhann Pálsson en þau voru öll frumbyggjar á 12. hæð í Austurbrún 2. Næst kemur
Sigurður Gunnarsson, byggingameistari hússins fyrir 45 árum, og
lengst til hægri er Eria Gunnarsdóttir. Magasín-myndir GVA
Góðir gestlr. Hjónin Sverrir Sigfússon Heklubróðir og
Stefanía Davíðsdóttir með systrunum.