Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Qupperneq 16
4
16
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
JDV
M
agasm
Árinu eldri
Sverrir Her-
mannsson þing-
maður verður
73 ára 26. febrú-
ar. í systkina-
hópi í Ögurvík
ólst hann upp,
gekk mennta-
veginn og vann
sig úr litlum efnum til álna. Varð
þingmaður, ráöherra og bankastjóri
og síöast hrópandi í eyðimörk kvót-
ans sem formaður Frjálslynda
flokksins.
Andrés
Valdimarsson,
fyrrv. sýslumað-
ur, verður 66
ára 25. febrúar.
Hann hefur ver-
ið veraldlegt yf-
irvald Stranda-
manna, Snæfell-
inga og síöast Ámesinga. Nú hefur
hann vikið af velli og sinnir öðrum
störfum. Kannski ljóðagyðjunni,
enda náfrændi Davíðs frá
Fagraskógi.
Engilbert
Jensen tónlist-
armaður verður
62 ára 24. febrú-
ar. Á fyrri árum
var hann trymb-
ill í þeim hljóm-
sveitum sem
mestra vinsælda
nutu á Bítlaárunum - og rís nafn
Hljóma þar hæst. Seinni árin hefur
Engilbert verið fjarri heimsins
glaumi og einbeitt sér að fluguhnýt-
ingum.
Gudfinna Ey-
dal sálfræðing-
ur verður 57
ára 27. febrúar.
Hún hefur lengi
starfrækt sál-
fræðistofu í
Reykjavík og
ráðlagt þar
mörgum sem kunna ekki að fóta sig
í hinum hverfula og háskalega
heimi. Jafnframt hefur hún skrífað
bækur um þessi efni sem eru mörg-
um kærkomnar.
Albert Ey-
mundsson, bæj-
arstjóri á Homa-
firði, verður 54
ára 24. febrúar.
Hann er Hom-
firðingur í húð
og hár og hefur búið þar lengst af.
Hann hefur verið kennari og skóla-
stjóra Hafnarskóla en jafnframt mik-
ið sinnt félagsmálum á vegum
íþróttafélagsins Sindra og er vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Snorri Ósk-
arsson, safnað-
arhirðir og
kennari, verður
51 árs 26. febrú-
ar. Rætur hans
eru í Eyjum og
þar hefur hann
lengstum búið;
kennt við grunnskólann þar og í Bet-
el flutt hið heilaga orð. Fyrir fáum
árum flutti hann svo norður á Akur-
eyri og lætur þar sem annars staðar
að sér kveða og til sín taka.
Helga Soffía
Konráósdóttir
prestur verður
43 ára 23. febr-
úar. Hún er
brosmild og
blíöleg að sjá og
er ekki ofsögum
sagt að hún laði
kristilegar kenndir fram í hveijum
manni. Hún þjónar við Háteigs-
kirkju í Reykjavík og var um hríð
formaður Prestafélags íslands.
Valur Ingi-
mundarson
sagnfræðingur
verður 42 ára
27. febrúar.
Hann er einn
helsti fræðimað-
ur í sinni grein
við Háskóla ís-
lands en sem sagnaritari hefur hann
einbeitt sér að skrifum um ísland og
kalda stríðið. Hafa bækur hans raun-
ar æriega hreyft við þjóðinni hvað
varðar vitund um þau efni.
Baltasar
Kormákur leik-
ari verður 37
ára 27. febrúar.
Óhætt er að
segja að hann sé
meðal helstu
stórleikara
þjóðarinnar -
en af snilld hef-
ur hann túlkað hlutverk bæði á sviði
og í kvikmyndum. Mynd hans, Haf-
ið, sem sýnd var á hvíta tjaldinu á
síðasta ári, sýndi okkur líka svart á
hvítu mikla leikstjórahæfiieika
hans.
Nafn: Valdís Regína Gunnarsdóttir.
Aldur: Fertug og rúmlega það - því hætt
að telja. Er sporðdreki af fullum tilfinn-
ingaþunga, með ölium kostum og göllum.
Maki: Hef ekki séð hann enn þá. Á
Hrafn Jónsson sem er mitt líf og yndi, átta
ára stór og sterkur og svakalega blíður og
fallegur strákur.
Menntun og starf: Ég hef nú ekki enn
lokið því markmiði sem ég setti mér í sam-
bandi viö menntun. Eyddi óþarílega mikl-
um tima og árum í fjölmiðlanám sem mun
aldrei skila sér. Stefnan er á frekara nám,
þó ekki aftur í Ameriku heldur hér á landi.
Langar mest í Kennaraháskólann eða í
hjúkrunafræði í Háskólanum næsta haust.
Starfa sjálfstætt, fyrir utan að ég hef tekið
útvarpsþátt við og við, þó ég sé löngu hætt
í þeim bransa!
Bifreið: Volkswagen bjalla, keypti hann
í fyrra. Svartur og alltaf skítugur en
skemmtilegur bíll. Kaupi alltaf mína bOa
hjá Heklu sem er gamall vani.
Fallegasti maður sem þú hefur séð:
Ætli ég skipti þessu ekki á milli tveggja
leikara, annars vegar Viggos Mortensens
og hins vegar Vals Kilmers. Báðir eru hæfi-
lega „wild“, vel hærðir og með snyrti-
mennskuna í fyrirúmi. Er nær viss um að
ég myndi fara út að borða með báöum þess-
um mönnum - og myndi mjálma allt kvöld-
„Mínar frístundir miðast við þarfir átta ára drengs - ég tel það verð-
ugasta verkefni síðari ára,“ segir Valdís Gunnarsdóttir. Síðasti föstu-
dagur, Valentínusardagurinn, sem er 14. febrúar, er stundum nefndur
Valdísardagur, enda má segja að hún hafi innleitt hann hér á landi.
Eg myndi mjálma
allt kvöldiá
- segir Valdís Gunnarsdóttir
ið.
Helstu áhugamál: Minar frístundir miðast við þarfir
átta ára drengs; ég tel það verðugasta verkefni síðari ára.
Mottóið er að gera hann að góðum og gildum þjóðfélagsþegn
sem hefur fallega yfirsýn yfir lífiö og tilveruna.
Uppáhaldsmatur: Állt úr sjó, eins frumstætt og hugsast
getur og helst borðað með puttunum.
Uppáhaldsdrykkur: Á erfitt með að neita góðu rauðvíns-
glasi en vatn er auðvitað langbest.
Faliegasti staður á íslandi: ísland er allt fallegt, nema
Laugavegurinn.
Uppáhaldsstaður erlendis: New York í aliri sinni dýrð.
Bíð eftir að mér sé boðið - þangað hef ekki komið eftir að
turnamir féllu. Verð að fara að drífa mig, er komin með frá-
hvarfseinkenni. Elska borgina.
Fylgjandi eða andvig ríkisstjóminni: Davíð er minn
maður!
Hvaða þjóðþrifamáli á íslandi er brýnast að bæta úr:
Heiibrigðismálin em í molum. Myndi nú hrista vel upp þar
og huga að þeim sem em eldri og reyndari í þjóðfélaginu.
Fyrst og fremst þurfum við að læra kurteisi og að bera virð-
ingu fyrir gamla fólkinu okkar. Langar til að gráta þegar ég
hugsa um þau mál. Við ættum aö skammast okkar þar.
Hvaöa bók ertu með á náttborðinu: Margar. Nýr Blíð-
finnur eftir Þorvald Þorsteins, Harry Potter, Fegraðu líf þitt
eftir Victoriu Moran, Afródíta eftir Isabelle Allende og BO
eftb' Gísla Rúnar. Þarf ekki annað en opna hana, þá fer ég
að hlæja.
Eftirlætisrithöfundur: Isabelle Allende, að öllum öðrum
ólöstuðum. Hún hrífur mig ævinlega með sér á vit ævintýr-
anna - og þaö geta ekki margir!
Eftirlætistónlistarmaður: Allt of margir: Mark Knopler,
Björgvin Halldórsson, Ry Cooder og meira aö segja country-
kallar. Er alæta á góða tónlist.
Gera þegar ég er orðin stór: Hjúkrunarfræöingur eða
ljósmóðir.
Uppáhaldsíþróttafélag: Eitt sinn og ávallt Valsari. En
Stjaman sleppur af því að strákurinn minn æfir handbolta
með því félagi. Hann ætlar að verða atvinnumaður og sjá
um mömmu gömlu. Ef það klikkar ætlar hann að verða flug-
maður. Af erlendum liðum er allt sem tengist Manchester
United í dýrlingatölu.
Persónuleg markmið fyrir komandi mánuði: Ná úr mér
sleninu og fara að æfa aftur og núna í nýju Sporthúsi.
Tilgangur lífsins: Að takast á við verkefni líðandi stund-
ar af æðruleysi og taka nýjum degi fagnandi. -sbs