Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Side 17
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
17
Hestaþáttur í DV-Magassni:
HESTASPORTIÐ
Umsjón: Guömundur Guölaugsson - ek@ek.is
Askur segist vera
sáttur viö lífiJ
Umræðan um hestamennsku
snýst eðlilega að mestu leyti um
sjónarhorn hestamannsins. Þó hafa
verið skrifaðar góðar bækur um
heilsufar og eöli. Þar hefur veriö
gerð grein íyrir byggingarlagi hesta
og hvemig best er að ala þá upp og
umgangast. Það er langt í frá auð-
velt að ala hross svo vel fari og því
mikilvægt að fólk kynni sér það til
hlítar.
Mér vitanlega hefur aldrei verið
tekið viðtal við hest. Ég ákvað að
reyna þetta og notaöi til þess nýj-
ustu tækni, HDSL þráðlaust kerfi,
svokölluð Silly Horse box útgáfa frá
fyrirtækinu Just joking.
Fyrir valinu varð Askur, 10 vetra
klárhestur. Brúnn. Hann byijaði á
að segja okkur að hann heföi verið
tekinn á hús fyrir jól. Það þótti hon-
um óþarfi því að þá var svo gott veð-
ur og hann hafði haft það gott í vetr-
arfríinu. Honum finnst eðlilegra að
fá að vera úti þar til veðrið er orðið
verra svona eins og það er ofl í jan-
úar og febrúar. Einnig finnst hon-
um leiðinlegt að vera á húsi á með-
an sprengjuárásirnar em.
Annars viil hann helst fá að vera
bara I haganum en segist þó gera sér
grein fyrir því að það gangi ekki.
Félagsskapurinn í húsinu sé ágætur.
Ekkert stuð en allt í lagi. Því miður
fái þeir sjaldan að vera allir úti sam-
an. Og svo er einn í húsinu, grað-
hestur, sem þarf alltaf að vera einn.
Aðspurður segist hann ekki alltaf
skilja tilganginn hjá manninum sem
kemur alltaf til hans. Hann sé alltaf
að röfla upp í eyrað á sér en þó sé
gott þegar hann klóri sér með ein-
hverju skafti. Áður en þessi maður
tók við honum þegar hann var ung-
ur hafði hann oft verið hræddur.
Sérstaklega á brautinni þar sem
grindumar em. Honum hafl lika
þótt jámið sem sett er upp í hann
vont og það hafl meitt sig fyrst. Síð-
an hafi hann smám saman lært hvað
hann átti að gera til að meiða sig
ekki. Svo kom þessi maður og hann
gerði allt öömvísi fyrst. Stundum
vildi hann t.d. beygja í eina átt en
hallað sér í hina. Annaö slagið fór
hann skyndilega af mér á fullri ferð
en var þó ekki reiður því ég beið
alltaf eftir honum. Þetta hefur þó
allt lagast en ég skil ekki alltaf hvað
hann vill.
Stundum flnn ég til heldur Askur
áfram. Einu sinn var sett á mig sæti
sem meiddi mig. Það var vont en þá
kom maður og stakk mig og það lag-
aðist. Síðan finn ég stundum til í
tippinu. Annað slagið kemur kona í
slopp og tosar í tippið á mér. Það er
rosalega vont fyrst en síðan líöur
mér vel. Hún kemur alltaf einu
sinni á hústíma.
Aski finnst skemmtilegast á vorin
þegar maöurinn stoppar og leyfir
honum að bíta nýja grasið og þegar
hann er kominn í hagann og fær að
vera í friði með hinum hestunum.
Leiðinlegast fmnst honum þegar
maðurinn vill alltaf fara fram og til
baka um sömu brautina dag eftir
dag.
í dag segist hann vera sáttur við
lífið. Hann sé í stórri stíu og fái
alltaf að borða. Einnig líði honum
vel þó að það sé leiðinlegt að fara á
brautimar. Að lokum vildi hann
bæta því að honum finnst hundur-
inn ótrúlega vitlaus.
ek@ek.is
Þaö er langt í frá auövelt aö ala hross svo vel fari og því mikilvægt aö fólk kynnl sér þaö tll hlítar.
Hrímnir á opnunartilboði
Einn vandaðasti og
besti hnakkur á
markaðnum
Verð kr. 139.900
Opnunartilboð
kr. 99.900
YÍnTrajr
ístölt
BÆJARLIND 2 • KÓPAVOGI
SÍMI 555 1100
Gluggaö í góöa bók. Væntanlega eru það ekki síst ungir Islendingar af er-
lendu bergi brotnlr sem fagna bókinni um hvernig eigi aö fara af staö í ís-
lenskunámi. Magasín-myndir Siguröur Jökuli
Fólk geti bjargað sér í málinu
„Bókinni er afskaplega vel tekið og þeir sem hafa prufukeyrt hana við
kennslu eru mjög ánægðir," segir Ingibjörg Hafstað hjá Fjölmenningu ehf.
Fyrirtækið efndi til útgáfuhófs síðasta föstudag í Alþjóðahúsinu. Þar var
Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra afhent fyrsta eintakið af nýrri
kennslubók fyrir útlendinga. Af stað heitir bókin sem er fyrir fyrstu 50
kennslustundimar af 150, sem útlendingar þurfa að sækja í íslensku áður en
þeir öðlast ríkisborgararétt hér á landi. Fleiri bækur eru svo áformaðar i
kjölfarið.
Fjölmenning sérhæfir sig í ráðgjöf varðandi nýbúa og kennslu íslensku.
Eigendur eru Ingibjörg Hafstað og Bima Ambjömsdóttur, helstu sérfræð-
ingar landsins í málefnum nýbúa. „í þessari bók er mest áhersla lögð á tal-
málið og að fólk geti náð að bjarga sér í málinu," segir Ingibjörg.
Hún kveðst áætla að í dag búi á íslandi í kringum níu þúsund útlending-
ar sem ekki eru komnir með íslenskt ríkisfang. Þar séu á bilinu þrjú til fjög-
ur þúsund komin aö þeim tímapunkti að hefja íslenskunám svo þeir form-
lega geti öðlast réttindi og skyldur sem íslenskir borgarar.
„Hófið á fostudag var góður selskapur og menntamálaráðherrann okkar,
Tómas Ingi, er maður við alþýðuskap. Fyrir íslenskukennsluna og nýbúana
held ég að sé til góðs að hann er gamall tungumálakennari í Menntaskólan-
um á Akureyri," segir Ingibjörg, -sbs
Bera saman bækur. Ingibjörg Hafstað hjá Fjölmenningu, Guðrún Halldórs-
dóttlr, forstööumaöur Námsflokka Reykjavíkur, og Tómas Ingi Olrich
menntamálaráöherra.
HJOLABORÐ
FBCQm
MEB SKUFFUM
FAcoM-Plastbakkar
Öruggur staður fyrir
fyrir öll uerkfæri
FACOM verkfærin,
□g allt á
sínum stað!
það
sein
fagmaðurinn
notar!
Armúli 17, 108 Reykjavík
slmi: 533 1334 fax, 55B 0499