Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2003, Page 19
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2003
19
M
agasm
Syngjandi löggur á Broadway:
Hvað ætlar þú að gera
um helgina:
Spilast
eftir
eyranu
„Þaö er hluti af mínum lífsstíl og
starfi aö fylgjast meö veðurspánni
og það mun ég auðvitað gera um
helgina. Febrúar er tiðarfarsins
vegna alltaf annasamur hjá okkur
björgunarsveitarmönnum og við
þurfum alltaf að vera á vaktinni,"
segir Valgeir Elíasson, upplýsinga-
fulltrúi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar.
Hann segir síðustu daga hafa ver-
ið annasama hjá sér og björgunar-
sveitimar hafi þurft að sinna mörg-
um aðkallandi verkefnum. Um síð-
ustu helgi hafi verið hvassviðri í
Reykjavík, skip var hætt komið í
Grindavíkurhöfn og á þriðjudag var
allt á tjá og tundri austur á Seyðis-
firði. „Sjáifur var
ég í björgunarsveit
árum saman og er
því vanur að þurfa
að bregaðst við á
öllum tímum.
Sama gildir í nú-
verandi starfi
mínu þar sem mitt
er að miðla upplýs-
ingum um aðgerðir
á hverjum tíma.“
Valgeir vonast
þó til þess að helg-
in verði skapleg
hjá sér - og að
hann geti að
minnsta kosti ann-
an daginn átt góða
stund með konu og
börnum. „Stund-
um er gott að eiga
rólega stund
heima. Einnig höf-
um við alltaf gam-
an af ferðalögum
og útiveru. Fjöru-
ferðir nru alltaf
vinsælar hjá okk-
ur: Laugarnesið,
Grótta og Geld-
inganes. Annars er
komandi helgi ekki
mikið plönuð hjá
mér og allt verður
þetta að spilast eft-
ir eyranu." -sbs
„Hluti af mínum lífsstíl og starfi er að fylgjast með
veðurspánnl," seglr Valgeir Elíasson, upplýsingafull-
trúi Landsbjargar.
„Mér flnnst þessi tónllst sem er vinsælust
í dag ærið mlsjöfn, er að mlnnsta kosti
ekki hrifinn af rappinu," segir Björgvin Þ.
Valdimarsson.
Tónlistin í hlustunum:
Æskufjör í F-dúr
„Undanfarið hef ég lagt mig eftir því að hlusta á messur eftir
Josep Hayden. Sérstaklega hef ég verið að stúdera Missa Brevis í
F-dúr sem er messa sem við í Skagfirsku söngsveitinni hyggjumst
flytja á tónleikum i vor.
Þá messu samdi tónskáldið átján ára gamall og er hún full af
æskufjöri, fyrir utan að vera mjög falleg og melódísk," segir Björg-
vin Þ. Valdimarsson, tónlistarkennari og kórstjóri í Reykjavík.
Hann er faðir tveggja dætra og er sú yngri þeirra nú í fiðlunámi
við Listaháskóla íslands. Er hún núna meðal annars að æfa
konsert eftir Brahms - og á hann segist hann talsvert hlusta með
dóttur sinni. „Sjálfur lærði ég á píanó sem ungur maður - og því
er ég svolítið að kynnast flðlunni, meðtaka hana og gefa henni
meira rými í því sem ég hlusta á,“ segir Björgvin sem að öðru
leyti hlustar á flestar tegundir tónlistar.
Til dæmis popplög líðandi stundar með eldri dótturinni „... og á
móti hlustar hún á einhverja aðra tónlist með mér. Þetta eru eins
konar vöruskipti. Mér finnst þessi tónlist sem er vinsælust í dag
ærið misjöfn, er að minnsta kosti ekki hriflnn af rappinu."
Um íslenska dægurtónlist almennt segist Björgvin alltaf vera
hrifinn af söng Vilhjálms Vilhjálmssonar og lögum Gunnars Þórö-
arsonar sem sum hver megi flokka sem góðar tónsmíðar. Nefnir
hann í því sambandi meðal annars lagið Þitt fyrsta bros en það
ásamt fleiri sígildum dægurlögum notar Björgvin við kennslu pí-
anónemenda sinna. -sbs
Bækurnar á náttborbinu
Gott ab grípa
í Davíð
„Ég er að lesa Don Kíkóta sem mér fmnst mjög skemmtileg bók.
Ég las hana fyrir mörgum árum og er núna að lesa hana aftur,“
segir Ragnheiöur Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Hún
er íslenskufræðingur að mennt og tók við bæjarstjórastarfinu eft-
ir sigur sjálfstæðismanna í MosfeOsbæ í síðustu bæjarstjómar-
kosningum. Aðspurð segir hún bæjarstjórastarfið og bóklestur
fara vel saman og gott sé að geta gripiö í fleiri en eina bók í einu.
„Ég er líka með nýju bókina hans Davíðs Oddssonar, Stolið frá
höfundi stafrófsins. Þótt mér þyki sögumar nokkuð misjafnar
fmnst mér Davíð skemmtilegur stílisti og bókin góð. Ég hef líka
lesið fyrra smásagnasafnið hans, Nokkrir góðir dagar án Guðnýj-
ar, sem kom út fyrir fáum árum. Fannst það líka gott. Smásögu-
fox-mið virðist henta forsætisráðherranum vel, enda báðar bæk-
urnar skemmtileg lesning," segir Ragnheiður.
Hún segir gott að geta gripið í Davíð og lesið eina sögu og farið
svo yfir í hinar bækumar sem hún er að lesa. „Ég er líka að lesa
Mýrina eftir Amald Indriðason sem er mjög skemmtileg og spenn-
andi bók. Mér fmnst Arnaldur flottur penni en ég hef ekki lesið
fleiri bækur eftir hann. Þaö er gaman að lesa um atburði sem ger-
ast í umhverfi sem maður þekkir og ég mun örugglega lesa fleiri
bækur eftir hann,“ segir Ragnheiður. -HH
Ragnhelður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í
Mosfellsbæ, er að lesa Don Kíkóta og
finnst bókln skemmtileg.
Lögreglukórinn á góðri stundu. Löggubílar og gæsluþyrlan í baksýn.
ir i öndvegi
steinsson skógarbóndi, Hjálm-
ar Freysteinsson læknir og Sig-
hvatur Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsam-
virmustofnunar. Veislustjóri
verður Ólafur G. Einarsson,
fyirv. forseti Alþingis.
Menning og metnað-
ur
Að sögn Guðmundar Inga er
starf Lögreglukórs Reykjavík-
ur, sem verður sjötíu ára á
næsta ári, líflegt. Mót nor-
rænna lögreglukóra verður
haldið hér á landi að ári en þau
hafa verið haldin tii skipist á
Norðurlöndunum í um hálfa
öld. Hann segir kórinn vera
einu menningarstarfsemina
innan lögreglunnar - og
ánægjulegt þegar finna megi að
starfið sé að skila árangri.
Þannig sé stjóm Guðlaugs Vik-
torssonar metnaðarfull og kór-
inn standi öðrum kórnum fylli-
lega á sporði hvað varðar radd-
styk og róm. -sbs
„Það er einhver besta
afslöppun sem maður fær að
syngja í kór. Þá er líka eins
gott að vera ekki falskur, hvort
heldur er í söng eða samskipt-
um sínum við fólk, en út á það
gengur lögreglustaríið,“ segir
Guðmundur Ingi Ingason,
gjaldkeri Lögreglukórs Reykja-
víkur. Kórinn heldur skemmti-
og hagyrðingakvöld á Hótel ís-
landi nú á föstudagkvöldið.
Hefst það klukkan 19. Matur
byrjar kl. 20, skemmtidagskrá
tveimur stundum síðar og
dansleikur síðan á miðnætti.
Aðgangseyrir fyrir mat og
skemmtun eru 4.900 kr.
Þekktir hagyrðingar
Söngur 32 einkennisklæddra
lögreglumanna verður í önd-
vegi - og með þeim tekur tenór-
inn Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson nokkur lög. Þá koma
fram landsþekktir hagyrðingar,
þeir sr. Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur, Hákon Aðal-
SMÁAU§-
LÝSIN§AR
► www.dv.is
DV