Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Fréttir Forsætisraöherra heldur fast viö harðar ásakanir stnar á hendur Baugs- mönnum: a" >3! \ ’úl wmmi áriy . I i, ■ ■ ' m ..V;.. U0;"' Þetta var enginn hállkæpingup Ár ef ekki áratugir eru síðan viðlíka sprengju hefur verið varp- aö inn í íslensk stjórnmál og þeirri sem Davíð Oddsson forsæt- isráðherra varpaði í viðtali við Út- varpið í gærmorgun. Stjórnarfor- maður Baugs hefði borið sér þau tíðindi að forstjóri fyrirtækisins hefði vakið máls á því að hugsan- lega væri velvild Davíðs föl fyrir 300 milljónir króna. Viðbrögð Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar í gær voru misvísandi: fyrst sagðist hann aldrei hafa sagt þetta, ekki einu sinni í hálfkær- ingi, en síðan staðfesti hann orð Hreins Loftssonar, sem sagði að Jón Ásgeir hefði einmitt sagt þetta í háifkæringi. Davíð Oddsson leit hins vegar ekki svo á. Óumdeilt er að orðin voru látin falla. Kjami málsins er hvort þau hafi verið kæruleysislegt grín eða dauðans alvara. Raunverulegur vilji Davíð Oddsson segir að það sé óhugsandi að um grín hafi verið aö ræða. „Nei, ekki eins og þetta var kynnt og ekki eins og viðbrögðin voru hjá þeim sem var rætt við um þetta mál. Það var alls ekki svo. í mínum huga er það algjör- lega ótvírætt að þarna var verið að lýsa vilja sem lá fyrir. Ég tel þó - og leyfi mér að trúa því - að sá sem gerði mér grein fyrir þessu, hann hafi ekki verið að flytja tilboð um mútur með þessum hætti, því aö þó að hann tali núna af einhverjum ástæðum um að þetta hafi verið sagt í hálf- kæringi, þá gerði hann það ekki þarna heldur lýsti sömu niður- stöðu og ég: fordæmingu á hug- myndum af þessu tagi. Og hann sagði einmitt, að á því augnabliki [þegar vakið var máls á þessu; innsk. blm.] hefði hann ákveðið að segja af sér sem for- maður stjórnar Baugs, þó að það álit virðist hafa breyst þegar hann kom heim til sin því að hann sagði sig nokkrum dögum seinna úr einkavæðingarnefndinni með undarlegu orðalagi í minn garð sem ég átti erfitt með að skilja. Mér fannst það frekar vera skrifað fyrir einhvern markað sem hann var að vinna fyrir heldur en al- menn sjónarmið. Þannig að í mínum huga var verið að koma á framfæri - eða að minnsta kosti verið að kynna ná- kvæmlega - vilja sem væri fyrir hendi og að því er virtist peninga sem væru fýrir hendi eins og ekk- ert væri, og aðferðir sem eru öllu venjulegu fólki framandi." „Enginn stenst 300 milljónir11 Davíð hefur eftir Hreini að hann hafi sagt Jóni Ásgeiri að ekki þýddi að bera fé á forsætis- ráðherrann, en Jón Ásgeir hafi svarað að enginn maður á íslandi gæti staðist 300 milljónir króna. „Þá sagði ég eftir nokkra um- hugsun að maður hlyti að velta fyrir sér að maður sem væri tilbú- inn til þess að reyna að bera fé á forsætisráðherrann með þessum röksemdum, að það stæðist eng- inn svona upphæðir, hvað væri hann búinn að gera áður en að því kæmi og á hverja væri hann bú- inn að bera fé? Mér fannst minn fyrrum aðstoð- armaður taka undir þetta þegar hann lýsti því yfir að á þessu augnabliki hefði hann ákveðið að segja af sér sem formaður stjómar Baugs. Og eins og menn sjá af þessari lýsingu þá kom hálfkær- ingur ekkert inn í þessa mynd. Það er skýring sem er fundin eftir á,“ segir Davíð. Fyrsta tilraun? Fyrstu viðbrögð forsætisráð- herra við orðum Hreins bera með sér að hann velti fyrir sér hvort fleirum hefðu verið gerð álíka til- boð. „Maður hefur tilhneigingu til þess að hafa áhyggjur af því,“ svarar Davíð spurður um þetta. - Það þarf sterk bein til þess að neita 300 milijónum. „Ja, það sagði þessi maður við Hrein, að það gæti enginn gert á íslandi. 300 skattfrjálsar milljónir sem þú gætir haft sporlaust hvar sem þú vildir. Það hefði að vísu vafist fyrir mér að nefna reikn- inga og annað þess háttar því að ég kann ekki á kerfið.“ Meiðyrðamál Jón Ásgeir hefur lýst því yfir að hann ætli að höfða meiðyrðamál á hendur Davíð vegna ummæla hans. Þvi liggur beint við að spyrja hvort Davíð telji að um- mæli sín séu ærumeiðandi fyrir Jón Ásgeir. „Ég er að lýsa samtali við trún- aðarmann á hans vegum, sem ég hlusta á í vitna viðurvist, og ég ákveð að greina frá því eftir að Viðtal Ólafur Teitur Guðnason blaöamaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.