Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Ferðir JOV Di^ór Guðbjartsson ætlar í trra mánaða ferðalag um Evrópu lok sumars. og N-Afríku é | ‘ ."g ■\ m i ^ fW , ■ /J‘ - '5- /? tSÆ. 25.000 BwmBlpar á mótoHiiói Bensínstöð á leiðinni tll Zagora, Marokkó Hér er ekki hægt aö fá pylsu og kók, aöeins biátt 88 oktana bensín sem geymt er í 200 lítra ryöguöum tunnum. Eldsneytisskortur er daglegt brauö á þessum slóöum. í lok sumars ætlar Jakob Þór Guðbjartsson í fjög- urra mánaða ferðalag um Evrópu, V-Asíu og N-Afr- íku. Hann œtlar að ferðast um Noreg til Svíþjóðar og Danmerkur. Þaðan til Lit- háens, Hvíta-Rússlands, Úkraínu, Rúmeníu, Búlgaríu, Grikklands, Tyrklands, Sýrlands, Jórdaníu, Líbanon, Eg- yptalands, Libýu, Túnis, Alsírs og Ítalíu. Jakob seg- ist œtla að vera fjóra mánuði á ferðinni og að á þeim tíma leggi hann tuttugu og fimm þúsund kílómetra að baki. „Eg fékk þá flugu í höfuðið fyr- ir rúmu ári aö fara í langt ferðalag með það að markmiði að ferðast um Sahara-eyðimörkina,“ segir Jakob Þór Guðbjartsson, mótor- hjólakappi og ævintýramaður. Jakob var þá nýkominn úr mótor- hjólaferð um Marokkó þar sem hann hjólaði um Atlasfjöllin og vesturhluta Sahara. „Þegar ég hjólaði um Marokkó, haustið 2001, fékk ég nasaþefmn af eyðimerkurferðalögum á mótor- hjólum, Marokkó var dýrmætur skóli fyrir það sem koma skal.“ Jakob segir að þrátt fyrir að marg- ir félagar hans viti af áætluninni hafl enginn þeirra sýnt áhuga í verki. „Fjórir mánuðir eru langur tími frá fjölskyldu og vinum. Ég skil þá að vissu leyti og tekst því á við verkefnið einn. Það er alveg sérstök tilfmning að ferðast einn og ég lít á þessa ferð sem andlega og líkamlega hleðslu. Fólk skortir oft snertingu við sjálfið og veit ekki hvað það getur boðið sjálfu sér. Ég mun fljótlega komast að því hvað í mér býr. Það sem hóp- ar líta á sem sjálfsagðan hlut get- ur orðið að heljarinnar höfuöverk fyrir sólóista, til dæmis þaö að skilja við hjólið í vafasömu hverfi, bæta dekk, eða gista einn úti í svartri eyöimörkinni. í hóp ertu öruggari en ókosturinn við hópa er aftur á móti sá að þeir eru oft sjálfum sér nógir og þrífast á vemd gagnvart utanaðkomandi áreiti. Þetta verður til þess að hóp- ur kynnist heimamönnum síður en þeir sem ferðast einir og reynslan hefur kennt mér að 98% af því fólki sem ég hef hitt á ferða- lögum er heiðarlegt og gott fólk sem réttir fram hjálparhönd ef þess gerist þörf. Það er því nánast ekkert að óttast.“ Vandræði með vegabréfsáritanir Að sögn Jakobs hefur leiðarval- ið verið að taka á sig skýrari mynd á undanfömum mánuðum og gengur hann út frá því að frið- ur haldist fyrir botni Miðjarðar- hafs þannig að tækifæri fáist til að kynnast löndum eins og Líbanon, Sýrlandi, Jórdaníu og Egypta- landi. „Ef það brýst út stríð í írak gæti farið svo að ég þyrfti að fara beint til Noröur-Afríku frá Grikklandi, með viðkomu á Ítalíu. Pólitískt og efnahagslegt ástand í Norður Afr- íku og fyrir botni Miðjarðarhafs er stórbrotið og því mikilvægt að fylgjast vel með fréttum og frá- sögnum annarra ferðalanga áður en haldið er á þær slóðir. Alsír var til dæmis lengi lokað fyrir ferðamönnum og skæruliðar ógn- uðu þeim sem á annað borð hættu sér inn í landið. í dag er talið óhætt að ferðast í suðurhluta Al- sírs án teljandi vandræða. Helsta vandamálið í Alsír þessa stundina eru krakkar sem henda grjóti í ferðamenn." Jakob segir að stjórnvöld í Líb- íu hafi nýlega hert reglur vegna inngöngu í landið. „Til að fá vega- bréfsáritun þurfa að minnsta kosti fiórir einstaklingar að sækja um í einu og gildir einu hvort þeir koma inn í landið á sama tíma eða ekki. Þetta hefur valdið mér nokkrum vandræðum því ég á ekki séns að fá vegabréfsáritun einn og verð því að leita uppi ferðalanga í svipaðri aðstöðu og ég. Egyptar sjá einnig ofsjónum yfir sjálfstæðum ferðamönnum sem ferðast á eigin farartækjum. Þeir hreinlega kaffærra ferða- menn í pappírsvinnu og stimplafargani."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.