Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Fréttir 9 DV ég átta mig á því að sá aðili sem ég var að tala við leit ekki á þetta samtal sem trúnaðarsam- tal. Það er því ekki mitt að meta hvort sú frásögn er ærumeiðandi eða ekki,“ segir Davíð. Sár út í Hrein Það er kunnara en frá þurfi að segja að þeir Davíð og Hreinn Loftsson voru um árabil nánir samstarfsmenn. Davíð segist afar sár út í Hrein. „Þetta er maður sem ég hef frá fyrstu tíð viljað vel. Ég hef reynt að greiða götu hans og sýnt hon- um mikinn trúnað, bæði sem mínum nánasta aðstoðarmanni og síðan sem formanni einka- væðingarnefndar. Ég varði hann þar hvað sem á dundi. Ýmsir vildu leggja til hans á þeim tima, sumt af því vissi hann og sumt ekki, og ég varði hann alltaf í bak og' fyrir. Þannig að þetta er allt saman afskaplega mikil von- brigði og óskiljanlegt, því að enn þá vil ég trúa því að þetta sé góð- ur maður. Éinhvern timann verður hann að gefa mér ein- hverjar skýringar sem eru fram- bærilegar. Þær hafa ekki komið enn þá.“ - Éigið þið eitthvað vantalað? „Við eigum heilmikið vantal- að auðvitað því að þetta er óskiljanlegt. Það er í mínum huga alveg kristalklárt að hann tekur þátt í því að upp á mig séu bornar lygar.“ - í atlögu að þér? „Atlögu. Hann viðurkennir að hafa lesið yfir þessar greinar [fréttir Fréttablaðsins sl. laugar- dag] og forsendan fyrir allri lygaþvælunni þar er sú, að hann lýsir því yfir að ég hafi sagt eitt- hvað sem ég hef aldrei sagt.“ Þarna vísar Davíð til þess að Hreinn segir hann hafa minnst á „Jón Gerhard Sullenberger" á fundi þeirra í janúar í fyrra, en Davíö segist fyrst hafa heyrt minnst á Sullenberger eftir að sagt var frá kærumálum hans í fréttum löngu síðar. „Og síðan hefur komið á dag- inn að það sem hann undirbjó þessi ósannindi með - að hann hefði aldrei heyrt manninn nefndan né fyrirtæki hans - það hefur verið afhjúpað sem blekk- ing,“ segir Davíð og vísar meðal annars til umfjöllunar um Nor- dica í ársskýrslum Baugs og um- mæla Sullenbergers sjálfs. „Hann náttúrlega getur bjarg- að sér, sálu sinni og friði, með því bara að biðjast afsökunar og gefa einhverjar skýringar,“ segir Davíð. - Myndirðu taka hana til greina? „Já, að sjálfsögðu. í mínum huga er það þó þannig að þetta er óskiljanlegt. Algjörlega óskilj- anlegt.“ Hreinn háöur Baugi - Þú sagðir í sjónvarpsviðtali að Hreinn væri háður þessum mönnum. Hvað áttu við með því? „Hann er náttúrlega stjórnar- formaður í krafti atkvæða þeirra. Ég veit ekki til þess að hann eigi neitt í fyrirtækinu. Og hann hefur náttúrlega farið í alls konar viðskiptaævintýri meö þessum mönnum eins og menn þekkja. Ég tel - fyrst hann bind- ur trúnað sinn við þá með þess- um hætti, sem þeir launa nú ekki endilega - að þá geti ekki verið önnur skýring á því en að hann sé illilega háður þeim.“ - Fundur ykkar Hreins í Lundúnum í janúar í fyrra var nokkrum dögum eftir umræður á Alþingi þar sem þið Össur Skarphéðinsson deilduð báðir hart á Baug. Telur þú að sú um- ræða hafl verið tilefhi þess að Hreinn óskaði eftir fundi með þér? „Hann nefndi ekkert sérstakt tilefni, bað bara um að fá að hitta mig þarna úti og ræða mál- in. Ég taldi svo sem víst að það væri að hluta til um málefni Baugs en hann kom þarna auð- vitað sem trúnaðarvinur minn og fyrrum aðstoðarmaður, ekki sem útsendari þeirra feðga eins og hann virðist hafa talið sig vera. Hann naut minnar vináttu þarna á hótelinu og við borðuð- um saman sem gamlir vinir og ég hafði ekki það hugmyndaflug að hann liti frekar á sig sem út- sendara þeirra feðga í samtölum við mig til þess að fara að lepja til baka í þá eins og húsbændur sína frekar en að sýna mér trún- að. Það er mér mikið áfall." Frelsið misnotaö Davíð hefur lýst því að hann hafi átt bágt með að sofna eftir samtal þeirra Hreins í Lundún- um. Ástæðan fyrir því hve hon- um var brugðið er ekki síst sú, að hans sögn, að hann sé stoltur yfir því að hafa átt þátt í því að opna íslenskt viðskiptalíf, gefa mönnum færi og losa um reglur. „Ég hef verið afskaplega stolt- ur af þessu, þó að ég sé reyndar þeirrar gerðar að ég er ekki að- dáandi þess sem ég kalla guð- lausan kapítalisma sem sér ekk- ert nema græðgi. Mér finnst það jafnógeðfellt og kommúnisminn sem sér ekkert nema kúgun á einstaklingunum í þágu fjöld- ans. En ég trúi á heilbrigt við- skiptalíf og frelsi einstakling- anna. Og mér fannst blóðugt að þurfa að horfa upp á það að ein- hverjir merrn væru að nota það nýfengna frelsi, sem ég hafði átt þátt í að skapa, með þessum hætti. Og ég hafði það mjög á til- finningunni að þetta væru vinnubrögð sem menn teldu eðlileg og sjálfsögð og teldu að allir féllu fyrir. Þetta var mér mikið áfall og þess vegna svaf ég illa þessa nótt. Það kemur yfirleitt ekki fyrir mig, hvað sem á gengur í stjómmálunum. Einstaka sinn- um ef ég hef verið að spila bridds og tapað illa, þá hef ég átt erfitt með að sofna." 0 Þjálfunar og æfingarpunktar Það var fyrst árið 1993 að bandarísku hjartasamtökin (American Heart Association) töldu þjálfunarleysi til eins af megináhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Jákvæð áhrif reglubundinnar þjálfunar á hjarta- og æðakerfið birtist í mörgum myndum. Til að mynda hefur komið í Ijós þegar slagæðar skokkara eru athugaðar að æðar þeirra hafa meiri þangetu en æðar þeirra sem hafa tamið sér kyrrsetu. Þetta þýðir einfaldlega að æðarnar (sem eru vöðvavefir) eru betur þjálfaðar. Vísbendingar hníga í þá átt að reglubundin þolþjálfun, eins og rösk ganga, sé áhrifarík til að lækka LDL (leiðinlega) kólesterólið og hækka HDL (hjálplega) kólesterólið. Einnig virðist reglubundin þolþjálfun styrkja slag- og háræðar; leiða til breyttrar líkamssamsetningar með því að auka hlutfall grannra líkamsvefja á kostnað fituvefja; auka súrefnisflæði frá hjarta til vefja og draga þannig úr vinnuálagi hjartans; breyta hormónastarfsemi líkamans á þann veg að það lækkar blóðþrýsting. Þessar breytingar eru svo jákvæðar að sumir sérfræðingar eru á þeirri skoðun að þegar um er að ræða forvarnastarfsemi gegn hjarta- og æðasjúkdómum ætti áherslan frekar að vera lögð á líkamsþjálfun heldur en mataræði. Ef einstaklingur sem hefur þegar fengið hjarta- og æðasjúkdóm fer í meðferð, þar sem rík áhersla er lögð á reglubundna þjálfun, er jafnvel möguleiki á að snúa þróuninni við. Með reglubundinni þjálfun virðist sem möguleiki sé á uppbyggingu nýrra æða í stað þeirra sem hafa "dáið"en þærfá þá það hlutverk að næra hjartavöðvann. Þetta getur skýrt þann stórkostlega bata sem sumir hjartasjúklingar ná þegar þeir fara að stunda þjálfun reglubundið. Flest fagfólk er þó þeirrar skoðunar að samtenging þjálfunar og ákveðinna mataræðisþátta sé vænlegri til árangurs en ef aðeins annar þáttanna er tekinn fyrir. Matseðill dagsins Dagur 20 (sprengidagur) Morgunverður: Hrísmjólk Banani 1 dós 1 stk. Hádegisverður: Beygla m/pitsubragði Léttmjólk 1 stk. 1 glas Miðdegisverður: Appelsína Gulrætur 1 stk. 2 stk. Kvöldverður: Saltkjöt (mesta fitan skorin burtu) Baunasúpa Kartöflur Rófur Kál 200 g 2,5 dl 2 „eggstórar 1/2 stk. 100 g + Kvöldhressing: Epli 1 stk. íþróttamenn nota oft meira prótrn en þeir sem ekki þjálfa (fer þó eftir eðli og erfiði þjálfunar) en samt er engin ástæða til að rjúka upp til handa og fóta og ráðast í mikla neyslu á prótínríkum afurðum eða að fjárfesta í prótíndufti eða amínósýrum. Sumir íþróttamenn, ekki síst þeir sem stunda kraftíþróttir eins og lyftingar, vaxtarrækt og „fitness", trúa því að mikil neysla á prótínum og amínósýrum leiði til mikillar og hraðrar vöðvauppbyggingar. Það er ekki rétt enda fer stækkun og efling vöðva aðallega eftir þvf álagi sem við leggjum á þá en ekki eftir magni þeirra prótína sem við neytum. Þó er vert að geta þess að við mjög litla neyslu á kolvetnum neyðist líkaminn til að grípa til þess ráðs að umbreyta amínósýrum í glúkósa. En auðvitað á íþróttamaðurinn að bregðast við slíku með því að auka neyslu á kolvetnaríkum mat en ekki prótínríkum. Of mikil prótínneysla ásamt ónógri vökvadrykkju getur leitt til ofþornunar líkamans og farið illa með líffæri eins og nýrun. Til fróðleiks má geta þess að fyrir þá sem þjálfa ekki stíft er ráðlagður dagskammtur af prótínum 0,8 g fyrir hvert líkamskíló. En það merkir að 80 kg maður þarf á 64 g af prótínum að halda á dag til að ná ráðlögðum dagskammti. Ráðlögð neysla fyrir íþróttamenn er öllu hærri, eða á bilinu 1,0-1,7 g fyrir hvert líkamskíló. Meðalneysla íslenskra karlmanna á prótínum er vel yfir 100 g á dag. Hvort sem fólk æfir Iftt eða mikið ætti ekki að vera nein þörf á neyslu prótína í fæðubótarformi en dæmi um fæðuflokka, auðuga af prótínum, eru mjólkurmatur, fiskur, kjöt og baunir. Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur I HReynnc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.