Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003
11
DV
Ferðir
Einn á ferö
Það er alveg sérstök tilfinning aö feröast einn og ég lít á þessa ferö sem
andlega og líkamlega hleðslu.
Að sögn Jakobs tekur þó stein-
inn úr þegar sótt er um vegabréfs-
áritun til Hvíta-Rússlands og
Úkraínu. „Þar þarf að fyrirfram-
bóka allar gistinætur eða þekkja
heimamann sem sækir um visa
fyrir mann. Maður þarf einnig að
tilgreina hvenær komið er til
landsins og farið þaðan.“ Jakob
segist reyndar hafa heyrt að kerf-
inu sé stjórnað af mafiunni og
ákveðnar ferðaskrifstofur fái leyfi
til að fyrirframbóka þannig að
ferðamenn skipti aðeins við „val-
in“ hótel.
Hjólin hafa marga kosti
„í Austur-Evrópu ferðast marg-
ir um hlykkjótta fjaliavegi á götu-
hjólum, eða liðast um láglendið á
fjölskyldubílnum. Flestir sem fara
um Norður-Afríku ferðast á jepp-
um, þó að mótorhjólið hafi verið
að koma sterkt inn á undanforn-
um árum. í Sahara er sérstaklega
Erg Chebbi-sandaldan
í Atlas-fjöllunum
Jakob segir aö mun betra sé aö feröast
um á mótorhjóli en jeppa í Saharaeyöi-
mörkinni. „Nálægöin við umhverfiö er
mun meiri en þegar feröast er í bíl. Nær-
veran getur reyndar orðiö of mikil og yfir-
þyrmandi eins og í slæmum
sandstormi. “
horft til burðargetu farartækjanna
og jeppar því algengastir þó að
mótorhjólin fari hraðar yfir.“
Að sögn Jakobs er mun betra að
ferðast um á mótorhjóli í Sahara
en jeppa. „Vandamálið er bara
hvað hjólin hafa litla burðargetu.
Oft ferðast mótorhjól og jeppar því
saman í eyðimörkinni. Hjólin eru
notuð til að finna góðar leiðir
gegnum sandöldurnar en jepparn-
ir sjá um burðinn."
Jakob segir að kostirnir við að
feröast á mótorhjóli séu fjölmarg-
ir. „Nálægðin við umhverfið er til
dæmis mun meiri en þegar ferðast
er í bíl, nálægðin getur reyndar
orðið allt of mikil og yfirþyrmandi
eins og í slæmum sandstormi.
Hjólin hafa líka þann kost að
rekstrarkostnaður þeirra er lágur
miðað við bíl, hvort sem litið er til
viðgerða, tolla eða flutnings-
gjalda."
Tæki og búnaöur
„Reyndir ferðalangar ráðleggja
öllum sem fara um Sahara að ferð-
ast létt og tryggja sér áreiðanlegt
farartæki. Það hafa margir brennt
sig á því að fara með of þung hjól
út á sandinn og lent í miklu basli
með að stjórna þeim þar. Bilanir
eru ekki æskilegar í Sahara, því
engin er þjónustan, og það geta
liðið margir dagar þangað til
næsta farartæki fer hjá.“ Jakob
segist hafa valið Suzuki DR650SE
til fararinnar.
„Almennt er talaö um að eins
strokks, fjórgengismótorar séu
bestir í ferðalög í eyðimörkinni,
en þeir eru nokkuð léttari og
eyðslugrennri en tveggja strokka
mótorarnir. Venjuleg mótorhjól
eru ekki ætluð fyrir þau átök sem
fylgja langferðum í eyðimörk,
ekki einu sinni hjól sem eru sér-
staklega gerð fyrir langferðir, og
gangast flest hjól því undir ein-
hverjar breytingar."
Jakob segist ætla að setja álkist-
ur á hjólið og stækka tankinn
þannig að hjólið fari sex til sjö
hundruð kílómetra án þess að
þurfa að fylla á. Hann ætlar einnig
að setja staðsetningartæki á stýr-
ið, koma fyrir vatnsbrúsum, verk-
færum, varahlutum og ýmsu
fleira á hjólið.
„Vatn er mjög mikilvægur þátt-
ur í ferðalagi um Sahara. Yfir
vetrarmánuðina þarf að innbyrða
átta til tólf lítra af vatni á dag til
að halda vatnsbúskapnum í jafn-
vægi. Þetta gerir það að verkum
að í þriggja daga ferð í óbyggðum
Sahara, þar sem engar bensín-
stöðvar né brunnar er að finna,
þarf ég að bera rúmlega fjörutíu
lítra af bensíni og rúma þrjátíu
lítra af vatni, auk alls annars bún-
aðar.“
Jakob segir að oft sé vandratað
um óbyggðir Norður-Afriku og því
hafi legið beinast við að hafa staö-
setningartæki með. „Staðsetning-
artækin eru svo sem ekki nauð-
synleg á ferðalagi sem þessu en ör-
yggið sem fylgir því að hafa GPS
er svo mikið að það borgar sig
ekki að sleppa því. Tækið gerir
það að verkum að mistök í leiðar-
vali verða smávægileg og sparar
þannig tíma, eldsneyti og vatn.“
Fjallgöngur og hellaferðir
„Ég tók snemma þá ákvörðun
að halda mig fjarri öllum stór-
borgum, söfnum, kirkjum og
köstulum í ferðinni og einbeita
mér frekar að göngu- og hellaferð-
um. Það er óopinbert markmið
ferðarinnar að klífa alla hæstu
tinda þeirra landa sem ég fer um
og fljótt á litið ætti það að takast.
Það getur þó átt eftir að breytast
vegna veðurs og annara hindrana
sem verða á veginum." Jakob hef-
ur stundað hellamennsku í nokk-
ur ár og þykkir því tilvalið að
leita uppi hellamenn í þeim lönd-
um sem hann heimsækir og fá þá
til að fylgja sér um heimahagana.
„Sum hellakerfm í Líbanon og
Líbíu eru víst fagurlega skreytt og
hafa verið rannsóknarefni hella-
og fornleifafræðinga í fleiri ára-
tugi.“
Jakob heldur úti heimasíðu þar
sem hægt er að lesa um undirbún-
ing ferðarinnar og þar veröur
hægt að fylgjast með ferðalaginu
eftir að hann leggur af stað. Slóð-
in er www.simnet.is/geokobbi.
Utan við Quarzazate í Marokkó
Borgin er miðstöö feröalanga sem stefna til High-Atlas- og Jebel Sarhro-fjall-
garöanna. Kvikmyndaver hafa hreiöraö um sig í borginni.
Todra-gflið í Marokkó
ÞegarJakob fór þarna um voru miklar vegaframkvæmdir í gilinu og ekki er
langt aö bíöa þangaö til allt gilið, tugir kílómetra, veröur oröiö malbikað.
Heimasíður fyrir
mótorhjólamenn
www.horlzonsunlimited.com
www.sahara-overland.com
www.adventure-motorcycling.com/
www.advrider.com/
http://webmaster10.com/ldr/lndex.html
www.whitehorsepress.com/ - Bækur fyrir
mótorhjólafélk.
www.cooikarim.freeuk.com/ - Kallm er kúl
hjólamaður.
www.globeriders.com/ - Heimasíða manns
sem hjólaðl um holminn í tíu ór.
www.jupitalla.com/ - Ted Simons er elnn
af Irumkvöðlum langlerða a mótorhjóli og
er að lara i annað sinn í kringum hnöttinn.
www.calle.com/world/ - Velur sem birtlr
kort og getur upp staðsetningar
um allan heim.
FerOast úi* sófanum
Ekkert er skemmtilegra en að
ferðast, hvort sem það er innanlands
eða utan. Ferðalög opna hugann,
víkka sjóndeildarhringinn og gera
ferðalanginn umburðarlyndari gagn-
vart menningu og lífsháttum ólíkum
sínum eigin.
Helsti þröskuldur þess að fólk
ferðist meira en það gerir er sá hvað
ferðalög eru tímafrek og geta verið
dýr. Startgjaldið er yfirleitt dýrast
en eftir það fer kostnaður eftir
áfangastað.
Ferðast í huganum
Þeir sem ekki hafa tima, heilsu né
fjárhagslegt bolmagn til að leggjast í
ferðalög, eins og sagt var i gamla
daga, en langar samt til að kynnast
menningiu framandi þjóða eiga þess
kost að lesa ferðabækur. Með lestri
góðra ferðabóka er hægt að ferðast í
huganum til fjarlægra slóða og
kynnast sögu, menningu og lífi fólks
allt frá suður- til norðurpóls.
Góðir ferðasöguhöfundar á borð
við Paul Theroyx, Tahir Shar, Vitali
Vitaliev, Roy Lancaster, Colin
Thubon og ýmsir fleiri hafa ein-
stakan hæfileika til að lýsa um-
hverfmu þannig að það lifhar
fyrir augum lesandans. Þegar
best lætur heyrir lesandinn
skarkala borgarinnar, söng
fuglanna, dregur í sig anda
menningarinnar og finnur
óþef holræsanna eða angan
blómanna.
Heilinn í skottinu
Driving Mr. Albert. A
Trip Across America with Einstein’s
Brain eftir Michael Patemiti er að
stofni til ferðasaga sem fjallar um
ökuferð tveggja manna þvert yfir
Bandaríkin til að skila bamabami
Einsteins heila snillingsins. Eldri
maðurinn í ferðalaginu sá um krufn-
ingu Einsteins á sínum tíma og stal
heilanum sem hann hefúr geymt í
fonnalíni frá því karlinn féll frá.
í bókinni er að finna skemmtilega
og oft fyndna samantekt um líf Ein-
steins og sagt frá áráttu
manna að safna lík-
amshlutum eða líf-
færum úr frægu fólki.
Lítið púður fer í að
lýsa landslagi eða lifii-
aðarháttum fólks á
þeim stöðum sem ferið
er um. Höfundi tekst þó
ágætlega upp þegar hann
lýsir heimsókn í Aldin-
garðinn Eden sem er eft-
irgerð biblíusögunnar,
gerð úr steinsteypu.
Driving Mr. Albert. A Trip Across
America with Einstein’s Brain, fæst
í bókabúð Máls og menningar og
kostar 1.495 krónur.
Bílanmst
Bestir fyrir bílinn þinn
S Kerti og þurrkublöö
s Viftureimar og kveikjuhlutir
s Rafgeymar og pústkerfi
Ehnaust
’sími 535 9000
www.bilanaust.is
Borgartúni. ReykjavíK. : Hrismýri. Se.foss?
Bíldshöfða. Reyk;avík. Í Dalbraut. Akureyr
Siðumúla Reykjavik. j Grófinni. Keha-* ••v.
Smiðjuvegi, Kopavogi. Lyngási Egusstoðurr
Dalshraun. Hafnarfíröí. Álaugarvegi Hornafirð;