Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2003, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 Skoðun DV Fjárhagsvandi KA KA og Þór á Akueyri Gengust undir aö reka starfsemi sína hallalaust. Geir Hólmarsson skrifar: Þann 3.10. 2001 gerði Akureyr- arbær samning við KA til að leysa fjárhagsvanda félagsins. Samkvæmt honum kaupir Akur- eyrarbær að fullu íþróttahús þeirra, fyrir um 95 milljónir króna. Síðan gerir bærinn rekstr- arsamning við KA um að bærinn borgi félaginu rúmar 13 milljón kr. á ári, næstu fimm árin, fyrir að reka íþróttahúsið. Allar tekjur sem af húsinu koma, s.s. af æf- ingaleigu, húsaleigu, auglýsing- um, veitingasölu og öllu öðru sem reksturinn gæti gefiö af sér, að undanskildu gjaldi Lundarskóla fyrir leikfimiaðstöðu, renna til viðbótar til KA. „Hér er ólíku saman að jafna; tekjum af heilu íþróttahúsi annars vegar og búningsaðstöðu hins vegar. Bæði félögin gang- ast svo undir að reka starfsemi sína halla- laust. Gerist það ekki verður þeim refsað. Þeg- ar ég las þessa samninga fannst mér að hér væri vitlaust gefið. “ Sama dag var undirritaður samningur við Þór til að leysa fjárhagsvanda félagsins. Sam- kvæmt honum kaupir Akureyrar- bær búningsaðstöðuna í kjallara félagsheimilisins Hamars fyrir um 33 milljónir króna. Síðan ger- ir bærinn samning við Þór um reksturinn og greiðir samkvæmt honum rúmlega eina milljón króna á ári næstu 5 árin. Allar hugsanlegar tekjur af búningsað- stöðunni renna til Þórs, hverjar sem þær gætu nú orðið. Kvennalist? - Gaman eöa ofbeldisfullt? Ofbeldi gegn konum Gísli Kristjánsson skrifar: Það er sannarlega kominn tími til að fjalla um ofbeldi gegn konum á íslandi. Nefnd hefur oft verið skipuð af minna tilefni en því að koma í veg fyrir ofbeldi af þessu tagi. Það furðar mig hins vegar að konur hér á landi, ekki síst þær sem framarlega eru í umræðu um þessi mál, skuli ekki fordæma allt það ofbeldi sem felst í því þegar leikhúsin hér freistast til að færa upp leikverk þar sem konur koma ýmist fram naktar eða fækka fötum og láta öllum illum látum með líkama sinn til að þóknast sýningargestum. Þetta er ekkert annað en of- beldi gegn konum, þegar allt kemur til alls. - Einnig mætti taka fyrir sýningar ríkisfjöl- miðilsins Sjónvarps á ofbeldi sem konur eru beittar í hinum ýmsu þáttum sem þar eru sýndir. - Ég segi einfaldlega: Lítum okkur nær í ofbeldinu gegn konum. Hér er ólíku saman að jafna; tekjum af heilu íþróttahúsi ann- ars vegar og búningsaðstöðu hins vegar. Bæði félögin gangast svo undir að reka starfsemi sína hallalaust. Gerist það ekki verður þeim refsað. Þegar ég las þessa samninga fannst mér að hér væri vitlaust gefið. í skýringum í samningi KA seg- ir: „Með þessum rekstrarstyrk er Akureyrarbær að kaupa þjónustu vegna æfinga og keppni deilda Knattspyrnufélags Akureyrar. Ak- ureyrarbær kaupir með samningi þessum 65 tíma á viku vegna handknattleiks, knattspyrnu og blaks í 34 vikur á ári og 17 tíma í júdósal í 34 vikur á ári.“ í samningi Þórs segir: „Með þessum rekstrarstyrk er ekki ver- ið að kaupa þjónustu heldur standa undir kostnaði við rekstur eigna Akureyrarbæjar eftir upp- Freyr skrifar: Langar mig að byrja á að þakka DV fyrir oft og tíðum góða og vit- ræna umræðu um skattamál. í blaðinu þriðjud. 25. febrúar lýstu einhverjir hagfræðingar því fjálg- lega yfir að ekki mætti lækka skatta á uppgangstímum. „Þvætt- ingur,“ sagði H.H.G. réttilega. Skattar sem sveiflujöfnunartæki í höndum stjórnmálamanna eru ekki annað en ríkið í líki bam- fóstru sem ofverndar börn sín. Sem einstaklingar verðum við öll að læra að búa í haginn og taka sveiflum í okkar persónulega gengi. Að ætla ríkinu það hlut- verk getur eflaust verið skamm- tímalausn, en er varla gott til frambúðar. Aðalástæður þess að ég skrifa þessar línur eru þó vonbrigði mín með staðnaðar og lítt frumlegar hugmyndir Framsóknarflokksins í skattamálum. Þeir nefndu ekki einu orði neysluskattana, hverra lækkun kæmi óumdeilanlega öll- um mjög til góða. Svo minntust þeir hvergi á áhugaverðar hug- myndir sem fram komu á síðum DV í haust um flatan 17% tekju- skatt. - Þrátt fyrir að fram hafi komið að það myndi ekki skerða kjör hinna lægst launuðu og sennilega heldur ekki skerða tekj- ur ríkisins vegna veltuaukningar- innar sem yrði. Það sem myndi hins vegar ger- ast er að þeir mörgu íslendingar sem eru til í að vinna mikið til að koma undir sig fótunum gætu það á löglegan hátt. Að sama skapi kaup eigna." Mér fannst augljóst að hlutur Þórs væri jafnaður með einhverjum hætti. Mér datt því í hug að forvitnast um þá styrki sem félögin hafa þegið undanfar- in tvö kjörtímabil. Ég ákvað að spyrja bæjarstjór- ann. - Hvað hafði bærinn lagt mikið fé til félaganna tveggja síð- ustu tvö kjörtímabil? Hann vísaði erindinu til íþrótta- og tóm- stundafulltrúa sem svaraði mér því til að sér væri bæði ljúft og skylt að svara. Síðan komu nokkrar línur í tölvupósti sem svöruðu engu. Ég ítrekaði beiðni mína, vildi fá rökstutt svar sem ég gæti sannreynt hvort væri sannleikanum samkvæmt. Þá barst mér svar í umslagi, það var frá lögfræðingi bæjarins. Hún tjáði mér að samkvæmt stjórnsýslulögum væri hver styrkur sérstakt stjórnsýslumál „Þeim er vorkunn sem álykta sem svo að á ís- landi séu einungis vinstriflokkar, þar af tveir jafnstórir, eins og staðan er í dag.“ yrði atvinnurekendum ekki eins dýrt að umbuna framúrskarandi starfsmönnum með hærri laun- um. Aðgerðin ynni þannig gegn meðalmennsku og yki framleiðni einnig á þann hátt. Falleg og gegn- sæ hugmynd, vel til þess fallin að einfalda kerfið. En, ónei, Framsóknarflokkur- inn vill endilega viðhalda hinu vinnuletjandi og skattsvikahvetj- andi persónuafsláttarkerfi. Og vissulega koma menn sér undan því að greiða skatt, það veit ég af kynnum mínum af byggingar- og þyrfti ég að leggja inn sérstakt erindi fyrir hvern styrk, þ.e. þeg- ar ég væri búinn að finna það út að hann hefði verið veittur. Mér skildist að samkvæmt sömu lög- um gætu bæjarstjómendur tekið þetta saman og veitt mér þessar upplýsingar en þeir ætluðu sér ekki að gera það. Ég skrifaði íþrótta- og tóm- stundafulltrúa aftur og helming- aði niður umfang erindis míns. Hann svaraði og vísaði i fyrr- nefnt svar bæjarlögmanns. - Þeir gætu veitt mér þessar upplýsing- ar en ætluðu ekki að gera það. Það veit ekki á gott þegar sá sem spurður er hagar sér eins og sakamaður, svarar ekki nema með lögmann sinn viðstaddan eða lætur lögmanninn tala fyrir sig. - Nú skora ég á bæjarstjóra að beita sér fyrir því að upplýsingar um styrkina verði lagðar fram. bransanum (mál sem einnig var komið inn á í DV sl. þriðjudag) Ég held því reyndar fram fullum fetum að þetta sé eðlilegt og sjálfsagt við núverandi aðstæður þótt óhjá- kvæmilega grafi það undan virð- ingu manna fyrir lögunum. Fjörutíu prósenta tekjuskattur er bara ekki hóflegur, sama hvernig á er litið. Vissulega var það áhugavert sem fram kom í máli formanns Framsóknarflokksins að skattpró- sentan hefði farið stöðugt hækk- andi frá því núverandi kerfi var tekið upp. Að hann vilji nú af rausnarskap sínum skila þessari hækkun til baka er of lítið og of seint. Þeim er vorkunn sem álykta sem svo að á íslandi séu einungis vinstriflokkar, þar af tveir jafnstór- ir, eins og staðan er í dag. Er ein- hver von á því að einhver þeirra sjái ljósið í skattamálum svo að taki því fyrir venjulegt vinnandi fólk að mæta á kjörstað í vor? Vonbrigði vegna skattamálanna Til þess að vinnandi fólk mæti á kjörstað verður eitthvert Ijós að sjást í skattamálunum. Óskar Jónsson skrifar: „Nú er kominn tími til að ræða Evrópumál á hag- nýtan hátt“. Hver skyldi nú segja þetta? Jú, Kolfinna Bald- vinsdóttir sem auglýsti ráðstefnu ráðgjafafyrirtæk- isins „EUphoria" í Reykjavík. Markmiðið? Jú, að veita íslending- um innsýn í Evrópusambandið. En hvaða fyrirtæki er þetta „EUphoria" sem Kolfinna í Brussel stendur fyrir? Hefði ekki verið fróðlegra að fræða okkur íslend- inga um þetta fyrirtæki, t.d. um það hverjir standa á bak við það og hverjir borga svona ráðstefnu, heldur en draga fjöður yfir það með orðskrúði um „fyrirlesara", sem ég hef grun um að séu „fimmtu deildar-sendimenn" ESB? Það vekur furðu margra hve marg- ir afkomendur þekktra krata og venslamenn starfa hjá Brussel- bákninu. Þögn Morgunblaðsins Ingibjórg Árnadóttir skrifar: Mér finnst Mogginn okkar gamli verða orðinn rýr í roðinu á mánu- dögum. Leit í hann í morgun (3. mars) og þar var ekki um auðugan garð að gresja í fréttum ef frá er talið uppgjör á skuldbindingum nokkurra opinberra stofnana við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Mbl. hefur heldur ekki tekið upp umræðuna um Baugsmálið sem verið hefur aðalfréttaefni helgar- innar í fjölmiðlunum öllum, öðrum en Mogganum. Mér finnst Mbl. líka forðist að „taka á“ málum sem segja má, jú, að séu viðkvæm á ýmsan hatt. En blaðið ætti þó að geta greint frá þeim Jonas aftur á fenð Kristinn Guójðnsson skrifar: Ég er einn þeirra sem vafra á Intemetinu, sér- staklega til að skoða innlendar síður af mismun- andi tagi. Innherj- ar á Visir.is koma ,,. {®nas t.d. oft með Kristjansson. punkta sem verða að fréttaefni síðar. Þeir eru þó orð- ljótir margir hverjir og sumir ekki skrifandi. Margir halda úti sínum einkapistlum og skín þá oft í gegn áhugmál þeirra og innræti. Á ein- um þeirra er t.d. Jónas Kristjáns- son fyrrv. DV-ritstjóri. Hann fer mikinn gegn Bandaríkjunum í hverjum pistlinum á fætur öðrum. Virðist vera bólusettur gegn sann- gjarnri umfjöllun um það volduga ríki og ráðamönnum þess. Svo tek- ur DV stundum kafla úr þessum pistlum Jónasar og birtir í um- mæladálki blaðsins. Mér finnst það ofrausn hjá DV. Sigurbjörg Ólafsdóttir skrifar: Ég get ekki hjá því komist að kvarta opinberlega yfir dagskrá Sjónvarpsins yfirleitt. En sl. sunnu- dagskvöld var dagskráin slík að ég lét af því verða að senda þessar lín- ur. Á aðaldagskrártíma fyrir okkur sem heima sitjum getur Sjónvarpið ekki boðið okkur upp á heimilda- þátt um rokkhljómsveit, síðan framhaldsmyndaflokk um vagg og veltu-dansinn, og síðast franska kynferðisglæpamynd af sóðalegasta taginu. - Er þarna engin stjóm? Skammast menntamálaráðherra sín ekki fyrir að vera yfir slíkri stofn- un sem Sjónvarpið er? Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang. Kolfinna Baldvinsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.