Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
Fréttir
Vinna við Vifilsstaðaspítala stöðvuð
- meðan beðið er heimildar nefndar um opinberar framkvæmdir til verksins
DV-MYND E.ÓL.
Niöurrif á Vífilsstööum
Mikiö hefur veriö rifiö af innviðum og innréttingum úr gamta Vífilsstaðaspítalanum, eins og sjá má á myndinni, sem
tekin var þegar Hagerup ísaksen, umsjónarmaöur hans, sýndi DV bygginguna í gær. Vinnan iiggur nú niöri meöan
beöiö er heimildar til framkvæmda.
Vinna við fyrrum Vífilsstaða-
spítala hefur verið stöðvuð meðan
beðið er frekari upplýsinga um
áætlaðan kostnað. Nú þegar er
ljóst að hann verður að minnsta
kosti hundrað milljónum meiri
heldur gert var ráð fyrir í upphafi.
Þessi mikla aukning stafar af því
að rafmagns- og vatnslagnir og
ýmsar aðrar lagnir reyndust í lé-
legu ástandi þegar búið var að rífa
innréttingarnar úr húsinu. Fram-
kvæmdir við það eru því í bið
meðan beðið er heimildar sam-
starfsnefndar um opinberar fram-
kvæmdir til verksins, en nefndin
starfar á vegum fjármálaráðuneyt-
isins.
Fyrirhugað er að setja upp
hjúkrunarheimili með 50 plássum
á Vífilsstöðum, eins og áður hefur
komið fram. Húðsjúkdómadeildin,
síðasta deildin sem þar var til
húsa, hefur verið flutt í Kópavog.
Viðræður hafa staðið yfir milli
heilbrigðisráðuneytisins og Hrafn-
istu um rekstur hins síðarnefnda
á hjúkrunarheimilinu.
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneyt-
isstjóri í heilbrigðisráöuneytinu,
sagði við DV að upphaflega hefði
verið gert ráð fyrir framkvæmd-
um við Vífilsstaði upp á 130 millj-
ónir króna. Þegar farið hefði verið
að rífa innan úr húsinu og ástand
lagna hefði komið í ljós hefðu eft-
irlitsaðilar, þ.e. rafmagnseftirlit,
vinnueftirlit ríkisins og eldvarna-
eftirlit gert kröfu um að búnaður-
inn myndi uppfylla gildandi skil-
yrði. Samstarfsnefnd um opinber-
ar framkvæmdir, sem veitir end-
anlega heimild um fjárveitingu til
verksins, heföi þá viljað frá frek-
ari upplýsingar frá áætlunaraðil-
um um fyrirhugaðan kostnað áður
en haldið yrði áfram. Ný kostnað-
aráætlun næmi 245 milljónum
króna.
„Það hafði verið rætt um að
undirbúa húsið undir fram-
kvæmd,“ sagði Davíð, „þ.e. að rífa
innan úr því og gera það tilbúið
undir útboðsverk. Ráðherra og
ráðuneytið ákváðu að setja þessa
framkvæmd af stað, því ráðuneyt-
ið taldi nánast formsatriði að fá
leyfi hjá nefndinni. Beiðni hennar
um útskýringar og áætlanir komu
því nokkuð á óvart.
Nefnd á vegum ríkisstjórnar-
innar hafði lagt til að húsið yrði
tekið undir þessa starfsemi. Síðan
var gerð áætlun og þess vegna
töldu menn nánast formsatriði að
fá leyfi nefndarinnar, eins og áður
sagði. Menn höfðu talið að um það
væri samkomulag að það fjár-
magn fengist. Síðan óskaði sam-
starfsnefndin eftir nánari upplýs-
ingum um málið. Því frestaði
ráðuneytið í samráði við Fram-
kvæmdasýslu ríksins vinnu við
rif innan úr húsinu nú fyrir helgi,
þar til endanleg ákvörðun lægi
fyrir. Umræðan stóð um hvort
nota ætti húsið til bráðabirgða eða
byggja það upp til lengri tíma.“
Davíð sagði menn nokkuð sam-
mála um að framkvæmdin við Víf-
ilsstaði væri ódýrari heldur en að
byggja nýtt hjúkrunarheimili.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem lægju fyrir væru allar líkur á
að leyflð fengist á næstu dögum.
-JSS
Gabb í nudd
BNuddstofan
Relax í Duggu-
vogi, sem DV
greindi frá að
yrði með opið
hús í gær, var
aldrei opnuð.
Raunar var hún
aldrei til, né
Ástþór hinn öflugi eig-
Bergdal. andi hennar,
Ástþór Bergdal.
DV brá þarna á leik með lesend-
um í tilefni af 1. apríl sem var í
gær, svo sem alþjóð veit. Ekki er
vitað hver „aðsókn“ var í Duggu-
voginum, en hins vegar hafði fólk
á orði, sem hafði samband við
blaðið til að grennslast nánar fyr-
ir um nuddstofuna, að greinilega
væri komin mikil samkeppni á
þessum markaði ef menn væru
farnir að bjóða nakið kísilnudd.
En það er ekki svo vel, eða
þannig. -JSS
Aökomugöng viö Kárahnjúkavirkjun:
ÍAV á undan áætlun
Starfsmenn íslenskra aðalverk-
taka (ÍAV) sprengdu aðfaranótt
miðvikudags síðasta áfanga að-
komuganga við Kárahnjúka og
nálgast nú óðum verklok sem
samkvæmt samningi eiga að vera
eigi síðar en 15. apríl nk. Til að
byrja með miðaði verkinu nokkru
hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir
en síðari hluti verksins hefur
gengið mjög vel og hafa tafirnar
verið unnar upp og ríflega það.
Starfsmenn verktakafyrirtækis-
ins Arnarfells vinna að því að
gera sneiðing niður í gljúfrið og
það verk er óðum að taka á sig
mynd. Verklok samkvæmt samn-
ingi eru 10. apríl nk. og útlit er
fyrir að sú tímaáætlun standist,
þrátt fyrir að umfang verkefnis-
ins hafi aukist frá því það hófst.
Aðkomugöngin eru frá munna
á vesturbakka Jökulsár á Dal,
neðan við væntanlega stíflu í
Hafrahvammagljúfrum. Þau eru
um 6 metra há og 6 metra breið,
yfir 700 metra löng með allt að
13,5% halla inn undir stífluna.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
hefja gangagerðina á þessu ári en
verkinu var flýtt til að tryggja að
tímaáætlun virkjunarfram-
kvæmdanna stæðist ef samningar
tækjust á annað borð í ársbyrjun
2003 um álver og virkjun á Aust-
urlandi. Aðkomugöngin flýta fyr-
ir því að ítalska verktakafyrir-
tækið Impregilo geti haflst handa
við að gera jarðgöng undir stíflu-
stæðið nú í apríl. -GG
Uppgangur
Þaö er bæöi uppgangur og mikill
gangur eystra þessa dagana. Hér er
sprengt fyrir aörennslisgöngum.
Stuttar fréttir
Mínus og Laxness
íslenska hljóm-1
sveitin Mínus mun
á þjóðhátíðardaginn
í sumar, að sögn
Mbl., gefa út plötu
sem hefur fengið
nafnið Halldór Lax-
ness. Með þessu I
segir sveitin að verið sé að votta
skáldinu virðingu.
Kínverjar sækja um hæli
Fjórir Kínverjar um tvítugt
hafa sótt um pólitískt hæli hér á
landi. Þeir segja sig í hættu snúi
þeir aftur heim til Kína. Fólkið er
talið tengjast manni sem nú situr
í gæsluvarðhaldi, grunaður um
mansal.
Fátæk börn vanrækt
Tólf sinnum líklegra er að fátæk
börn verði fyrir ofbeldi en önnur
börn og enn líklegra að þau séu
vanrækt. Of algengt er að böm
séu skilin eftir ein heima segir
lektor í félagsráðgjöf við RÚV.
Álitlegt til olíuleitar
Orkustofnun telur að svæði ís-
lendinga við Jan Mayen sé álitlegt
til olíuborana. Sérfræðingur stofn-
unarinnar bendir hins vegar 'á að
mikilvægt sé að menn nálgist mál-
ið með raunsæi og án hugarfars
gullgrafaraæðis.
Stórt vopnasmygl
Tollverðir fundur 54 fjaður-
hnífa, þrjá lásboga og örvar með
oddi í gámi flutningaskips frá
Taílandi sem kom til landsins á
mánudag. Þetta er eitt stærsta
vopnasmygl sem upp hefur komist
hér á landi.
Óbreytt bensín
Olíufélögin þrjú hafa enga
ákvörðun tekið um breytingar á
bensínverði um þessi mánaðamót.
Þú hefur unniö!
Þaö er ekki ónýtt aö lenda inn í
myndhringnum á síöum DV en
blaöiö mun á næstu mánuöum birta
af og til myndir sem þessar sem
gieöja munu lesendur. Þessi unga
stúlka sem var á leik Grindavíkur og
Tindastóls í gærkvöid hefur ekki
mikiö fyrir því aö vinna 14 tomma
sjónvarp frá Sjónvarpsmiöstööinni
og þrigga mánaöa áskrift aö DV.
Hún er beöin aö vitja vinninganna í
DV-húsinu, Skaftahlíö 24, 105
Reykjavík.
Til hamingju!
Formúlu-braut fyrir-
huguö á Reykjanesi
Fyrirhugað er að leggja aksturs-
braut, Formúlu-braut, við Svarts-
engi á Reykjanesi. Ólafur Guð-
mundsson, sem hefur dómararétt-
indi í Formúlu-keppni, segir að
menn séu hrifnastir af nágrenni
Svartsengis til þessarar starfsemi,
en það sé þó ekki ákveðið. Málið
hefur verið kynnt í bæjarstjóm
Reykjanesbæjar og fengið góðar
viðtökur.
„Ég á frekar von á því að braut-
in verði byggð í áfóngum ef af
verður. Ástæða þessa áhuga á
braut hérlendis er að hægt er að
hafa hana upphitaða og stjóma hit-
anum í malbikinu með háhitagufu.
Þama verður fyrst og fremst um
dekkjaprófun að ræða hjá þeim fyr-
irtækjum fyrst og fremst sem fram-
leiða dekk undir Formúlu-bíla af
hæsta gæðaflokki. Þessi braut yrði
alveg kjörin fyrir bílakynningar,
keppnishald og almenna öku-
kennslu og þannig yrði nýting
hennar einnig mun betri. Þessi
braut yrði vafalaust vinsæl fyrir
bílaprófanir, þá þyrfti ekki að vera
með þær í umferðinni, sem og til
þjálfunar fyrir lögreglumenn og
aðra sem þurfa að komast hratt
leiðar sinnar. Yfirborð hennar yrði
hægt að frysta eða bleyta eftir þörf-
um auk hitastýringar. Um svona
braut hefur verið rætt í 40 ár, jafn-
vel lengur.
Aksturskennslubraut í Gufunesi
yrði ekki óþörf, hún er mun minni
og kæmi að fullum notum, og er
löngu tímabær því hún mundi
draga úr slysum og tjóni í umferð-
inni,“ segir Ólafur Guðmundsson.
-GG
Heimsmarkaðsverðið er í athugun
en miklar sveiflur hafa verið á því
undanfarið.
Hætta við Kínaferð
Úrval-Útsýn og VISA hafa hætt
viö fyrirhugaða ferð til Shanghai í
Kína vegna lungnabólgufaraldurs
þar. Farþegar geta fengið ferðina
endurgreidda, ellegar komst í aðra
Kínaferð sem sett hefur verið á
dagskrá í haust.