Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 9 r>V_____________________Fréttir Móöir Þorleifs segir ástand sonar síns enn mjög slæmt: DpenMuriim nær aldrei fiflum bata Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir árið 2003 Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðborga Færeyja, Grænlands og íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli bæjanna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta. í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði. Skriflegri umsókn skal beint til: „Það er allt annað að sjá strák- inn í dag en t.d. fyrir ári en hann á samt enn um mjög sárt að binda,“ segir Kristín Þorleifsdótt- ir, móðir Þorleifs. Hún hefur verið búsett í Danmörku frá árinu 1994 í bænum Hanstholm norðarlega á Jótlandi og þar býr hún nú ásamt veikum syni sínum. „Krakkarnir hérna í hverfinu, sem áður léku við hann, vilja ekk- ert til hans þekkja og hann hefur þurft að skipta um skóla vegna eineltis. Honum var betur tekið í nýja skólanum en hann verður samt ennþá fyrir einhverju að- kasti." Þorleifur gengur nú í skóla í heimabæ ömmu sinnar og afa en hann eyðir miklum tíma með þeim þegar hann er ekki í skólan- um. „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir okkur bæði og foreldrar mín- ir hafa verið okkur mikil stoð og stytta en þau búa héma í næsta bæ þar sem Þorleifur gengur nú í skóla. Hann er svo mikið hjá þeim þegar hann er ekki í skólanum og þar skemmtir hann sér vel,“ segir Kristín. Hún hefur síðustu vikumar ver- ið ásamt lögfræðingi sinum að reyna að fá bætur fyrir son sinn en án árangurs. Hún ætlar samt að halda baráttunni ótrauð áfram. „Við fáum ekkert þar sem lækn- arnir eru ekki sagðir hafa gert nein mistök þegar þeir meðhöndl- uðu hann. En hann varð samt lífs- hættulega veikur eftir að hann var lagður inn á sjúkrahús, það veikur að hann mun aldrei ná full- um bata. Hann lá náttúrlega inni á sjúkrahúsi mánuðum saman og það þurfti að fjarlægja 60% af húð- inni á honum vegna útbrotanna sem hann fékk. Sjónin í honum er líka verulega löskuð þannig að hann þolir illa birtu og getur ekki verið úti á sólríkum dögum. En að vísu eigum við von á því að hitta sérfræðinga í Kaupmannahöfn nú i lok mánaðarins. Þeir geta von- andi lagað sjónina í honum að ein- hverju leyti en hann þarf að fá sér- stök gleraugu til þess að geta séð eitthvað," segir Kristín. Þorieifur þurfti að liggja mánuðum saman á sjúkrahúsi. Hann var upphaflega iagóur inn út af hálsbólgu en gekk út blindur á ööru auga. Danmörk Hanstholm Álaborg Kaupmannahöfn Tveir sjúkdómar koma helst til greina - segir Báröur Sigurgeirsson sérfræöingur í húösjúkdómum „Það eru helst tveir sjúkdómar sem koma til greina, toxic ep- idermal necrolyses eða Stevens - Johnson syndrome,“ sagði Bárður Sigurgeirsson sérfræðingur í húð- sjúkdómum um þann sjúkdóm sem Þorleifur Kristínarson barð- ist við af völdum ofnæmis. Bárður sagði að báðir sjúkdóm- arnir, einkum sá fyrrnefndi, gætu haft í för með sér eins og greini- lega væri lýst i frásögn DV í dag, að menn misstu stóran hluta af húðinni. Læknismeðferðin væri nánast eins og við brunasjúklinga. „Báðir þessir sjúkdómar geta farið í augun og valdið örmyndun í augum, sem geta valdið örum og blindu ef sjúkdómurinn gengur mjög langt,“ sagði Bárður. „Það virðist vera, að þarna hafi verið um að ræða annan hvorn þessara sjúkdóma. Þegar maður er búinn að missa svona mikið af húðinni. þá opnar það möguleika fyrir alls konar aðra fylgikvilla. Önnur líf- færi geta bilað og sýkingar og fleira komist að. Læknirinn Báröur segir aö meöferö viö sjúkdómnum sem hrjáir Þorleif sé ekki ósvipuð því sem þekkist viö brunasárum. Báðir þessir sjúkdómar geta komið af panódíli, þó sjaldgæft sé,“ sagði Báður enn fremur. „Við þekkjum þá báða og sjáum Steven Johnson ekki ósjaldan hér á ís- landi af völdum krampalyfja. Lykillinn að meðferðinni er að hætta með orsakavaldinn, þ.e. að gefa lyfið. Það er hugsanlegt að mjög snemma í ferlinu, einkum varðandi Steven Johnson syndrome, sé hægt að nota stera- lyf inntöku í háum skömmtum. En þegar sjúkdómurinn er langt genginn er greinilega ekki hægt að gera það. Meðferðin fer fyrst og fremst eftir því hver einkennin eru og oft er gefin stuðningsmeðferð, nánast eins og hrunameðferð. Bólgueyð- andi lyf og vökvameðferð eru mjög mikilvæg." Bárður sagði að húðlæknar sæju mikið af vandamálum hér á landi vegna ofnæmis gegn lyljum, svo og náttúrulyfium, bætiefnum og öðru slíku. Til frekari upplýs- inga gæti fólk farið inn á heima- síðu www.cutis.is og leitað fróð- leiks þar. -JSS Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar b.t. Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar Ráðhúsi Reykjavíkur 101 Reykjavík Umsóknir berist eigi síðar en 5. maí nk. og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Æskilegt er að umsókn fylgi þýðing á dönsku. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. (354) 563 2000. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júni nk. Reykjavík, 31. mars 2003 Borgarstjórinn í Reykjavík ÞARFASTI ÞJÓNNINN! KRfiKKfiVÍTfiMÍN Elísa Gunnarsdóttir, 080999 JakobJakobsson, 250999 Sindri PÓII Sigurðsson, 281295 BrynjólfurJ. Gunnarsson, 020197 Eva María Jóhannsdóttir, 211291 Lilja Ýr Víglundsdóttir, 170294 Bryndís Skarphéðinsdóttir, 130991 Sigurður Sjndri Magnússon, 170494 Siqfrí&ur Ólafsdóttir, 171294 Þora Lind Halldórsdóttir, 271196 Krakkaklubbur DV og Krakkavítamm óska vinningshöfum til hamingju. Krakkaklúbbur DV óskar vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar vinsamlegast nólgist vinningana í þjónustuver DV, Skaftahlíð 24, fyrir 2. maí. Vinningar til vinningshafa úti ó landi verða sendir. Kveðja. TÍgpi og Kittý - 1Ce*kk£'úbb“r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.