Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 16
16 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 DV REUTERSMYND Hræddir Borgarbúar í Nassiriya eru hræddir við Saddam og menn hans. Ibúar Nassiriya þora ekkiaðgera uppreisn írakar frá borginni Nassiriya í suðurhluta íraks segja að flestir íbúanna þar séu andvígir Saddam Hussein forseta en þori ekki að rísa upp gegn honum þar sem þeir hafi slæma slæma reynslu af því frá árinu 1991. Þá hvöttu bandamenn eftir Persaflóastríðiö íbúa sunnanverðs íraks að rísa upp en sátu svo aðgerðalausir hjá þegar hermenn Saddams hörðu uppreisnina miskunnarlaust nið- ur. „Þeir vilja aðeins losna við stjórnina. Þeim er alveg sama hver gerir það, Banaríkjamenn, Bretar eða aðrir. En þeir eiga bágt með að trúa því að Banda- ríkjamenn muni ljúka verkinu," sagði 21 árs gamall borgarbúi. Fjöldi íbúa Nassiriya sem blaðamenn hafa rætt við segir að fámennur hópur liðsmanna Sadd- ams haldi enn uppi vörnum. Lungnabolguveiran breiðist enn út Tveir Kanadamenn til viðbótar lét- ust í gær úr svokallaðri Hong Kong- flensu sem breiðst hefur hratt út víða um heim á síðustu vikum. Þar með eru sex Kanadamenn látnir úr þess- ari skæðu veirusýkingu sem þykir svipa til lungnabólgu og eru það flest dauðfóll í einu landi utan Asíu. Veiran hefur þegar dregið um sex- tíu manns í heiminum til dauða og vitað er um átján hundruð smittil- felli, flest í Kina og Hong Kong. í Hong Kong var tilkynnt um 75 ný tilfelli í gær og er tala þeirra sem vitað er að tekið hafi veikina þá komin í 685 en þar af eru sextán látn- ir. I einni og sömu íbúðablokkinni í Kowlonn-hverfi var tilkynnt um 200 smit og var blokkin sett í sóttkví. Drykkjumenn í Bagdad eiga bágt þessa daga Áhugamenn um áfengisdrykkju eiga bágt í írösku höfuðborginni Bagdad um þessar mundir. Svo óskemmtilega vill nefnilega til að allar helstu áfengisverslanir borg- arinnar eru í næsta nágrenni við eina af forsetahöllum Saddams Husseins og þess vegna í stór- hættu í loftárásunum. Búðirnar þar hafa líka verið lokaðar í hálf- an mánuð. Annars staðar í borginni hafa áfengisverslanir verið opnar endrum og sinnum og þar hefur veröið á guðaveigunum rokið upp úr öllu valdi. UPPBOÐ Eftirtaldar bifreiöir og ökutæki verða boðin upp við lögreglu- stöðina á Húsavík fimmtudag- inn 10. apríl 2003 kl. 14.00: AR-478 G4036 KZ-783 LL-693 ML-246 OL-691 SII-550 TE-560 UG-500 UJ-543 ÞD798 Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK Blefu úr sömu fjölskyldu féllu í árás á bæinn Hilla Að minnsta kosti ellefu manns úr sömu fjölskyldunni, aðallega börn, létu lífið í gær þegar orrustuvélar bandamanna gerðu flugskeytaárás á íbúðabyggð í bænum Hilla í mið- hluta íraks um 80 kílómetra suður af höfuðborginni Bagdad. Að sögn bæjaryfirvalda í Hilla lét- ust 33 óbreyttir borgarar í árásinni, sem gerð var snemma i gærmorgun, en auk þess slösuðust meira en 300 manns. Að sögn talsmanns bandaríska hersins á svæðinu er málið í rann- sókn en enn þá engar vísbendingar komnar fram um að bandamenn beri ábyrgð á árásinni. Þetta er annað atvikið á tveimur dögum þar sem böm og konur verða fyrir árásum en í fyrradag létu sjö böm og konur lifið þegar bandarísk- ir hermenn gerðu skotárás á bifreið við eftirlitsstöð í nágrenni ná- grannabæjarins Najaf. Að sögn talsmanna bandaríska Látnir syrgðir í Hilla Að sögn bæjaryfírvalda í Hilla létust 33 óbreyttir borgarar í árásinni í gærmorgun, en auk þess slösuðust meira en 300 manns. hersins er það atvik einnig í rann- sókn, en fyrstu viðbrögð banda- riskra stjómvalda voru að réttlæta árásina og kenna írökum um vegna ótta hermanna bandamanna við frekari sjálfsmorðsárásir sem írak- ar hafa hótað. Þá var óvopnaður bílstjóri skot- inn til bana í bU sínum og farþegi særður lífshættulega þegar banda- rískir hermenn hófu skothríð á bif- reið þeirra við eftirlitsstöð suður af Bagdad í gær. Saeed al-Sahaf, upplýsingamála- ráðherra íraks, flutti í gær yfirlýs- ingu, sem sögð var frá Saddam for- seta, en þar hvatti hann íraka tU þátttöku i heUögu stríði gegn inn- rásarliðinu. „Það er skylda ykkar að berjast gegn Ulmennunum og þeir sem faUa í heUögu stríði munu njóta heiðurs- ins í himnaríki. Við munum sigra. Það er vUji guðs,“ sagði í yfirlýsing- unni. REUTERSMYND Námsmenn í Sydney mótmæla Andstæöingur stríðsins í Irak tímdi friöarboðskap fyrir munninn á sér þegar hann tók þátt í mótmælaaögerðum hundr- aða námsmanna í Sydney í Ástralíu í morgun. Mikill fjöldi lögregluþjóna sló hring um Ráðhústorg borgarinnar til að koma í veg fyrir að mótmælendur gætu gengiö um miöborgina. Gangan hafði verið lýst ólögleg. Sérsveitir björguðu 19 ára stríðs- fanga úr klúm íraka í skjóli myrkurs Sérsveitir úr bandaríska hem- um björguðu i nótt 19 ára gamalli stúlku, óbreyttum hermanni, sem hafðí veriö fangi íraka í tíu daga. Þá endurheimtu sérsveitarmenn- irnir einnig lík tveggja banda- rískra hermanna í árásinni á sjúkrahús í borginni Nassiriya þar sem harðir bardagar hafa geis- að að undanfomu. Hermaðurinn sem bjargað var í áhlaupinu heitir Jessica Lynch og er frá bænum Palestine í Vestur- Virginíu. Hún var aö sögn brotin á báðum fótum og annar hand- leggur hennar var einnig brotin. Hún var tekin tU fanga eftir að sveit hennar var veitt fyrirsát þann 23. mars. Fjölskylda Jessicu fagnaöi frels- un hennar í gærkvöld með vinum sínum heima í Palestine. REUTERSMYND Grelnt frá björgun Hershöfðinginn Vincent Brooks segir frá björgun hinnar 19 ára gömlu Jessicu Lynch úr klóm íraka í nótt. „Við erum svo spennt," sagði Pam Nicolais, frænka Jessicu, í símaviðtali við Reuters. Heimildarmenn innan hersins sögðu að sérsveitarmennirnir hefðu beitt írakana blekkingum þegar þeir réðust til atlögu við sjúkrahúsiö þar sem Jessica lá. „Landgönguliðarnir sendu fjölda manna með skriðdreka og brynvarða bUa til árása á skot- mörk í miðborginni og til að ná undir sig mikilvægri brú yfir Efrat-fljót á sama tíma og lagt var til atlögu gegn sjúkrahúsinu," sagði heimildarmaður innan bandaríska hersins í nótt. Jessica Lynch var ein fimmtán hermanna sem lýstir höfðu verið týndir, felldir eða særðir þegar herdeild þeirra tók vitlausa beygju og varð fyrir árás íraka. Powell kominn til Tyrklands Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Tyrk- lands þar sem hann ætlar að reyna að fá stjórn- völd til að lofa að senda ekki her- menn inn á Kúrdasvæðin í norð- anverðu írak af ótta við að það grafi undan stríðsrekstrinum. Brú yfir Tígrís tekin Bandarískir hermenn náðu undir sig í morgun mikilvægri brú yfir ána Tígris í írak og auð- veldar það þúsundum hermanna að halda tU Bagdad. Rólegt á suðurvígstöðvum Breski herinn sagði að rólegt hefði verið á vígstöðvunum í sunnanverðu írak í nótt. Myers sendir tóninn Richard Myers, yfirmaður bandaríska herráðsins, veittist í gær að þeim sem hafa gagnrýnt hernaðaráætlanir Bandaríkja- manna í írak og sagt þá hafa sent aUt of fáa hermenn. Paul Watson týndur Ekki hefur enn tekist að birta hvalavininum Paul Watson dóm sem hann hlaut í Færeyjum fyrir tæpum þremur árum þar sem hann finnst ekki. Rætt er um að leita aðstoðar Interpol. Matarpakki betri en enginn Per Stig Moller, utanríkisráðherra Danmerkur, segir að betra sé að fá matarpakka úr hendi hermanns en engan matar- pakka. Þannig svarar hann áhyggjum margra yfir því að bandarískir hermenn skuli vera látnir dreifa neyðaraðstoð til íraksra borgara. Skip með hveiti á leiðinni Skip er á leiðinni með ástralskt hveiti tU Kúveits og á að koma því landleiðina tU íraks. Búist er við skipinu um helgina. Tareq flziz sigurviss Tareq Aziz, að- stoðarforsætisráð- herra íraks, sagð- ist í gær vera viss um að írakar myndu fara með sigur af hólmi í stríðinu við inn- rásarherina með því að koma í veg fyrir að þeir næðu yfirlýstum markmiöum. Blaðamenn komnir í leitirnar Hópur fréttamanna sem hurfu frá hóteli í Bagdad hefur nú kom- ið fram í Jórdaníu, eftir vikudvöl í fangelsum Saddams. Sádi-arabar fá kaldar kveðjur Taha Yassin Ramadan, varafor- seti íraks, sagði utanríkisráð- herra Sádi-Arabíu að fara til and- skotans eftir aö sá hafði ítrekað hvatt Saddam tU að láta af völd- um tU að þyrma írak.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.