Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 Menning__________________________________________________________________________________________________________________________X>V Umsjón: Silja Aðalsteínsdóttir silja@dv.is Ein glœsilegasta myndlist- arsýningin í London um þess- ar mundir er á verkum þýska málarans (og myndhöggar- ans) Max Beckmann (1884-1950) í Jjórtán sölum Tate Modern-safnsins á suður- bakka Themsár. Rauöa þráö- inn í sýningunni mynda fáein- ar sterkar sjálfsmyndir; þar af hefur sú elsta, Sjálfsmynd meö rauóan klút frá 1917, var- anlegust áhrif á skoöandann. Þegar blaðamaður DV veif- aði blaðamannaskírteini sínu uppi á fjórðu hæðinni í Tate Modern, geysistóru orkustöð- inni sem breytt var í listasafn fyrir fáeinum árum, brosti vörðurinn elskulega og sagð- ist fagna jwí sérstaklega að fá gesti frá Islandi. „Ég er nefni- lega að lesa svo rosalega skemmtilega skáldsögu eftir Halldór Laxness," sagði hann. „Sjálfstætt fólk?“ spurði blaðamaður. „Nei, ég hef lesið hana og hún er ágæt, en þessi er betri - hún heitir Brekkukotsann- áll,“ sagði ungi maðurinn og fór svo undireins að lýsa ijálglega muninum á þessum tveim meginverkum Nóbels- skáldsins. Það var nokkuð glögg greining. Málaði Titanic Sean Rainbird, aðalsýning- arstjóri Tate Modern, setur sýninguna á verkum Max Beckmann upp í samvinnu við The Museum of Modern Art í New York og Musée Ge- orges Pompidou í París. Þessi miklu alþjóðlegu söfn eiga Max Beckmann: Sjálfsmynd í smóking (1927) Þrungin lífsgleöi og sjálfsöryggi listamanns á uppleiö. en Max) í að kynna hann og verk hans og safna kaupendum að verkunum. Þriðji áratugurinn var uppgangstímabil og Sjálfs- mynd í smóking frá 1927 er skemmtilegt dæmi um það, þrungin lífsgleði og sjálfsöryggi. En þegar nasistar komust til valda varð breyting á. Hitler lík- aði ekki beitt samfélagsgagnrýni Beckmanns og sjáifsagt ekki held- ur sterkur og expressjónískur stíllinn; hann lét taka niður verk eftir Beckmann í Þjóðarlistasafn- inu í Berlín og valdi mörg verk eftir hann á illræmda sýningu sína á úrkynjaðri list 1937. Strax 1933 var Beckmann rekinn úr kennarastöðu sinni við Listahá- skólann í Frankfurt og 1937 flúði hann til Amsterdam. Þar varð hann innlyksa, því þó að hann væri látinn í friði meðan á her- námi Þjóöverja í landinu stóð, þá fékk hann ekki vegabréf til að geta komist úr landi. Frá 1937 er Sjálfsmynd í kjólfötum sem sýnir brotinn mann, kvíðafullan og óör- uggan með sig. Nokkur huggun hefur verið að 1938 voru sjö verk eftir hann á myndarlegri sýningu á þýskri myndlist á 20. öld í London. Samlíðun með þjáðum Beckmann komst loks úr stofu- fangelsi sínu til Ameríku 1947 og dvaldi þar ásamt Quappi til dán- ardags á þriðja í jólum 1950. Þar var honum tekið hjartanlega, og þessi þrjú síðustu ár naut hann á ný mikilla vinsælda og virðingar. Hann kenndi við listaháskóla víðsvegar um Bandaríkin, síðast við Brooklyn Museum Art School og þá fluttust þau hjón til Man- hattan. Frá 1950 er síðasta sjálfs- Lífið er leiksvið Max Beckmann sviðsetur sjálfan sig, almenning og heimsviðburði eins og leikverk á sviði myndir eftir Beckmann, en verkin á sýning- unni koma þó einkum frá heimalandi hans; enginn sem skoðar þýsk listasöfn kemst hjá því að taka eftir myndum hans, svo ágengar eru þær, blóðmiklar og ástríðufullar. Max Beckmann fæddist í Leipzig 1884 og stóð því á þrítugu þegar heimsstyrjöldin fyrri braust út. Hann hafði útskrifast úr myndlistar- Max Beckmann: Karnlval (1920) Fífliö sem á gólfinu liggur er sennilega listamaö- urinn sjálfur. námi 1903 og vel má sjá áhrif til dæmis frá Ed- vard Munch á elstu verkunum á sýningunni. Fyrsta myndin sem virkilega grípur athygli gestsins er geysistórt málverk frá 1912 sem heitir Titanic. Það var málað aðeins fáeinum vikum eftir að skipið fórst og er eitt fyrsta dæmiö um hvað Max Beckmann var áhuga- samur þátttakandi í heiminum í kringum sig. Málverkið sýnir ólgusjó og yfirfulla björgunar- báta með konum og börnum og það er í dimm- um blágrænum litbrigöum. Gagnrýnendur sögðu á sínum tíma að gallinn á því væri að það vantaði fókus, maður einbeitti sér ekki að neinni einni persónu eða miðju, en það er einmitt einkennið sem heldur lifi í myndinni. Auga áhorfandans flöktir í örvæntingu frá ein- um til annars, hring eftir hring, svo fólkið virðist enn þá fleira og ringulreiðin alger. Svo kom stríðið og Max Beckmann varð sem sjúkraliði vitni að óheyrilegum þjáningum og linnulausum slátrunum á fólki. Auk sjálfs- myndarinnar áðurnefndu sem sýnir áhrif stríðsins á hann er óhugnanleg mynd frá sama ári þar sem verið er að taka lík Krists, stirðn- að í krossfestingarstellingu, niður af krossin- um. Nokkrum árum seinna málar Beckmann svo sjálfan sig sem trúð, og raunar setur hann persónur sínar og atburði sem hann málar oft á svið í leikhúsi eða fjölleikahúsi. í einum stærsta salnum á sýningunni (Sal 3) er tíma- röðin brotin upp og sýnd verk frá öllum ferli hans sem draga fram þetta einkenni. Leikhús- ið varð þá eins konar tákn fyrir samtímann og líf mannanna eins og leikrit eftir brjálað leik- skáld. Stríð á stríð ofan Þegar Beckmann hafði jafnað sig á áhrif- um stríösins lá leiðin hratt upp á við, bæði hvað snerti persónulega líðan hans og efna- hag. Hann skipti um eiginkonu 1925, skildi við æskuástina Minnu, sem hann hafði raunar ekki búið með í tíu ár, og kvæntist Quappi sem mörg falleg málverk eru af á sýningunni - ólíkt Minnu sem er sérkenni- lega döpur og þunglyndisleg á málverkum eiginmannsins. Quappi var sjálf málaradóttir og söngkona en hún hætti að syngja eftir að hún gifti sig og not- aði alla sína ungu orku (hún var 20 árum yngri Max Beckmann: Maöur aö detta (1950) Hann fann til meö fólkinu í kringum sig. myndin, Sjálfsmynd í bláum jakka sem sýnir vel endurfætt sjálfsöryggi hans. Max Beckmann er núna einn dáðasti mynd- listarmaður Þjóðverja á 20. öld og yfirlitssýn- ingin í Tate Modem sannfærir gesti auöveld- lega um að það mat sé ekki fjarri lagi. Af verk- um hans má sjá að þar fer listamaður sem horfir á mannlífið í kringum sig með samúð og flytur þá samúð með sterkum litum og línum á striga þannig að áhorfandinn tekur ósjálfrátt þátt í tilfinningunum með honum. Samlíðun með manneskjum er aðalsmerki mynda hans, en hún er væmnis- og vægðarlaus eins og best sést á sjálfsmyndunum. Sýningin stendur til 5. maí og er opin alla daga kl. 10-18 og alveg til kl. 22 fós. og laug. Útgáfuhátíð Þrastar „Við höfum að nokkru leyti glatað innri friði vegna sí- fellds áreitis af upp- lýsingum og boðsendingum, vegna innrásar hins ytra sem áður var fjarri en er nú svo nærri að við höld- um okkur fjarri, að minnsta kosti í stofufjarlægð frá skjánum og erum sjaldnast á vettvangi atburða, við höfum að mestu yfirgefið vettvang- inn, hætt beinni þátttöku." Svo skrifar Þröstiu- Helgason í inn- gangskafla að bók sinni, Einkaveg- ir, sem kemur út í Svörtu línunni frá Bjarti í dag. Bókin er sú fjórða í yorbókaflóði forlagsins. í tilefni dagsins verður útgáfuhá- tíð á Súfistanum, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20.30. Þar mun Þröstur Helgason lesa úr bók sinni og Böðvar Bjarki Pétursson sýna úr og fjalla um ófullgerða kvikmynd sína Esjan og tíminn. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Leikið á Stradivaríus Á Sinfóníutón- leikum kl. 19.30 annað kvöld verð- ur hinn óviðjafn- anlegi fiðlukonsert Johannesar Brahms leikinn á óviðjafnanlega 400 ára Stradivaríus- arfiðlu af banda- ríska fiðlusnillingnum Joshua Bell sem sigraði hugi og hjörtu landans þegar hann kom hingað kornungur fyrir 14 árum. Auk þess eru á efnisskrá tónleik- anna Macbeth eftir Richard Strauss cg Sinfónía nr. 5 eftir Beet- hoven. Stjómandi er Petri Sakari sem einnig stýrði á fyrri tónleik- um Joshua Bell hér á landi 1989. Tónleikunum er að venju útvarpað beint á Rás 1. Hvað er að vera íslendingur? Hollvinafélag Heimspekideildar Háskóla íslands gengst fyrir al- mennum umræðufundi í Norræna húsinu á morgun kl. 17.15. Þar verður fjallað um íslenskt þjóðerni og hvað felst í því að vera íslend- ingur á 21. öldinni þegar menning hér á landi er orðin fjölþjóðlegri en áður og sífellt stærri hluti þjóð- arinnar af erlendu bergi brotinn. Flutt verða fimm stutt framsögu- erindi og á eftir verða pall- borðsumræður og fyrirspurnir. Að- gangur er ókeypis og öllum heim- iU. Námskeið í barrokktónlist Bandaríski gömbuleikarinn og fræðimaðurinn Laurence Dreyfus, prófessor við King’s College í London, er gestakennari við tón- listardeild Listaháskóla íslands í þessari viku, og kl. 11 í fyrramálið heldur hann opinn fyrirlestur um Jóhannesarpassíu Bachs sem ber yfirskriftina „Text-setting or Text- slaying: On the Vagaries of Bachi- an Poetics in the St. John Passion". Leiðrétting Leið villa slæddist inn í vísu eftir Rögn- vald Rögnvaldsson þeg- ar bók hans Hún- vetnskt bros í augum var kynnt á menning- arsíðu sl. fóstudag. Rétt (og mun betri) er vísan svona: Letin slappar líkamann, leikni er kappans prýöi. En œöatappatogarann ég teldi happasmíöi. Við biðjumst velvirðingar á óhappinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.