Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 30
k 30 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson FóJk í fréttum Bima LárasdótOr forseti bæjarstjórnar á ísafiröi 90 ára____________________________ gf Gunnar Jónsson, Skólastíg 14a, Stykkishólmi. Nanna Þóröardóttir, Búðavegi lOa, Fáskrúösfiröi. 80 gra____________________________ Olga Axelsdóttir, Bogahlíð 15, Reykjavík. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Gullsmára 8, Kópavogi. 75 ára____________________________ Lelfur Elríksson, Hlaðbrekku 19, Kópavogi. 70 ára____________________________ Hanna Fríöa Kragh, Hátúni lOa, Reykjavík. 60 ára____________________________ Dagný Þórhallsdóttlr, Grýtubakka 20, Reykjavík. Hugrún Marinósdóttir, Dúfnahólum 4, Reykjavík. Örn Guömarsson, Eyktarási 18, Reykjavík. 50 ára____________________________ Georg Karonina, Hörðalandi 6, Reykjavík. Ingibjörg Ævar Steinsdóttir, Hoffelli 2b, Höfn í Hornafirði. Jórunn Hulda Siguröardóttir, ^ Dvergaborgum 3, Reykjavík. Knútur Arnar Hilmarsson, Garöarsbraut 69, Húsavík. Kristján B. Magnússon, Ásklifi 14, Stykkishólmi. Soffía Kristinsdóttir, Hverfisgötu 5, Hafnarfirði. áOJra_____________________________ Blrna Ingibjörg Jónsdóttir, Silfurbraut 7d, Höfn. Einar Fjölnir Elnarsson, Hásteinsvegi 55, Vestmannaeyjum. Einar Sigurösson, Snekkjuvogi 7, Reykjavík. Hafdís Óskarsdóttir, Kárastíg 2, Hofsósi. Helgi Þór Kárason, Skógahlíð, Húsavík. Ingvar Jóel Ingvarsson, Mjóuhlið 16, Reykjavík. Pavle Pavlovic, Kveldúlfsgötu 28, Borgarnesi. Slgvaldi Einarsson, Furugrund 20, Kópavogi. Birna Lárusdóttir, forseti bæjar- stjórnar ísafjarðarbæjar, fékk flest atkvæði í miðstjórnarkjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi. Starfsferill Bima fæddist í Reykjavík 14.3. 1966 og ólst þar upp í Háaleitis- hverfinu. Hún var í Álftamýrar- skóla, lauk stúdentsprófi frá MS 1986, stundaði nám í fjölmiöla- fræði og sálfræði við University og Washington í Seattle í Banda- ríkjunum frá 1988 og lauk þaðan BA-prófi í þeim greinum 1992. Bima starfaði á Stöð 2 1987, var fréttamaður Svæðisútvarps Vest- fjarða á ísafirði 1992-94, var búsett í Ósló í Noregi og var þar fréttarit- ari Ríkisútvarpsins og Sjónvarps- ins 1994-97 og kenndi við grunn- skólann á Þingeyri við Dýrafjörð 1997-98. Birna hefur verið bæjarfulltrúi fyrir sjálfstæðismenn á ísafirði frá. 1998, var oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjóm ísafjarðar 1998-2002 og til skiptis forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs 1998-2002, hefur verið forseti bæjarstjórnar þar frá síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum og er í 7. sæti á framboðs- lista sjálfstæðismanna í Norðvest- urkjördæmi fyrir aiþingiskosning- arnar í vor. Birna sat í stjórn Fjórðungs- sambands Vestfirðinga, er formað- ur skólanefndar MÍ, fulltrúi fjár- málaráöherra í stjórn Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins, situr í stjórn Fornleifasjóðs sem fulltrúi sveitarfélaga og er félagi í Zonta- hreyfingunni. Fjölskylda Maður Birnu er Hallgrímur Kjartansson, f. 6.3. 1959, heilsu- gæslulæknir á Heilbrigðisstofnun- in ísafjarðarbæjar. Hann er sonur Kjartans Hólm Sigmundssonar, f. 22.12. 1927, skipstjóra og útgerðar- manns á Isafirði, og Maríu Hall- grímsdóttur, f. 2.7.1938, húsmóður á ísafirði. Böm Birnu og Hallgríms eru Hekla, f. 22.1. 1999;Hilmir, f. 2.2. 2002; Hugi, f. 2.2. 2002. Bróðir Bimu er Þórir Lárusson, f. 7.11.1956, verkfræðingur í Kópa- vogi, kona hans er Magnea Ragn- arsdóttir og eru börn þeirra Hrefha og Davíð. Foreldrar Birnu eru Lárus Geisli Gunnarsson, f. 24.12. 1937, flugvirki í Flórída i Bandaríkjun- um, og Dóra Ketilsdóttir, f. 12.5. 1937, skrifstofumaður í ísa- fjarðarbæ. Ætt Lárus er sonur Gunnars Kal- stad, útvarpsvirkjameistara I Reykjavík, bróður Sigríðar, konu Einars Olgeirssonar alþm., Rann- veigar Smith rithöfundar og Ágústu, móður Baldurs Georgs, búktalara og skemmtikrafts. Gunnar var sonur Þorvarðar, for- stjóra Gutenbergs, formanns HÍP, bæjarfulltrúa í Reykjavík og eins af stofnendum Leikfélags Reykja- víkur, bróður Óla, fóður Páls Egg- erts prófessors, og bróður Svein- björns, afa Halls Símonarsonar, blaðamanns og bridgeleikara, og langafa Friðriks Ólafssonar stór- meistara. Þorvarður var sonur Þorvarðar, b. og vþm. á Kalastöð- um og á Staðarfelli í Dölum, Ólafs- sonar, hreppstjóra, lrm. og dbrm. í Kalastaðakoti, Péturssonar. Móðir Þorvarðar í Gutenberg var Mar- grét Sveinbjarnardóttir, pr. á Stað- Fímmtugur Smáauglýsingar 550 5000 Sveinn Magnús Magnússon, Blómstur- völlum 34, Neskaupstað, lést af slysför- um laugard. 29.3. Guörún Finnbogadóttir Beaubien lést á heimili sínu í Bremerton WA, í Bandaríkj- unum laugard. 29.3. Guörún Pedersen Sundet lést á heimili sínu í Noregi mánud. 24.3. Maggý Helga Jóhannsdóttir, Kópavogs- braut lb, Kópavogi, lést á Landspítalan- um í Fossvogi laugard. 29.3. Haukur Sævaldsson, Núpalind 2, Kópa- vogi, lést á heimili sínu sunnud. 30.3. Sigöuröur Jóhannesson frá Þorvalds- stöðum andaöist laugard. 29.3. Friöbjörg Ólína Kristjánsdóttir lést á Landspitalanum I Fossvogi sunnud. 30.3. Útför Agnars Búa Alfreössonar, Hátúni 10B, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskapellu miðvikud. 2.4. kl. 13.30. Útför Sigrúnar Daníelsdóttur hjúkrunarfræðings, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju fimmtud. 3.4. kl. 14.00. Jaröarför Gísla Ólafs Jakobssonar fer fram í Kaupmannahöfn fimmtud. 3.4. kl. 13.00. Valgerður H. Magnúsdóttlr, hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áöurtil heimilis á Háaleitisbraut 153, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtud. 3.4. kl. 13.30. Hrund Kristjánsdóttir verður jarðsett frá ^•Munkaþverá fimmtud. 3.4. kl. 13.30. Jón HhiPik Gíslason verkstjóri hjá Landsvirkjun Jón Hinrik Gíslason, verkstjóri hjá Landsvirkjun, Bakkatjörn 8, Sel- fossi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Jón Hinrik er fæddur í Reykjavík og ólst upp hjá móður sinni og auk þess fóstra, Sigurði Þórðarsyni, bónda á Tannastöðum, frá fimm ára Eddri. Jón Hinrik lauk landsprófi í Hveragerðisskóla 1968, búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri, iðnskólaprófi frá Iðnskólanum á Selfossi 1979 og meistaraprófi sem húsasmiður 1992. Jón Hinrik hefur unnið víða á Suðurlandi við ýmis störf, m.a. Hrauneyjafossvirkjun 1979-81, sinnti viðhaldsstörfum við íra- og Ljósafossvirkjun og stundaði húsa- smíðar. Hann hóf störf hjá Landsvirkjun 1996 og hefur verið verkstjóri við Sogsstöðvar síðan. Fjölskylda Jón kvæntist 1.6. 1974 Margréti Jónsdóttur, f. 16.2.1952, starfsmanni Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi. Hún er dóttir Jóns Árnasonar bónda og k.h„ Svövu Árnadóttur frá Bala í Þykkvabæ. Böm Jóns og Margrétar eru Gísl- ný Halldóra, f. 19.4. 1974, nemi, bú- sett á Ólafsfirði, í sambúð með Jóni Vilhjálmssyni; Svava Júlía, f. 8.4. 1977, háskólanemi á Akureyri, er sonur hennar Daníel Máni, f. 29.3. 2001; Ari Hrafn Jónsson, f. 16.3. 1984, iðnskólanemi; Margrét, f. 12.7. 1991, grunnskólanemi. Bróðir Jóns er Magnús, f. 29.6. 1954, verkstjóri í Reykjavík. Hálfsystir, sammæðra, er Sigur- borg Karlsdóttir Billich, f. 20.2.1951, meinatæknir í Reykjavík. Foreldrar Jóns: Gísli Pálsson, f. 6.9. 1914, d. 19.12. 1953, verkamaður í Reykjavík, og Halldóra Sigríður Hendriksdóttir, f. 3.6. 1918, d. 3.1. 2001, húsmóðir. Seinni maður henn- ar var Sigurður Þórðarson, bóndi á Tannastöðum í Ölfusi. Ætt Faðir Gísla var Páll Jónsson, bók- bindari frá Koti, Akranesi, og k.h., Steinunn Júlía Gísladóttir húsmóö- ir. Faðir Halldóru var Hendrik Stef- án Erlendsson læknir og Súsanna Henríetta Friðriksdóttir húsmóðir. Jón verður að heiman á afmælis- daginn. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 DV arhrauni, Sveinbjamarsonar, háifbróður Þórðar dómstjóra. Móðir Margrétar var Rannveig, systir Bjarna Thorarensens skálds. Móðir Gunnars var Gróa Bjarnadóttir, b. í Neðra-Hrepp i Skorradalshreppi, Bjarnasonar, og Guörúnar Þorsteinsdóttur. Móðir Lárusar var Birna Lárus- dóttir, kaupmanns á Akureyri, Thorarensen, Jakobssonar. Dóra er dóttir Ketils, kaupfé- lagsstjóra á ísafirði, bróður Har- alds, ráðherra og formanns Al- þýðuflokksins, og Sigurðar, föður Jóns, bankastjóra Norræna fjár- festingabankans og fyrrv. ráð- herra. Ketill var sonur Guðmund- ar, pr. í Gufudal, Guðmundssonar, og Rebekku, systur Kristjáns ráð- herra, Péturs ráðherra og Stein- gríms alþm. en hálfsystir Rebekku var Sigrún, móðir Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra. Rebekka var dóttir Jóns, alþm. og ættföður Gautlandaættar, Sigurðs- sonar, b. á Gautlöndum, Jónsson- ar, b. á Mýri í Bárðardal, ættföður Mýrarættar, Halldórssonar. Móðir Rebekku var Solveig, systir Bene- dikts, afa Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra en meðal bræðra Solveigar voru Jón, þjóðfundarm. í Lundarbrekku, afi Árna, alþm. í Múla, og Pétur, langafi Áka Jak- obssonar alþm. Solveig var dóttir Jóns, ættföður Reykjahlíðarættar, Þorsteinssonar. Móðir Dóru var María Jónsdótt- ir, sjómanns á ísafirði, Einarsson- ar og Halldóru Halldórsdóttur. M Magnea J. Guðmundsdóttir skrifstofustjóri í Reykjavík Magnea Jenný Guðmundsdóttir skrifstofustjóri, Grandavegi 9, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Magnea Jenný fæddist á ísafirði en ólst upp á Melgraseyri við ísa- fjarðardjúp. Hún gekk í grunnskól- ann í Reykjanesi við Djúp og lauk stúdentsprófi frá MÍ 1984, lauk BS- prófi í landafræði frá HÍ 1995, stund- aði auk þess nám í mannfræði um skeið og lauk síðar prófi í viðskipta- og rekstrarfræðum við endurmennt- unardeild HÍ. Magnea starfaði við Hótel Eddu í sumarvinnu í Flókalundi við Vatns- fjörð í nokkur ár og Hótel Eddu á Reykjum í Hrútafirði. Hún vann einnig við bústörf með foreldrum sín- um að Melgraseyri við ísafjarðardjúp. Magnea flutti til náms i Reykja- vík 1986, var gjaldkeri hjá Happ- drætti Háskóla íslands 1986-91, starfaði við Fasteignasöluna Frón og rak hana með sambýlismanni sínum. Fjölskylda Eiginmaður Magneu er Finnbogi Kristjánsson, f. 10.12. 1958, fast- eignasali. Hann er sonur Kristjáns Guðmundssonar, bónda á Brekku á Ingjaldssandi, sem nú er látinn, og Árelíu Jóhannesdóttir húsfreyju sem nú er búsett í Reykjavík. Dóttir Magneu og Finnboga er Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir, f. 19.2. 1991, nemi í Grandaskóla og Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Systkini Magneu eru Snævar, f. 3.7. 1956, bóndi á Melgraseyri; Þór- unn Helga, f. 14.7.1959, tæknimaður á skurðdeild Landsspítala. Foreldrar Magneu eru Guðmund- ur Magnússon, f. 27.10. 1928, fyrrv. bóndi á Melgraseyri, og Kristín Steinunn Þórðardóttir, f. 12.10.1928, húsfreyja. Þau eru nú búsett í Reykjavík. Ætt Guðmundur er sonur Magnúsar Jenssonar, b. á Brekku í Langadal og síðar Hamri á Langadalsströnd, og k.h., Jensina Arnfinnsdóttir hús- freyja. Kristín Steinunn er dóttir Þórðar Halldórssonar frá Rauðamýri, odd- vita á Laugalandi í Skjaldfannardal, og k.h., Helgu Mariu Jóndóttur hús- freyju. Hægt er að gleðja Magneu með því að hringja í hana í 898 1819 og senda SMS-skilaboð eða senda henni e-mail á madda@fron.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.