Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 32
32
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
Tilvera ÐV
Nýi barnaspítalinn tekinn í notkun:
flfanni gem IWnnskonup
hefur drevmt um í áratuni
„Mér finnst stórkostlegt, bæöi
sem Hringskona og hjúkrunar-
kona, að fá að taka þátt í þessu
ævintýri," segir Ragnheiður Sig-
urðardóttir, varaformaður Hrings-
ins og deildarstjóri á vökudeild
Landspítalans, þar sem hún geng-
ur um húsakynni hins nýja barna-
spítala. Þau orð hennar verða ekki
dregin í efa. Húsið er allt hið
glæsilegasta og flutningurinn inn
í það úr gamla spítalanum ekkert
minna en gerbylting í öllum að-
búnaöi barna, foreldra þeirra og
starfsfólks stofnunarinnar.
Starfsfólk tók þátt í mótun
Arkitektar að nýja barnaspítal-
anum eru Hans Olav Andersen og
Sigríður Magnúsdóttir hjá Teikni-
stofunni Tröð. Samræmi virðist í
öllum hlutum. Rúnnuð form sjást
víða, bæði í herbergjum og hús-
gögnum og sami viðurinn skýtur
upp kollinum á hinum ýmsu stöð-
um. Ragnheiður segir arkitektana
hafa unnið í samvinnu við starfs-
fólkið og skipaðir hafi verið
vinnuhópar innan spítalans til að
vinna úr hugmyndum starfs-
manna. „Við vonum að það skili
sér í betri þjónustu og meiri hag-
ræðingu," segir hún. „Einn hópur-
inn lagði til dæmis áherslu á að
svalir væru á einangrunarher-
bergjunum til að börnin sem þar
væru gætu fengið sér frískt loft og
séð grænt gras og eftir því var far-
ið.“
Kaffilykt í húsið
í garðinum utan við spítalann
er kopartré og stór stóll og í sum-
um gluggunum eru sandblásnar
setningar úr ævintýrum. Þetta eru
skreytingar eftir listamanninn
Sigurð Guðmundsson. „Stóllinn er
sögustóll," segir Ragnheiður til
skýringar. „Við ímyndum okkur
að sögumaður sitji í stólnum og
þetta minnir bæði foreldra og
börn á þá dægrastyttingu sem sög-
ur og ævintýri eru.“
Við aðalinngang barnaspítalans
er veitingastofa sem Hringurinn
rekur. Þar verða léttir réttir,
drykkir og ís á boðstólum fýrir
starfsfólk, foreldra og börn.
Hringskonur eru með frá fyrsta
degi. „Við viljum fá kaffilyktina í
húsið um leið opnað er og vera
með fólkinu í að skapa stemn-
ingu,“ segir Ragnheiður brosandi.
Göngudeildin nýjung
Áttatíu rúm eru á barnaspítal-
anum og það er svipaður fiöldi og
hefur verið á þeim gamla. Aukn-
ingin er í plássi á göngu- og dag-
deildum þar sem börn geta verið
yfir daginn í smærri aðgerðum
eða rannsóknum. Göngudeildin er
mikilvæg nýjung í starfseminni.
„Nú til dags er reynt að hafa börn
eins skamman tíma á sjúkrahús-
um og mögulegt er því auðvitað er
alltaf verið að reyna að hlífa þeim
við aðskilnaði frá foreldrum og
sínu nánasta umhverfi. Hins veg-
ar eiga þau að hafa gott aðgengi að
spítalanum þegar þau þurfa á
þjónustu hans að halda,“ segir
Ragnheiður og bendir meðal ann-
ars á bráðamóttöku sem miðað er
við að verði opin allan sólarhring-
inn.
Við göngum um bygginguna og
skoðum leikstofu og skólastofu,
báðar rúmgóðar með stórum dýr-
um þannig að hægt er að keyra
börn um í rúmum ef á þarf að
halda. Einnig komum við í endur-
hæfingarstofu þar sem sjúkraþjálf-
arar munu sinna börnunum svo
og setustofu og gistiaðstöðu for-
eldra. Að lokum skoðum við vöku-
deildina sem nú fær stóraukið
rými.
Áhersla lögö á hagræðingu
Kapella er í spítalanum. Ragn-
heiður segir hana fyrir sjúklinga,
aðstandendur og starfsfólk. Allir
geti þurft á friðarstund að halda,
auk þess sem börn séu stundum
færð til skírnar á stofnuninni.
„Það sem haft var í huga við þessa
byggingu var auðvitað fyrst og
fremst aðstaðan fyrir skjólstæð-
ingana, bæði börnin og foreld-
rana. Hér hefur ekkert pláss verið
fyrir foreldra nema inn við rúm-
gaflinn hjá börnunum og það er
aðdáunarvert hvað fólk hefur af-
borið þrengslin."
Starfsfólkið fær líka góða vinnu-
aðstöðu. Gangur er á milli
kvennadeildar og bamaspítala og
dyr milli sjúkrastofa barnaspítal-