Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
33
DV
Tilvera
Deildarstjóri vökudeildar
Ragnheiður Sigurðardóttir segir talsvert hafa verið keypt af nýjum búnaði á vökudeild en einnig verði eldri tæki nýtt eftir því sem kostur sé.
ans og vökudeildar sem gera
mögulegt aö samnýta starfsfólk og
spara spor. „Mikil áhersla er lögö
á hagræðingu og sparnað í rekstri
og þar skiptir aðstaðan miklu
máli,“ bendir Ragnheiður á.
Áhuginn drífur þær áfram
Hringurinn, kvenfélag er einn
af styrkustu velunnurum bama-
spítalans og hefur látið stórar fjár-
hæðir af hendi rakna til hans.
Fyrir ári gaf félagið til dæmis 50
milljónir til minningar um stofn-
anda og fyrsta formann félagsins,
frú Kristínu Vídalín Jakobson og í
september síöastliðnum afhenti
það spítalanum hundraö og fimm-
tíu milljónir. Ragnheiður hefur
starfað með Hringnum síðan 1984
og er varaformaður félagsins nú.
Hún er spurð hvernig í ósköpun-
um þær Hringskonur hafí náð að
öngla saman svona miklu fé?
„Þessi söfnun byrjaði ekki í gær
og er heldur ekki bara afrakstur
þess sem við bökum og saumum
því hollvinir Hringsins eru marg-
ir og fólk hefur jafnvel ánafhað
okkur húseignir," segir hún.
Kveðst þó ekki ætla að rýra hlut
Hringskvenna sjálfra því þær séu
traustar konur og rausnarlegar.
„Áhuginn drífur þær áfram og eitt
af því sem þær leggja áherslu á er
að hver einasta króna sem Hrings-
konur afla eða Hringnum áskotn-
ast gangi óskert í bamaspítala-
sjóðinn. Þær hafa líka verið vak-
andi yfir stjórn fjármáianna, að
hafa allt á öruggum reikningum
með góðum vöxturn."
Eins og á síldarplani
Nýlega kom út saga Hringsins,
skráð af Björgu Einarsdóttur, mik-
ið rit og fróðlegt. Þar kemur með-
al annars fram að félagið hafi afl-
að fjár með ýmsum hætti gegnum
tíðina. Má þar nefna leiksýningar,
frímerkjaútgáfu og bókamarkað
og það stóð fyrir söngskemmtun-
um með stórstjörnum, til dæmis
hinum sænska Jussi Björling.
Einnig ráku Hringskonur bú í
DV-MYND E.ÖL.
Vlð fiskabúríð
Skrautlegir fiskarnir vekja athygli gesta.
Kópavoginum um tima og voru í
röð góðbænda í Seltjarnames-
hreppi. Allur afrakstur fjáröflunar
hefur farið til líknarmála. Fyrst í
aðstoð við fátækar sængurkonur
og berklasjúklinga en frá 1942 hef-
ur félagiö einheitt sér að málefn-
um sjúkra barna.
Nú eru félagskonur á þriðja
hundrað og hefur farið fjölgandi á
árinu. Helstu fjáröflunarleiðir síð-
ustu ár hafa verið sala minningar-
korta, jólakortaútgáfa og jólabasar
í Perlunni. Einnig jólakaffi á
Broadway fyrsta sunnudag í að-
ventu. Ragnheiður líkir því við að
vera á síldarplani að komast i
vinnu þar. „Þá fyllum við húsið,
fáum þúsund manns í kafFi og
erum líka með happdrætti," segir
hún ánægjuleg.
Örugg um yngstu borgarana
Ragnheiður segir eftir að
ákveða næstu verkefni Hringsins.
„Þetta eru viss þáttaskil en það er
alveg ljóst að við höldum áfram að
styðja starfsemi sem tengist böm-
um.“
En hvað kom til að hún sjálf
gekk í Hringinn kornung kona,
1984. „Ég var starfsmaður bama-
spítalans og hitti oft þessar frá-
bæru Hringskonur því þær voru
alltaf að gefa gjafir og ég fékk
stundum að vera með í að taka á
móti þeim. Þá datt mér í hug að
sækja um inngöngu og fékk góðar
viðtökur því á þeim rauðsokku-
tímum var fátítt að ungar konur
gengju í kvenfélög," segir Ragn-
heiður. Hún segir mikinn lærdóm
aö starfa með jafn jákvæðum og
atkvæðamiklum manneskjum og
Hringskonum. „Það er ekki bara
það hvað þær eru tilbúnar að
leggja mikið á sig heldur líka hvað
gleðin er mikil yfir að gefa pening-
ana frá sér - geta fært, lagt til og
stuðlað að. Þessi nýi barnaspítali
er áfangi sem þær hefur dreymt
um í áratugi,“ segir hún brosandi
og vitnar í orð Sigríðar G. John-
son árið 1938 um framtíðarmark-
mið Hringsins: „Að upp rísi nýr
sérhannaður barnaspítali, þar
sem við, fólkið í þessu velferðar-
ríki, getum verið örugg um yngstu
borgarana."
-Gun
Listaverk
Sögustóllinn og kopartréð í garðinum eru eftir Sigurð Guömundsson mynd-
listarmann en arkitektar hússins eru Hans Olav Andersen og Sigríður Magn-
úsdóttir hjá Teiknistofunni Tröð.