Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 35 Víkingun - Valur 13-19 hafði fram yflr heimamenn var vörnin, með Sigurlaugu Rúnarsdótt- ur og Drífu Skúladóttur sem bestu menn, Þar fyrir aftan var Berglind Handóttir í miklum ham og var hún með 60% markvörslu í leiknum. Helga Torfadóttir var best Víkinga og varði á köflum ágætlega. Sóknar- leikur liðsins var í molum og ágæt- isbarátta í vörninni dugði emfald- lega ekki til að þessu sinni. Náöum markmiðinu Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Vals, var skælbrosandi þegar DV- Sport kom að máli við hana í leiks- lok. „Ég er alveg ofboðslega ánægð með stelpumar. Við settum okkur það markmið í upphafl móts að ná fjórða sæti deildarinnar. Við náðum því og þá settum við okkur nýtt markmið; að taka Víking í tveimur leikjum, og við náðum því líka. Svo að þetta er alveg rosalega flott. Vörnin hefur kannski ekki alveg verið að ná nægilega góðum dampi hjá okkur en hún er búin að koma núna í þessum tveimur leikjum. Við héldum þeim í tíu mörkum í Valsheimilinu í fyrsta leiknum og fáum núna á okkur 13 svo að það er alveg frábært. Begga (Berglind Hansdóttir) í markinu er að verja eins og brjálæðingur og það gengur vel baka til. En að skora 13 mörk í fyrsta leiknum var mjög slæmt. Við vor- um ákveðnar í að bæta sóknarleik- inn fyrir leikinn í kvöld og náum að gera 19 mörk. En við erum samt sem áður að klúðra alltof mikið í góðum færum. Mér líst bara vel á að mæta ÍBV. Við höfum verið að fara upp á við upp á síðkastið. Erum búnar að tapa fyrir Eyjastúlkum í leikjunum í vetur en við tökum bara leik fyrir leik og njótum þess að vera komnar þangað sem við erum komnar. Val- ur hefur aldrei komist upp úr 8-liða úrslitum og ég er alveg rosalega ánægð með það,“ sagöi Guðríður. Aspurð hvort þær ætluðu sér ekki að stríða ÍBV glotti Guðríður og svararði um hæl: „Að sjálfsögðu. Við ætlum bara að vinna þær.“ -vig Gnótta/KR - Haukan Z0-2G 0-2, 2-2 3-3 4-4 5-5 &-6 7-7 8-0 9-9 10-10 (10-12), 10-13 13-13 14-14 15-15 16-16 18-19 18-22 19-24 20-26 , Grótta/KR: Mörk/viti (skot/víti): Þórdís Brynjólfsdótt- ir 11/8 (22/9), Eva Margrért Kristinsdóttir 3/1 (6/1), Eva Björk Hlööverdóttir 3 (7), Aiga Stepanie 2 (11), Anna Úrsúla Guö- mundsdóttir l (l), Kristín Þóröardóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 1 (Þórdís). Vítanýting: Skoraö úr 9 af 10. Fiskuö viti: Eva Björk 2, Anna Úrsúla 2, Aiga 2, Kristin Þ. 2, Ragna Karen, Brynja. Varin skot/viti (skot á sig): Berglind Haf- liðadóttir 12 (38/4, hélt 5, 32 %). Brottvisanir: 18 mínútur. Dómarar (1-10): Gísli Jóhannes- son og Hafsteinn Ingibergsson (5). Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 150. Best á vellinum: Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Hanna G. Stefáns- dóttir 11/3 (14/3), Inga Fríöa Tryggvadóttir 3 (6), Sonja Jónsdóttir 3 (7), Harpa Melsted 3/1 (8/1), Nína K. Björnsdóttir 3 (8), Ingi- björg Karlsdóttir 1 (1), Sandra Anulyte 1 (1), Brynja Steinsen 1 (2), Erna Halldórsdóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 9 (Hanna 6, Sonja, Sandra, Nína). Vitanýting: Skoraö úr 4 af 4. Fiskuö víti: Brynja, Nína, Inga Fríöa, Ema. Varin skot/viti (skot á sig): Lukresija Bokan 9/1 (28/9, hélt 3,21%), Bryndís Jóns- dóttir 3 (5/2, hélt 2, 60%). Brottvisanir: 6 mínútur. Valur: Mörk/viti (skot/víti): Díana Guöjónsdóttir 7/4 (11/6), Hafrún Kristjánsdóttir 3 (4), Drífa Skúladóttir 3 (11), Hafdís Guðjónsdóttir 2 (3), Kolbrún Franklín 2 (7/1), Ama Grímsdóttir 2 (7), Sigurlaug Rúnarsdóttir (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: Drífe 2, Kolbrún, Diana. Vitanýting: Skoraö úr 4 af 7. Fiskuö viti: Ama 3, Drífa, Hafrún, Sigurlaug, Hafdís. Varin skot/viti (skot á sig): Berglind Hans- dóttir 20/1 (33/6, 1 víti yfir, 2 i stöng, 1 í slá, hélt 10, 60%). Brottvisanir: 6 mínútur. Sport DV Ðest á veliinum: Berglind Hansdóttir, Val (M, 2-4, 4-7, 5-9, 6-9, (7-10), 9-10, 10-13, 12-15, 13-15, 15-19. Víkingur: Mörk/viti (skot/víti): Guðbjörg Guömanns- dóttir 3 (7), Guörún Drifa Hólmgeirsdóttir 3 (7/1), Helga Bima Brynjólfsdóttir 2/1 (8/2), Geröur Beta Jóhannsdóttir 2 (10/3), Helga Guðmundsdóttir 1 (1), Ásta Björk Agnarsdótt- ir 1 (2), Steinunn Bjamarson 1 (3), Steinunn Þorsteinsdóttir (1), Margrét Elín Egilsdóttir (2), Sara Guöjónsdóttir (2). Mörk úr hraöaupphlaupunu 5 (Guörún 2, Guöbjörg 2, Guðrún Drífa). Vitanýting: Skorað úr 1 af 6. Fiskuö viti: Helga G. 2, Helga Birna 2, Gerð- ur, Steinunn Þ. Varin skot/viti (skot á sig): Helga Torfa- dóttir 14/3 (33/7 , hélt 10, 42%). Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Arnar Sigurjóns- son og Svavar Ó Pétursson (7). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 100. Haukastúlkur eru komnar í undanúrslit með því að sigra Gróttu/KR í tveimur leikjum: Margar brottvísanip - voru banabiti Gróttu/KR í leiknum í gær. Ekki jafnréttisgrundvöllur, segir þjálfari liðsins „Við bjuggumst við þeim dýrvit- lausum því við vissum að þær væru ekki tilbúnar að ljúka þátttöku í ís- landsmótinu í ár. Við ætluðum að klára þetta í tveimur leikjum því annars hefði þetta geta orðið strögl. Vömin small í lokin og og við vörð- um mikið af boltum í vörninni. Þá fengum við hraðaupphlaupin og þá náðum við að stinga þær af. Þegar vömin small saman þá var þetta komið hjá okkur. Þegar vömin er góð þá fáum við hraðaupphlaupin sem við viljum fá. Við náðum ekki að halda uppi hraðanum í fyrri hálf- leik eins og við hefðum vilja gera en við náðum að bæta það upp í seinni hálfleik," sagði Harpa Melsted, fyr- irliði Hauka, sem sigruðu Gróttu/KR öðru sinni í 8-liða úrslit- um Essodeildar kvenna, 20-26, og ljóst að Haukar mæta Stjömunni í undanúrslitum. Lokatölur leiksins gefa alls ekki rétta mynd af leiknum sem var jafn megnið af tímanum og heimastúlkur létu íslandsmeistar- ana hafa vel fyrir hlutunum með góðum og vel skipulögðum leik. Brottvísanirnar tóku toll Haukar byrjuðu betur með því að gera tvö fyrstu mörkin en Grótta/KR jafnaði strax og var nán- ast jafnt á öflum tölum allan fyrri hálfleikinn. Haukar enduðu hálf- leikinn með því að gera tvö síðustu mörkin og leiddu 10-12 í hálfleik. Heimastúlkur voru fljótar að jafna í byrjun seinni hálfleiks og skoruðu liðin til skiptis þar til tíu mínútur voru eftir. Þá var eins og leikmenn Gróttu/KR væru búnir með orkuna enda var Grótta/KR einum færri stóran hluta af leiknum og eflaust tók það sinn toll. Haukastúlkur gengu á lagið og vörnin fór að verja hvert skotið af öðru og í kjölfarið fékk liöið hraðaupphlaup sem skil- aði marki. Enginn jafréttisgrundvöllur Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Gróttu/KR, var ómyrkur í máli þeg- ar DV tók hann tali í leikslok og var síður en svo ánægður með dómar- ara leiksins. „Við vorum að spila að mínu mati frábæran handbolta framan af og ef eitthvað er hefðum við átt að vera yfir. Við erum einum leikmanni færri stóran hluta af leiknum þar til svona flmm mínút- ur eru eftir. Mættu hungraöar Ég er ótrúlega stoltur af mínum stelpum og þær mættu virkilega hungraðar til leiks og ætluðu ekki að láta slá sig út, en því miður er staðan þannig að þegar við og liðin sem eru í neðri kantinum hittum á okkar toppleiki þá þurfum við að sigra bæði andstæðingana og dóm- arana. Ég missi leikmenn út af í tvær mínútur hvað eftir annað, ég missi þrjár stelpur út af með rautt spjald og síðan rifbeinsbrotnar ein hjá mér en það er engin refsing á það. Við fáum vítaköst framan af en síðan ekki söguna meir. Þær skora hvert markið á fætur öðru á fjórða til fimmta skrefi en það er ekkert dæmt á það. Vorum klassa betri Dómararnir fóru auðveldu leið- ina og létu þetta fafla betra liðinu I vil og þetta er ekki fyrsti leikurinn hjá þessum mönnum sem ég fæ á mig svona. Lokatölurnar gefa enga mynd af þessum leik. Við vorum betra liðið. Það var algjörlega okkar klaufaskapur að við lendum undir þar sem við nýttum dauðafærin illa. En auðvitað gerist það þegar allt er á móti okkur allan leikinn og auð- vitað brotnar liðið þegar svo er. Þegar það var jafnt í báðum liðum á vellinum þá vorum við klassa betri en Haukamir. Því miður fengum við ekki að spila á jafnréttisgrund- velli að þessu sinni,“ sagöi Aðalsteinn Eyjólfsson hund- ónægður í leikslok. -Ben tveimur, þar af ekki nema 10 í fyrri leik einvígisins. Léleg vítanýting Það voru gestirnir úr Val sem gáfu tóninn í byrjun leiks í gær. Þær skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins og leikmenn Víkings vissu ekki hvort þær voru að koma eða fara í sóknarleiknum. Þær klúðr- uðu hverju upplagða marktækifær- inu á fætur öðru og þá voru víta- köstin einnig að fara forgörðum. Það var ekki fyrr en eftir átta mín- útna leik sem að Gerður Beta Jó- hanssdóttir náði að brjóta ísinn með fyrsta marki Víkings. Eftir það náðu leikmenn liðsins smám saman áttum og áttu í fullu tré við leik- menn Vals það sem eftir lifði hálf- leiks. Víkingsstúlkur hófu síðari hálf- leikinn með miklum látum, greini- lega staðráðnar í því að fá oddaleik í Valsheimilinu. Helga Torfadóttir fór í gang og varði tvö vítaköst á sama tíma og Valur missti tvo leik- menn út af með stuttu miUibili. Mununrinn var allt í einu orðinn 10-11 og öll stemningin Víkings megin. En um leið og Valur fékk fullskipað lið að nýju fór vörnin aft- ur í gang. Þær lokuðu vel á skotleið- ir leikmanna Víkings en ekki er hægt annað en að minnast á víta- nýtingu heimamanna. Af þeim sex vítaköstum sem liðið fékk í leikn- um náðu leikmennirnir aðeins að nýta eitt þeirra, þar af fóru fjögur í tréverkið eða framhjá. Ef þessi víta- köst hefðu nýst hefðu úrslit leiksins allt eins geta farið á annan veg. í stöðunni 11-15 og átta mínútur eftir tók Víkingur leikhlé. Eitthvað þurfti að breytast í leik liðsins til að það ætti möguleika á oddaleik. Svo virtist sem Andrés Gunnlaugsson þjálfari hefði náð að hrista upp í sóknarleiknum því Víkingur minnkaði muninn í 13-15 í kjölfarið á leikhléinu. En eftir þennan góða kafla var eins og allur vindur væri úr heimamönnum. Svo virtist sem taugaspennan hefði bugað þær og leikmenn Vals nýttu sér það til hins ýtrasta; skoruðu síðust fjögur mörk leiksins og tryggðu sér öruggan sig- ur, 13-19. Sóknarleikur beggja liða var slakur í gærkvöld en það sem Valur Valsstúlkur eru komnar i undan- úrslit i Essodeild kvenna í hand- knattleik í fyrsta skipti í sögunni eftir að hafa unnið Víkingsstúlkur sannfærandi í Víkinni í gærkvöld. Hreint útsagt frábær vöm og enn betri markvarsla var lykillinn að þessum tveimur sigrum Vals en það sést best á því að liðið fær ekki á sig nema 23 mörk samtals í leikjunum Valup-Víkingur 2-0 AIÍP 2—0 Aðeins þurfti aö leika tvær viðureignir í átta liða úrslitum Essodeildarinnar, í öllum viður- eignunum fjórum, þ.e.a.s. að annað liðanna vann tvo fyrstu leikina og því þurfti ekki að koma til þriðja leiks. í undanúrslitum mætast ann- ars vegar ÍBV og Valur og hins vegar Haukar og Stjaman. Fyrstu tveir leikir þessara viður- eigna fara fram þann 9. apríl og 12. apríl, en komi til oddaleikja í viðureignunum verða þeir leikn- ir 15. april Arna Grímsdóttir, leikmaöur Vals, brýst hér fram hjá Guörúnu Hólm- geirsdóttur og félaga í vörn Víkings. Hafrún Kristjónsdóttir fylgist vel meö úr fjarska. DV-mynd Hari Vörn og markvarsla - lykillinn að sigri Vals á Víkingum í 8-liða úrslitum Essodeildar kvenna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.