Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Qupperneq 37
MIÐVTKUDAGUR 2. APRÍL 2003
37
Þjóðverjar eru hræddlr
Berti Vogts, þjálfari Skotlands, segir að
Þjóðverjar séu dauðhræddir við Skota
eftir að þeir misstu toppsætið í hendur
þeirra. Vogts, sem er fyrrverandi lands-
liðsþjálfari Þýskalands, er greinilega að
koma af stað miklu sálarstríði milli þjóð-
anna áður en þær mætast í Skotlandi í
júní. „Rudi Völler ætlar að koma og sjá
leikinn gegn Litháum í dag. Hann ætlaði
ekki að gera það en nú virðist sem hann
sé orðinn hræddur því við erum í topp-
sætinu," segir Vogts. -vig
Landsliösmarkvörður íslands undir smásjánni:
•V
StórUð fylgdust með
flrna Gauti í Glasgow
- sem mun veröa varamarkvöröur Rosenborgar þegar keppnistímabiliö hefst aö nýju
Kjetil Osvold, umboðsmaður Áma
Gauts Arasonar, markvarðar Rosen-
borgar og íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, segir að útsendarar
nokkurra stórliða i Evrópu hafi fylgst
með frammistöðu kappans i lands-
leiknum gegn Skotum í Glasgow á
laugardaginn. Kjetil sagði ennfremur
að þjálfari Rosenborgar hefði tilkynnt
að Ámi yrði annar markvörður liðs-
ins og að Espen Johnsen yrði hér eft-
ir aðalmarkvörður liðsins.
Ámi Gautur sagði í viðtali við DV-
Sport að hann hefði ekki vitað hverjir
þetta voru og vildi í raun ekki vita
það en hann vissi þó að það hefðu ver-
ið útsendarar liða á leiknum. „Það
eru venjulega mörg lið með útsendara
á leikjum sem þessum en ég hef hins
vegar ákveðið að einbeita mér að því
að spila,“ sagði Ámi Gautur.
Hann sagði ennfremur að umboös-
aðilar sínir væru um þessar mundir
að þreifa á markaðinum í Evrópu og
finna út hvaða lið vantaði markmann.
Markaðurinn opnaðist ekki fyrr en í
byrjun júlí en aðspurður sagðist Ámi
enga tilfmningu hafa fyrir því hvaðan
áhuginn kæmi. „Það væri gaman að
prófa að leika í Englandi eða Þýska-
landi eða eitthvað í stærri deildunum.
Ég vona að þetta skýrist sem fyrst,“
sagði Ámi Gautur.
Hann staðfesti að forsvarsmenn
Rosenborgar hefðu lýst því yfir að
hann myndi ekki standa í marki liðs-
ins þegar deildarkeppnin hæfist um
næstu helgi. „Þegar ég tOkynnti að ég
vildi ekki taka tilboði liðsins um nýj-
an samning þá virðist eitthvað hafa
breyst. Svona er þetta bara og ætli
ástæðan sé ekki sú að þeir séu að
reyna að setja pressu á mig að skrifa
undir nýjan samning við félagið,“
sagði Árni Gautur.
Eins og komið hefur fram hefur
Ámi Gautur átt við meiðsli að stríða
í olnboga og fór hann í aðgerð nýlega
en var leikfær að nýju rétt fyrir lands-
leik íslands og Skota. Ámi Gautur
segist ekkert hafa fundið fyrir meiðsl-
unum á laugardag og það sé honum
mikill léttir. Hann sé því klár í slag-
inn á bekkinn hjá Rosenborg. -PS
Istöltið 2003 um næstu helgi:
Stórstjörnukeppni
Hans Kjerúlf á hestinum Hirti frá
Úlfsstöðum. Hann verður einn
hinna 27 sem keppa munu til úrslita
í Stjörnutölti 2003 um næstu helgi.
DV-mynd Pedrómyndir
ístöltseinvaldurinn Erling Sig-
urðsson lokaði í gær keppnislista yf-
ir þá hesta sem munu keppa á ístölt-
inu í Skautahöllinni í Laugardal
næstkomandi laugardagskvöld. Þar
eru margar stórstjörnur á ferðinni
og ljóst að stefnir í hörkukeppni.
Sala á miðum hefur verið rífandi,
þannig aö það verður mikil stemn-
ing í höllinni.
Nýjustu hestar inn eru: Léttir frá
Álftagerði, 7 v„ jarpur, knapi Magn-
ús I. Magnússon, Vonandi frá
Dallandi, 6 v„ brúnn, knapi Halldór
Guðjónsson, Kólfur, 9 v„ steingrár
frá Stangarholti, knapi Hulda Gúst-
afsdóttir, Höfgi frá Ártúnum, 6 v„
dökkjarpur, knapi Hinrik Bragason,
Brúnka frá Varmadal, knapi Jón Ó.
Guömundsson, Hlökk frá Meiri-
Tungu, knapi Kristján Magnússon,
og Surtsey frá Feti, brún, 7 v„ knapi
Sveinbjöm Bragason, Skellur frá
Hrafnkelsstöðum, 10 v„ rauður,
knapi Þórdís Erla Gunnarsdóttir.
Alls munu 27 hross keppa en nöfn
þeirra sem áður höfðu verið valin
svo og knapa þeirra hafa verið birt
ÍDV.
Þá hafa verið valdir ungir stóð-
hestar til sýningar. Þar á meðal sýn-
ir Lena Zielinski Goða frá Auðsholts-
hjáleigu, 5 v„ móálóttan, Tryggvi
Björnsson sýnir Parker frá Sólheim-
um í Húnavatnssýslu, 4 v„ rauðan,
Leó Geir Arnarson sýnir Hrym frá
Hofi í Vatnsdal, 5 v„ gráan.
Fleiri stóðhestar eru inni í mynd-
inni en Erling á enn eftir aö gera
upp hug sinn varðandi þá. Úr vöndu
er að ráða því margir eru úrvals-
gripimir en einungis valdir ungir
og glæsilegir stóðhestar sem ekki
hafa komið mikið fram nema þá á
allra síðustu vikum. -JSS
Fyrsti veiðidagur í Varmá í gær:
Tannlæknagengi með tugi fiska
Aikomendur og fjölskylda Rósars
Eggertssonar, tannlæknis í Reykja-
vík, hefur um árabil haft Varmá í
Ölfusi á leigu fyrsta dag aprílmán-
aðar. Höfuð veiðifjölskyldunnar,
Rósar sjálfur, kemur enn á veiði-
slóðina og kynnir sér aflabrögðin en
fer sjaldnast með í morgunsárið nú
orðið.
í bjartri og kaldri norðanáttinni í
gærdag vom sex manns við veiðar
og höfðu á hádegi veitt vel, vom
með um eða yfir 50 fiska þegar
fréttamann DV bar aö garði. Mest
var um sjóbirting, urriða og regn-
bogasOung. Stærsti fiskurinn var 6
punda sjóbirtingur sem Haukur
Haraldsson dró á land en þvertók
fyrir að vera myndaöur með bráð-
inni.
Haföi fengið 10 fiska
Sigurður Rósarsson var úti í ánni
þegar fréttaritara bar að og hafði feng-
ið eitthvað um 10 fiska en frekar smáa
og hafði hann sleppt þeim. Að sögn
Rúnars Sigurðssonar, sem er einn
tannlæknanna í hópnum, var mjög líf-
legt í ánni þennan morgun og allt að
30 fiskar komnir á land á hádegi en
veiðst höfðu tvisvar sinnum það en
verið sleppt aftur í ána.
Veiðiskapurinn byrjaði víða í
gærmorgun þrátt fyrir frekar kalt
veðurfar og veiðimenn fengu á
mörgum stöðum ágæta veiði. í
Tungulæk byrjaði veiðin í gær og
veiddust á milli 50 og 60 fiskar en
veðurfarið var slæmt, rok og kuldi.
Stærsti fiskurinn var 18 punda en
margir vænir fengust. Veiðimenn
reyndu víða fyrir austan eins og 1
Geirlandsá.
7 punda sá stærsti
í Geirlandsá
„Veiðin hefur gengið ágætlega,
miðaö við aðstæöur, en það hefur
verið kalt héma. Við emm komnir
með 14 fiska og sá stærsti er 7
punda," sagði Gunnar J. Óskarsson
.formaður Stangaveiðifélags Kelfa-
víkur, við Geirlandsá seinni partinn
í gærdag.
„Viö fengum alla fiska í Ármóta-
hylnum og það eru fleiri fiskar
þarna en þeir taka illa,“ sagði
Gunnar sem var að kasta fyrir fisk
í Ármótahylnum en hann var treg-
ur þá stundina. -eh/G.Bender
Ánægöur tannlæknir, Siguröur Rósarsson, var ánægöur meö upphaf fyrsta
veiðidagsins, góöur 1. aprfl sem kannski boöar gott sumar. A innfelldu
myndinni er stærsti fiskurinn sem veiddist í læknum í gær. DV-myndir Eva
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri
Arsenal, segist ekki líka aö hafa
markaskorara í sínu liði. Þetta sagði
hann í viötali þegar hann var spurð-
ur af hverju hann léti Sylvain
Wiltord, sem var mikill markaskor-
ari í Frakklandi áður en hann gekk
til liös við Arsenal, leika á miöjunni.
„Góður leikmaður er sá sem hjálpar
liði sínu aö virrna leiki. Hann þarf
ekki að skora til þess,“ sagði Wenger.
David Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspymu, segir leik-
inn gegn Tyrkjum í kvöld í und-
ankeppni EM vera þann stærsta og
mikilvægasta síðan enska liðið mætti
Brasilíu í 8 liða úrslitum HM sl. sum-
ar. „Þetta er stærsti leikurinn í
riðlinum, sérstaklega fyrir England.
Við verðum að vinna þennan leik.
Þeir eru á toppnum og hafa engu að
tapa en við verðum tilbúnir i slag-
inn,“ sagði Beckham.
Sven Göran Eriksson, þjálfari Eng-
lands, segist ekki ætla að breyta þjálf- *
unaraðferðum sínum þrátt fyrir að
vera sakaöur um að ná ekki því besta
úr leikmönnum liösins. Ekki bætti
síðan úr skák þegar Gareth South-
gate, vamarmaður enska liðsins, hélt
þvi fram að andrúmsloftiö innan
hópsins hefði oft verið betra.
„Að breyta til hefur aldrei veriö
minn stíú. Ég er mjög ánægður meö
hópinn sem ég hef. Þetta em góðir
leikmenn, góðir persónuleikar sem
ná mjög vel saman, sagði Erikson
þegar ummæli Southgate vom borin
undir hann.
v
Micheal Owen segir að Wayne Roon-
ey eigi ekki að byrja inni á í leiknum
gegn Tyrkjum í kvöld. Mikil pressa
er á Eriksson um að velja Rooney í
byrjunarliðið eftir dræma frammi-
stöðu Emile Heskeys gegn Liechten-
stein um helgina en Owen er á öðm
máli. „Wayne getur orðið ótrúlegur
leikmaður og fastamaður næsta ára-
tuginn en það verður að passa að of-
gera honum ekki. Hann er oft hvfldur
hjá Everton, rétt eins og þegar ég var
svona ungur hjá Liverpool, og það
sama á að vera upp á teningnum með
landsliðinu."
Aston Villa mun ekki verða ákært
fyrir ólæti áhorfendanna í ná-
grannaslagnum gegn Birmingham
sem fram fór fyrir fáeinum vikum.
Alls var þaö í fjögur skipti sem áhorf-
endur réðust inn á völlinn og létú öll- ^
um illum látum á meðan á leiknum
stóð. En enska knattspyrnusam-
bandið metur málið svo að löggæsla á
leiknum hafi samt sem áöur veriö
fyrsta flokks og því séu engin rök fyr-
ir ákæru.
Brasilíska stjórstjarnan Rivaldo,
sem leikur meö AC Milan á Italíu,
segist aldrei hafa lýst yfir áhuga á að
ganga til liös við Liverpool eins og
sagt var í vikunni. „Ég hef ekki talað
við enskan blaðamann í yfir tvo mán-
uði. Ég hef engan áhuga á aö yfirgefa
Milan þar sem mér liður mjög vel,“
sagði Rivaldo í gær.
Andri Gunnarsson, ungur knatt-
spymumaður sem spilaði meö Viking
í 1. deildinni á siðustu leiktíð, er nú
við æflngar hjá danska 1. deildar lið-
inu Kölding. Þjálíari Kölding er eng- v_
inn annar en Richard Möller Nielsen
sem gerði lið Danmerkur að Evrópu-
meisturum í knattspymu áriö 1992.
Brasiliumaðurinn Leonardo hefur
lagt skóna á hiUuna og tekiö við
stjómunarstarfi hjá AC MUan, liðinu
sem hann hefur leikið með síðustu
ár. Hann mun veröa aðstoðarmaður
framkvæmdastjóra félagsins, Adri-
ano GiaUi. „Ég hef aldrei haft aðstoö-
armann áöur vegna þess að ég hef
aldrei fundið rétta mannin í starfið.
Þegar ég kynntist Leonardo sá ég að
hann var fullkominn í stöðuna."
Fjármálastjóri Manchester United,
Peter Kenyon, segir að svokaUaðar y
risa-sölur, í líkingu viö þegar liðið
keypti Rio Ferdinand og Juan Veron
á yfir þrjá milijaröa hvorn, séu úr
sögunni hjá félaginu. Kenyon segir
jafnframt að þrátt fyrir aö United hafi
komið út með miklum gróöa á síðasta
ári veröi Ferguson aö selja einhverja
leikmenn ætli hann sér að kaupa ein-
hvetja nýja fyrir næsta tímabil. -vig