Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Side 40
FRETTASKOTIÐ
SIMIIMIXI
SEM
ALDREI
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað
I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum
viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 2003
sefur 550 55 55
IC'L ►-:s. Le L wn lacJcJ un
Gefum betri Heilsu því nudd gerir fólk hraustara
og veitir betri líðan. t*ess vegna býður Kínverska
nuddstofan í Hamraborg falleg gjafakort.
Það er tilvaliÖ að gefa vinum og ættingjum
síriLXim. betri líðan í gjöf.
Sanngjarnt verð og vönduð þjónusta f-yrsta
flolclcs fagmanna.
Hamraborg 20a,
sími 5é>-4-é><?69>
Maðurinn sem framdi vopnað bankarán í gær enn ófundinn:
Fjoldi visbendinga
Maðurinn sem framdi vopnað
bankarán í útibúi Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar við Reykjavíkurveg er
enn ófundinn. Lögregla I Hafnar-
firði og nágrannasveitarfélögum
hefur leitað mannsins frá því í
gær. Að sögn Kristjáns Ó. Guðna-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í
Hafnarfirði, hefur lögreglunni
borist fjöldi vísbendinga frá al-
menningi. Verið er að skoða þess-
ar vísbendingar og heldur rann-
sóknin áfram af fullum þunga í
dag.
Ránið var framið skömmu eftir
opnun útibúsins í gærmorgun.
Maðurinn kom inn klæddur hettu-
peysu og með nælonsokk yfir
höfðinu. Hann mun hafa gengið
rakleitt að gjaldkera í homi úti-
búsins. Þar gerði hann sér lítið
fyrir og vippaði sér yfir afgreiðslu-
borðið og tæmdi peningaskúffu
gjaldkerans. Hann var vopnaður
hnífi. Ekki hefur fengist uppgefið
hversu mikill fengur ræningjans
var en líklegt má telja að upphæð-
in nemi nokkur hundruð þúsund
krónum.
Starfsfólki bankans var að von-
um mjög brugðið við innrás
mannsins. Þrýst var á neyðar-
hnapp í útibúinu og var lögregla
komin á vettvang um tveimur
mínútum síðar. Þá var ræninginn
á bak og burt en hann sást hlaupa
i átt að Stakkahrauni en hvarf þar
sjónum. Ekki þykir ólíklegt að þar
hafi beðið hans blll.
Öryggismyndavélar bankans
festu atvikið á filmu og skoðaði
lögregla myndirnar í gær ásamt
starfsmönnum Sparisjóðsins.
Manninum er lýst sem lágvöxn-
um, u.þ.b. 170 sm á hæð, klæddum
ljósri hettupeysu og dökkum bux-
um. Þá bar hann brúnan bakpoka
á bakinu.
Ingimar Haraldsson aðstoðar-
sparisjóðsstjóri sagði í samtali viö
DV í morgun að farið yröi yfir
málið í heild sinni í dag. „Við ætl-
um að opna aftur á Reykjavíkur-
veginum og þar verður starfsemi
samkvæmt venju. Við munum
jafnframt bjóða starfsmönnum
frekari aðstoð ef þeir kjósa svo,“
sagði Ingimar.
Lögregla i Hafnarfirði biður alla
þá er upplýsingar geta gefið um
málið að hafa samband í síma 525
3300.
-aþ
Demantar og
símar í páskaeggin
Vinsælt er að gefa ástvinum
sérstakar gjafir í páskaeggjum.
Meðal þess sem sett er í eggin eru
skartgripir og ástarkveðjur. Þá
þekkist það að GSM-símum sé
stungið í eggin. Frumlegir menn
hafa jafhvel beðið sér konu með
þessum hætti eða bjóða elskunni
sinni í siglingu um Karibahafið.
Þeir hormónariku stinga
hjálpartækjum ástarlífsins í eggin.
Fram kom hjá starfsmanni Nóa-
Síriusar að það kostar ekkert
aukalega að láta setja aukahluti í
páskaeggin.
FRETT BLS. 4
Opel Corsa
Heppinn áskrifandi eignast hann á
morgun.
Áskriftapottur DV:
Opelinn dreginn
út á morgun
Splunkunýr Opel Corsa frá Bíl-
heimum að verðmæti 1.390.000
krónur verður dreginn úr áskrifta-
potti DV á morgun, fimmtudag. Er
það sams konar Opel Corsa og sá
sem verið hefur til sýnis á stalli
við DV-húsið undanfarið. Til að
eiga möguleika á að vinna þennan
glæsilega bíl þarf viðkomandi að-
eins að vera áskrifandi að DV.
Áskrift borgar sig. -hlh
Sjálfvírk slökkvitækí
fýrir sjónvörp
Sími 517-2121
H. Blöndal ehf.
Auðbrekku 2 ■ Kópavogi
Innflutningur og sala • www.hblondal.com
11
11
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ