Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Síða 6
G
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003
DV
Fréttir
Stórbruni þegar fiskvinnsla Jóns Erlingssonar í Sandgeröi brann í nótt:
Allt bnunnið til kaldra kola
Mikiö tjón varö þegar eldur kom
upp í fiskverkunarhúsi Jóns Erlings-
sonar í Sandgerði í nótt. Um klukkan
1.40 barst slökkviliðinu í Sandgeröi
tilkynning um að mikinn reyk legði
frá fiskvinnsluhúsinu og skömmu
seinna var það
mætt á vettvang. Reynir Sveins-
son, slökkviliðsstjóri í Sandgeröi,
lýsti aðkomunni svo:
„Það var mikill reykur héma þeg-
ar við komum á svæöið og erfitt
reyndist að komast að eldinum þar
sem einu inngangar hússins vom
fullir af reyk. Vindáttin var líka sér-
lega óhagstæð þannig að eina leiðin
til að beijast við þetta var ofan frá.“
Körfubíll frá slökkviliðinu á Kefla-
víkurflugvelli kom heimamönnum
fljótlega til aðstoöar auk þess sem
allt tiltækt lið frá Bmnavömum Suð-
umesja var kailaö út. Þegar mest var
vom um 60 manns að störfum við
eldinn.
Rýma þurfti verbúðir viö hlið fisk-
verkunarhússins þegar ammón-
íakkútar, sem vom inni í húsinu,
sprungu. Vindurinn stóð beint á ver-
búöimar þannig að ammóníakslykt-
in lá þar yfir öllu. íbúar verbúðanna
vom fluttir óskaddaðir í íþróttahús
bæjarins þar sem þeir munu hafast
við uns hættuástandinu lýkur.
„Það er Ijóst að mestallt sem inni í
húsinu var er brunnið auk þess sem
húsið er meira eða minna allt ónýtt,“
sagði Reynir þegar DV náði tali af
honum rétt fyrir klukkan níu í morg-
un.
„Núna erum við að bíða eftir
kranabíl til þess að geta rifið þakið
burt en eldurinn hefur læst sig í ein-
angrun þess. Við þoram lítið aö fara
inn í húsiö fyrr því mikil hætta er á
því að þakið hrynji eins og staöan er
núna.“
Slökkvistarfi var að mestu lokið
þegar blaðið fór í prentun um klukk-
Barist ofan frá
Mikinn reyk iagöi frá öllum inngöngum fiskverkunarhússins og þurftu
slökkviliösmenn því aö berjast viö eldinn ofan frá.
an 10 í morgun en upptök eldsins eignartjónið nemur tugum, ef ekki
vom þá enn ókunn. Ljóst þykir að hundraðum milljóna króna. -áb
Landbúnaðarráðherra um framkomna gagnrýni á Umboðsmann íslenska hestsins:
Þetta eru mikil tímamót
„Ég er klár á því að þetta eru
mikil tímamót fyrir allar þær
hreyfingar sem eru að vinna í
kringum íslenska hestinn, hvort
sem um er að ræða bændur eða
áhugamenn, að tekist hefur sam-
staða um að stofna þetta emb-
ætti,“ sagði Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra um verk-
efnið Umboðsmaður íslenska
hestsins sem Jón Albert Sigur-
björnsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga, gagn-
rýndi nokkuð í DV í gær. Jón Al-
bert kvaðst heldur hafa viljað sjá
uppstokkun á félagskerfi hesta-
manna og þjónustusamninga við
þá aðila sem þegar væru að
vinna að sömu verkefnum og
Umboðsmanni væri ætlað. A
þann hátt hefði mátt verja þeim
fjármunum sem ætlaðir eru til
nýja verkefnisins á markvissan
hátt, í stað þess að margir væm
að vinna það sama.
„Þetta embætti, Umboðsmaður
íslenska hestsins, er auövitað
sjálfstætt embætti,“ sagði Guðni.
„En það er skýrt kveðið á um það
að hann skuli kappkosta að efla
jákvæða ímynd greinarinnar og
jafnframt aö efla samstööu meðal
hestamanna. Verkefnið skuli
vinnast í þágu allra þeirra sem
starfa að kynningu og sölu á
hestum og hestatengdri þjónustu,
innanlands og utan. Umboðsmað-
ur skuli byggja starf sitt á þeim
grunni sem fyrir er. Hann skuli
hafa náið samstarfs við samtök
hestamanna og svo mætti áfram
telja.
Það er auðvitað hinnar félags-
legu heildar að skipuleggja sitt
starf. Þetta er annars vegar bú-
grein, íþróttafélög, áhugamanna-
félög, tamningamenn og feröa-
þjónusta. Það er þeirra verkefni.
Ég tek þetta ekki að mér sem
landbúnaðarráðherra. Ég hef
heyrt þetta innan þeirra raða um
langa hríð að þeir eru að kýta um
Guðnl Ágústsson
landbúnaðarráðherra.
hver eigi að vera hvað. Ég held
að það sé ljóst að eitt er búgrein
og annað er áhugamannafélag.
Ég tel þaö aðalatriðið að hin fé-
lagslega heild vinni saman og til
hennar hef ég náð gríðarlegum
stuðningi sem Jón Albert getur
ekki rætt um í þessum dúr.“
Guöni benti á, þessu til árétt-
ingar, að um leið og Hestamið-
stöö íslands í Skagafirði heföi
verið opnuð hefði komið samn-
ingur við félagslega heild hesta-
manna, LH, Félag hrossabænda
og Félag tamningamanna um
stuðning af hálfu ríkisins til að
efla fagmennsku í hestamennsku.
„Ég tel það mjög mikilvægt
sem gerist við þetta nýja verkefni
að að því koma Flugleiðir og
Búnaðarbankinn. Ekki er síður
mikilvægt að utanríkisráðherra
segir að sendiráðin og ræðis-
mennimir verði virkjaðir til upp-
lýsinga um hestinn og ísland. Þá
kemur samgönguráðherra þama
inn og segir að ferðaþjónustunni
sé mjög mikilvægt að tengjast
hestinum." -JSS
Stækkun EES
ekki í liættu afi
sögn Halldórs
Ekki tekst að
skrifa undir
samninga við
Evrópusam-
bandið um
stækkun Evr-
ópska efnahags-
svæðisins fyrir
leiðtogafund
ESB í Aþenu
þar sem gengið
verður frá
stækkun sambandsins. Ástæðan
eru óvæntar kröfur Pólverja um
aukin tollfríðindi fyrir ísland og
Noreg. Mikil áhersla hafði verið
lögð á að ljúka samningum.
„Ég tel þetta ekki vera alvar-
legt,“ segir Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra. „Við höfum
verið að reyna að fá sem hæstan
tollkvóta í frystri síld og Pólverj-
ar telja það mjög mikilvægt
vegna þess að þeir kaupa hana af
okkur. Þjóðir ESB sem stunda
síldveiðar eru hins vegar andvíg-
ar því að kvóti okkar og Norð-
manna verði hækkaður. Það er
verið að vinna að málamiðlun en
við erum þakklátir fyrir stuðning
Pólverja og Eystrasaltsríkjanna í
þessu máli.“
Halldór segir að samningar
verði af þessum sökum ekki und-
irritaðir í Aþenu og hann er því
hættur við ferð sína þangað.
„Þeim verður hins vegar lokið
þannig að þeir geti gengið til af-
greiðslu þjóðþinga með sama
hætti og samningurinn um
stækkun Evrópusambandsins,"
segir Halldór; staðfestingarferlið
verði samhliða og töf á undirrit-
un samninga því ekki alvarleg.
-ÓTG
Halldór
Ásgrímsson.
Höfuðborgarstofa
opnuð í Ingóllsnausti
Höfuðborgarstofa, ný stofnun
Reykjavíkurborgar sem tók til
stalrfa um síðustu áramót, verður
opnuð í nýjum húsakynnum.
Starfsemi Höfuðborgarstofu, þar
með talin Upplýsingamiðstöð
ferðamanna, er nú til húsa í Ing-
ólfsnausti (áður Geysishús) við
Aðalstræti 2.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Þórólfur Árnason, og Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
munu opna húsið formlega kl. 17
og staðfesta tvo nýja samstarfs-
samninga borgar og ríkis um
upplýsingamiðlun og kynningar-
mál sem treysta mjög samvinnu
höfuðborgar og landsbyggðar á
vettvangi ferðamála. Borgarstjóri
mun jafnframt opna nýtt ferða-
vefsvæði Reykjavíkurborgar
www.visitreykjavik.is sem er víð-
feðm og öflug gátt fyrir feröaþjón-
ustu á íslandi.
Þar sem nú er Aðalstræti 2 var
naust Reykjavíkurbóndans allt
frá dögum Ingólfs Arnarsonar
enda kallað Ingólfsnaust í göml-
um heimildum. Aðalbátalending-
in var fyrir neðan í Grófinni. Það
er því vel við hæfi að taka upp
þetta gamalgróna nafn á nýja og
fjölbreytta miöstöð, sem mun
þjóna bæði íbúum og gestum höf-
uðborgarinnar. -HK