Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 29 Sport Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, meö bikarinn eftirsótta eftir leikinn í gærkvöld. DV-mynd Siguröur Jökull Gunnar Einarsson: Lagði mig ailan í þetta Gunnar Einarsson svaraöi kalli þjálfara sins með frábærum leik. Hann var í byijunarliðinu og lagði mikið af mörkum í þess- um leik. Þetta er annar Islands- meistaratitillinn hans, hinn kom í hús 1999: „Siggi sagði við mig að þetta væri akkúrat leikurinn til að koma í og spila eins og maður og ég lagði mig allan í þetta og þetta var frábært." Kom þaö Gunnari á óvart að lidið skyldi klára Grindvík- inga i þremur leikjum? „Nei, i raun og veru ekki. Eftir Njarð- víkurseríuna sáum við hvað við raunverulega gátum og náðum þá frábæru tempói í leik okkar sem við vorum síðan staðráðnir i að halda í þessari seríu og það tókst," sagði glaðbeittur Gunnar. -SMS Falur Haröarson: Fjórði titill Falur Harðarson var að hampa sínum fjórða íslands- meistaratitli - hann var með 1989, 1997, 1999 og svo núna. Hann sagði þetta alltaf vera jafn ijúfa tilfmningu: „Þetta er ynd- islegt, alveg yndislegt, og þetta er búið að vera frábært keppnis- tímabil hjá okkur. Hópurinn er stór og ég held að allir hefðu getað verið i byrjun- arliðinu og staðið fyrir sinu. Við vorum klárlega sterkara liðið í þessari rimmu og ég tel aö við höfum sýnt mikinn karakter í kvöld - Damon lenti í villuvand- ræöum og þeir komust yflr en þá sýndum við úr hverju við erum gerðir. Auðvitað heföi verið gaman að klára þetta á heima- velli en góður dagur kemur aldrei of snemma," sagði Falur meö bros á vör. -SMS Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn: Sigurður Ingimundarson, þjálf- ari Keflvíkinga, var búinn að fá heljarinnar meðferð inni í bún- ingsherbergi þegar DV-Sport náði tali af honum eftir leik. Fötin fara líkast til beint í hreinsun á morgun en Siggi var lítið að spá í það: „Ég var tekinn svona nett í gegn af strákunum," sagði hann með glott á vör og bætti við: „Maður er búinn að eiga mörg góð ár meö Keflvíkingum, bæði sem leikmað- ur og þjálfari, en það verður erfitt að toppa þetta. Við áttum frábæra úrslitakeppni og spiluðum rosalega vel sem lið - sem lið," endurtekur Sigurður með þungri áherslu. „Það spiluðu allir vel og þótt Damon lenti í villuvandræðum steig næsti maður einfaldlega upp - ég get sagt það með góðri samvisku að við er- um með langbesta liðið, skrifað með stórum stöfum, LIÐ." Veröur Sigurður áfram með Keflvíkinga? „Núna verða spilaðir nokkrir golf- hringir og svo verða málin rædd," sagði hann að lokum. -SMS Edmund Saunders leikmaöur úrslitakeppninnar: Bns og góður draumur blessun fyrir sig - eiginlega nýja byrjun: “Ég er Keflvikingum þakklátur fyrir það tækifæri að fá að koma hingað og spila með þessu frábæra liði og þetta hefur eiginlega verið eins og góður draumur. Ég er ánægður með spilamennsku mína sem hefur farið vaxandi og bænum mínum hefur nú verið svarað - það er einfaldlega frábært að vera hluti af svona góðum hóp og geta lagt sitt af mörkum til að ná þessum árángri. Við vorum ákveðnari og einbeittari en þeir og vildum meira og náðum strax frumkvæðinu i þessari seríu og þótt við höfum stundum dottið aðeins niður þá átt- um við alltaf meira en nóg inni." En hvað með framtíðina, megum við eiga von á að sjá þennan frá- bæra leikmann spila á íslandi næsta vetur? „Það er ekkert ákveð- ið í þeim efnum en ef tækifæri gefst kem ég vonandi aftur hingaö til lands - það væri gaman," sagði Ed- mund Saunders. -SMS Edmund Saunders er maður þess- arar úrslitakeppni - engin spum- ing. Hann kom til liðs við Keflvík- inga rétt eftir áramót og var einfald- lega punkturinn yfir i-ið í þessu frábæra liði. Hann var að vonum ánægður eftir leik og sagði komu sina tO íslands hafa verið mikla sóknarleik og nýtti styrk liðsins frá- bærlega vel. Hjá Grindvíkingum átti Helgi Jónas Guðfinnsson góðan leik en hann hefur átt misjöfnu gengi að fagna í þessum leikjum. Edmund Saunders fékk það hlutverk að trufla skyttur Grindvíkinga í þessari seríu og fyrir þvi fann Helgi. Guðmundur Bragason sýndi af sér aðdáunarverða baráttu og gaf gjörsamlega allt í þetta. Páll Axel Vilbergsson átti spretti en lenti svo í villuvandræðum. Þeirra bestur var þó Darrell Keith Lewis og þessi kappi er svo sannarlega búinn að skila góðu verki í vetur. -SMS Edmund Saunders þakkar hér Damon Johnson félaga sínum fyrir veturinn. DV-mynd Siguröur Jökull Guðjón Skúlason var líklega að leika sinn síðasta leik fyrir Keflavík: Vil þakka fyrir mig Guðjón Skúlason, fyrirliði Kefl- víkinga, var að hampa sínum sjötta íslandsmeistaratitli og líklega var þetta síðasti leikur kappans. Hann sagði það 99% öruggt en vildi þó ekki alveg útiloka eitt né neitt. „Það er kominn tími á að gera aðra hluti, leggja meiri rækt við golfið og þá stefni ég að því að leggja mitt af mörkum til að bæta enn fremur skottæknina í Keflavík," sagði Gaui og hló við. „Annars hefur þetta verið frábær vetur og eftir tapið á móti ÍR-ing- um, sem var svona vakning fyrir okkur, hefur leiðin legið upp á við og við toppuðum á réttum tíma. Liðsheildin var góð og menn lögðust á eitt og þá batnaði flæðið með hverjum leik og við sýndum það með áþreifanlegum hætti hér í kvöld - lentum undir og Damon í villuvandræðum en það herti okkur bara. Þetta er eitt besta liðið hjá Keflavík sem ég hef spilað með á ferlinum, af mörgum góðum. Það var allt til staðar hjá okkur og við nýttum það frábærlega. Að lokum vil ég endilega þakka fyrir mig - þetta eru búin að vera frábær tuttugu ár og það er fullt af fólki í kringum þetta dæmi allt sem á heiður skilinn; stuðningsmenn, stjómarmenn og svo margir, margir fleiri,” sagði Guðjón. -SMS Langbesta liðið stari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.