Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 Útlönd Ný hetja íraski upplýsingaráöherrann al-Sahaf hefur eignast stóran aðdáendahóp. Upplýsingaráðherrann orðinn að nethetju Helsti talsmaöur íraskra stjórn- valda í stríðinu viö Bandaríkja- menn og Breta, upplýsingamála- ráöherrann Mohammed Saeed al- Sahaf, er orðinn að hálfgerðri hetju í augum margra netverja. Sérstök vefsíða hefur verið sett upp til heiðurs ráðherranum fyrr- verandi, sem varð frægur að endemum fyrir furðulegar yfirlýs- ingar sínar við fréttamenn. Al-Sahaf hélt fréttamannafundi daglega, þar til hann hvarf í vik- unni, með alpahúfu á höfðinu og bros á vör, og bar til baka margt af því sem sjónvarpsáhorfendur höföu fyrir augunum í beinni út- sendingu. Slóð vefsíðunnar er: www.'welovetheiraqiinformation- minister.com. REUTERSWND Fylgst með dáta í eftirlitsferð íraskar konur fyigjast með bandarískum landgönguliða í eftirlitsferð um norðurhverfi írösku höfuðborgarinnar Bagdad. Lögleysa hefur ríkt í Bagdad frá því stjórn Saddams féll í fyrradag og rán og gripdeildir tíð. Hersveitir Kúrda, studdar banda- rískum sérsveitum, hófu í gær sókn inn í Mosul, stærstu borg Norður- íraks, aðeins klukkustundum eftir að hafa hertekið olíuborgina Kirkuk og nálæg olíusvæði með leiftursókn í gær. Sóknin inn í Kirkuk gekk mjög hratt fyrir sig og án minnstu mót- spyrnu og sögðu sjónarvottar að það hefðu ekki aðeins verið hermenn sem stormuðu inn í borgina heldur líka heilu fjölskyldurnar, sem vildu taka þátt í fagnaðarlátunum í kjölfar her- tökunnar. Eins og i öðrum borgum, sem bandamenn hafa náð á sitt vald, hófu íbúamir þegar að ræna stjórnarbygg- ingar og híbýli stuðningsmanna Sadd- ams og mátti sjá fólk bera ólíklegustu hluti á brott. Eins og í Bagdad var styttum af Saddam Hussein teypt af stalli og lágu minnismerki hans eins og hráviði um alla borgina. Algjör uppgjöf varð í liði iraska hersins og sáust þúsundir hermanna á leið suður frá Kirkuk á heimleið til Bagdad eftir að foringjar þeirra höfðu flúið af hólmi, en bæði liðsmenn Lýð- veldisvarðar Saddams og Baath- flokksins flúðu borgina áður en inn- rásin hófst. Bandamenn höfðu búist við harðri mótspymu í Kirkuk og óttuðust mjög að írakar myndu sprengja olíulindir á svæðinu en aðeins logaði í einni lind í nágrenni Kirkuk þegar hertakan var yfirstaðin. Að sögn talsmanns varnarmála- ráðuneytisins í Pentagon var það aldrei ætlunin að hersveitir Kúrda réðust inn í borgina vegna andstöðu Tyrkja, sem óttast mjög að Kúrdar nái þar yfirráðum og lýsi yfir stofnun sjáifstæðs ríkis í Kúrdahéruðunum. Jalal Talabani, helsti foringi her- sveita Kúrda, sagði í viðtali í gær að Kúrdar myndu draga herlið sitt út úr borginni í dag og Bandaríkjamenn taka alfarið við stjóminni. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandarikjanna, sagði í gær að smærri liðssveitir bandarískra og kúrdískra hermanna væru þegar famar að sækja inn í Mosul og hefðu þeir ekki mætt neinni mótspyrnu og verið vel tekið af íbúunum. Algjör uppgjöf virtist vera í liði íraka í Mosul eins og í Kirkuk og sam- kvæmt nýjustu fréttum í morgun voru hersveitir Kúrda þegar komnar inn í miðborgina og höfðu náð þar yfirráðunum án minnstu mótspyrnu. Hersveitir Lýðveldisvarðar Sadd- ams, sem safnast höfðu saman við Mosul í gær, voru á bak og burt og talið að þær hafi haldið suður til Tikrit, heimaborgar Saddams og síð- asta vígis hans í írak. Sprengjuflugvélar bandamanna hafa haldið uppi hörðum loftárásum á varnir Iraka í nágrenni Tikrit í gær og í morgun en búist er við að loka- atlagan að stuðningsmönnum Sadd- ams í Tikrit muni hefjast í beinu framhaldi af hertöku Mosul ef ekki verður um algjöra uppgjöf að ræða. Olíulindanna gætt Bandarískur hermaður á verði á oiíusvæðunum við borgina Kirkuk sem hertekin var án minnstu mótspyrnu í gær. Hersveitir Kúrda komnar inn í Mosul eltir hertöku Kirkuk í gær George W. Bush Bandaríkjaforseti vill að írakar fái aö búa við öryggi í landi sínu hér eftir. Bush lofar aö halda uppl lögum og reglu George W. Bush Bandaríkjafor- seti lofaði stríðshrjáðum írökum í gær að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra myndu halda uppi lögum og reglu í landinu. Frá falli ríkisstjórnar Saddams Husseins hafa hópar manna farið ruplandi og rænandi um Bagdad og aðrar borgir íraks og stolið öllu steini léttara. „Samfylkingarsveitirnar munu aðstoða við að halda uppi lögum og reglu svo írakar geti búið við öryggi," sagði Bandaríkjaforseti. Múgurinn hefur meðal annars ráðist inn á heimili fyrrum ráða- manna, svo sem aöstoðarforsætis- ráðherrans og eins af sonum Saddams. Þá hafa sjúkrahús einnig orðið fyrir barðinu á ræn- ingjunum. Ari Fleischer, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði að það myndi taka tíma að koma ró á. Starfsmenn hjálparsamtaka gagnrýndu bandaríska og breska hermenn í gær fyrir að geta ekki haldið aftur af rænandi múgnum. Bush og Blair, forsætisráðherra Breta, ávörpuðu írösku þjóðina á nýrri sjónvarpsrás í gær. Sítaklenkur drepinn í helgustu mosku Najaf Hópur manna ruddist inn í helgustu mosku sítamúslíma í borginni Najaf í gær og drápu háttsettan klerk, Abdul Majid al- Kkoei, og aðstoðarmann hans með hnífum og byssum. Svo virð- ist sem valdabarátta sé nú háð í Najaf sem er á valdi bandarískra hermanna. Al-Khoei var sonur þekkts æðstaklerks sem lést í stofufangelsi árið 1992. Búist er við að morðin á tví- menningunum eigi eftir að auka enn á spennuna í röðum síta sem máttu þola áratugalanga kúgun af hálfu Saddams Husseins og manna hans sem voru úr trúar- deild súnníta. Sextiu prósent írösku þjóðarinnar eru sítar. Leigan í þínu hverft ifiif i ri ffTttSn l nTl Hfe-.. Wffl 11 * 1 in i n [i 111 THj^BWÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.