Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2003, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 DV Fréttir Matgæðingar DV bragðprófa páskaeggin Bragðprófun DV Slgmar Ulfar Samtals Bragðgæöingar DV gáfu páskaegg- inu frá Nóa hæstu samanlagða ein- kunn í bragðprófun sem fram fór í DV-húsinu viö Skaftahlíð í gærmorg- un. Bragðgæðingar blaðsins eru sem fyrr þau Dröfn Farestveit, Sigmar B. Hauksson og Úlfar Eysteinsson. Bragðgæðingar DV smökkuðu á 5 páskaeggjum. Frá Góu, Nóa, Mónu, Opalegg frá Nóa og egg fyrir sykur- sjúka frá Mónu. Eggið frá Góu var nr. 6, frá Mónu nr. 8, nr. 6 frá Nóa, eggið fyrir sykursjúka var án núm- ers og Opaleggið frá Nóa var nr. 6. Eggin voru keypt í Hagkaupum í Kringlunni seinnipart miðvikudags og kostuðu þau samtals rúmar 8 þús- und krónur. Áður en bragðgæðingar DV mættu til bragðprófunarinnar voru umbúð- ir fjarlægðar af eggjunum og áfast sælgæti eða skraut sem gat gefið til kynna hvaðan eggið væri. Eggin voru klofin til helminga og annar helmingurinn brotinn í bita sem deilt var á diska með númerum frá 1 til 5. Að lokinni bragðprófun gátu bragðgæðingarnir séð hinn helming eggjanna með fyllingunni í og gefið umsögn um hana ef tilefni þótti til. Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess að bragðgæðingunum fannst eggin vera ósköp keimlík. Munurinn væri ekki afgerandi frá einu eggi til annars og erfitt að gera upp á milli þeirra. Eins og að ofan greinir kom eggið frá Nóa best út, fékk samanlagt 13 af Dröfn Nóa ☆☆☆☆☆ Góa ☆☆☆☆ Nóa Opal ☆☆☆☆☆ Móna ☆☆☆☆ Móna f. sykursjúka ☆☆☆ 15 mögulegum í einkunn. Þá komu eggin frá Góu og Opaleggið frá Nóa saman með 11 stig og loks Mónuegg- in, þetta hefðbundna og eggið fyrir sykursjúka, með 10 stig hvort egg. Vel troöiö í Öll eggin þóttu vel fyllt af sælgæti. Minntust bragðgæðingar þess að innihald eggjanna hafi verið af skornum skammti fyrir nokkrum árum og sættu salgætisframleiðend- ur þá nokkurri gagnrýni vegna þess. En hin síðari ár hafa páskaeggja- framleiðendur sannarlega tekið sig á. Mónueggið fyrir sykursjúka var þó með litlu sælgæti innan i, eðli máls samkvæmt. En þar var þó að fmna lítið plastdýr. Málsháttur var í öllum eggjunum. ☆☆☆ ☆☆☆☆☆ 2® ☆☆☆ ☆☆☆☆ 22, ☆"☆ ☆☆☆☆ 22, ☆☆ ☆☆☆☆ 2® ☆☆☆ ☆☆☆☆ 2® Toppegg Dröfn og Úlfar gáfu egginu frá Nóa toppeinkunn eða 5 en Sigmar lét 3 nægja. „Góð fylling, bragðið vel fyllt. Toppegg," sagði Úlfar og Dröfn sagöi: „Mjög bragðgott egg. Ekkert aukabragð. Vel útilátið innihald." Sigmar sagði: „Gott rjóma-smjör- bragð en lítið súkkulaðibragð." Eggið frá Góu fékk 4 í einkunn hjá Dröfn sem sagði þó of mikið vanillu- bragö af því fyrir sinn smekk. En innihald væri vel útilátið. „Góð fyll- ing í bragði og fallegt egg,“ sagði Úlf- ar og gaf 4 en Sigmar sagði: „Milt bragð þó lítið súkkulaðibragð. Mikið af sælgæti innan í. Týpískt egg „al la ísland“. Sigmar gaf 3 í einkunn. Dröfn fannst Opaleggið frá Nóa bragðbesta eggið og gaf því toppein- kunn. Sagði hún innihald mikið. Úlfari fannst Opaleggið fallegt en fannst dökki liturinn plata bragð- skynið. „Ég átti von á bragði sem var í takt við dökka litinn. Bragðiö líkist um of hinum eggjunum," sagði hann og gaf því 4 í einkunn. Sigmar gaf Opalegginu 2 í einkunn, þótti það lítið spennandi og votta fyrir gervi- bragði. Mónueggið fékk 4 í einkunn hjá Dröfn sem skýrði það ekki frekar en hrósaði innihaldinu þar sem eggið var troðfullt af sælgæti. Úlfar sagði góða fyllingu í egginu og það væri bragðgott. Gaf því 4. Sigmari fannst bragðið einkennilegt, súkkulaðið heldur sætt og eggið lítt spennandi. Niðurstaðan var 2 i einkunn. „Ég fagna því að þeir sem ekki mega fá sælgæti geti notið páska- eggjanna," sagði Dröfn um páskaegg- ið fyrir sykursjúka frá Mónu. Hún sagði bragðið sérkennilegt vegna sykurleysisins og gaf því 3. Úlfar gaf þessu eggi 4 í einkunn, sagði bragð- ið milt og gott. „Húrra fyrir fram- leiðandanum. Ég vona bara að verð- ið sé gott fyrir þá sem verða að kaupa þetta egg.“ Sigmar sagði erfitt að fjalla um þetta egg vegna þess að enginn sykur er í því en sagði þó ánægjulegt að þessi vara væri á markaðnum. Sérstaöa Mónu til eftirbreytni Eins og að ofan greinir báru bragðgæðingarnir lof á sælgætis- gerðina Mónu fyrir að framleiða egg fyrir sykursjúka og hvöttu til framhalds þar á. Þá ber að geta þess að Móna framleiðir einnig egg án mjólkur, fyrir fólk með mjólkurofnæmi, og er það einnig vel. Það egg fannst hins vegar ekki í verslun Hagkaupa seinnipart miðvikudags. Greini- legt er að Móna vill ekki að neinn veröi út undan í súkkulaðiáti yfir páskana og er sú afstaða lofsverð. Innihaldslýsingar eru ítarlegar á öllum páskaeggjunum. Móna gerir þó betur en keppinautarnir að því leyti að á miðanum eru for- eldrar hvattir tH að fylgjast með börnunum þegar þau borða páskaeggin sín þvi smágert inni- hald eggjanna geti staðið í þeim eða hrokkið ofan í þau. Spurning um smekk Áréttað skal að smekkur hvers og eins ræður miklu þegar bragð af súkkulaði er metið eins og hér er gert. Bragðgæðingarnir eru fráleitt sammála um eggin en samanlögð niðurstaða ræður hins vegar hvaða egg verður í fyrsta sæti. Lesendur eru hvattir til að lesa textann tU að sjá hvað býr að baki einkunnargjöf bragðgæðinganna og spá í hvaða einkunn hvert egg fær hjá hverju þeirra. -hlh i •★ - ★ ••★•- ★- . >★-.•★•'•★-.★ -•★• Mjog vont Vont Sœmilegt Gott Mjög gott ' Eggin skoðuö Spáð í molann Málshættir Dröfn Farestveit og Ulfar Eysteinsson skoöa páskaeggin áöur en þau voru Sigmar B. Hauksson spáir I súkkulaðiö. Málshættir voru aö venju í hverju eggi enda hluti af heföinni tekin í sundur og bútuö fyrir bragöprófun. Hann var spar í einkunnagjöf sinni. í kringum páskaegg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.