Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 DV Fréttir Afmæli forseta íslands endaði með giftingu á Bessastöðum: Ólafur Ragnar og Dorrit gengin í hjónaband Undirritaö hjá sýslumanni Eftir aö Guömundur Sophusson, sýslumaöur í Hafnarfiröi, haföi gefiö Dorrit Moussaieff og Óiaf Ragnar Grímsson saman var formlega gengiö frá málum meö undirskrift brúöhjónanna. henni lokinni snæddu gestimir kvöldverð ásamt forsetahjónun- um. Ólafur Ragnar og Dorrit kynnt- ust fyrst í kvöldverðarboði sem vinafólk forsetans hélt í London árið 1999. Þar sátu þau fyrir tilvilj- un hlið við hlið og sagði forsetinn á sínum tíma „að neistar hefðu kviknað þá strax um kvöldið". Eitt leiddi síðan af öðru og loks opinberuðu þau trúlofun sína um ári síðar, þann 25. maí 2000, eftir að Dorrit haföi farið ásamt forset- anum í nokkrar opinberar heim- sóknir, m.a. til Washington í Bandaríkjunum. Þau eiga bæði eitt hjónaband að baki. -áb Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff, heitkona hans til þriggja ára, gengu í hjónaband síðastliðið mið- vikudagskvöld eftir að hafa verið trúlofuð í tæp þrjú ár. Athöfnin fór fram á Bessastöðum að lokinni mikilli hátíð í Borgarleikhúsinu sem haldin var forsetanum til heiðurs en hann varð sem kunn- ugt er sextugur þennan sama dag. Að hátíðinni lokinni óku þau Ólafur og Dorrit út á Álftanes þar sem Guðmundur Sophusson, sýslumaður í Hafnarfirði, gaf þau saman í Bessastaðastofu. Dætur forsetans og nánustu skyldmenni voru viðstödd athöfnina en að DV-MYNDIR GUNNAR VIGFÚSSON Forsetahjónin Brúöhjónin á Bessastööum aö kvöldi afmælisdags forsetans. íbúar í Silfurtúnshverfi í Garöabæ ósáttir viö 2 metra háa hljóömön: Missa fallegt útsýni en hljóðmengun á að hverfa „Hér er að rísa hálfgerður Berlínarmúr og fólk í hverfinu er langflest afar óánægt með þessa framkvæmd, hljóðmön milli Hafn- arfjarðarvegar og Silfurtúns sem á eftir að skemma fallegt útsýni frá hverfinu," sagði Erna Arnar, íbúi við Aratún. Hún segir að örfáir íbúar við fremstu götu hverfisins, Silfurtún, hafi kvartað yfir hávaða frá umferðinni og boðað hafi verið til fundar með íbúum hverfisins út af þessu seinni part árs í fyrra. „Við heyrum ekki þennan umferð- arnið en okkur er sagt að þetta verði að gera, það sé lögum sam- kvæmt,“ sagði Erna. Bæjarstjóri segir að hér sé verið að framfylgja lögum. Verið er að safna jarðefni í mikla hljóðmön sem hluti íbú- anna á þessu svæði er á móti. íbú- ar tala um að missa fallegt sólar- lag í vestrinu, útsýni til Bessa- staða og yfir Arnarvog eftir að hljóðmönin verður komin. „Ég bað um fundargerð þessa fundar á bæjarskrifstofunum en hún var ekki til. Umhverfismat hefur ekki verið gert og grenndar- kynning ekki farið fram. Ég fékk engin svör um það hvenær þessi framkvæmd var auglýst. Ég tel að þetta sé breyting á deiliskipulagi sem beri að auglýsa,“ sagði Ema. Hún segir jafnframt að arkitekt segi sér að landslagsarkitektamir, sem hönnuðu hljóðmönina, Lands- lag ehf., segi hana of breiða, of háa og of nálægt byggðinni. Það komi sér ekki á óvart. „í Kópavogi eru grænar, lágar trégirðingar í stað tuga tonna af jarðvegi. Þetta mætti alveg gera hérna,“ sagði Erna. „Með fram Hafnarfiarðarvegi er töluverð hljóðmengun. Samkvæmt lögum og reglugerðum eiga íbúar rétt á að hverfið sé varið fyrir hljóðmengun og okkur er skylt að verða viö því. En því miður er það sums staðar þannig að útsýni skerðist þegar verið er að reisa hljóðvarnir. í þessu tilviki er um að ræöa grasmön, hún virkar tölu- vert stór þegar hún er skoðuð núna, mikilli mold hefur verið safnað saman, en þegar búið er að þjappa moldina og vinna úr þessu eins og hönnuðir gera ráð fyrir verður mannvirkið miklu um- fangsminna en nú sýnist,“ sagði Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar- stjóri í Garðabæ. Bæjarstjórinn sagði að hljóð- mönin yrði í um það bil tveggja metra hæð. íbúar skiptust I fylk- ingar í þessu máli, sumir vilja út- sýni, aðrir kjósa að losna við há- vaðann frá veginum. Bærinn er í þeirri erfiðu stöðu að tryggja rétt þeirra sem kjósa að losna við há- vaðamengunina, sem hefur mælst yfir 65 desíbelum þannig að eng- inn vafi er á að bænum ber að setja upp hljóðmönina. „íbúar hafa kvartað yfir að erf- iðlega hafi gengið að selja fast- eignir vegna umferðarinnar á næstu grösum. En ég skil vel þá íbúa sem búið hafa lengi þama og hafa vanist fallegu útsýni að missa það. Á næstú dögum verður fundur með íbúunum og farið yfir þetta með þeim,“ sagði Ásdís Halla Bragadóttir. Hún segir að ekki sé krafa um að fram fari umhverfismat vegna hljóðmana. -JBP Borgarstjórinn tekur viö „Góða álfinum" Ósk Rúnarsdóttir, 13 ára, og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, 12 ára, frá Fimleikafélaginu Gerplu afhenda borgarstjóranum álfinn en allir félagar úr Fimleikafélaginu Gerplu ætla að taka þátt i söluátaki SÁ4 um helgina. Átak SÁÁ: Borgarstjórinn kaupir fyrsta álflnn SÁÁ stendur fyrir sölu á „Góöa álfmum“ um helgina og mun ágóði sölunnar rennar til styrktar ungum fíklum. Á síðasta ári komu tæplega 300 ungmenni á aldrinum 14 til 19 ára í meðferð til SÁÁ en sérstök ung- lingadeild hefur verið rekin á Vogi frá því í ársbyrjun 2000. Til viðbótar við meðferðina býður SÁÁ unga fólk- inu upp á félagslega samveru að lok- inni meðferð. Þannig gengur því bet- ur að halda sig frá vímuefnunum. Verulegur hluti af þessari aðstoð við unga fólkið er fjármagnaður með sjálfsaflafé SÁÁ og er álfasalan einn stærsti þátturinn í þeirri fiáröflun. SÁÁ vifl þakka borgarstjóranum, þjóðinni og ekki sist dugmiklu sölu- fólki fyrir þetta mikilvæga framlag til þess að styrkja meðferðardeildina á Vogi og til að efla félagslega starf- ið þegar unglingamir koma úr með- ferð. -EKÁ Viðskiptablaðið á Saga Class Icelandair hefúr ákveðið að auka þjónustu sína við farþega á Saga Class-viðskiptafarrými með því að bjóða þeim upp á Viðskiptablaðið. Samningar hafa tekist á milli Icelandair og Framtíðarsýnar, útgef- anda Viðskiptablaðsins, um að Við- skiptablaðið standi farþegum á Saga Class til boða í framtíðinni. Til þessa hefur verið boðið upp á erlend viðskiptablöð á Saga Class en í framtíðinni veröur einnig hægt að lesa fréttir úr íslensku viðskiptalífi. „Þörf farþega okkar á viðskipta-f- farrými á upplýsingum og greiningu fyrir stjómendur er mikil. Þær þurfa að vera fyrsta flokks. Við- skiptablaðið, „hið íslenska FT“, upp- fyllir þetta. Auk þess er blaðið að- gengilegt og skemmtilegt og skapar skemmtilegar umræður, ekki síst mn borð í flugvélum. Þess ber að geta að Financial Times er einnig boðið á viðskiptafarrými og er það jafhan blað dagsins sem flogið er með frá Belgíu með fragtvélum fé- lagsins um nóttina," sagði Sigurður Skagfiörð Sigurðsson, þjónustustjóri Icelandair. -VB Hagnaður Sæ- plasts 20 milljónir Sæplast hf. var rekið með tæplega 20 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrsta ársfiórðungi ársins, samanborið við 18 milljóna króna hagnað í fyrra. Rekstur fyrsta árs- fiórðungs gekk i meginatriðum vel, þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður. Sterk staða íslensku og norsku krón- unnar hafa neikvæð áhrif á afkomu þarlendra félaga. Sölutekjur standa nánast í stað, miðað við sama tíma- bil i fyrra þrátt fyrir magnaukningu í framleiðslu. Sölutregða er enn á mörkuðum í Norður-Ameríku og tap eins og áður segir af rekstrinum þar. Reiknað er með hagnaði á öðr- um ársfiórðungi. Verkefhastaöa fé- lagsins er alls staðar góð, nema í Noregi. -VB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.