Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 18
♦ 18 Skoðun FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 DV Skoðun Álfurinn bjangan mannslífum Álfurinn var fyrst séldur árið 1990 og hafa sölutekj- ur alfarið runnið til að að- stoða unga fíkla til að losna úr helgreipum sjúk- dómsins. Fjármagnið, sem fœst með þessum hætti, rennur óskipt til unglinga- deildar Vogs sem rekur sig fyrir sjálfsaflafé. sitt líf. Þetta er hægt vegna þíns stuðnings og stöðugrar baráttu einstaklinga sem hafa helgað líf sitt baráttunni gegn flkn. Þrátt fyrir góð meðferðarúrræði stefnir nú í síaukna eftirspurn eftir með- ferð fyrir ungt fólk á aldrinum 20 til 30 ára. Það er alveg ljóst að starfsemi SÁÁ á meðferðarheimil- inu Vogi skilar miklu til þjóðfé- lagsins. Ungt fólk, sem oft var illa á sig komið, er aftur komið út í hið daglega líf þar sem það leggur sitt af mörkum til að byggja upp öflugt þjóðfélag. Fíkniefnaneysla er erfið við- fangs og reynir á þolinmæði allra þeirra sem koma nærri vandan- um. Oft þarf unglingurinn að koma nokkrum sinnum í meðferð áður en hann nær að tileinka sér þær lífsreglur sem þar eru kennd- ar og tekst að fóta sig á ný á bröttum brautum samfélagsins. Það verður ekki fram hjá því horft að síaukin neysla fíkniefna og vaxandi fjöldi fólks, sem lend- ir í helgreipum hennar, hefur leitt margan unglinginn út í dauðann. Það er því skylda okkar allra að leggja okkar af mörkum til að styðja við bakið á þessum hæfileikamikla hópi ungmenna sem er berjast upp á líf og dauða við fikniefnadjöfulinn. Við þurf- um að muna eftir öllum fjölskyld- unum sem hafa orðið að þola skelfingu fíknarinnar og að sjá barnið sitt engjast sundur og saman í greipum fíkniefnadjöf- uisins. Góðir íslendingar, takið þátt í baráttunni og kaupið áifinn af sölufólki SÁÁ um helgina. Hvert mannslíf er ómetanlegt. Hver króna skiptir máli. Gleymum ekki að álfurinn bjargar manns- lífum. Einar Ágúst „skítamórair skrifar Þaö getur enginn ímynd- að sér hvað það er að verða fíkniefnum að bráð á ungaaldri, nema þeir sem hafa orðið fyrir barð- inu á fíkninni og fest sig í neti hennar. Á íslandi eru hundruð foreldra sem vita hvað það er að missa barn sitt í fíkniefnaneyslu og þekkja það helvíti sem því fylgir. Það er því mikils um vert að þjóð- in leggi sitt af mörkum einu sinni á ári og kaupi SÁÁ-álfinn. And- virði sölunnar fer aifarið í upp- byggingu meðferðar fyrir unga fíkla og til að hjálpa þeim sem eru að fóta sig á beinu brautinni á nýjan leik. Litli álfurinn, sem lætur ekki mikið yfír sér, hefur unnið hug og hjarta þúsunda íslendinga sem vilja leggja þessu verðuga verk- efni lið. Alfurinn var fyrst seldur árið 1990 og hafa sölutekjur alfar- ið runnið til að aðstoða unga fíkla til að losna úr helgreipum sjúk- dómsins. Fjármagnið, sem fæst með þessum hætti, rennur óskipt til unglingadeildar Vogs sem rek- ur sig fyrir sjálfsaflafé. Ekki er vanþörf á. Árið 2001 leituðu 282 ungmenni til deildarinnar og báðu um hjálp. Árið 2002 voru þau orð- in 289. Allt stefnir í að talan hækki enn. Margir af þessum ung- lingum eru komnir í dagneyslu. Aðrir eru skemmra á veg komnir í neyslunni. Þessir einstaklingar eiga allir kost á því að snúa baki við Bakkusi og halda áfram með Alverksmiðja Austurlands Þjóðin getur tagnað Hulda Magnúsdóttir hringdi: Mér finnst að þjóðin öll geti fagnað því að forseti íslands er ekki lengur í óvígðri sambúð. Nóg hefur veriö óskapast yfir því að forsetinn skuli ekki hafa fest ráð sitt og lengst af einung- is kynnt hina geðþekku konu, Dorrit Moussaieff, sem heit- konu sína. Nú er þessu tímabili í lífi forsetans lokið og við eig- um að sameinast, og þá meina ég þjóðin öll, í því að óska hjónunum velfamaðar í starfi sem og í einkalífi. Það er mikill fengur í því að hafa þetta glæsilega par á Bessastöðum, og forseta eigum við að hafa í framtíðinni en ekki leggja emb- ættið niður líkt og sumir hafa verið að ýja að. Þjóð án forseta í embætti vegur mun minna á opinberum vettvangi, ekki síst erlendis. Eftir þessu embætti er tekið víða um heim. - Til ham- ingju, góðu hjón. Nýtt tímabll í lífl þeirra. Konráð R. Frlöfinnsson skrifar: Nú skal virkjað, og það svo stórt að annað eins hefur ekki gerst í íslandssögunni. Stóreflis álfabrika kallar á stórt lón til fjalla með miklu vatni i til að hægt sé að búa til alla ál- klumpana sem fyrirhugað er að framleiða í fjöruborði Reyðar- ljarðar. Reynist Kárahnjúkavirkj- un of lítil munu áætlanir Alkóa- manna riðlast og þá má gera ráð fyrir að vandræðaástand skapist sem kemur sér iUa fyrir væntan- lega kaupendur álsins. Ekki reyn- ist þá unnt að búa til nægjanlegt magn áls, eins og núverandi ráða- gerðir segja til um. Mörgum kann að þykja ein- kennilegt að ætla að byggja svo stórt mannvirki í mannfæðinni eystra. Jafn stórt dæmi kallar vitaskuld á ófáar hendur til að sinna þessum störfum þegar allt er komið á fullt. En hvemig hyggj- ast menn fylla í þessar stöður sem skapast þama? Það liggur nokkuð ljóst fyrir: Með innflutningi á fólki „Fólkið fór ekki endilega í burt vegna ónógrar vinnu í sinum fœðingar- bœ heldur er það tíðar- andinn sem kallar. Þegn- ar landsins vilja vera þar sem öryggið er meira og afþreyingin sömuleiðis. “ frá öðrum löndum, líkt og gert hef- ur verið í stórum stíl hvað varðar fiskvinnsluna. Einkum á lands- byggðinni. Segja má að útlent fólk beri í dag uppi þessa undirstöðu- atvinnugrein íslensks samfélags utan höfuðborgarsvæðisins. í ýmsu er svo sem pælt þegar hiö nýja álver ber á góma. Talað er um að burtfluttir Austfirðingar flykkist á sínar heimaslóðir til að taka sér stöðu í nýju verksmiðj- unni strax og fært verður. Fast- eignaverð hefur nú hækkað dálít- iö í Fjarðabyggö og meira að segja er eftirspum eftir húsum þar eystra í einhverjum mæli. Og ann- að í þeim dúr. Bjartsýnin þar er því nokkur. En eru það raunhæfar hugmynd- ir að ætla hinum brottfluttu að koma aftur á fornar slóðir bara vegna álvers? Tæplega. Og hví skyldu menn, sem á annað borð hafa rifið sig upp og eru búnir að koma sér vel fyrir annars staðar og börnin stunda skóla á nýjum stað, pakka saman fóggum sínum á nýj- an leik til að vinna í einhverri ál- verksmiðju á Austfjörðum? Fólkið fór ekki endilega í burt vegna ónógrar vinnu í sínum fæð- ingarbæ heldur er það tíðarand- inn sem kallar. Þegnar landsins vilja vera þar sem öryggið er meira og afþreyingin sömuleiðis. Og það eru hinar þéttari byggðir landsins sem bjóða mönnum það öryggi. Þótt því fylgi reyndar ým- islegt annað sem menn taka kannski ekki með í þann reikning þá er þetta einfaldlega svona. - Það verður því fróðlegt að sjá hvaða fólk kemur til með að starfa í „Álverksmiðju Austurlands“. Lán tíl erlendra Sveinþjöm Jónsson skrifar: íslensk bankastarf- semi hefur þróast Eftirtektarverö útrás hratt á hjá íslandsbanka. undanfóm- um allra síðustu misserum. Og allt í rétta átt sýnist mér. Starfsemi á erlendri grund er okkur íslending- um til hagsbóta, jafnvel þótt í einkarekstri sé. Állt til þess að lyfta okkar orðspori og efla ítök sem víðast. Nú síðast rakst ég á frétt um að íslandsbanki væri orð- inn stærsti einstaki lánveitandinn til kanadíska sjávarútvegsins, með samningi við Fishery Products Intemational um endurfjármögn- un langtímalána fyrirtækisins. Þetta er áreiðanlega eitt af mörg- um sterkum skrefum sem íslensk bankastarfsemi ætti að sinna bet- ur í framtíðinni. Urskuröur Kjaradóms Sigvaldi Ólafsson skrifar: í þessum úrskurði felst að mínu mati staðfesting á því að misskipt- ingin í þjóðfélaginu eykst, og það af ásettu ráði. Efsta lag ráða- manna hrifsar til sín meira og meira með skírskotun í leiðrétt- ingu í samanburði við laun og ábyrgð „sambærilegra hópa“ (nefnd manna úr efsta lagi ríkis- starfsmanna), en í raun eru þeir að úrskurða um eigin kjör. Svo þegar upp er staðið bera þessir menn enga ábyrgð en segja: Ekki benda á mig, og þvo hendur sinar. Án þess aö blikna frammi fyrir al- þjóð. - Ótrúlegt og ófyrirgefanlegt. Tölvur og flatup skján Þórdís skrifar: Ég er ein þeirra sem fylgjast grannt með auglýsingum um nýjar tölvur. Mín Auövitaö - framtíöln gamla tölva er í þeim flötu ... fer ag Verða þreytt, þótt hún sé að vissu leyti ágæt „ritvél" til heimabrúks. Mér blöskrar að vísu verðið - 130 til 160 þúsund krónur - og það með gamla skjánum fyrirferðarmikla. Ég sé að lítið er auglýst af tölvum með flötum skjá þótt þær séu komnar í gagnið víða í stofnunum og á flestum vinnustöðum. Flatir skjáir eru framtíðin svo ég sé ekki hvers vegna söluaðilar skipta ekki strax út og bjóða einungis flata skjái með nýju tölvunum. Og á sama verði. Ég mun því bíða þar til viðtekin regla verður að bjóöa flata skjái samhliða, án þess að hækka verðið. Það munu og marg- ir aðrir gera. Kjöp páðamanna Guöjðn Bjarnason skrifar: Ég hef verið að bíða eftir að ein- hver eða einhverjir fjölmiðlar gerðu verulega harða hríð að þvi sem ég kalla „aöfór“ að almenningi með úrskurði Kjaradóms fyrir helg- ina. Leiðari Mbl. var t.d. afar dauf- ur, fór með löndum og endaði á því að segja að launaskrið æðstu emb- ættismanna ætti ekki að valda óró- leika á vinnumarkaði. Ólíkt harð- ari afstöðu tók leiðarahöfundur DV sl. miðvikud. Þar sagði að þetta væru kaldar kveðjur til launafólks - að almenningur gæti ekki setið undir því ár eftir ár að hægt en ör- ugglega væri verið aö búa til fá- menna elítu - Nómenklatúru - sem fitnaði óháð öllu og í engum tengsl- um við raunveruleika sem allur al- menningur þyrfti að glíma við. - Þetta eru orð að sönnu. DVI Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.