Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 16. MAl 2003 spáip í spiin fyrir Landsbankadeldna 2003 3 1.sæti:KR áhættur með boltann. Einnig hef- ur loðað við hann að fá á sig slysaleg mörk. Valþór, vara- skeifa Kristjáns, býr ekki yfir mikilii reynslu en sýndi það í fyrra að hann Kristján getur vel leyst bogason. Kristján af á sómasamlegan hátt. Ðnkunn DV-Sports: Finn- Mark Kristján Finnbogason hefur fyrir löngu síöan sýnt að hann er einn besti markvörður landsins. Býr yfir mikilli reynslu, er frábær á milii stanganna, góöur á bolta, öflugur í föstum leikatriðum og með góð út- hlaup. Jafnframt duglegur að öskra félaga sína áfram. «■ Kristján á það tii að vera fullkærulaus og taka mikiar 8» Valur 9. FH 10. KA b. Prottur vörn Gunnar og Kristján verða fyrir miðju vamar, öflugir og fljótir leikmenn. Gunnar spilar bolta vel frá sér og Kristján er geysilega sterkur skallamaöur. Hilmar er sterkur sóknarlega og með frábærar sendingar. Jökull er fljótur og les leikinn vel. Sigursteinn er mjög reyndur og er með flnar staðsetn- ingar. — Gunnar og Kristján eru frekar mállausir miðverðir, skipu- leggja ekki vel og hafa náð illa saman. Sigur- steinn og Hilmar hafa tapað nokkrum hraða og svo fær Hilm- ar lítið að færa sig fram á völl- Hilmar Bjömsson. inn og getur því ekki beitt sínu helsta vopni, send- ingunum, sem skyldi. Bnkunn DV-Sports: ® Stofnað 1899 Heimavöllur: KR-völlur Stúka með 550 sætum, stæðum og stæði á trépöllum. Alls 3500. KR fékk 1948 áhorfendur að meðaltali á leik í deildinni í fyrra. íslandsmeistaratitlar: 23 (1912, 1919, 1926, 1927, 1928, 1929, 1931, 1932, 1934, 1941, 1948, 1949, 1950, 1952, 1955, 1959, 1961, 1963, 1965, 1968, 1999, 2000, 2002.) Bikarmeistaratitlar: 10 (1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995, 1999.) Stœrsti sigur í tíu liöa efstu deild: 9-1 gegn Val 1992. Stœrsta tap í tiu liöa efstu deild: 0-5 gegn Val 1980. Flestir leikir i efstu deild: Þormóður Egilsson 239, Einar Þór Daníelsson 170, Ottó Guðmundsson 165. Flest mörk i efstu deild: Ellert B. Schram 62, Þórólfur Beck 49, Gunnar Felixson 44. Árangur í efstu deild: 818 leikir, 369 sigrar, 210 jafntefli og 239 töp. D^.-Sport spáir því aö íslandsmeistarar KR sigri Ognvekjandi ma - vesturbæingar hafa eflt hóp sinn til muna og æ DV-Sport hefur spáð í spilin fyrir Landsbankadeildina í sumar undan- famar tvær vikur og nú er komið að því að upplýsa hvaða lið við teljum að muni hampa íslandsmeistaratitlinum í september næstkomandi. Það er okkar mat að íslandsmeistarar KRhafi það sem til þarf til að verja titilinn og þeir veröi krýndir meistarar annað árið í röð. KR-ingar háöu mikið einvígi við Fylkismenn um titilinn í fyrra og þurftu að lokum að treysta á Guð, lukkuna, sjálfa sig og Skagamenn til þess að sigra og það gekk eftir. Lið KR hefur gengið í gegnum nokkrar breytingar í vetur og ber helst að nefna að Þormóður Egilsson hefur lagt skóna á hilluna eftir 239 leiki í efstu deild. í hans stað hafa KR-ingar fengið Akureyringinn Kristján örn Sigurðsson, sem lék með KA í fyrra, og hans bíöur verðugt verkefni að fylla það stóra skarð sem Þormóður skildi eftir sig. KR-ingar hafa einnig endur- heimt bakvörðinn Hilmar Bjömsson sem hefur verið í útlegð í Hafnarfírði síðustu ár og koma hans í liðið kemur ekki til með að veikja vesturbæinga þar sem Hilmar hefur verið einn besti vamarmaður deildarinnar undanfarin ár. Stærstu tíðindi vetrarins voru þó tvímælalaust þau að tvíburamir Amar og Bjarki Gunnlaugssynir ákváðu að ganga tii liðs við KR og er það mikill hvalreki fyrir íslenska knattspymu að þeir skuli spOa hér á landi næsta sum- ar enda talar árangur þeirra í efstu deild hér á landi sínu máli. Einnig hafa KR-ingar fengið hinn efnilega framherja Garðar Jóhannsson frá Stjömunni en hann hefur skorað grimmt fyrir Garðbæinga undanfarin ár. Það er alveg ljóst að lið KR er geysi- lega vel mannað. Það er valinn maður í hverri stöðu og á bekknum eru einnig geysilega sterkir einstaklingar sem munu grípa gæsina þegar hún stendur til boða. Á móti kemur að pressan á að liðið nái árangri er geysilega mikil og munu Sókn Arnar Gunnlaugsson kemur til með að leiða sóknina, mikill markaskorari sem vafalaust á eftir að gera harða atlögu að markametinu. Hann er eitraður í teignum, hraður, teknískur, útsjón- arsamur og spilar bolta vel frá sér. Hann hefur ávallt blómstrað þegar hann fær þjónustu frá bróður sín- um. Sigurður Ragnar er hættulegur í teignum og góður skallamaður. Garðar er einnig öflugur í loftinu og með góðar stað- setningar. — Sókn- armenn KR rækja varnar- skyldur sínar illa og vilja frek- ar eyða púðrinu Arnar Gunnlaugs- í að sækja. Þeir son eiga það einnig til að hanga lengur á bolta __ en góðu hófi gegnir. . Einar og Veigar verða i" væntanlega á köntunum. Báðir eldfljótir, teknískir og með ágætar sendingar. Þeir geta einnig stungið sér inn og skorað. Sigur- vin og Kristinn verða væntanlega akkerin á miðjunni. Sigurvin er með fínar sendingar og góð skot. Kristinn staðsetur sig vel og er harður i návígjum. Bjarki fær að leika lausum hala en hann er gríð- arlega útsjónarsamur leikmaður. Hann hefur gott auga fyrir spili og leggur upp mik- iö af mörkum og skorar líka sjálfur. — Miðju- menn- irnir eru ekki þeir varnar- _. . . sinnuðustu i Sigurvm Olafsson. heimi og leggja oft á tíðum lítinn metnað í vamarleikinn. _______m Bnkum DV-Sports: @ Hvað (innst Kristni Kjærnested um spá DV-Sport? „Maður er orðinn þokkalega van- ur því að slíkt sé uppi á borðum á þessum árstíma og því kemur þessi spá mér ekkert á óvart,“ segir Krist- inn Kjæmested, stjórnarmaöur í KR-Sporti, um að DV-Sport spáir KR íslandsmeistaratitlinum í sumar. „Við stefnum að sjálfsögðu að því að vinna þau mót sem við tökum þátt í og svo verður það bara að koma í ljós í lok sumars hvort það tekst. Við vitiun aö margir úti í bæ halda að þetta verði auðvelt við- fangsefni en því fer fjarri að okkar mati og það eru alveg hreinar línur að við munum þurfa að hafa mikiö fyrir hlutunum. „Við höfum séð það svart og reyndar hvítt líka og við höfum alltaf talið að við værum með sterk- an leikmannahóp í höndunum og er- um mjög ánægðir með þann liðs- styrk sem við höfum fengiö. Við höf- um reyndar líka misst sterka menn, eins og fyrirliðann okkar sem er bú- inn að vera í lykilstöðu í um 15 ár. Hans skarð verður vandfyllt en við erum þess fullvissir að við höfum fundið góða arftaka. „Ég hef trú á því að Fylkir, Grindavík og Skaginn berjist um tit- ilinn með okkur. Ég hallast að því að Grindvíkingamir verði með feikilega öflugt lið. Ef þessi lið halda mannskapnum heilum út sumarið verða þau gríðarlega sterk. í botn- baráttunni á ég von á því aö sumar- ið verði erfitt fyrir nýliðana."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.