Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
DV
Fréttir
DV-MYNDIR HAFDÍS ERLA BOGADÓTTIR
Sumariö örugglega komlö
Einmuna veöurblíöa var á Egilsstööum í gær. Fyrir nokkrum dögum ríkti hávaöavetur á Austurlandi og snjóaöi. En vet-
ur konungur hefur losaö tökin á landsmönnum aö því er viröist og sumariö haldiö innreiö sína fyrir futtt og fast og þá
getur oröiö heitt á Austuriandi. Þaö var létt yfir Austfiröingum í blíöunni. Þau Björn Malmquist, forstööumaöur Ríkisút-
varþsins á Egilsstööum, og Edda Óttarsdóttir fréttamaöur tóku kaffibollana með sér út og gáfu sér tíma til aö slaka
örlítiö á í góöa veörinu Hiti var rúmlega 15 stig á Egilsstööum og alls staöar var fólk aö njóta veöurblíöunnar.
Pilturinn sem fannst látinn í Torfalækjarhreppi:
Gagnrýnt hversu seint
var bruðist við að hefja leit
Nokkrar ábendingar hafa borist
um aö óeðlilega seint hafi veriö
brugðist við með að hefja leit að
Viktori Guðbjartssyni, sem síðan
fannst látinn skammt frá bænum
Hæli í Torfalækjarhreppi á þriðju-
dagskvöldið. Var Viktors saknað á
laugardag, en lýst var eftir honum
á mánudag. Félagar í Björgunarfé-
laginu Blöndu voru síðan ekki
kallaðir út til leitar að honum fyrr
en um miðjan dag á mánudag.
Zophonías Arni Lárusson, formað-
ur Björgunarfélagsins, staðfesti í
samtali við DV í gær að beðið
hefði verið eftir ákvörðun lög-
reglu um að hefja leit, en það var
síðan svæðisstjórn sem óskaði eft-
ir að sveitin yrði kölluð út. „Það
var gert í fullu samráði og umboði
lögreglu," sagði Zophonías.
Hann segir að sveitin vinni
alltaf í umboði lögreglu og fari
ekki að eigin frumkvæði af stað í
leit. - „Viö verðum að gera það í
samráði við lögreglu og svæðis-
stjóm.“ Hann vildi ekki kveða upp
úr með hvort eðlilega hafi verið
staðið aö útkalli eða ekki. Þaö
væri hlutverk lögreglu að svara
því.
Kristján Þorbjömsson, yfírlög-
regluþjónn á Blönduósi, vildi ekki
tjá sig um hvort viðbrögö vegna
leitar hafi verið með eðlilegum
hætti eða ekki, en staðfesti að lög-
regla hefði haft vitneskju um mál-
ið á laugardag. Hann sagði að ver-
ið væri að rannsaka dánarorsök
piltsins.
Heimildum DV her saman um
að pilturinn hafi tekið bíl trausta-
taki á Blönduósi aðfaranótt laug-
ardags. Var síðan ekið í átt að
Giljá á Húnavöllum og samkvæmt
heimildum DV varð eigandinn
ferða bílsins var og elti hann á
annarri bifreið. Mun bíinum hafa
verið ekið upp að sumarbústað
skammt frá Giljá og síðan að
Húnavöllum. Þegar eigandinn
kom að bifreiðinni mun pilturinn
hafa hlaupið út í móa þar í
grenndinni. Er eigandinn þá sagð-
ur hafa tekið bifreiðina og ekið á
brott. DV hringdi í símanúmer
eiganda umræddrar bifreiðar og
var tjáð að þar yrðu alls engar
upplýsingar veittar um þetta mál.
Oljósar fregnir eru af því hvað
varð um piltinn eftir þetta, en
hann mun hafa verið illa klæddur
til útiveru.
Fullyrt er að ættingjar hafi svip-
ast um eftir honum um helgina,
en faðir piltsins er í stjórn Björg-
unarfélagsins Blöndu. Samkvæmt
upplýsingum DV, höfðu aðrir
björgunarsveitarmenn þá vit-
neskju um hvarf piltsins og settu
sig í samband við lögreglu. Vildu
björgunarsveitarmenn hefja leit
mun fyrr en gert var, án þess þó
að lögð hafi verið fram formleg
beiðni um slikt. Það er svo ekki
fyrr en á mánudag að lögregla til-
kynnir að piltsins sé saknað og
leit hófst sama dag. Var þá leitaö í
nágrenni Húnavallaskóla. Var leit
síðan haldið áfram á þriðjudag og
fannst pilturinn eins og fyrr segir
látinn um klukkan 6 á þriðjudags-
kvöld.
-HKr.
Sjúkraflutn-
ingamaður
sýknaður
Hæstiréttur sýknaði í gær sjúkra-
flutningamann sem sakaður var um
að hafa áreitt konu kynferðislega
þegar hún var flutt með sjúkrabif-
reið á sjúkrahús í ágúst 2001. Hann
hafði verið dæmdur i níu mánaða
fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í
nóvember á síðasta ári. Konan sak-
aði hann um að hafa sleikt brjóst
sín og káfað á kynfærum sínum í
sjúkrabílnum á meðan var verið að
flytja hana á spítala eftir að hún
hafði reynt að svipta sig lífi. Konan
bar fyrir dómi að hún hefði tekið lyf
umrætt kvöld þar sem henni hefði
liðið iiia og langað til að deyja.
í niðurstöðu héraðsdóms sagði að
framburður konunnar væri helsta
sönnunargagniö í málinu og hún
hefði verið staðfost í ffamburöi sín-
um en þó hefði ráðið úrslitum að
samkvæmt DNA-rannsókn hefði
munnvatn úr manninum greinst á
vinstra brjósti hennar. Taldi héraðs-
dómur aö önnur skýring en sú að
maðurinn hefði sleikt brjóst hennar
væri fjarlæg og var hann því sak-
felidur.
Bæði saksóknari og veijandi voru
hins vegar sammála um þaö fyrir
Hæstarétti að héraðsdómur hefði
oftúlkað niðurstöður DNA-rannsókn-
arinnar.
Hæstiréttur taldi að þegar litið
væri til lýsinga mannsins á því
hvað honum bar aö gera og athöfh-
um hans í greint sinn þætti ekki úti-
lokað að eölilegar skýringar gætu
verið á því að DNA-sniö úr honum
hefði fundist á vinstra brjósti kon-
unnar, hvort sem það væri komið úr
munnvatni hans eða á annan hátt.
Annarra gagna naut ekki við um
ætlað áreiti mannsins og því taldi
dómurinn að ekki yrði útilokað að
konan hefði getaö mistúlkað athafn-
ir hans. Hæstiréttur gerði nokkrar
athugasemdir við mat héraðsdóms
um sönnunargildi framburðar kon-
unnar og taldi hugsanlegt að það
væri ekki rétt að öllu leyti. Sagði í
dóminum að hreyfa mætti við því að
ómerkja ætti héraðsdóm og vísa
málinu til nýrrar meðferðar þar fyr-
ir dómi. Hins vegar þóttu ffaman-
greind sönnunargögn málsins metin
í heild ekki nægileg til þess að dóm-
ur yrði á þeim reistur um sakfell-
ingu mannsins og talið var aö end-
urtekið mat héraðsdóms á sönnun-
argildi ffamburðar hennar gæti ekki
haft áhrif á þá niðurstööu. Hæsti-
réttur taldi að ákæruvaldinu hefði
ekki tekist að sanna sekt mannsins
og var hann því sýknaður. -EKÁ
Ný ásýnd
Nýtt merki Loftleiöa lcelandic af-
hjúpaö á Hótel Nordica í blíöunni í
gær. Þaö geröi Grétar Br. Kristjáns-
son, varaformaöur stjórnar Flug-
leiöa, en Grétar var um árabil einn
af æöstu stjómendum Flugleiöa.
Meö honum er Siguröur Helgason,
forstjóri Flugleiöa.
Nýtt merki Loftleiða lcelandic
Afhjúpað á
Hótel Nordica
í gær var nýtt merki Loftleiða
Icelandic afhjúpað við hátíölega at-
höfn á Hótel Nordica í Reykjavík.
Loftleiðir ehf. eru dótturfélag Flug-
leiða og annast leiguflug víða um
heim.
Loftleiðir og Flugfélag íslands
voru sem kunnugt er flugfélögin
tvö sem sameinuöust 1973 í Flug-
leiðum. Nokkur ár eru síðan innan-
landsdeild Flugleiða var gerð aö
sérstöku fyrirtæki sem heitir Flug-
félag íslands og fyrir nokkru var
leiguflugsdeild Flugleiða gerð aö
sérstöku fyrirtæki sem hefur nú
fengiö nafnið Loftleiðir Icelandic.
Þessi tvö sögufrægu fyrirtækjanöfn
eru því bæði komin aftur í umferð
þó starfsemin sé ólík því sem var
hjá Loftleiðum og Flugfélagi íslands
fyrir meira en 30 árum. í dag eru
liðin 33 ár frá því fyrsta DC-8 þota
Loftleiða lenti á Keflavíkurflugvelli.
Loftleiðir Icelandic annast nú
leiguverkefni.fyrir aöila í Evrópu
og Norður- og Mið-Ameríku með
samtals fjórum til fimm Boeing 757
flugvélum sem reknar eru á flug-
rekstrarskírteini Icelandair. Þá hef-
ur félagið gert tvo leiguflugssamn-
inga um flug á Boeing 767-flugvél-
um og mun fyrsta vélin af þeirri
tegund bætast í flotann í næsta
mánuði._________________-GG
Pétur í stól Jóns?
Skorast
ekki undan
„Ég mun ekki skorast undan,
verði til mín leitað. Þetta er mjög
spennandi málaflokkur,“ sagði
Pétur H.Blöndal alþingismaður
þegar DV spuröi hann í morgun
hvort hann hefði áhuga á að setj-
ast í stól heilbrigöis- og trygg-
ingamálaráðherra í næstu ríkis-
stjóm. Málefnavinna stendur enn
í viðræðum um áframhaldandi
stjórnarsamstarf Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks. Að henni lok-
inni snúa menn sér að persónum
og leikendum, þ.e. skiptingu
ráðuneyta og hver gegni hvaða
ráðherraembætti. Meðal fram-
sóknarmaxma er töluverður
þrýstingur á að Halldór Ásgríms-
son verði forsætisráðherra, ef
ekki strax þá á miðju kjörtíma-
bili. Myndi Davíð Oddsson þá
víkja úr stólnum á einhverjum
tímapunkti. Hins vegar er ekki
búist við miklum breytingum á
skiptingu ráðuneyta. Þó hefur
það oftlega verið nefnt að flokk-
amir skiptist á heilbrigðis- og
menntamálaráðuneyti. Hefur
nafn Péturs H. Blöndals þá komið
upp en hann segist hafa mikinn
áhuga á heilbrigðis- og trygginga-
málum enda tryggingafræðingur.
Hefur Hjálmar Arnason verið
nefndur sem mögulegur mennta-
málaráðherra. -hlh