Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 Fréttir___________________________________________________________________________________________________________________DV Fyrirætlanir um Þjórsárvirkjanir fá misjafnar undirtektir bænda á Suðurlandi: Þýðir ekkert að mótmæla höfðingjum Auglýsingadeild 550 5720 DV-MYNDtR GVA Bændurnir í Hjallanesi Landinu sökkt ogjöröin ónýt. Kjartan Elíasson og Halldór Helgason, til hægri, benda í áttina að landinu sem sökkt veröur ef Holtavirkjun veröur byggö. „Ef þessar virkjunarhugmyndir ganga eftir er ljóst að hér verður ekki hægt að stunda búskap í framtíðinni. Jörðin eyðileggst al- veg með því að missa hundrað hektara af þrjú hundruðsegja Halldór Helgason og Kjartan Elí- asson, bændur í Hjallanesi í Land- sveit. DV tók á þeim hús í vikunni en þá voru eystra kynnt þau um- hverfisáhrif sem fyrirhugaðar virkjanir í neðanverðri Þjórsá munu hafa. Jafngildir kostir Landsvirkjun bollaleggur bygg- ingu tveggja til þriggja virkjana í ánni á þessum slóðum. Ljóst er að hvernig sem að málum verður staöið munu uppistöðulón og önn- ur mannvirki í öllu falli skerða lönd 60 jarða, annars vegar í Skeiða- og Gnúpveijahreppi í Ár- nessýslu og hins vegar í Holtum í Rangárþingi. Virkjunarkostirnir á teikni- borðinu eru í fyrsta lagi Urriða- fossvirkjun, skammt fyrir ofan nú- verandi Þjórsárbrú. Þar yrði suður undir Hjallanes," eins og Landsvirkjun kemst að orði. Og með þessar stórtæku áætlanir eru bændurnir í Hjallanesi, sem DV hitti í gær, hreint ekki ánægðir. Horfi ekki til framtíðar „Lónið sem myndi ná hér suður undir bæ yrði í 72ja metra hæð og myndi þannig taka af jörðinni um fimmtíu hektara. Síðan má reikna með skemmdum á landi upp í 73 metrana og þá eru 100 hektarar farnir," segir Halldór Helgason og bætir við að mikið af þessu sé ræktað land. „Ég treysti mér ekki til að verð- meta þetta land, það mun auðvitað ráðast af því hverjar aðstæður í landbúnaði verða þegar til þessara framkvæmda kemur. Hvenær það verður veit enginn og kannski er óvissan í þessu eitt það versta. Nú getur maður ekki hugsað til fram- tíðar í búskapnum," sagði Hall- dór. Hann sagðist litla trú hafa á því að mótbárur einstakra bænda gegn þessum hugmyndum myndu halda aftur af Landsvirkjun. Fyr- irtækið ætlaði að ná sínu fram í þessu máli. „Það þýðir ekkert að mótmæla þessum höföingjum," sagði Halldór. Margir sérfræðingar í fyrradag var á Laugalandi í Holtum efnt til kynningarfundar vegna þessara hugmynda. Að sögn Guðlaugs Þórarinssonar, verk- fræðings hjá Landsvirkjun, sem var þarna í forsvari, var fólk áhugasamt um málið. Það spurði margra spurninga, bæði um um- hverfislega þætti en einnig hvenær framkvæmdir hæfust. „Því getum við hreinlega ekki svarað. Mat á umhverfisþáttum er aðeins fyrsta skerfið í löngu ferli sem bygging virkjunar er. í slíkar framkvæmdir er ekki heldur farið nema markaðsaðstæður bjóði upp á það,“ segir Guðlaugur. Hann segir spumingar fólks á þessum fundum bera með sér að það þekki allvel til virkjunarmála, enda hafi margir íbúa á þessu svæði starfað við byggingu virkj- ana á Þjórsár- og Tungnaársvæð- inu. „Hér eru margir sérfræðingar í virkjunarmálum og margir þeirra sjá einmitt tækifæri sér til handa í þessum hugmyndum sem við erum hér að kynna.“ -sbs Þjórsá stifluð og gert miðlunarlón sem yrði 12,5 ferkílómetrar að flat- armáli. í annan stað er hugmynd- in síðan sú að virkja Þjórsá tals- vert ofar og byggja Núpsvirkjim. Verði sú leið ekki farin kemur til greina að byggja í hennar stað Hvamms- og Holtavirkjanir en þetta „... eru tveir jafngildir virkj- unarkostir," eins og segir í skýrslu um mat á umhverfisáhrif- um framkvæmda. Verði síðarnefndi kosturinn val- inn yrði vegna Holtavirkjunar gert lón sem myndaðist með stíflugörðum við eyjuna Árnes í Þjórsá. Lónið yrði 6,7 ferkílómetr- ar að flatarmáli „... og teygja sig A kynningarfundi Umhverfisáhrif fyrirhugaöra virkjana kynnt á Laugalandi í Holtum. Sigmundur Einarsson kynnti málin fyrir bændum í sveitinni. Þrátt fyrir allt gengur lífiö í sveitinni sinn vanagang og samneyti manna og málleysingja er meö besta móti. Auglýsendur athugið Sérblað um ferðir innanlands fylgir Magasíni fimmtu- daginn 5. júní - 82 þús. eintök. Meðal efnis: FerSir fyrir fjölskylduna • Tjaldvagnar - fellihýsi - hjólhýsi - húsbílar • Afþreying og skemmtun • Hópunktar • Hvaö er aö gerast í sumar? • Utivist • Gönguferðir • Leiösögn • Hestaferöir - bátsferöir - fjalla- og jeppaferðir og margt annað fróðlegt og skemmtilegt. Skilafrestur auglýsinga er 2. júní Við erum tilbúin að aðstoða ykkur: Inga, b. s. 550-5734, inga@dv.is Kata, b. s. 550-5733, kata@dv.is ‘Aargrét, b. s. 550-5730, margret@dv.is Ransý, b. s. 550-5725, ransy@dv.is Sigrún, b. s. 550-5722, sigruns@dv.is azrrn— <■***> SSmTi- i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.