Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Page 9
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
DV
9
Fréttir
DV-MYND SIGURÐUR K. HJALMARSSON
Heil hjörð
Á myndinni má sjá Þuríði Ingu og Sigurð Ásgrím ásamt stoltri móður og lambahjöröinni hennar.
Frjósemin fylgir Þokustofninum
Fyrir nokkrum dögum gerðist
það á bænum Múla í Skaftártungu
að ær bar fimm fullburða lömbum
sem öll lifa góðu lífi. í Múla búa
Oddsteinn Sæmundsspn og Þuríð-
ur Gissurardóttir. Ólafur Dýr-
mundsson hjá Bændasamtökun-
um segir að frekar lítið sé um að
ærnar verði fimmlembdar. Dæmi
séu um sexlembur. Þarna er ekki
um að ræða hormónanotkun, að-
eins erfðaeðli.
„Þetta er út af þessu frjósama
Þokufé, sem er heimsþekktur stofn,
kenndur við ána Þoku sem var uppi
í Austur-Skaftafellssýslu um 1950.
Hrútar af þessum stofni hafa verið
notaðir í sæðingastarfseminni. Þeir
hafa svokallaðan mikilvirkan erfða-
vísi fyrir frjósemi. Ær sem eru út af
þessum hrútum eru gjarnan með 3
og 4 lömb, stundum fmun og jafnvel
sex,“ sagði Ólafur í gær.
Ólafur segir að teknir hafi verið
inn tveir hrútar úr Þoku-stofninum
og sæði flutt úr þeim til Skotlands
að beiðni fræöimanna í Edinborg.
Þeir notuðu sæðið í skoskt og velskt
fé og sannreyndu að frjósemin skil-
aði sér.
„Okkur er ekki kunnugt um að
þetta sé til í neinu öðru norrænu
fjárkyni," sagði Ólafur. Hann segir
að lömbin verði góð en bændur vilji
helst ekki láta nema tvö lambanna
ganga með ánum, þær eiga erfitt að
ráða við fleiri lömb. Þá eru auka-
lömbin gjarnan vanin undir
einlembur. -JBP
Þönglabakki 1
1 09-Reykjavík
Sími-557 4600
ÞARFASH
ÞJÓNNINN!
Ekki láta þérleíðast. ^
A
B0NUSVIDE0
Leigem i þírnt ttverfi
Frábær vortilboð í öllum verslunum í Mjóddinni,
vörukynningar og fullt af óvæntum uppákomum.
mjÓDDll