Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Síða 11
11
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
DV Tilvera
Fólk er of hrætt við börnin sín
- segir Guörún Guömundsdóttir mannfræöingur
Mannfræðingurinn
„Hvaöa skilaboð er veriö aö gefa þegar látiö er skína í bert milli mjaömabuxna og bols á lítilli, saklausri stúlku? Þetta er stórt umhugsunarefni og ég vara
sterklega viö þróuninni, “ segir Guörún.
„Stúlkur mega skreyta sig en
ekki að láta nota sig sem skraut.
Ég sé að þær eru aftur farnar að
setjast upp á bila sem þarf að
auglýsa. Það finnst mér dapur-
legt,“ segir Guðrún Guðmunds-
dóttir sem stundar mastersnám
í mannfræði. Hún er meðal fyr-
irlesara á málþingi sem haldið
er í Gerðubergi í dag milli kl. 13
og 16 og fjallar um tengingar í
auglýsingum og ábyrgð fjöl-
miðla. Þar er ekki síst deilt á of-
beldi og klám sem víða birtist,
bæði lejmt og ljóst. Málþingið er
á vegum Ljósberans sem er
samráðshópur um að styrkja
heilbrigðan lífsstíl barna og
unglinga. Þar verða mörg erindi
flutt. M.a. mun Edda Jónsdótt-
irfjölmiðlafræðingur flytja er-
indi sem hún nefnir Þol barna
fyrir klámi, Kristinn Már Ár-
sælsson, nemi í heimspeki og fé-
lagsfræði, annað sem heitir
Kynferðisleg áhrif og ábyrgð og
innlegg Sverris Björnssonar,
graflsks hönnuðar, nefnist
Spennið skirlífisbeltin _ klám-
bylgjan kemur. Guðrún kveðst
ætla að fjalla um áhrif allra
þessara þátta á fjölskyldur, um
línudansinn sem allir foreldrar
verði að stíga milli þess að leyfa
og banna og um rétt þeirra til að
segja „Nei.“
Þau eru svo flott og kúl
„Menningin og umhverfið hef-
ur svo mótandi áhrif og við verð-
um að hafa opin augu fyrir því
sem er að gerast hverju sinni í
kringum okkur. Auðvitað eigum
við að leyfa börnum okkar að
taka sjálfstæðar ákvarðanir í
sumum málum en verðum líka
að þora að vera á móti í öðrum.
Ekki bara berast með straumn-
um og gleypa við öllu, bara af
því að það er. Það á ekki bara
við um klámvæðingu, það á líka
við um stríðsátök úti í heimi og
að við klæðumst ekki hermanna-
fötum. Þetta er ákveðin afstaða
sem mér finnst við verða að taka
meðvitað," segir Guðrún ákveð-
in og nú er hún komin á flug.
„Ég tel að í nútímanum sé fólk
oft hrætt við börnin sín. Þau eru
svo flott og kúl og eru svo vel að
sér í mörgu, til dæmis í tölvu-
málum. Ég skynja óttablandna
virðingu fólks fyrir þessum
svakalega flottu börnum sínum
en ég held það sé ekkert sérlega
gæfulegt að ala börn þannig upp.
Pælum í því hver menning þess-
ara bama er. í henni er gríðar-
legt ofbeldi sem birtist í nær öll-
um bíómyndum og tölvuleikjum.
Svo er þessi óþolandi áhersla á
litlar stelpur að vera sexý sem ég
fæ með engu móti skilið og tel nei-
kvæða fyrir sjálfsmynd þeirra.
Hvaða skilaboð er veriö að gefa
þegar látið er skína í bert milli
mjaðmabuxna og bols á lítilli, sak-
lausri stúlku? Þetta er stórt um-
hugsunarefni og ég vara sterklega
við þróuninni," segir hún.
Dropinn holar
Guðrún kveðst yfirlýstur
femínisti, enda kannast margir
við skrif hennar í Veru. Spurð
hvort hún hafi lengi fyllt þann
flokk svarar hún: „Nei, ég man
nákvæmlega hvenær ég gerðist
femínisti. Það var ‘98 um vorið
og það þakka ég henni Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur. Hún
opnaði augu mín. Ég var reynd-
ar gift í arabaheiminum í átta
ár og bjó þar 1 tíu ár og það hef-
ur eflaust mótaö mínar skoðan-
ir að einhverju leyti.“ Sjálf á
Guðrún tvö börn og maður
hennar önnur tvö, þannig að
hún er á fullu að atast í uppeldi.
Hún kveðst oft lenda í fjörugum
rökræðum við 13 ára dóttur sína og
vinkonur hennar.
Þótt femínisk viðhorf hennar
mæti stundum andstöðu kveðst
hún þess fullviss að dropinn holi
steininn. „Ég er ströng við dóttur
mína í ýmsum efiium. Hún má til
dæmis ekki nota G-strengs nærbux-
ur og er vist sú eina í sínum bekk
sem verður að sæta því. Hún fær
heldur ekki að mála sig nema við
alveg sérstök tækifæri og auðvitað
reynir hún stöðugt að útvíkka
þann ramma.
Ég leyfi henni að taka ábyrgð í
sumum málum en ég er „klettur"
þegar kemur að klámi og nekt og
ætla mér að vera það.“
-Gim.
Snæfellsnes:
Umhverfisvottaður
ferðamannastaður
Samgönguráðu-
neytið hefur samið
við fimm sveitarfé-
lög á Snæfellsnesi
um að Snæfellsnes
verði, fyrst svæða á
íslandi, gert að um-
hverfisvottuðum
áfangastað ferðamanna. Gert er
ráð fyrir að ferðamennska á svæð-
inu verði stunduð með sjálfbæra
þróun að leiðarljósi. Stefnt er að
vottun Green Globe 21, alþjóðlegra
samtaka um sjálfbæra ferðaþjón-
ustu, og munu samtökin koma að
vottunarferlinu. Það eru Snæfells-
bær, Grundarfjarðarbær, Stykkis-
hólmsbær, Eyja- og Miklaholts-
hreppur og Helga-
fellssveit sem standa
að verkefninu og
mun undirbúnings-
vinna standa í 6
mánuði. Þegar imd-
irbúningsvinnu lýk-
ur er hægt að sækja
um úttekt og fulla vottun hjá
Green Globe 21. Vegagerðin og
Ferðamálaráð munu veita faglega
ráðgjöf vegna verkefnisins og
veita m.a. aðgang að þolmarka-
rannsóknum á ferðamannastöð-
um. Green Globe mim útvega sér-
fræðinga sem hafa reynslu af und-
irbúningi, ráðgjöf og úttekt á stór-
um ferðaþjónustusvæðum. -EKÁ
Bæjarlind 4 • E01 Kópavogur • Sími 544 5514
Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pool. Eóður matseðiii.
Tökum að okkur húpa, starfsmannafálög. Stórt og gott dansgólf.