Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Side 14
14
Menning
Leikhús og list í London
- Kolbrún Bergþórsdóttir bendir Lundúnaförum á nokkur meginatriöi
glæsilegu tónleikahöll Royal Albert Hall ásamt
Roger Moore. Þar var haldin mikil söngskemmt-
un til heiöurs leikstjóranum Trevor Nunn og
sungin lög úr söngleikjum sem hann hefur leik-
stýrt. Nunn er ótvírætt einn af fremstu leikstjór-
um heims, jafnvígur á Shakespeare og söngleiki.
Kannski hefur enginn nútímaleikstjóri átt jafn
mikinn þátt í því og hann að færa söngleiki til
fólksins og skapa þeim viröingu.
Þarna kom fram fjöldi söngstjarna en óhætt er
að segja að kórinn hafi stolið senunni. Þetta er
sagður vera þúsund manna kór. Ég reyndi að
telja kórfélaga og komst lægst upp i sjö hundruð
og hæst upp í níu hundruð. Sérstök upplifun að
hlusta á um þúsund raddir og Glenn Close vék
hvað eftir annað að framlagi kórsins til sýningar-
innar. Sjálf söng Close lag úr Sunset Boulevard
við frábærar viðtökur og Roger Moore söng
ásamt nokkrum samstarfsmönnum Nunns lagið
Brush Up Your Shakespeare úr Kiss Me Kate, og
var það eitt fyndnasta atriði kvöldsins. Hjart-
næmast var þegar ung dóttir Nunns stóð ein á
sviði og söng lag Cosettu litlu úr Vesalingunum.
Mér var sagt að Royal Albert Hall tæki um 5000
manns í sæti og húsið var nær fullsetið. Ég beið í
ofvæni eftir því að Trevor Nunn kæmi á svið en
það tók tímann sinn. Ég hélt að þetta yrði eins og
á Óskarnum að allir risu upp fyrir sigurvegaran-
um. Það var ekki svo, en klappið var vissulega
kröftugt.
Vesalingar í átján ár
Meðal söngatriða á tónleikunum voru fjölmörg
lög úr Les Miserables sem gengið hefúr í átján ár
í London undir leikstjórn Nunns. Ég ákvað að sjá
söngleikinn en fyrir fram hafði ég litla trú á að
það tækist að koma hinni miklu sögu Hugos til
skila í þriggja tíma söngleik. Mér skjátlaðist illa
því þetta er grípandi söngleikur þar sem dramat-
ísk sagan er ætíð í forgrunni. Böm voru meðal
áhorfenda og sátu stiilt og prúð og greinilega
heilluð.
Aðrir söngleikir í London sem vert er að mæla
með eru My Fair Lady í leikstjórn Trevors Nunn
og Lion King. My Fair Lady er nú á sínu þriðja
ári en sýningum fer senn að ljúka. Það er hinn
frægi Anthony Andrews (Brideshead Revisited)
sem nú leikur Henry Higgins og hefur fengið
prýðisdóma fyrir frammistöðu sína. Lion King er
sviðsgerð á
teiknimynd
Breskir gagnrýnendur eru nokkuð sam-
mála um að besta sýningin í London þessa
dagana sé í Playhouse-leikhúsinu en þar er
verid að sýna Þrjár systur eftir Tjekhov. Leik-
ritaskáldiö Christopher Hampton hefur séð
um aó koma texta Tjekhovs í búning og Mich-
ael Blakemore leikstýrir.
Gagnrýnendur hafa vart átt orð til að lýsa
frammistöðu Kristinar Scott Thomas, sem leikur
Möshu, enda er þarna á ferðinni svimandi
stjörnuleikur. Scott Thomas lætur litlar hreyfing-
ar og svipbrigði opinbera hugsanir og tilfinning-
ar persónunnar þannig að maður skynjar glöggt
yfirþyrmandi einsemd manneskju sem líður eins
og fanga í umhverfí sínu. Masha er ekki eina per-
sónan sem líður þannig því leikritið fjallar ekki
hvað síst um fólk sem er alltaf að tala um að fara
burt en minna er um framkvæmdir.
Leiksýning á heimsmælikvarða
Kate Burton (dóttir Richards Burtons) leikur
elstu systurina, Ólgu, á fremur lágstemmdum nót-
um sem virkaði vel og Madeleine Worrall var
beinlínis töfrandi sem yngsta systirin, Irina. Sýn-
ingin er í heild gríðarlega vel leikin. Ég var þó
ekki fullkomlega sátt við Robert Bathurst, sem
leikur Vershinin og gerði hann að mínu mati að
ailt of miklum kjána - eiginlega heimskingja. Ég
veit þó að breskir gagnrýnendur og Silja Aðal-
steinsdóttir eru ekki sammála mér í mati mínu á
frammistöðu leikarans. Kannski er þetta bara
einfalt dæmi um það þegar leikari fer í taugarnar
á manni. En hvaö um það, þetta er leiksýning á
heimsmælikvarða. Merkilega fyndið leikrit á
köflum en um leið óendanlega dapurlegt.
Það var aukabónus að rekast á Scott Thomas
eftir leiksýninguna þar sem hún var að veita að-
dáendum eiginhandaráritun. Ég stillti mér upp í
röð og fékk áritun. Þegar ég sagði leikkonunni að
ég hefði komið frá íslandi til að sjá hana á sviði
varð hún greinilega undrandi og sagði svo: „I
hope it was worth it.“ - Já, það var sannarlega
þess virði.
Kór hinna þúsund radda
Leikkonan Glenn Close var meðal gesta á Þrem
systrum - enn einn aukabónus.
Kvöldið eftir var
Þrjár systur og karlmennirnir í lífi þeirra.
Robert Bathurstyst t.v. en Kristin Scott Thomas yst t.h.
Glenn Close og Trevor Nunn
Hún var kynnir á heiðurssamkomu hans.
Disneys með lögum eftir Elton John. Þetta er afar
skrautleg sýning, umgjörðin er stórkostleg og
hugvitið í búningagerð er snilldarlegt. Börn sem
sjá þessa sýningu eru líkleg til að vilja verða bún-
ingahönnuðir þegar þau verða stór. Söguþráður-
inn er ekki beinlínis líklegur tii að vekja áhuga
fullorðinna og lögin þóttu mér fremur slök. Þetta
er fyrst og fremst sýning fýrir augað og er að því
leyti mikil veisla.
Titiankonur með maga
í The National Gallery eru síðustu forvöð að
sjá Titian-sýningu sem hefur staðiö frá í febrúar.
Þetta er ákaflega falleg sýning í sex sölum. Að-
sókn hefur verið gríðarleg og miðar seldir með
nær dags fyrirvara. Maöur þurfti að sýna tölu-
verða ákveðni tii að komast nálægt myndunum
fyrir mannfjölda en þá var líka mikils að njóta.
Ög þó það komi gæðamati á myndlist sjálfsagt lít-
ið við þá er svo miklu skemmtilegra að skoða
myndir af konum með maga heldur en myndir af
anorexískum nútimadömum.
Að lokum er ekki annað hægt en að mæla með
Madame Tussaud-vaxmyndasafninu. Þar fylgjast
menn með pólitískum straumum og hafa stillt
saman Blair og Bush. Það eina sem aðskilur þá fé-
laga er ræöustóll sem gestir geta gengið upp í og
fengið tekna af sér mynd milli þeirra félaga. Þetta
gerði ég og myndin er sannarlega flott, en þar
sem ég stend á milli Blair og Bush lít ég út eins
og besta vinkona þeirra sem eru nú ekki alveg
þau skilaboð sem ég vil gefa. Annað par stendur
ekki langt frá. Það eru Saddam og Arafat sem í
uppstillingu sýnast vera nánir samstarfsmenn.
Verulega ósanngjöm uppstilling gagnvart Arafat.
Ég hóf mikla leit að mínum manni, Charles Dic-
kens, sem var þarna einhvers staðar fyrir tveim-
ur áratugum. Eg fann hann ekki núna. Sennilega
er hann í geymslu niðri í kjallara. En það er ör-
ugglega bara tímabundið. Sannir snillingar ryk-
falla ekki til lengri tíma. -KB
Sumri fagnaö á Kiarvalsstöðum
Ljósmyndin fangar andartakið og geymir það
Emmanuil Evzerikhin: Listamaöurinn ráðleggur (1950-’60).
Tvær sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöð-
um á morgun. Önnur þeirra er sýning frá Ljós-
myndasafni Moskvu, annar hluti tvíhliða sýn-
ingarverkefnis þar sem íslenskar ljósmyndir
voru sýndar undir sambærilegum titli í
Moskvu i nóv.-des. 2002.
Verkin eru frá miðri 19. öld til samtímans
og bera glöggt vitni um þær breytingar sem
hafa átt sér stað í rússneskri ljósmyndun.
Samtímis þróun ljósmyndasögunnar gefst
mönnum tækifæri til að skyggnast inn í þær
sögulegu samfélagsbreytingar sem þjóðin hef-
ur gengið í gegnum. A áhrifamikinn og list-
rænan hátt fangar myndavélarlinsan ólíka
mennihgu og lífshætti fólksins og þjóðarinnar
sem byggir framandi slóðir við misjafnar að-
staíður á löngum tíma.
Hin sýningin er á höggmyndum Amar Þor-
steinssonar (f. 1948). Öm heggur listaverk úr
steinum náttúrunnar og leysir með því úr læð-
ingi formið sem leynist innan í efninu. Verk
sín vinnur Öm að mestu úr sæbörðum granít-
steinum sem hann hefur nálgast úr fjörum
Skagafjarðar. Sýningin teygir sig um ganga
Kjarvaisstaða og umhverfis húsið. Þar getur að
líta fjölda höggmynda,
stórra og smárra sem taka
á sig ýmis form í líki furðu-
dýra og ævintýravera.
Sýningunum lýkur 15.
júní.
Ásmundarsafn fagnar
tvítugsafmæli sinu á
þriðjudaginn kemur, 20.
maí, með opnun á yflrlits-
sýningunni Ásmundur
Sveinsson - Nútímamaður-
inn. Ásmundur var tals-
maður tækniframfara, upp-
byggingar og mannjöfnuð-
ar eins og vel kemur fram í
list hans. Þessi einkenni
verða sérstaklega dregin
fram á nýju sýningunni.
Auk þess verða á þessari
sýningu nokkur verk sem
lentu í eldsvoðanum í
Fákafeni í ágúst í fyrra en búið er að gera við.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá 10-17 en
Ásmundarsafn daglega kl. 10-16. Sniðugt er að
fara í bæði húsin og Hafnarhús að auki sama
daginn því þá gildir sami aðgöngumiðinn í öll
hús.
____________FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
____________________________PV
Umsjón: Silja Aóalsteinsdóttir silja@dv.is
Besta fræðibókin
Upplýsing, félag bóka-
safns- og upplýsingafræða,
hefur útnefnt bókina
Skrýtnastur er maður sjálf-
ur - hver var Halldór Lax-
ness eftir Auði Jónsdóttur
bestu fræðibók fyrir börn
sem út kom á árinu 2002.
„Bókinni er ætlaö aö fræða okkur um líf
og starf Halldórs Laxness en ekki síður
um manneskjuna Halldór og þann tíma og
það þjóðfélag sem hann lifði í. Dómnefnd
þykir bókin athyglisvert framlag til að
koma einum fremsta rithöfundi íslendinga
á framfæri við yngri kynslóðina,“ segir
m.a. í áliti nefndarinnar.
Skrýtnastur er maður sjálfur var til-
nefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna
og hefur vakið athygli heima og erlendis.
Mál og menning gaf bókina út.
Kvöldmáltíðargestir
Á morgun kl. 16 verður Nattvárds-
gástema eftir Ingmar Bergman sýnd í Bæj-
arbíói í Hafnarfirði á vegum Kvikmynda-
safns íslands. Myndin er annar hluti af
þríleik Bergmans um samhand mannsins
við guð.
Sunnudag nokkurn á köldtun vetri þjón-
ar prestur í lítilli sveitakirkju fámennum
söfnuði sínum. Eftir guðþjónustuna reynir
hann að hughreysta sjómann sem er þjak-
aður af kvíða en getur einungis rætt um
eigið samband við guð. Kennslukonan Ma-
erta býður prestinum ást sína sem huggun
í trúarkreppu hans en hann hafnar ást
hennar. Helstu leikarar eru Gunnar Bjöm-
strand, Ingrid Thulin, Max von Sydow og
Gunnel Lindblom.
Afmælisdagskrá í Gunnarshúsi
Á simnudaginn kl. 16
efna Rithöfundasamband ís-
lands og Gunnarsstofnun til
dagskrár á Dyngjuvegi 8 í
tilefni þess að 114 ár eru
liðin frá fæðingu skáldsins
Gunnars Gunnarssonar.
Flutt verða þrjú erindi:
Skúli Bjöm Gunnarsson, forstöðumaður
Gunnarsstofnunar, segir frá stofnuninni og
uppbyggingu á starfsemi að
Skriðuklaustri; Óskar Vistdal bókmennta-
fræðingur greinir frá rannsóknum sinum
á tengslum Gunnars við Noreg og Guðrún
Ása Grímsdóttir sagnfræðingur fjallar um
þá sýn sem birtist á austfirska náttúm og
gildi sveitasamfélags í skáldverkum Gunn-
ars.
Dagskráin er öllum opin.
Listamannsspjall
Bandaríski myndlistarmaðurinn Richard
Vaux, prófessor í listum við Adelphi há-
skólann í New York, sýnir nú verk sín í
Hafnarborg. Á morgun kl. 14 fjallar hann
um verk sín, uppsprettu og þróun hug-
mynda og þá tækni sem hann beitir við
vinnu sína. Hann sýnir einnig skyggnur af
eldri og nýrri verkum ásamt því umhverfi
sem hann vinnur í, en heimili hans og
vinnustofa eru á norðurströnd Long Is-
land. í New York.
Hátíðartónleikar
í tilefni af hálfrar aldar
starfsemi Tónmenntaskóla
Reykjavíkur efnir skólinn
til tvennra hátíðartónleika
í Salnum, Kópavogi, á
sunnudaginn kl. 17 og
mánudaginn kl. 20. Flytj-
endur eru svo til allir fyrr-
verandi nemendur gamla
Bamamúsíkskólans og
Tónmenntaskólans, aUt þekktir tónlistar-
menn. Meðal þátttakenda eru Gunnar
Kvaran, Sigrún Eövaldsdóttir, Sigurbjöm
Bernharðsson og Ásdís Valdimarsdóttir.
Eivör syngur
Færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir
heldur tónleika ásamt hljómsveit sinni,
þeim Birgi Bragasyni, Pétri Grétarssyni og
Eðvarð Lárussyni, í Iönó í kvöld kl. 22.
Þau leika tónlist eftir Eivör og einnig þjóð-
lög og þjóðleg lög, bæði íslensk og færeysk.
Mikið er fram undan hjá þeim á næstunni,
t.d. leika þau á tónleikum í Svíþjóö í lok
maí, verða á stórri tónlistarhátíð í Noregi
og listahátíð í Færeyjum í sumar, auk tón-
leika á íslandi. Jafnframt þessu munu þau
taka upp plötu sem kemur út í haust.