Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 Bjarni í Bochum Bjarni Guðjónsson skrífaði í morgun undir þriggja ára samning við þýska úr- valsdeildarfélagið Bochum en bróðir hans, Þórður, leikur einmitt með því fé- lagi. Bjami var með lausan samning við Stoke City og sagði hann í samtali við DV-Sport í gær að það væri þungu fargi af honum létt og að hann væri feginn að vera laus frá Stoke en hann átti ekki upp á pallborðið hjá Tony Pulis, fram- kvæmdastjóra liðsins. -HBG Spá DV-Sporfs um 1. tleild 1. Keflavík........................60 2. Breiðablik......................48 3. Þór Ak..........................47 4. Víkingur........................44 5. Stjaman.........................34 6. Afturelding ....................26 7. -8. Haukar .....................25 7.-8. HK...........................25 9. Njarðvík .......................14 10. Leiftur/Dalvík..................7 Spáin var framkvœmd af sex blaða- mönnum DV-Sports sem spáðu í spilin og fékk efsta liðið hjá hverjum og einum tíu stig og síðan koll af koili. Samkvæmt spánni vinna Keflavík og Breiðablik sér sæti í úrvalsdeild en Njarðvík og Leift- ur/Dalvík falla. 15. maí 2003 Ul Lakers-San Antonio K-110 Keflvikingarnir Haraldur Guömunds- son (til vinstri) og Stefán Gíslason veröa tveir af lykilmönnum liösins í sumar en þeir sjást hér í úrsiitaleik deildabikarsins gegn ÍA sem Keflavík tapaöi í vítakeppni. DV-mynd Siguröur Jökull 1. deildin í knattspyrnu hefst með þremur leikjum á sunnudaginn: Tviskipt deild - DV-Sport telur að fjögur lið, með Keflvíkinga í fararbroddi, stingi önnur lið af Stig LA Lakers: Shaquille O’Neal 31 (10 fráköst), Kobe Bryant 20 (6 stoðsendingar), Stanislav Medveden- ko 12. Stig San Antonio: Tim Duncan 37 (16 fráköst), Tony Parker 27 (5 stoðsend- ingar), Emmanuel Ginobili 10. San Antonio vann einvígiö, 4-2. 15. maí 2003 Sacramento-Ðallas 115-109 Stig Sacramento: Predrag Stoja- kovic 24 (10 fráköst), Vlade Divac 21, Bobby Jackson 21. Stig Dallas: Nick Van Exel 35, Dirk Nowitzki 21 (12 fráköst), Michael Finley 21 (7 fráköst, 4 stoðsendingar). Staóan í einvlginu er jöfn, 3-3. 1. deildin í knattspymu hefst á sunnudaginn með þremur leikjum. Haukar taka á móti nýliðum Njarð- víkur á Ásvöllum, Þór Ak. sækir Breiðablik heima á Kópavogsvöll og á Ólafsfjarðarvelli mætir Leiftur/Dal- vík nýliðum HK. Allir leikirnir hefj- ast kl. 16. Á mánudaginn eigast síðan Keflavík og Stjaman við í Keflavík og Víkingur sækir Aftureldingu heim. Báðir þessir leikir hefjast kl. 20. Þegar fljótt er á litið virðast Kefla- vík, Víkingur, Breiðablik og Þór Ak- ureyri vera meö sterkustu liðin og lík- legt að þau muni slíta sig frá öðrum liðum þegar líða tekur á mótið. Hin sex lið deildarinnar gætu öll lent í fallbaráttu en blaðamenn DV- Sports telja að sumarið verði sérlega erfitt hjá nýliðum Njarðvíkur og Leiftri/Dalvik. Keflavíkingar óárennilegir Keflvíkingar hafa farið mikinn í vorleikjunum og meðal annars unnið KR, Grindavík og Fylki í deildabik- arnum en þessum liðum er spáð þremur efstu sætum Landsbanka- deildarinnar í spá DV-Sports. Þeir eru með mjög skemmtilegt og léttleikandi lið, byggt upp á heimamönnum og ekki skemmir fyrir að miðjumaður- inn Stefán Gíslason er genginn í þeirra raöir. Hann styrkir liðið mik- ið og ekki er hægt að sjá að mikil eft- irsjá sé að Hauki Inga Guðnasyni því að eftir brottfór hans hafa ungir leik- menn eins og Magnús Þorsteinsson og Hörður Sveinsson þurft að taka á sig aukna ábyrgð með góðum árangri. Milan Stefan Jankovic stjórnar liðinu og virðist vera á réttri leið með það. Það er ansi ólíklegt að Keflvíkingar staldri lengur við í fyrstu deild heldur en þetta tímabil. Gera betur en í fyrra Breiðablik hefur styrkt lið sitt mik- ið í vetur og hlýtur að ætla sér upp í efstu deild eftir vonbrigði síðasta sumars þar sem liðið hafhaði í sjö- unda sæti deildarinnar. Það hjálpar liðinu nú að Jörundur Áki Sveinsson getur einbeitt sér að þjálfarastarfmu hjá Breiðabliki eftir að hafa hætt sem þjálfari hjá kvennalandsliðinu. Stærsta búbótin fýrir Breiðablik er sennilega koma markvarðarins unga, Páls Gísla Jónssonar frá Akranesi, en markvarslan var töluvert vandamál hjá liðinu f fyrra. Hreiðar Bjarnason er kominn til baka frá Fylki og styrk- ir framlínu liðsins og það skemmir ekki að í félaginu.eru margir ungir og efnilegir leikmenn sem gætu blómstr- að í sumar. Frábærir framherjar arsson, sem eru gífurlega fljótir. Þórs- arar eru með ungt og efnilegt lið, reyndar með nokkra reynslumikla menn innanborðs, en mest mun mæða á Jóhanni og Orra. Þeir áttu frábært tímabil fyrir tveimur árum og það er ljóst að Þórsarar fara eins og langt og þeir tveir taka liðið í sumar. Nýtt blóð með Sigurði Sigurður Jónsson hefur tekið við Víkingum og vonandi tekst honum að hleypa nýju lífi í andlaust en hæfileikaríkt lið Víkinga. Það hefur einhvem veginn fjarað undan Vík- ingum í deildinni undanfarin ár og hafa þeir aldrei náð að standa und- ir þeim væntingum sem gerðar hafa verið til liðsins. Það hafa miklar breytingar orðið á liðinu, bæði hafa menn komið og farið en liðið hefur verið að spila ágætlega í deildabik- arnum og var hársbreidd frá því að komast í 8-liða úrslitin. Sóknin horfin Stjömumenn standa frammi fyrir þeirri staðreynd að tveir öflugustu sóknarmenn liðsins, Ólafur Páll Snorrason og Garðar Jóhannsson, eru horfnir á braut. Þeir félagar skoruðu rúmlega þriðjung marka Stjömunnar á síðasta tímabili en í staðinn er Brynjar Sverrisson kom- inn úr Þrótti. Liðið á eftir að sakna Ragnars Ámasonar úr vöminni og það verður erfitt fyrir liðið að end- urtaka leikinn frá því í fyrra þegar Stjaman var í baráttu um sæti í efstu deild fram í síðustu umferð. Erfitt aö endurtaka leikinn Afturelding var spútniklið síðasta tímabils. Liðið kom óvænt upp í 1. deildina í kjölfar sameiningar Leift- urs/Dalvíkur og átti lengi vel mögu- leika á því aö komast upp í efstu deild. Aðall liðsins var varnarleikur og frammi var markahæsti leikmað- ur deildarinnar, Þorvaldur Már Guðmundsson, í miklu stuði. Annað árið hefur oft reynst liðum eins og Aftureldingu erfitt og DV-Sport spá- ir því að þeir verði fyrir neðan miðju þetta árið. Leigðu fiórar vídeóspólur og keyptu f|orar Coke fiöskur í Bónusvídeó - og þá fcerðu mlða á Sumardjamm Coca Cola, Bónusvídeó og FM957 Þórsarar mæta til leiks með nánast óbreytt lið frá því í fyrra. Þeirra helsti styrkur eru frábærir framherjar, Jó- hann Þórhallsson og Orri Freyr Ósk- Barátta og enn meiri barátta Haukaliðið kom einnig á óvart í fyrra með því enda um miðja deild. Handboltalandsliðið: Þn'r nýir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi í gær 23 manna æfingahóp fyrir lands- leiki sem fram fara í lok maí og byrjun júní. Þá mætum við Dön- um, Katalónum, Slóvenum og Serbum. Vignir Svavarsson og Þorkell Magnússon, Haukum, og Bjarni Fritzson, ÍR, eru einu ný- liðarnir i hópnum. -HBG Markverðir: Guömundur Hrafnkels. . Conversano Roland Eradze.............Valur Birkir í. Guðmundsson .... Haukar Aórir leikmenn: Guðjón V. Sigurösson ....Essen Logi Geirsson ...............FH Þorkell Magnússon........Haukar Bjami Fritzson...............ÍR Einar Öm Jónsson ........Wallau Sigfús Sigurðsson ...Magdeburg Róbert Sighvatsson......Wetzlar Róbert Gunnarsson........Aarhus Vignir Svavarsson .......Haukar Dagur Sigurðsson.......Wakunaga Jaliesky Garcia ......Göppingen Snorri Steinn Guðjónsson . . . Valur Markús Máni Maute ........Valur Rúnar Sigtryggsson . .. Ciudad Real Heiðmar Felixson........Bidasoa Einar Hólmgeirsson...........ÍR Patrekur Jóhannesson ...Essen Ólafur Stefánsson...Magdeburg Aron Kristjánsson........Haukar Ásgeir Öm HaUgrímsson .. Haukar Einkennismerki Haukanna var gíf- urleg barátta og samstaða og liðið fór langt á þessum tveimur atriðum. Liðið hefur ekki styrkst mikið frá því í fyrra en Magnús Ólafsson, sem var markahæsti maður 2. deildar- innar fyrir tveimur árum, er kom- inn aftur eftir magurt ár hjá KR. Hann og Sævar Eyjólfsson þurfa að vera iðnir við kolann ef vel á að ganga hjá Haukum í sumar en aðalsmerki liðsins verður væntanlega sterkur vamarleikur og mikil barátta. Upp um tvær á tveimur árum Uppgangur HK-manna hefur verið ótrúlegur á síðustu tveimur árum. Goran Kristófer Micic hefur rokið upp með liðið um tvær deildir á tveimur árum. Liðið hefur ekki styrkst mikið frá því í annarri deildinni í fyrra og hætt við því að þeir fái meiri mótspymu nú heldur en tvö undanfarin ár. Framtíð félagsins er hins vegar björt, frábært yngri flokka starf á eftir að skila félaginu mörgum leikmönnum á næstu árum og aðstaðan, sem liðið hefur, er til fyrirmyndar. Ævintýralegur uppgangur Hafi uppgangur HK-manna vakið athygli þá er árangur Njarðvíkinga enn ævintýralegri. Þeir hafa fylgt HK-mönnum eins og skugginn undanfarin tvö ár, komust reyndar upp í aðra deildina eftir að Afturelding fór upp í fyrstu deild eins og áður hefur verið lýst. Njarðvíkingar vita þó að þeirra bíður erfitt verkefni. Þeir sýndu hvers þeir eru megnugir þegar þeir unnu deildabikar neðri deildar um síðustu helgi. Njarðvíkingar hafa grætt á nálægð sinni við Keflavík en uppgangur þar á bæ er aðdáunarverður þótt tímabilið verði erfitt. Rjúkandirúst Um lið Leifturs/Dalvíkur er lítið að segja. Liðið hefur misst átta lykilmenn í vetur og er ein rjúkandi rúst. Ungir leikmenn á Ólafsfirði og Dalvík verða að draga vagninn og þeir munu örugglega draga hann í 2. deildinni á næsta tímabili - annað kæmi mjög á óvart. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.