Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Page 27
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003
27
Fyrirliði Gróttu, Eva Margret Kristmsdott-
ir, átti ekki erfítt með að brosa þegar DV-Sport
hitti hana í leikslok. „Það er einhvem veginn
þannig að við missum þetta alltaf frá okkur en
það er skemmtilegra að hafa þetta spennandi,"
sagði Eva um lokakaflann þar sem lið-
ið missti niður fimm marka forskot.
„Þetta er frábært lið, það eru góðir
leikmenn í öllum stöðum og við erum
búnar að standa okkur vel í vetur. Við
vitum líka að viö erum aídrei sterkari
en veikasti hlekkurinn og það eru allar
í liðinu tilbúnar að bera ábyrgð. Við er-
um taplausar á íslandsmótinu en töp-
uðum reyndar í undanúrslitum bikars-
ins. Við vorum mjög svekktar með þaö
tap, Stjaman varð síðan bikarmeistari
og við vorum staðráðnar í að láta þær
ekki vinna tvöfalt. Við voruin búnar að
vinna þær þrisvar sinnum í deildinni
og vomm enn nægilega hungraðar í að
vinna þær í fjórða skiptið. Við uröum
síðast íslandsmeistarar í 5. flokki og
nokkrar af stelpunum eru að fara upp í
meistaraflokk og það var því kominn
tími á að vinna annan íslandsmeistara-
titil," sagði Eva Margrét sem sjálf á ár
eftir í flokknum eins og margar til við-
bótar og því gæti annar íslandmeist-
aratitill verið á leiðinni á næsta ári.
„Ég og stelpumar, sem verða áfram,
mætum galvaskar tO leiks á næsta ári
og nú verður biðin styttri mdli fslands-
meistaratitla," sagði Eva Margrét að
lokum. -ÓÓJ
Uncjlingaflokkui kvenna:
Gnótta—Stjarnan 23-22
0-2, 1-3, 6-3, 6-6, 0-7, (11-3), 12-8,
12-10, 13-10, 16-11, 17-12, 10-14, 20-16,
20-19, 21-19, 21-21, 22-22, 23-22.
Grótta:
Mörk: Eva Margrét Kristinsdóttir
7/2, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 4,
Amdis Erlingsdóttir 4, Aiga Stefanie
3, Gerður Rún Einarsdóttir 3, Anna
Maria Halldórsdóttir 2.
Skiptlng marka: 5 langskot, 5 hraða-
upphlaup, 4 úr homi, 4 gegnumbrot,
3 af línu, 2 víti.
Stoðsendingar: Eva Margrét 4, Gerð-
ur Rún 4, Aiga 3, Anna Úrsula 2,
Anna María, Amdís.
Fiskuð víti: Anna Úrsula 3.
Varin skot: Hildur Gísladóttir 15/2.
Stiaman:
Mörk: Sólveig Lára Kjæmested 6,
Rakel Dögg Bragadóttir 6/4, Elísabet
Gunnarsdóttir 4, Ama Gunnarsdóttir
3, Helga Sigurðardóttir 1, Elsa Rut
Óðinsdóttir 1, Lilja Lind Pálsdóttir 1.
Skipting marka: 8 úr homi, 5 lang-
skot, 4 af línu, 4 víti, 1 gegnumbrot.
Stoðsendingar: Rakel Dögg 7, Ama
4, Elsa Rut 2, Sólveig.
Fiskuð viti: Sólveig 2, Rakel Dögg,
Elsa Rut. Lilia Lind. Biörk Gunnars-
íslandsmeistarar Gróttu f unglingaflokki kvenna: Efri röö frá vinstri: Aöalsteinn Eyjólfsson, þjálfari, Hera
Hilmarsdóttir, Anna Úrsula Guömundsdóttir, Ingibjörg Rósa Jónsdóttir og Geröur Rún Einarsdóttir. Neöri röö frá
vinstri: Arndís Erlingsdóttir, Anna María Halldórsdóttir, Ása Ingimarsdóttir, Eva Margrét Kristinsdóttir, Hildur
Gísladóttir, Eva Kristinsdóttir, Aiga Stefanie. DV-myndir Siguröur Jökull
Sport unglinga
Grótta varð íslandsmeistari í unglingaflokki
kvenna í handbolta eftir 23-22 sigur á Stjöm-
unni í frábærum úrslitaleik í Hafnarfirði um
síðustu helgi. Gróttustelpumar leiddu leikinn
nánast ailan tímann en Stjömustúlkur voru þó
ekki á því að gefa frá sér íslandsmeistaratitil-
inn sem þær unnu í fyrra og vora hársbreidd
frá því að jafha leikinn í lokin. Þetta er fjórði
titillinn hjá Gróttunni á tímabilinu því Gróttu-
stúlkur unnu Granollers-mót á Spáni síðasta
sumar, urðu Reykjavíkurmeistarar og svo
deildarmeistarar.
Grótta skellti í lás í vöminni þegar rúmar
tíu mínútur voru liðnar af leiknum og'Stjam-
an var yfir, 3-1. Gróttuliðið skoraði næstu
fimm mörk og Stjaman skoraði ekki í rúmar
níu mínútur. Alls skilaði góð vöm fjórum
hraðaupphlaupsmörkum og þriggja marka for-
ustu í hálfleik, 11-3. Grótta hélt uppteknum
hætti í seinni hálfleik og náði mest fimm
marka forustu, 19-14, þegar þrettán minútur
voru eftir. Sex mínútum síðar var munurinn
þó aðeins eitt mark, 20-19, eftir góðan sprett
Stjömunnar en Gróttustelpumar héldu haus
og fyrirliðinn Eva Margrét Kristinsdóttir skor-
aði sigurmarkið úr vítakasti þegar rúmar tvær
mínútur voru eftir. Lokamínútumar gáfu síð-
an báðum liðum tækifæri sem þau ekki nýttu.
Margar hetjur hjá Gróttu
Það vom margar hetjur í liði Gróttu í þess-
um úrslitaleik enda liðið jafnt og allir leik-
menn liðsins vakandi og úrræðagóðir þegar á
þurfti að halda. Hildur Gisladóttir, markvörður
liðsins, var valinn maður leiksins af fulltrúum
HSÍ, landsliðsþjáifurunum Ágústi Jóhannssyni
og Gunnari Magnússyni, en frammistaða
þeirra önnu Úrsulu Guðmundsdóttur og Evu
Margrétar Krisinsdóttur í vöm og sókn áttu
allt eins skilið útnefninguna. Vitin tvö, sem
Hildur varði í seinni hálfleiknum, gerðu þó lík-
lega útslagið en hún stóð sig afar vel.
Auk þeirra er rétt að minnast á Önnu Mar-
íu Halldórsdóttur í vinstra hominu sem bjó til
tvö góð mörk upp á eigin spýtur á mjög mikil-
vægum tímapunktum, Aigu Stefanie sem hélt
ró sinni þrátt fyrir að vera tekin úr umferð frá
fyrstu sekúndu og nýtti öll þrjú skotin sin í
leiknum og Amdísi Erlingsdóttur sem kláraði
sín færi vel í hægra horninu.
f Stjörnuliðinu átti Sólveig Lára Kjærnested
frábæran seinni hálfleik er hún skoraði úr öll-
um fimm skotum sínum í hægra horninu en
eins vora þær Rakel Dögg Bragadóttir og El-
ísabet Gunnarsdóttir traustar þótt augljóst
væri að gamli þjálfarinn þeirra legði höfuð-
áherslu á að stöðva frábært samspil þeirra.
Helga Dóra Magnúsdóttir varði auk þess ágæt-
lega í markinu og Ama Gunnarsdóttir skoraði
þrjú góð mörk á lokakaflanum.
Landsliðsþjálfaramir hrifust greinilega af
frammistöðu Gróttustelpnanna í leiknum því
fimm þeirra era í 18 ára landsliðinu sem er að
fara í undankeppni Evrópumótsins sem fer
fram í Hollandi í byrjun júní.
Aldrei sterkari en veikasti hlekkur
Fyrsti titUli
síðan í 5. II
- hjá unglingaflokki Gróttu sem varð íslandsmeistari
Aöalsteinn Eyjólfsson er sigursæll þjálfari:
Erfitt að kveðja þær
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
unglingaflokks Gróttu í kvennahand-
boltanum, veit greinilega hvað þarf
til að verða íslandsmeistari í þessum
flokki þvi þetta er annað árið í röð
sem lið hans vinnur titilinn. Aðal-
steinn þjálfaði Stjörnuna sem vann í
fyrra og í ár stýrði hann Gróttunni
til sigurs gegn sínum gömlu læri-
sveinum úr Garðabænum.
„Minar stelpur sýndu mikinn
karakter 1 lokin eftir að hafa misst
niður gott forskot og náðu að klára
leikinn. Þær hafa lent í því áður að
missa leiki frá sér en það var mjög
ánægjulegt að þær skildu ná að tækla
þetta að þessu sinni. Hildur varði frá-
bærlega í markinu og stóð sig ótrú-
lega vel eins og allar stelpurnar í lið-
inu,“ sagði Aðalsteinn sem hefur bú-
ið til mjög jafnsterkt lið sem býr yfir
mörgum vopnum.
„Þær era búnar að æfa upp í átta
til níu sinnum í viku í vetur og era
margar búnar að spila sína fyrstu
leiki í meistaraflokki og það var því
gríðarlega gaman að klára veturinn
svona. Breiddin í liðinu er mikil og
sem dæmi era þær era allar að skila
í markaskoraninni. Þessar stelpur
hafa sýnt það í vetur með frábærri
æfingasókn og miklum metnaði að
þær geta náö langt i þessu. Ég nota
mikið lyftingar í minni þjálfum og
þakka þeim það að stelpurnar náðu
að halda út jafn erfitt og langt tíma-
bil sem nú er að baki.
Ég vil kannski ekki kalla þetta
sætan sigur en það var sterkt að
klára þetta því ég gerði þetta Stjörnu-
lið að íslandsmeisturam í fyrra og
náði að vinna núna með Gróttustelp-
urnar. Þetta er frábær hópur og þær
tóku vel á móti mér þegar ég tók viö
þeim í haust og það verður gríðar-
lega erfitt að kveðja þær því það eru
mjög spennandi tímar fram undan
hjá meistaraflokki Gróttu/KR,“ sagði
Aðalsteinn í samtali við DV-Sport en
hann hefur ákveðið að hverfa á nýjar
slóöir en vildi í lokin þakka ung-
lingaráði Gróttu og þeim sem hafa
stutt dyggilega við hann og stelpurn-
ar í vetur. -ÓÓJ
*