Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 DV Fréttir díki Blaöamaðurinn og bjargvætturinn Siguröur Bogi Sævarsson, biaöamaöur DV, meö Marc Portal sem bjargaöi honum upp úr díki viö Krýsuvík í gær. Illa til reika Siguröur Bogi sökk upp aö mitti í díkinu og varla heföi mátt 'tæpara standa því hann botnaöi ekki í þessu kviksyndi. Sigurður hefði eflaust drukknað ef hann hefði ekki komið honum til hjálpar. „Ég var þama með börn- unum mínum að skoða þarna í kring þegar þetta gerðist," sagði Marc. Hann vildi ekki gera mikið úr björgunarafreki sínu en segir hættur á ferðamannastöðum oft ekki nægilega vel merktar. Það sé þó alltaf álitamál hversu mikið eigi að merkja. Það kosti peninga og slíkt sé auðvitað um leið lýti á náttúrunni. „Þetta svæði sem Siggi fór út á er mjög hættulegt. Þar hefur fleira fólk örugglega lent í vandræðum.“ Marc segist ekki hafa lent í slík- um raunum með þá ferðamenn sem hann hefur verið að leið- beina, enda leggur hann mikla áherslu á að fólk fari varlega á svona stöðum. - HKr. Blaöamaöur DV hætt kominn í Krýsuvík í gær: þegar hann Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður DV, var hætt kominn á hverasvæðinu Seltúni við Krýsuvík í gær. Þar var hann ein- samall í efnisöflunarferð fyrir blaðið og steig út á sandrif til myndatöku við einn hverinn. Skipti þá engum togum að hann sökk skyndilega í díki sem þar reyndist vera undir. Var honum bjargað með snarræði af frönsk- um leiðsögumanni og kennara sem þar var staddur fyrir tilvilj- un. „Sandrifið við hverinn virtist vera traust og ég steig út á það. Svo var hins vegar ekki. Fyrst seig ég niður að ökkla en síðan gerðust hlutirnir mjög hratt. Á ör- fáum sekúndum pompaði ég niður í díkið og var pikkfastur þar - og hefði sjálfsagt horfið sjónum manna hefði aðstoð ekki borist,“ segir Sigurður Bogi sem hafði að vonum brugðið nokkuð við atvik- ið. Sigurður Bogi ætlaði að ná mynd af fólki sem þarna var á ferð - og velja sér góðan stað til myndatökunnar. „En síðan seig jörðin undan fótum mér. Þetta gerðist mjög hratt svo mér gafst hreinlega aldrei tími til að verða hræddur. Ferðamaðurinn sem ég hugðist mynda brá sér snarlega úr hlutverki fyrirsætunnar og með styrkri hendi sinni dró hann mig á öruggt land. En þetta mátti ekki tæpara standa. Og ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda hefði þetta fólk ekki verið þama því ég var einn á ferð,“ segir Sigurður Bogi - og kvaðst vilja brýna fyrir fólki að fara varlega á þessum slóðum. Á leiðinni suður í Krýsuvík seg- ist Sigurður hafa verið að hlusta á messuna í útvarpinu - og þar heföi presturinn lagt út af hinni sönnu vináttu í lífinu. „Prestur- inn vitnaði í alþekkt lag og sagði að traustur vinur gæti gert krafta- verk og þegar mönnum yrði á, þá styrka hönd þeir þyrftu að fá. - Þessi boðskapur sannaði sig áþreifanlega þama,“ sagði Sigurð- ur Bogi. Hann var illa til reika eft- ir þessa hrakfór - og þá kom sér vel sem aldrei fyrr að vera með föt til skiptanna í bíLnum. Bjargvættur Sigurðar heitir Marc Portal og er franskur leiö- sögumaður og kennari sem er bú- settur hér á landi. Hann sagði að Naumlega bjargað sökk í Tvítugur karlmaður játar bankarán í SPK: Hefup ekki vísað á pánsfenginn Tvítugur piltur var um helgina dæmdur til að sæta vikulöngu gæsluvarðhaldi vegna bankaráns sem hann framdi í Sparisjóði Kópa- vogs á fóstudagsmorgun. Ungi maðurinn var handtekinn á fóstu- dagskvöld og samkvæmt heimild- um DV mun hann sjálfur hafa gef- ið sig fram við lögreglu. Við yfir- heyrslur játaði hann aðild sína að ráninu en að sögn lögreglu í Kópa- vogi telst rániö ekki að fullu upp- lýst þar sem maðurinn hefur enn vísað á ránsfenginn. Maðurinn framdi ránið sem fyrr segir á föstudag. Hann var fyrsti viðskiptavinur útibús SPK í Hlíða- smára þá um morguninn. Hann gerði ekkert tU að hylja andlit sitt þegar hann kom inn í bankann vopnaður búrhnífi. Hann mun hafa Vettvangur glæpsins Ungur maöur situr í gæsluvaröhaldi eftir rán í SPK' brugðið hnífnum á loft en ekki ógn- að starfsmönnum bankans beint. Hann vatt sér yfir afgreiðsluborð og hrifsaði peninga úr einni gjald- keraskúffu. Að því loknu lagði hann á flótta og var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Ekki fæst staðfest hversu miklum fjár- munum maðurinn náði en líklegt má telja að upphæðin nemi aö minnsta kosti nokkur hundruð þús- und krónum. Öryggismyndavélar náðu að festa atburðinn á filmu og var þeim dreift tU fjölmiðla síðla á fóstudag. Eftir að myndir af manninum voru birtar í fjölmiðlum gaf ungi maður- inn sinn fram viö lögreglu. Hann mun ekki hafa komið við sögu lög- reglu að ráði áður ef undan eru skU- in umferðarlagabrot. -aþ DV-MYND JÚLÍA IMSUND Slökkt í Akurey Hafnsögubáturinn Björn lóös er meö öfluga slökkvidælu um borö og kom hann slökkviliðinu til aöstoöar viö slökkvistarfið. Skemmdist í eldi Eldur kom upp í sjóminjabátn- um Akurey á Hornafirði um kvöldmatarleytið á laugardags- kvöld. Það tók slökkvilið aðeins nokkrar mínútur að ráða niður- lögum eldsins. Talsverðar skemmdir urðu á brúnni. Ekki er vitað um eldsupptök en báturinn er mjög vinsæll staður bæði hjá börnum og þeim sem gönguferðir stunda um hafnarsvæðið. Akurey er löngu hætt að gegna hlutverki sem veiðiskip og var hún sett upp á hafnarbakkanum ásamt fleiri sjóminjum og er opin öllum sem vilja fara um borð. Á humar- hátíðum er opin krá í Akurey og munu eflaust margir sakna þess ef ekki verður hægt að gera við skemmdimar fyrir næstu hátíð sem verður í byrjun júlí. -JI UngiP menn í kappakstri - teknir á 130 km hraöa Lögreglan í Reykjavík stöðvaði ökumann við Vesturlandsveg við Korpúlfsstaði á fimmta tímanum aðfaranótt laugardags. Sá hafði mælst á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 og má öku- maðurinn því eiga von á að verða sviptur ökuréttindum. Lögreglan þurfti einnig að hafa afskipti af tveimur ungum öku- mönnum við Fiskislóð á Granda þessa sömu nótt. Svo virtist sem mennirnir væru í einhvers konar kappakstri er þeir vom stöðvaðir á 130 km hraða. Hámarkshraði á þessum slóðum er 50 km. Þeir mega því einnig eiga von á því að verða sviptir ökuréttindum, auk þess að fá háar fjársektir. Þá lenti bifreiö með fjórum innanborðs utan vegar vestan við Kúagerði á Reykjanesbraut snemma á laugardagsmorguninn. Bifreiðinni, sem var ekið frá Reykjavík, var ekið á ljósastaur og kastaðist hún þaðan út í móa. Engin slys urðu á fólki en allir vom í bílbeltum. Talið er að öku- maðurinn hafi sofnað undir stýri. -áb Selfoss: Síbrotamaður tek- inn eftir 3 innbrot Lögreglan á Selfossi handtók á laugardagsmorgun mann sem var grunaður um innbrot í þrjú hús í bænum um nóttina. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í mánað- arlangt gæsluvarðhald en hann hefur ítrekað komið við sögu lög- reglunnar á síðustu misserum. Lögreglan á Selfossi segist vera að rannsaka nokkur önnur mál frá síðustu vikum sem tengjast manninum á einn eða annan hátt. Því var ákveðið að láta reyna á kröfu um síbrotagæslu fyrir Héraðsdómi Suðurlands sem felur í sér lengra' gæsluvarðhald en ella. Héraðsdómurinn féllst á kröfuna og dæmdi manninn í mánaðarlangt gæsluvarðhald. -áb Miðvikudagar gefins dálkur frítt DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.