Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003
Menning
_______________________PV
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
dvaiyndir e.ól. Innilokaöar dætur Bemhöröu Alba
„Blunda rósin rjóö“ Bryndís Ásmundsdóttir og llmur Kristjánsdóttir sem Magdalena og Martíríó
Esther Talia Casey syngur vöggukvæöiö fagra yfir barni sínu og hins burt-
stokkna eiginmanns.
Spænskur ástríðuhiti
Fyrsta verkefni Nemendaleikhússins þetta
leikárið var Skýfall, u.þ.b. tíu ára gamalt verk eft-
ir spænska leikskáldið Sergi Belbel. Lokaverk-
efnið, Tvö hús, er sömuleiðis ættað frá Spáni því
um er að ræða leikgerð byggða á tveimur af
þekktustu verkum Federicos Garcia Lorca, Blóð-
brullaupi og Heimili Vemhörðu Alba. Magnús
Þór Þorbergsson og Kjartan Ragnarsson leik-
stjóri eru skrifaðir fyrir leikgerðinni sem er aUr-
ar athygli verð og væri raunar mjög fróðlegt að
sjá hana flutta af (nógu mörgum) leikurum sem
fyrir aldurs sakir passa betur í hlutverkin.
Leiklist
Það er ekki auðvelt að fmna leikrit sem hæf-
ir átta ungmennum, síst þegar konur eru I
meirihluta. Frábærar kvenrullur í hinu magn-
aða verki um Vemhörðu Alba og dætur hennar
er vafalaust ein meginástæðan fyrir valinu á því
leikriti, í Blóðbrullaupi eru hins vegar
prýðiskarlhlutverk og trúlega er hér komin for-
sendan fyrir samtvinnun verkanna. Hún tekst
ágætlega þótt vitanlega fari margt forgörðum,
enda verkin hvort um sig heils kvölds sýningar.
Bældar en ofsafengnar ástríður eru leiðarstef í
báöum verkunum en ekki síður sú staðreynd að
siðvenjur og hefðir hafa afgerandi áhrif á ein-
staklingana sem við sögu koma.
Það er einmitt í krafti hefðarinnar sem Vem-
harða Alba heimtar að dætumar syrgi föður
sinn í átta ár, innilokaðar á heimili fjölskyld-
unnar. Þessi innilokun er undirstrikuð með afar
einfaldri en snilldarlega útfærðri leikmynd
Gretars Reynissonar sem er dyggilega studd
blæbrigðaríkri lýsingu Ögmundar Þórs Jóhann-
essonar. Handan við rammgerða rimlana sem
umlykja heimiliö er svo önnur veröld þar sem
öllu ánægjulegri atburðir eru í vændum. Þar er
verið að imdirbúa brúðkaup en eins og nafn
upprunalega verksins gefur til kynna lýkur
Sú sem Pepe Romano elskar í raun og veru
Maríanna Clara Lúthersdóttir í hlutverki Adelu,
yngstu dóttur Bernhöröu.
brúðkaupsdeginum á allt annað en gleðilegan
hátt.
Sögunum tveimur vindur fram samtímis og
allir leikaramir utan einn fara með tvö hlutverk.
Búningar em nýttir til að skerpa skilin milli
ólíkra hlutverka en draga jafnframt dám af mis-
munandi aðstæöum persónanna. Þannig em ljós-
ir litir ríkjandi í búningum þeirra sem koma viö
sögu í Blóðbrullaupi en sorgarklæðin sem Vem-
harða og dætur hennar klæðast eru vitanlega
dökk. Öll umgjörð þessarar sýningar er vel
heppnuð og tónlistin, sem Sverrir Guðjónsson á
heiðurinn af, átti sinn þátt í að skapa ástríðufulla
og suðræna stemningu, kryddaða þrúgandi áhrif-
um kaþólsku kirkjunnar.
Lífleg og dramatísk
Kjartan Ragnarsson hefur áður sýnt að honum
lætur vel aö vinna með leiklistarnemum og
styrkir þessi uppfærsla enn frekar þá sannfær-
ingu. Þrátt fyrir að vera spunnin úr tveimur
þráðum er sýningin heildstæö og leikaraefnin
komast vel frá sínu. Þau eru undurfljót að skipta
milli hlutverka en tekst að halda einkennum
hverrar persónu fyrir sig vel til haga. Það að
þurfa að leika tvö hlutverk gerir samt að verkum
að persónumar eru dregnar einfaldari dráttum
en ella og leikaraefnunum gefst takmarkað færi á
að hvíla í hlutverkunum.
Pepe Romano, sem var eina hlutverk Björns
Thors, varð fremur litlaus karakter og erfitt að
skilja hvað systmnum fannst svona heillandi við
hann. Harkan var allsráðandi í túlkun Þorleifs
Amar Amarssonar á Vemhörðu en í hlutverki
brúðgumans var sakleysi og æskuþokki í fyrir-
rúmi. Davíð Guðbrandssyni tókst prýðilega að
koma eldheitum tilfmningum Leonardos yfir til
áhorfenda en túlkun hans á móður brúðgumans
varö ekki jafnafgerandi, enda ekki heiglum hent
að leika upp fyrir sig um nokkra áratugi og það
persónu af öðru kyni. Esther Talía Casey, María
Heba Þorkelsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir og
Maríanna Clara Lúthersdóttir gerðu allar vel og
fengu mun betri tækifæri til að sýna dramatíska
dýpt en í fyrri uppsetningum leikársins. Túlkun
Ilmar Kristjánsdóttir á Martíríó var einstaklega
tilfmningaþrungin en hófsöm og ljóst að Ilmur er
efni í magnaða skapgerðarleikkonu.
Tvö hús er bæði falleg og lífleg sýning þrátt
fyrir dramatískan undirtón. Leikritin sem Nem-
endaleikhúsið hefur boðiö upp á í vetur eru ólík
innbyrðis og sama má segja um leikstjórana sem
hafa stýrt uppfærslunum. Vinnan við þessar sýn-
ingar hefur án efa bætt miklu í reynslusarp leik-
araefnanna en hins vegar verður að viðurkenn-
ast að mér finnst ég litlu nær um raunverulega
getu þeirra og færni.
Halldóra Friðjónsdóttir
Nemendaleikhúsiö sýnir í Smiðjunni: Tvö hús, leikgerö
byggöa á Blóöbrullaupi og Heimili Vernhöröu Alba eftir
Federico Garcia Lorca. Höfundar leikgeröar: Kjartan
Ragnarsson og Magnús Þór Þorbergsson. Þýöingar:
Hannes Sigfússon og Guöbergur Bergsson. Tónlist:
Sverrir Guöjónsson. Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannes-
son. Hár og föröun: Kristín Thors. Búningar: Gretar
Reynisson og Margrét Siguröardóttir. Lelkmynd: Gretar
Reynisson. Dramatúrg: Magnús Þór Þorbergsson. Leik-
stjóri: Kjartan Ragnarsson.
mannsgaman
A miðju moldargólfinu
Fyrr um árið hafði sölumaðurinn farið á
milli bæja og selt vel. Geöþekkur maður, var
sagt, lipur og skýrmæltur.
Svo kom sendingin að sunnan, fullur vöru-
bíll af hvítu postulíni, pökkuðu í plast og frauð
og fjöl. Þá var eins og lygndi og veður hyrfu.
Þennan dag stóðu bændur í hreppnum hróð-
ugir við bæjarhliðin og stilltu sér upp í betri
peysunni. Nýmóðins náðhús á leiðinni og það
með togsturtu. Ég gekk með bónda mínum
spölinn heim að bæ. Hann ýtti á undan sér
skjálfandi hjólbörum og ofan á þeim þessi líka
gripur og gagn.
Það var moldargólf í kjallara bæjarhússins
og hænur úti í homi, gallar á veggjum, verk-
færi og hekkur meö brýni. Við grófum rás í
miðju gólfs og leiddum hana út í bæjarlæk,
settum rör og sópuðum yfir. Hér var ekkert að
fela. Nýja vatnssalerninu var komið fyrir í
miðjum skálanum og stóö þar fægt og fallegt
eins og mubla fyrir allra augum. Svo gátu
menn sest þar og hægt sér eins og nauðsyn bar
og ekki laust við að stolt skini úr stifltum and-
litunum.
Þarna leið sumarið við nýja siði. Gamli
kamarinn úti á veUi var ekki lengur í náðinni.
Og hann gafst upp og grotnaði niður í lækinn
nokkru síðar.
Inni á miðju moldargólfinu mátti einu gUda
hve margir voru nærri. Þar var setið í sæld og
sönnum móð. Og ekki aUar sveitir svona langt
komnar.
-SER
Vefnaður eftir Júlíönu Svelnsdóttur.
Veistu eitthvaö
um Júlíönu?
í Listasafni íslands stendur nú yfir
viðamikU skráning á verkum lista-
konunnar Júlíönu Sveinsdóttur í tU-
efni yfirlitssýningar á verkum henn-
ar sem haldin verður í safninu í
haust. ViU Listasafnið leita tfl al-
mennings um upplýsingar um verk
Júlíönu í einkaeign svo hægt sé að
gera heUdstæða skrá um listaverk
hennar hérlendis. Skráninguna ann-
ast Harpa Þórsdóttir listfræðingur.
Júliana Sveinsdóttir er einn af
frumkvöðlum íslenskrar myndlistar
og ein fyrsta konan á íslandi sem
gerði myndlistina að ævistafi sínu.
Hún staifaði mest í Danmörku en ís-
lenskt landslag og þá sérstaklega
æskustöðvar hennar í Vestamanna-
eyjum skipa stærstan sess í verkum
hennar. Júlíana fékkst bæði viö list-
málun og listvefnað og verða list-
vefnaöi hennar gerð góð skU á yfir-
litssýningunni. Gefm verður út bók
um myndlist Júlíönu Sveinsdóttur á
íslensku og ensku í tUefni sýningar-
innar.
Verndum hálendiö
Geislaplatan
Vemdum hálendið
er komin út, fram-
lag tónskálda, texta-
höfunda og annarra
listamanna tU
vemdunar hálendis
Islands. AUur ágóði rennur í sérstak-
an hálendissjóð sem síöan verður út-
hlutað úr tU verkefna að vali sjóös-
stjómar.
14 lög eru á diskinum og meðal
höfunda þeirra og flytjenda eru
Bubbi Morthens, Jóhann G. Jóhanns-
son, Björgvin Gíslason, Jóhann
Helgason, Eyvindur P. Eiríksson,
XXX Rottwefler og Kristján Hreins-
son sem syngur „Aldrei Kárahnúka-
virkjun" ásamt fjölda manns.
Þeir sem vUja eignast diskinn geta
hringt í Sigvarð Ara (861 1520), Svein
(663 5363 eða 898 8685) eða HrafnhUdi
(849 7824).
Aö sækja um styrk
Norðurlöndin í fókus / Norræna
húsið skipuleggur stutt og hnitmiðað
námskeið um styrkumsóknir 3. júni,
kl. 10-14 i ráðstefnusal Norræna
hússins. Það er einkum ætlaö félög-
um og samtökum á menningarsvið-
inu. A námskeiðinu verður farið yfir
helstu grundvaUaratriði í að sækja
um styrki tU stórra verkefna og er
ætlað „byrjendum".
Leiðbeinandi er Guðrún Dís Jón-
atansdóttir, upplýsinga- og verkefna-
fuUtrúi Norræna hússins. Nám-
skeiðsgjald er kr. 7.500. Skráning fyr-
ir 27. maí í Norræna húsinu í síma
551 7030 eða með tölvupósti tU
nh@nordice.is.
Smekksatriði
Kvikmyndaklúbbur AUiance
francaise - Filmundur sýnir Une af-
faire de goút eftir Bernard Rapp frá
árinu 2000 með Jean-Pierre Lorit,
Bemard Giraudeau og Florence
Thomassin í dag kl. 18 og á morgun
kl. 20 í Háskólabíói.
Þetta er spennumynd um iönjöfur-
inn Frédéric Delamont og háskalegt
samband hans við einkaþjóninn
Nicholas Riviére. Enskur texti.