Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Blaðsíða 12
12 Útlönd MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 DV REUTERS-MYND Lesiö fyrlr gestinn íraskur nemandi les upp úr náms- bók sinni fyrir Carol Bellamy, for- stööukonu UNICEF, í heimsókn hennar í stúlknaskóla í Bagdad. Versnandi aðstæöur fyrir börnin í írak Carol Bellamy, yfirmaöur Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna (UNICEF), segir að tilfell- um bráðaniðurgangs meðal íraskra barna fari fjölgandi og að þær aðstæður sem upp hafi komið eftir stríðið hafi aðeins gert illt verra. Fjórðungur íraskra barna þjáð- ist af vannæringu áður en fyrstu sprengjurnar féllu í mars og læknar segja að ástandið fari versnandi, meðal annars vegna þess að frárennsliskerfi hafi orð- ið fyrir skemmdum. Bellamy er í írak um þessar mundir til að meta ástandið og til að dreifa skólavörum til barn- anna svo þau geti sest sem fyrst aftur á skólabekk. Æðstu stöður al-Qaeda endurmannaðar Eftir að Khalid Sheikh Mo- hammed, hermálastjóri al-Qaeda, hryðjuverkasamtaka Osama bin Ladens, var handtekinn í mars síð- astliðnum hefur verið leitað af eftir- manni hans. Fyrir valinu hefur víst orðið egypskur maður, Saif al-Adel, sá er hefur séð um gæslu sjálfs bin Ladens, sem hefur tekist að fara huldu höfði undanfarin ár. Skarðið sem hann þarf þó að fylla er ansi mikiö en Mohammed er talinn vera helsti skipuleggjandi hryðjuverk- anna i Bandarikjunum þann 11. september 2001. Al-Adel er fertugur og er eftirlýst- ur hjá Bandaríkjamönnum fyrir sendiráðssprengingarnar í Keníu og Tansaníu árið 1998. Greinilegt er að starfsemin er í fullum gangi, þrátt fyrir að margir hafi verið handteknir eða felldir úr röðum meðlima al-Qaeda. Sést það kannski best á sprengjutilræðinu í Riyadh fyrir viku. I kjölfarið hafa leiðtogar margra Evrópuríkja varað við hryðjuverka- hættunni sem er greinilega til stað- ar. ísraelar loka landamærum sínum fyrir öllum Palestínumönnum: Fríðarvíðræðum haldið áfram þrátt fyrir sjálfsmorðsárásir - 7 fórust í tveimur sjálfsmorösárásum, í gær og í morgun ísraelsk stjómvöld segjast ætla að halda friðarviöræðum áfram þrátt fyrir sjálfsmorðsárásir helgarinnar. Bandaríkjamenn hafa lagt mikla áherslu á undanfamar vikur að aö- ilar taki friðartillögu þeirra, sem titlast „Vegvísir", til athugunar og reyni að komast að niðurstööu sem muni þá leiða til friðar á svæðinu. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandarikjanna, hefur verið á ferð um Miðausturlönd að undanfómu tjl að kynna „Vegvísi" og kallaði hann til Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, og krafðist þess að hann upprætti innri starfsemi þess hryðjuverknaðar sem á sér stað hjá Palestínumönnum. Tvær sjálfsmorðsárásir hafa átt sér stað síðustu daga, ein í gær og nú síðast í morgun, og fórust í þeim 7 manns - allir í gær. Þá dulbjó sig sjáifsmorðsliðinn sem trúaðan gyö- ing og sprengdi sig í loft upp í rútu með fyrrgreindum afleiðingum. Síð- REUTERSMYND Neyðarfundur Ríkisstjórn ísraels hittist í gær á neyöarfundi eftir aö 7 fórust í sjálfs- morösárás í Jerúsalem. ari tilræðismaðurinn kom á hjóli upp að ísraelskri herstöð og tókst honum aö særa þrjá hermenn. Hinn nýskipaði forsætisráðherra Palestínu, Mahmoud Abbas, hitti Ariel Sharon á laugardagskvöldið og eru tvö ár liðin frá því að jafnháttsettir embættismenn ísraela og Palestínumanna hittust að máli. Hamas-samtökin, sem berjast fyrir sjálfstæði Palestínu, eru hins vegar mjög mótfallin viðræðunum og „Vegvísi" í heild sinni og hafa lýst ábyrgð á tilræðunum tveimur. Til stóð að Sharon héldi til Bandaríkjanna til að ræða friðar- ferlið við þarlend stjómvöld en hann hefur nú aflýst þeirri ferð. ísraelsmenn hafa reyndar innsiglað landamæri sín og er engum Palest- ínumönnum hleypt irm eða út úr ísrael. Þá hafa ísraelsmenn gefið það út að þeir muni ekki taka á móti þeim erlendu leiðtogum sem hyggjast einnig heimsækja Arafat. REUTERSJMYND Baráttan gegn bráðalungnabólgu efld Heilbrigöisyfirvöld á Taívan hafa gert eitt sjúkrahúsa landsins aö miöstöö baráttunnar gegn hinni banvænu bráöalungnabólgu sem herjaö hefur á Asíulönd undanfarnar vikur. Engin ný tilfelli sjúkdómsins hafa greinst en yfírvöld segja samt aö baráttunni sé langt frá því aö vera lokiö. Mynd þessi var tekin í morgun þegar liösforingjar í taívanska hernum báru veggspjald sem minnir á baráttuna gegn lungnabólgunni inn á sérhæföa sjúkrahúsiö í Taipei. Daglegt flug til Kaupmannahafnar lceland Express flýgur til Kaupmannahafnar alla daga. Skoðaðu og bókaðu á lcelandExpress.iseða komdu á söluskrifstofuna Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga. Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl. Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga Sími 5 500 600 www.lcelandExpress.is Ffékur páli hélt upp á 83 ára afmæli sitt Það var frísk- ur Jóhannes Páll páfi sem fagnaði 83 ára afmæli sínu í gær með tveggja og hálfs klukku- tíma messu á Péturstorgi í Vatíkaninu í gær. 50 þúsund manns voru við- stödd þegar hann framdi eitt uppáhaldsverk sitt sem páfi og innleiddi fjóra nýja dýrlinga í kaþólsku kirkjuna. Tveir þeirra voru landar hans, pólskir, og hinir tveir ítalskir. Jóhannes Páll mun í október fagna 25 ára starfsafmæli og hafa aðeins 3 forverar hans verið lengur í starfi páfans. Hann hefur undan- farin ár barist gegn Parkinsons- veiki og virðist mun friskari nú en á síðasta afmælisdegi sínum. Jóhannes Páll páfi annar. Stuttar fréttir Bremep ætlar að standa við sitt Paul Bremer, landstjóri Banda- ríkjamanna í írak, ítrekaði í gær að hann stefndi að því að mynduð yrði bráðabirgða- stjórn íraka í landinu en heima- menn sökuðu ráðamenn í Was- hington um að standa ekki við gefin loforð um að írakar fengju raunveruleg völd í eigin landi. Minni líkur á krabbameini Líkurnar á að fá krabbamein í endaþarm minnka um helming ef léttvín er að minnsta kosti þriðj- ungur allrar áfengisneyslunnar, segja danskir vísindamenn. Kjósendur til krata á ný Danski jafnaðarmannaflokkur- inn virðist njóta mikilla vinsælda meðal kjósenda þessa dagana, ef marka má skoðanakannanir. Ró færist yfir bæ í Kongó Ró hefur aðeins færst yfir bæ- inn Bunia í Kongó eftir morð og gripdefldir undanfarinna daga þar sem samkomulag um vopna- hlé heldur enn. Refur skelfir garðyrkjumenn Svangur refur skaut garðyrkju- mönnum, sem voru að undirbúa blómasýninguna í Chelsea, skelk í bringu um helgina. Elísabet drottning opnar sýninguna í dag. íhaldið með fátækum Iain Duncan Smith, leiðtogi breska íhalds- flokksins, segir í viðtali við blaðið Guardian í dag aö flokkur sinn vilji vera „flokkur fá- taeka mannsins". Hingað til hefur íhaldið þótt hallt undir fjármagnseigendur, at- vinnurekendur og landeigendur. Handtökur í Sádi-Arabíu Yfirvöld í Sádi-Arabíu til- kynntu í gær að þau hefðu hand- tekið fjóra meinta liðsmenn al- Qaeda sem þau telja að hafi vitað um árásimar í Riyadh á mánu- dag þar sem 34 týndu lífi. Blair fundar með Giscard Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, fundar í dag með Valéry Giscard d’Estaing, formann stjómar- skrárnefndar ESB. Kröfur um þjóð- aratkvæðagreiðslu um áhrif breytinganna á Bretland verða sífellt háværari. Sósíalistar fá nýjan formann Franskir sósíalistar kusu sér nýjan og tiltölulega óreyndan for- mann í gær, Frangois Hollande, sem hét því að berjast gegn um- deildum umbótatillögum stjórn- valda á eftirlaunakerfinu. Powell segist bjartsýnn Colin Powell, utanríkisráðherra Bandarikjanna, segist bjartsýnn á að lausn finnist á deilu Bandaríkja- manna og Þjóðverja um afnám refsi- aðgerða SÞ á írak.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.