Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Page 6
6_______ Fréttir MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 DV Jaröskjálftahrina viö Grímsey: Fólk kippir sér ekki upp við skiálftana Jaröskjálfta hefur oröiö vart skammt undan Grímsey Jaröskjálfti sem mældist 3,5 á Richter mædlist á þessum slóðum í gærkvöld. Jaröskjálfta, sem eiga upptök sín skammt undan Grímsey, hefur orðið vart að undanförnu. Jarð- skjálfti, sem mældist 3,5 stig á Richter samkvæmt sjálfvirku mælikerfi Veðurstofunnar, varð rúma 10 km norðaustur af Gríms- ey um kvöldmatarleytið á sunnu- dagskvöld. Þessum skjálfta fygldu svo tveir minni skjátftar. Dónald Jóhannesson, skóla- stjóri í Grímsey, segir eyjaskeggja ekki skelkaða vegna nálægðar skjálftanna, fólk sé orðið svo vant því gegnum árin að það sé smátitringur á jörðinni, og það komi svona stærri skjálftar tvisvar til þrisvar á ári. „Síðustu tíu ár höfum við ekki orðið vör verulegs skjálfta nema í tvö skipti, veggir titrað og glös glamrað. En auðvitað eru inn á milli einstaklingar sem eru skít- hræddir, en það er ekkert „panikástand“. Bömin ræða þetta fremur lítið, en finnst þetta meira spennandi en ógnvekjandi. Stað- reyndin er sú að síðustu 100 árin hafa ekki orðið hér neinar teljandi skemmdir á húsum, einna helst að áhrifin af Dalvíkurskjálftanum 1934 séu minnisstæð. Hér hefur vorað óskaplega skemmtilega í langan tíma þó nú sé leiðinleg norðanátt og menn eru að djöflast í eggjatöku. Það sér ekki högg á vatni þó hér sé tínt í gríð og erg fyrir vini og vandamenn á fasta- landinu. Tekjurnar eru því nánast engar. Ég fæ mér alltaf tvö til þrjú egg á hverju ári, og finnst það gott þó ég sé ekki að borða þetta dag eftir dag í fleiri vikur eins og sum- ir. Stærri bátarnir hafa verið við Kópasker í mokveiði, rétt um 5 mínútna siglingu fyrir utan höfn- ina. Þetta er fínasti fiskur,“ segir Dónald Jóhannesson. -GG Hrunamannahreppur: Kærður fyrir kynferð- islega áreitni Tvær kærur hafa verið lagðar fram á hendur íbúa í Hruna- mannahreppi á Suðurlandi vegna kynferðislegrar áreitni. Önnur kæran mun, samkvæmt heimild- um DV, hafa verið lögð fram af leikskóíakennara á svæðinu en hin af grunnskólakennara í Flúðaskóla. Maðurinn er sagður hafa áreitt konurnar með síendurteknum hringingum og SMS-skilaboða- sendingum þannig að þeim var nóg um og lögðu þær loks fram kæru hjá embætti lögreglunnar á Selfossi. Nálgimarbann hefur ver- ið sett á manninn þannig að hon- um er að svo stöddu hvorki heim- ilt að koma nálægt leikskólanum né grunnskólanum á Flúðum. íbúar Hnmamannahrepps, sem DV náði tali af í gær og í morg- un, vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu en þeir sögðu mál- ið vera á mjög viðkvæmu stigi. íbúar Hrunamannahrepps eru rif- lega 700 talsins. -áb DV41YND E.ÓL. Ný Króna í Húsgagnahöllinni Undirbúningur aö opnun nýrrar Krónu-verslunar í Húsgagnahallarhúsinu viö Bíldshöföa stendur nú sem hæst. Ráögert er aö opna nýju verslunina meö pomp og prakt á laugardag. Starfsfólk hefur unniö höröum höndum aö frágangi, upp- setningu innréttinga og rööun í hillur en mörg handtök eru eölilega viö opnun nýrrar verslunar. í Húsgagnahallarhús- inu veröur framvegis stór verslun Krónunnar, verslun Intersport, Bakarameistarinn og ný og endurbætt verslun Hús- gagnahallarinnar. DV- MYND E.ÓL. Þaö viöraöi vel á þessa sækappa þegar þeir sjósettu heimasmíöaöa fleytu í Kópavogshöfn. Öryggisverðir handtóku þjof Öryggisverðir tóku mann höndum í fyrirtækinu Plast- prenti við Fossháls um þrjúleyt- ið í fyrrinótt. Viðvörunarkerfi í byggingunni fór í gang þegar maðurinn braust þar inn og hafði hann safnað saman nokkrum hlutum sem hann ætl- aði að hafa á brott með sér þeg- ar öryggisverðimir komu á svæðið. Þeim tókst að halda manninum niðri uns lögreglan kom á vettvang og handtók hann. Nokkrar skemmdir urðu á húsnæði fyrirtækisins en inn- brotsþjófurinn hafði meðal ann- ars sparkað upp nokkrar hurðir til að komast leiðar sinnar. -áb Kópavogur: Kviknaði í út fná tuskum Eldur kom upp í bílskúr í Kópavoginum í nótt. Svo virðist sem kviknað hafi í tuskum sem voru í bílskúrnum en húsráð- endur höfðu verið að femisera útidyrahurð og sett síðan tusk- urnar í fötu. Lögreglan var búin að ráða niðurlögum elds- ins með dufttæki þegar slökkvi- liðið kom á vettvang en reykur hafði borist inn í íbúðina og þurfti slökkviliðið að reykræsta hana. Skemmdir urðu þó óveru- legar. Að sögn vaktmanns hjá slökkviliðinu virðist sem tusk- urnar hafi verið samanvöðlaðar ofan í fötunni og líklegt er að einhver vökvi hafi verið í henni. Við slík skilyrði geta myndast mjög eldfim gasefni sem geta valdið eldsvoða. -EKÁ Brotist inn til gullsmiðs Ættleiöingum frá Kína frestaö vegna HABL: íslendingar bíða efflr kínverskum börnum Óvissa ríkir um ættleiðingar íslenskra foreldra á börnum frá Kína eftir að kínversk yfirvöld frestuðu ótímabundið öllum ætt- leiðingum barna til útlanda. Frestunin er gerð til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu bráðalungnabólgunnar HABL. Óttast var að tilvonandi foreldr- ar kynnu að komast í tæri við sjúkdóminn er þeir sæktu böm- in og breiddu hana svo út. Margir íslendingar bíða eftir ættleiðingu frá Kína. Ættleiðing- ar þaðan hófust á síðasta ári en þær hafa engar verið það sem af er þessu ári. Félagið íslensk ætt- leiðing hefur milligöngu um ætt- leiðingar frá útlöndum, meðal annars frá Kína. Guðrún Sveins- dóttir, starfsmaður félagsins, segir ættleiðingar frá Kína vera í biðstöðu um sinn hér líkt og annars staðar. „Það er ekkert hægt að segja um áhrifm á þessari stundu. Biðin gæti orðið hálfur mánuður en hún gæti líka orðið lengri." Aðspurð segir Guðrún að ekki sé um það að ræða á þessari stundu að leita annað til ættleið- inga, þessi mál séu í eðli sínu viðkvæm og fara verði varlega. Þróun mála í Kína verði að liggja fyrir áður en nokkur ákvörðun verði tekin. Kínversk stjómvöld standi sig vel í ætt- leiðingum og samstarf við þau hafi verið gott. Guðrún segir enga tilvonandi foreldra hafa hætt við ættleið- ingu frá Kína af þessum sökum og fólk taki töfinni með rósemd. „Það langar auðvitað alla að sækja barnið sitt sem fyrst. En fólk tekur þessu af skynsemi. Það veit að það er ekki að nauð- synjalausu sem verið er að reyna að hindra útbreiðslu þessa sjúkdóms. Auk þess eru þessi mál búin að vera í fréttum svo lengi að fólk hefur haft tíma til að átta sig á hlutunum og kannski átt von á því að komið gæti til þessa úrræðis kín- verskra yfirvalda." -fin Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki á Skólavörðustígnum klukkan hálfþrjú í nótt. Reynt hafði verið að brjótast inn í gullsmíðaverslun og þegar lög- reglan kom á staðinn var við- vörunarkerfið í gangi og rúða brotin. Sá sem var þama á ferð komst undan en hann haföi reynt að skrúfa niður rimla í versluninni en svo virðist sem honum hafi ekki gefist tími til að stela neinu áður en hann lagöi á flótta. -EKÁ Panta á netinu: www.smaan.is pv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.