Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2003, Page 28
52
MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003
Tilvera I>V
lífiö
Skólahurð aftur skellur
- og skruddan með
Af tilefni hálfrar aldar starfsemi
Tónmenntaskóla Reykjavíkur efnir
skólinn til hátíðartónleika í Saln-
um, Kópavogi í kvöld, 19. maí kl.
20.00. Flytjendur ailir þekktir tón-
listarmenn. Einleikarar eru Gunn-
ar Kvaran sellóleikari og fiðluleik-
aramir Sigrún Eðvaldsdóttir og
Sigurbjöm Bemharðsson.
Málþing
Opið málþing um sjálfs-ritskoðun
og réttarvemd fjölmiðla verður á
morgun, þriðjudaginn 20. maí, kl.
12.15-14.00 í Odda, stofu 101. Tilefn-
ið er doktorsritgerð dr. Herdísar
Þorgeirsdóttur frá lagadeiid háskól-
ans í Lundi. Þátttakendur í pall-
borðsumræðum aö lokinni fram-
sögu Herdísar verða Eiríkur Tóm-
asson, prófessor og forseti laga-
deildar Háskóla íslands, Björg
Thorarensen prófessor, og Styrmir
Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaös-
ins. Fundarstjóri verður Kristján
Gunnar Valdimarsson.
Sýningar
Eyfirski myndlistamaðurinn Aö-
alsteinn Þórsson sýnir 28 myndir í
Blómaskálanum Vík á Akureyri.
Myndefnið er allt frá snöggsoðnum
pennateikningum, nokkurs konar
myndrænni dagbók sem listamaður-
inn er að fást við, trélitamyndir af
fjallkonu í dölum Eyjafjarðar, til
vatnslitamynda af valkyrjum.
Þúkemstfljótlod!
...enþúgeturlikapantaðtíma
fTTmWnraííinf
(7X)
Rakarastofan
Klapparstíe
stofnað 1918* 4 SÍmi 551 2725
ImlSIMIIlliUSil 2525
tKHHIKSrtl 2 150-153,
IÍV 211,213II ttl
vmnmsstoiur
tausarðaslnn
17. maí
jfikeptfilur vlkunnar
ÐnHMBB
UITTÉ uima
I ■ mithrfkodðgam
Gunnar Tómas Kristófersson,
Stella Davíðsdóttir, Hanna Björg
Henrýsdóttir og Hrafnkell Pálsson
eru á lokaspretti í próflestrinum
þetta árið. Þeirra skóli er MR og
öll eru þau í 5. bekk. Gunnar og
Stella í náttúrurfræðideild II og
Hanna Björg og Hrafnkell í eðlis-
fræði I. Gunnar stefhir á líffræði í
framtíðinni, Stella kveðst óákveð-
in enn og Hanna kveðst ekki hafa
hugmynd um hvað hún ætli að
verða. Hrafnkell segir hug sinn
stefna á eitthvað raungreinatengt.
Þau eiga einn vetur eftir í menntó
svo ekkert liggur á.
Þau eru öll nokkur sátt við próf-
in, það sem af er en segja þó best
að spyrja að leikslokum. Hvað svo
tekur við í sumar er óljóst hjá
Gunnari. „Ég hef ekki komist í
Prófunum er að Ijúka hjá
skólanemendum og er þá
þungu fargi af flestum
þeirra létt. Enn sitja þó
sumir við og strita. DV
brá sér í Þjóðarbókhlöð-
una og gaf sig á tal við
nokkra sem glima við
fræðin þótt góðviðrið
heilli utandyra.
það að tryggja mér sumarstarf en
er búinn að sækja um víða. Þetta
er eins og í fyrra, mjög erfitt að
komast að. Þá fékk ég vinnu gegn-
um sambönd og vann úr mér allt
vit,“ segir hann.
Stella hefur unnið í Myllunni
undanfarin sumur og vonast til að
eiga þangað afturkvæmt. Hrafn-
kell er i kvöldvinnu hjá sjónvarp-
inu, við myndblöndun í fréttatím-
um en stefnir á að fá sér einhverja
dagvinnu líka. Hanna Björg hefur
starfað á elliheimilinu Skógarbæ í
Breiðholtinu og kveðst búin að
tryggja sér pláss þar! Þó ekki
nema nokkrar vikur í þetta sinn
því hún og Hrafnkell eru á forum
til Ítalíu eftir morgundaginn og
svo er stúdentsferðalag á döfinni í
haust hjá þeim öllum. Fjármögn-
un þeirrar ferðar virðist hafa ver-
ið á hinum týpísku nótum í vetur,
klósettpappírs- og rækjusala og
bílabónun. Ein ný leið hefur líka
verið farin. Það er nærbuxnasala.
Á lokasprettinum
Gunnar Tómas Kristófersson, Hanna Björg Henrýsdóttir, Stella Davíósdóttir og Hrafnkell Pálsson voru aö lesa undir
síöustu prófin þetta vor.
Kvikmyndagagnrýni
Sambíóin/Háskólabíó - The Matrix Reloaded ★★
Oflilaðim spenmitpyflip
Á leiö til bjargar
Keanu Reeves leikur ofurmenniö Neo sem
á aö geta bjargaö Zion frá tortímingu.
Ef ætti að gefa Matrix Reloaded
einkunn fyrir tækni og hugvit þá
fengi hún fullt hús. Sjaldan hefur
annað eins sjónarspil veriö í boði.
Að því leytinu ætti hún að höfða til
þeirra sem hafa dundað sér í Mat-
rix-tölvuleikjum síðastliðin þrjú ár
og beðið spenntir eftir framhaldinu.
Þegar kemur að sögunni og skiln-
ingi á henni dregur nokkuð úr
áhrifunum. The Matrix var einstak-
lega snjöll og hugmyndarik kvik-
mynd þar sem ekki var fengin vit-
neskja um sýndarveruleikann fyrr
en upp úr miðri mynd. Þá kom hún
hvað eftir annað á óvart með frum-
legum atriðum og áhugaverðri sögu.
Því miður er The Matrix Reloaded
að mestu ný útfærsla á því sem var
að ske í The Matrix. Það er fátt sem
kemur á óvart, nýjabrumið er horf-
ið og eftir stendur glæsileg útfærsla
á hasaratriðum sem verða nokkuö
langdregin þegar líður á myndina.
Það er svo seint í myndinni sem við
fáum nýjar upplýsingar sem ættu að
halda okkur spenntum fram á haust
þegar lokamynd tríólógíunnar verð-
ur sýnd.
The Matrix Reloaded gerist, eins
og The Matrix, á nokkrum vígstöðv-
um, raunheimi persónanna, sýndar-
veruleika og draumheimi. Það er
mikil orka sem fer hjá þeim bræðr-
um, Andy og Larry Wachowski, í að
púsla þessu saman svo einhver
skilningur komist inn í höfuð áhorf-
andans. Því miður tekst það ekki
nógu vel í þetta sinn. Við erum þó
alltaf viss um hverjar persónumar
eru og fyrir hvað þær standa. Það er
svo erfiöara að fá botn í af hverju
þær gera þetta og af hverju hitt. í
lokin erum viö engu nær um til-
ganginn. Vitum að það þarf ein-
hverja óvænta aðgerð eigi að
vera hægt að bjarga mannkyn-
inu í Zion. Hvað það verður er
óljóst þvi enn erum við ekki
búin að fá að vita hvað Matrix
er í raun og vem þó nokkur
skilningu fáist í atriðinu þegar
Neo hittir hönnuðinn.
Til að fá mannlega þáttinn í
Matrix Reloaded er mikið gert
úr hinni miklu ást sem Neo
(Keanu Reeves) og Trinity
(Carrie Anne-Moss) bera hvort
til annars en eins og Neo kemst
að þá er allt ákveðið fyrir fram
og ekki hægt að breyta því sem
ætlað er. Neo er örlagavaldur-
inn í sögunni og enginn gerir
sér betur grein fyrir því heldur
en Morfeus (Laurence Fishbume),
en heldur hefur dregið úr styrk
þeirrar persónu á kostnað Neos.
The Matrix endaði á því að Neo
var kominn með þá ofurmannlegu
hæfileika sem honum vom alltaf
ætlaðir. í The Matrix Reloaded
stöðvar hann regn byssukúlna með
því einu að rétta fram hönd, hefur
betur gegn Mr. Smith (Hugo Weav-
ing), sem margfaldar sjálfan sig í
slagsmálum gegn Neo, og þegar
Þegar hváð er við segir Gunnar
grafalvarlegur: „Já, þar var okkar
virti skóli var settur niður á
lægsta plan!“
Bíður eftir að
komast á sjóinn
Birgir Már Hannesson er nemi í
bókmenntafræði og var einmitt að
sækja tvær einkunnir fyrir rit-
gerðir. Nokkuð sáttur við þær.
„Þetta er á því róli sem ég bjóst
við, 8 og 8.5. Það er ágætt,“ segir
hann. Inntur eftir efni ritgerðanna
segir hann: „Ég var að skrifa um
upplýsingastefnuna og Birting eft-
ir Voltaire, vafði því saman í eina
ritgerð sem tilheyrir bókmennta-
sögu. Hin er um Eneasarkviðu eft-
ir Virgil og er hluti prófs í lat-
neskum bókmenntum." Prófin eru
semsagt búin hjá Birgi Má en
meðan hann bíður úrslitanna und-
irbýr hann BA-ritgerð sína í bók-
menntafræðinni og sækir fróðleik
í hirslur Þjóðarbókhlöðunnar.
Hún á að fjalla um skáldskap
Leonards Cohens. „Ég er nú bara
að nýta tímann og koma verkefn-
inu af stað en það verður þó aðal-
lega viðfangsefni næsta vetrar.
Auk þess verð ég í fullu námi
fram að áramótum og býst við að
útskrifast vorið 2004,“ segir hann.
Birgir Már er Dalvíkingur en
hefur verið búsettur hér í borg-
inni í nokkur ár og tók stúdents-
prófið frá Fjölbraut í Breiðholti.
En hvað með sumarið? Á hann
vísa vinnu?
„Ég vonast eftir að komast í af-
leysingar á bát. Hef stundað sjó-
inn síðustu sumur, ýmist fyrir
norðan eða austan. I fyrra var ég
á Súlunni frá Akureyri,“ svarar
hann og auðheyrt er að hann telur
það góðan kost að komast á sjó-
inn. „Maður verður að afla sér
einhverra tekna, annars tylldi
maður ekki í náminu því ekki lif-
ir maður af námslánunum,“ segir
hann að lokum.
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
mikið liggur við nær Neo hraða
hljóðsins. Þessi ofurhæfileikar
koma aðeins fram í sýndarveruleik-
anum þar sem allur hasarinn fer
fram. Þar er Neo sá sem allir treysta
á, ekki það að bæði Trinity og
Morfeus fá tækifæri til að sýna hvað
í þeim býr. En það er Neo sem fer á
fund Véfréttarinnar og það er hann
í lokin sem gerir sér grein fyrir að
mannkynið á enga möguleika.
Þriðja myndin, The Matrix
Revolutions, kemur sjálfsagt með
svör sem fjölmargir aðdáendur bíða
spenntir eftir. Ekki renni ég grun í
hver endalokin verða. Það er viss
kostur sem gerir þó Matrix Reloa-
ded að kvikmynd sem hefur hvorki
byrjun né endi. Á móti kemur að
það er mikill hraði í atburðarásinni
sem felur annmarka í sögunni og þá
verða spennumyndir ekki flottari.
Það á ekki aðeins við um frábær
slagsmál heldur eru leikaramir
hver öðrum tilkomumeiri.
Lelkstjórar og handrltshöfundar: Andy og
Larry Wachowski. Kvikmyndataka: Bill
Pope. Aðalleikarar: Keanu Reeves,
Laurence Fishburne, Carrie Anne-Moss,
Hugo Weaving, Monica Bellucci, Lambert
Wilson og Jada Pinkett Smith.