Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Qupperneq 2
2
Fréttir
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
JOV
DV-MYND GVA
Storkurinn baðaður
Storkurinn Styrmir í Húsdýragaröinum fékk sitt fyrsta þrifabaö í morgun. Hér er hann undir hlýrri bununni og er þveginn upp úr þvottalegi meö tannbursta. Ekki
er annaö aö sjá en aö fuglinum líki aö losna viö grútinn úr fjöörum sínum.
Stopkurinn bað-
aður í morgun
Storkurinn Styrmir, nýheimtur
úr helju, fór í sitt fyrsta þrifabað
í morgun. Þrír starfsmenn Hús-
dýragarðsins böðuðu fuglinn upp
úr rúmlega 40 gráða heitu vatni,
líkamshiti fugla er 4 gráðum
hærri en hjá mannfólkinu.
Sprautað var á storkinn með
vatnsslöngu, en dýrahirðar
dreyptu Fairy sápulegi yfir fugl-
inn, mildu en áhrifaríku efni fyr-
ir fuglaþvott að þeirra sögn. Til
að ná óhreinindum var notaður
tannbursti. Ekki var annað að sjá
en að storkinum líkaði vel að
losna við grútinn úr fiðrinu eftir
vetrarlangt át á loðnu, en það er
sá matur sem hann hefur viljað,
annað helst ekki. Tómas Guðjóns-
son, forstöðumaður garðsins,
sagði í morgun að fuglinn yröi
baðaður í tveim áfóngum, ella
væri hætta á losti. -JBP
Sex ára drengur fyrir bíl:
Hjálmlaus en slapp
Sex ára drengur hjólaði í veg
fyrir bíl í Mosfellsbæ síðdegis í
gær. Hann var fluttur með sjúkra-
bU á slysadeUd til frekari skoðun-
ar en virtist ekki hafa hlotið al-
varleg meiðsl. Hann var ekki með
hjálm á höfðinu. Þá stöðvaði lög-
reglan í Hafnarfirði 14 ökumenn í
nótt fýrir of hraðan akstur. Grun-
ur leikur á að þrír þeirra hafi ver-
ið ölvaðir og var blóðprufa tekin
tU að kanna það frekar. -EKÁ
Stora stundin nalgast hjá Birgittu Haukdal og félögum:
Verður klædd pallíettu-
skreyttum hvítum fatnaði
Birgitta Haukdal söngkona sté
aftur á stóra sviðið í Skonto-höU-
inni í gær og gekk sú æfmg að sögn
mjög vel. Sviðiö mun þó ögn minna
en talið var og þess vegna hefur
Birgitta í samstarfi viö Selmu
Bjömsdóttur þurft að breyta
nokkrum danssporum.
Á morgun verða svo tvær æfmg-
ar og á þeirri seinni, sem verður
með áhorfendum, mun hópurinn
klæðast keppnisfótunum.
Birgitta verður samkvæmt heim-
ildum DV hvítklædd á sviðinu.
Hún verður klædd þröngum bux-
um meö útvíðum skálmum og bol
sem er opinn að aftan niður í mitti.
PaUíettur prýða fötin. Birgitta tjáði
blaðamönnum ytra að hún væri
mjög hrifm af blómum og myndi
skarta einu slíku á laugardag.
Blaðamannafundur Birgittu að
lokinni æfingu í gær var fjölsóttur
af erlendum blaðamönnum. Jónat-
an Garðarsson var á fundinum og
sagði að hljóðvinnsla á sviðinu
væri orðin góð eftir nokkrar breyt-
ingartUlögur sem lagðar heföu ver-
ið fram.
Birgitta söng síðan lagið á ís-
lensku fyrir blaðamennina og fór
það vel í menn. Hún klykkti út með
að segja blaðamönnunum að þeir
heföu ekki séð allt. „Við munum
koma ykkur á óvart á laugardag,"
sagði Birgitta.
Kynningarstörf bíða Birgittu í
dag og fjöldinn aUur af móttökum
sem íslenski hópurinn þarf að
sækja. Aö sögn Gísla Marteins
Baldurssonar, talsmanns hópsins,
er dagskrá söngkonunnar mjög stíf.
Stemningin er hins vegar góð inn-
an hópsins og aUir fuUir tUhlökk-
unar.
Um 25 manna hópur íslendinga
heldur tU Riga á morgun tU að
fylgjast með keppninni. Það verða
því væntanlega nokkrir islenskir
fánar sem blakta meðal áhorfenda
þegar stóra stundin rennur upp.
Enn eru tU miðar á lokakeppnina
og kosta þeir á bUinu 11 tU 18 þús-
und krónur. -aþ
Elt á röndum
Birgitta Haukdal nýtur mikilla vin-
sælda í Riga. Langar biöraöir fólks
sem vill eiginhandaráritanir hafa
myndast og erlendir blaöamenn
sýna söngkonunni og íslenska hópn-
um jafnframt mikinn áhuga.
A stóra sviðinu
Æfing Birgittu í gær gekk aö sögn mjög vel. Selma Björnsdóttir hefur þó
þurft aö gera smávægilegar breytingar á danssporum vegna þess aö sviöiö
er minna en taliö var.
Útgáfusamningur ytra
Söngkonan unga,
Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir, hefur
ásamt Hljóðsmiðj-
unni gert útáfu-
samning við banda-
ríska fyrirtækið The
Mottola Company.
Ráðgert er að Jó-
hanna syngi inn á fimm plötur á
næstu árum og sú fyrsta komi út á
næsta ári. Mbl. sagði frá.
Uppsagnir hjá BÍ og Kaupþingi
Tíu manns var sagt upp hjá Bún-
aðarbankanum og öðrum tíu hjá
Kaupþingi. Hjá Kauþingi störfuðu
186 fyrir uppsagnimar og hátt í 800
hjá Búnaðarbanka. Uppsagnimar
munu liður í hagræðingu í kjölfar
þess aö fyrirtækin sameinuðust ný-
verið. Mbl. sagði frá.
Sprengt í dag
Byrjað verður að sprengja fyrir
munna Fáskrúðsfjarðarganga eftir
hádegi í dag. Sprengt verður Reyðar-
fjaröarmegin. RÚV sagði frá.
Ökumaður ákærður
Sýslumaðurinn á ísafirði hefur
ákært ökumann jeppa sem valt í
Skutulsfirði síðastliðiö haust. Kona
og tvær dætur hennar létust í slys-
inu. Ökumaðurinn er ákærður fyrir
manndráp af gáleysi.
600 án vinnu
Um 600 unglingar í Reykjavík hafa
ekki fengið sumarvinnu. Eftirspurn
hefur aldrei verið meiri.
Nemendum hefur fjölgað
Um 44% fjölgun hefur orðið á nem-
endum við Háskóla íslands frá árinu
1997. Á síðasta ári stunduðu 8.027
nemendur nám við skólann á 45
fræðasviðum í 11 deildum. Þetta kom
fram á ársfundi HÍ sem haldinn var
í gær. -aþ
f ókus
riT*2 Á MORGUN
Ertu klár í Evróvisjón?
í Fókusi á morg-
un er tekið fyrir
hvaö fólk þarf að
hafa klárt til að
geta sest niður fyrir
framan Evróvisjón.
Við skoðum hvar
bestu Evróvisjón-
' partíin verða og
ræðum viö stelpur sem eru að setja
upp sýningu á afró-dansi. Við spjöll-
um við ungar listakonur sem reka
búð á Laugaveginum, fjöllum um
Camden-markaðinn og rifjum upp
skemmtilega sjónvarpsþætti.