Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Side 5
FEMMTUDAGUR 22. MAl 2003
DV
5
Fréttir
DV-MYND ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR
Allir með reiðhjólahjálma
Það er vert aö minna foreldra á að brýna fyrir börnum sínum að nota reiðhjóla-
hjálma þegar reiðhjólin eru að verða vinsælt farartæki í sumarblíðunni. Fréttarit-
ari DV var á feröinni á Þórshöfn og vakti það athygli hans aö öll börn voru með
reiöhjólahjálma. Þessir drengir voru að leik á skólalóöinni í blíöskaparveöri.
Fyrirhugaðri sölu á Hitaveitu Dalabyggðar slegið á frest:
Möguleikar á endurQármögn-
un hitaveitunnar kannaðir
Sveitarstjórnin í Dalabyggö skip-
aöi nýlega viðræðunefnd til þess að
kanna möguleikana á því að selja
Hitaveitu Dalabyggðar til Orkubús
Vestfjaröa. Viðræðunefhdin komst
að samkomulagi við Orkubúið og á
borgarafundi síðastliðinn fimmtu-
dag voru tillögumar kynntar íbú-
um sveitarfélagsins. Þar kom upp
hörð andstaða við fyrirhugaða sölu
þar sem margir leggja mikið kapp
á að sveitarfélagið haldi áfram
rekstri hitaveitunnar, auk þess
sem mönnum þótti það verð sem í
boði var ekki nægilega sanngjamt.
„í framhaldi af borgarafundi,
sem haldinn var í siðustu viku,
hefur verið ákveðið að fara að til-
lögu sem þar var samþykkt. Hún
felur í sér að kannað verði hvort
mögulegt sé að endurfjármagna
hitaveituna þannig að hún verði
áfram í eigu heimamanna," segir
Haraldur L. Haraldsson, sveitar-
stjóri í Dalabyggð.
Málið hefur valdið talsverðum
deilum innan sveitarfélagsins og
hafa menn algerlega skipst í tvo
hópa hvað afstöðu til málsins varð-
ar. Sigurður Rúnar Friðjónsson,
mjólkurbússtjóri og sveitarstjórn-
armaður i Dalabyggð, er einn
þeirra sem var mótfallinn sölunni.
„Þetta hefur valdið talsveröum
deilum héma í sveitarfélaginu.
Margir em þeirrar skoðunar að
við eigum að halda í hitaveituna
enda var aðalröksemdin, þegar
byrjað var á þessu, að byggja upp
orkuveitu sem við ættum sjáif. Svo
var fólk ósátt við verðið sem boðið
var, auk þess sem menn sáu hag
sínum ekki borgið varðandi þau
orkugjöld sem við hefðum komið
til með að greiða Orkubúi Vest-
fjarða. Á borgarafundinum var
Deilt um hitaveituna í Dalabyggð
Fyrirhuguð sala hitaveitunnar mætti harðri andstöðu í sveitarfélaginu.
mikið rætt um þetta og að endingu
kom umrædd túlaga fram þar sem
lagt var til að skoða möguleikann á
endurfjármögnum hitaveitunnar.
Hún var samþykkt svo gott sem
mótatkvæðalaust og við erum mjög
ánægð með að þetta mál verði
skoðað upp á nýtt og að sátt hafi
náðst í okkar litla samfélagi," seg-
ir Sigurður Rúnar. -áb
ifíS.
MosíerCard
feröodvfom?^
Flug til Barcelona
29.900kr.
5., 12. og 19. júni. Skattar innifaldir
m
SúperHopp til Salou
Verðfrá
5., 12. og 19. júni
TERRA sOv
NOVA jsoi
• 25 ÁRA OG TRAUSTSINS VERÐ
39.900kr.
miðað við 4 í íbúð í viku (mögul. að framlengja)
verð fiá 49.900 kr. m.v. 2-3 í íbúð i viku.
Stangarhyl 3 • 110Reykjavík • Sirní: 591 9000
info@terranova.is • Akureyri Sírni: 466 1600
MJÓDD OG SÍÐUMÚLA
3 TÖSKUR
í SETTI
396 AFSLÁTTUR
VERÐ ÁÐUR
I6.500.-
RODELLE
frábærir ferðafélagar
Premier sett 4 töskui^l.985.-
38% afsláttur:
Aðrar töskur með I5 - 20 % afslætti
á ferðatöskudögum
Gildir frá 15. maí til 24. maí 2003