Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
DV
Fréttir
Gunnar Örn Örlygsson, nýkjörinn þingmaður Frjálslyndra, með fangelsisdóm á herðunum:
skyrslufals o
bókhaldsbrot
Gunnar Örn örlygsson, efsti
maður á lista Frjálslynda flokks-
ins í Suðvesturkjördæmi, var
dæmdur í sex mánaða fangelsi,
þar af þrjá mánuði skilorðs-
bundna, í Héraðsdómi Reykjaness
í fyrrasumar.
Gunnar Örn var dæmdur fyrir
brot á lögum um umgengni við
nytjastofna sjávar og stjórn fisk-
veiða með því að hafa keypt af
ýmsum sjómönnum flakaðan og
óflakaðan þorsk sem svarar til
324,5 tonna af þorski úr sjó. Þenn-
an þorsk flutti hann frá borði og
kom undan vigtun við löndun í ís-
lenskum höfnum. Um leið kom
hann aflanum undan frádrætti frá
aflahlutdeild viðkomandi skipa
fiskveiðiárin 1998-1999 og
1999-2000. Þorskinn flutti hann úr
landi og seldi samtals 133,9 tonn af
unnum afurðum fyrir rúmar 44
milljónir króna.
Þá var Gunnar Örn dæmdur
fyrir brot á lögum um meöferö,
vinnslu og dreifingu sjávarafurða
og tollalögum með því að hafa til-
greint ranglega fisktegimdir við
útflutning í 28 skipti, samtals
25.230 kg af keilu sem hann til-
greindi sem steinbít á útflutnings-
skýrslum og útflutningsskjölum
til tollayfirvalda. Þessi brot
framdi hann í stafi sínu fyrir
Noordzee fiskvinnslu seinni hluta
ársins 1999.
Loks var Gunnar Örn dæmdúr
fyrir bókhaldsbrot með því að
hafa sem stjórnarmaður og fram-
kvæmdastjóri látið hjá líða að
varðveita bókhaldsgögn og að
færa bókhald fyrir Sægæði ehf.
vegna rekstrarársins 1999.
Með skýlausri játningu Gunn-
ars Arnar fyrir dómi þótti sannað
að hann hefði framiö brot þau sem
honum voru gefin aö sök. Dómur-
inn hafði í huga við ákvörðun
refsingar að ákærði varð þess
valdandi sjálfur að rannsókn á
broti hans gegn lögum um um-
gengni við nytjastofna sjávar og
stjórn fiskveiða hófst á því að
hann greindi sjálfur frá broti sínu
í fjölmiðli. Þá er litið til þess að
brotastarfsemin stóð í langan
tíma, eða um 9 mánuði, og var
talsvert umfangsmikil.
Var hæfileg refsing ákveðin sex
Gunnar Örn hefur ekki
hafið afplánun dómsins.
Þeir sem dæmdir hafa
verið til allt að sex mán-
aða óskilorðsbundinnar
refsivistar geta hins veg-
ar sótt um að taka út
refsingu sína í
samfélagsþjónustu, þ.e.
líknar- og félagsstörfum
af ýmsu tagi hjá
félagasamtökum og
opinberum stofnunum.
mánaða fangelsi, þar af þrir skil-
orðsbundnir. Ekki þótti hægt að
færa sönnur á fjárhæð þess ávinn-
ings sem ákærði hafði af brota-
starfsemi sinni og var sú fjárhæð
áætluð 2 milljónir króna. Var
Gunnari Erni gert að sæta upp-
töku þess fjár.
Sveinn Sigurkarlsson kvað upp
dóminn.
Er kjörgengur
Gunnar Öm Örlygsson var kjör-
inn á þing í nýliðnum alþingis-
kosningum, var í efsta sæti á lista
Frjálslynda flokksins í Suðvestur-
kjördæmi og fékk annað tveggja
jöfnunarþingsæta í kjördæminu.
Þeir sem velta kjörgengi hans fyr-
ir sér munu lesa í 34. grein stjóm-
arskrárinnar að kjörgengur við
kosningar til Alþingis er hver sá
ríkisborgari sem kosningarétt á til
þeirra og hefur óflekkað mannorð.
í kosningalögunum frá árinu 2000
segir að dómur fyrir refsivert brot
hafl ekki flekkun mannorðs í fór
með sér nema sakborningur hafi
verið fullra 18 ára að aldri er hann
framdi brotið og refsing sé fjög-
urra mánaða fangelsi óskilorðs-
bundið hið minnsta eða öryggis-
gæsla sé dæmd.
Gunnar Örn var tæplega þrítug-
ur þegar umrædd brot áttu sér
stað en fangelsisdómurinn hljóðar
einungis upp á 3 óskilorðsbundna
mánuði. Hann sleppur því.
Samfélagsþjónusta eftir
vinnu?
Gunnar Örn hefur ekki hafið af-
plánun dómsins. Þeir sem dæmdir
hafa verið til ailt að sex mánaða
óskilorðsbundinnar refsivistar
geta hins vegar sótt um að taka út
refsingu sína í samfélagsþjónustu,
þ.e. líknar- og félagsstörfum af
ýmsu tagi hjá félagasamtökum og
opinberum stofnunum.
Skilyrði þess að samfélagsþjón-
usta komi til álita eru að umsækj-
andi eigi ekki til meðferðar mál
hjá lögreglu, ákæruvaldi
eða dómstólum þar sem
hann er kærður fyrir
refsiverðan verknað.
Fangelsismálastofnun
ríkisins gerir einnig at-
hugun á högum um-
sækjanda, meðal ann-
ars með ítarlegri per-
sónuskýrslu. Á grimd-
velli þeirrar athugun-
ar er metið hvort um-
sækjandi sé talinn lík-
legur til að geta innt
samfélagsþjónustu af
hendi og hvaða starf
komi til greina. Þau atriði
sem koma til álita við mat á
hæfi umsækjanda eru m.a. af
brot og afbrotaferili, fjölskyldu-
og atvinnuaðstæður og hugsanleg
áfengis- og fikniefnavandamál við-
komandi.
Starf í samfélagsþjónustu getur
falist í aðstoð við þrif, eldhússtörf,
viðhald og umönnun. Val á starfi
fer eftir því hvaða störf eru laus á
hverjum tíma og hvað telst hæfa
umsækjanda að mati Fangelsis-
málastofnunar ríkisins. Starfið er
unnið í frítíma, í flestum tilvikum
síðdegis, á kvöldin og um helgar.
Starfstími er 20-480 klst. og dreif-
ist á að minnst kosti tvo mánuði.
-hlh
Landlæknisembættið og Lyfjastofnun hafa innkallað AD-dropa:
Hugsanlegt að hnetuofnæmi un
barns megi rekja til dropanna
aettarmót - garðveislur - afmæli - brúðkaupsveislur - útijamkomur - ikemmtanir - tónleikar - sýningar - kynningar o.fl. o.fl. o.fl.
...og ýmsir fylgihlutir
• Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftírminnile^an
viðburð. Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn
- það marg borgar sig.
• Tjöld af öllum stærðum frá 50-400 m2.
• Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin. / ^jaldalelga skáta
...með skátum á heimavelli
1550 9800 - fax 550 9801 - bis@skatar.is
www.skatar.is
AD-vítamíndropar hafa verið
hér á markaði sem almenn vara
en ekki lyf og því hefur Lyfjastofn-
un ekki gögn um nákvæma sam-
setningu eða hreinleika jarðhnetu-
olíunnar sem notuð hefur verið
sem burðarefni vörunnar. Drop-
arnir hafa nú verið innkallaðir.
sökum skorts á upplýsingum á
merkimiða vörunnar en láðst
hafði að tflgreina jarðhnetuolíu
sem burðarefni A- og D-vítamíns í
vörunni.
Hugsanlegt er að tiifelli af
hnetuofnæmi hafi komið fram hjá
ungbarni hér á landi vegna notk-
unar á umræddum AD-vítamin-
dropum. Lyfja-
stofnun hefur því
óskað eftir nánari
upplýsingum frá
innflytjanda um
hvort möguleiki sé
á að olían inni-
haldi eggjahvítu-
efni það sem er í
jarðhnetum og
valdið getur of-
næmisviðbrögðum.
Lyfjastofnun og
Landlæknisemb-
ættið telja hins vegar aö foreldrar
ungbarna geti óhræddir haldið
áfram að gefa börnum sínum AD-
vítamíndropa, sem
þeir hafa þegar
keypt ef enginn
grunur er um að
barnið sé með of-
næmi fyrir hnet-
um.
Leiki hins vegar
einhver vafi á því
má benda foreldr-
um á að gefa böm-
unum frekar lýsi
þar til upplýsingar
um hreinleika, með
tilliti til hugsanlegs eggjahvítu-
innihalds jarðhnetuolíunnar,
liggja fyrir. -EKÁ