Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Page 27
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003
27
I>V
Úrslitin í Evrópukeppni félagsliöa réðust í gærkvöld:
Endurkoman
dugði ekki til
- Celtic jafnaöi tvívegis en Porto vann meö silfurmarki
eftlr a6 hann haföi
skoraö markiö sem réö
aö lokum úrslitum. Neii
Lennon hjá Celtlc getur
ekki horft ó. Reuters
Draumar skosku risanna í Celtic
um Evróputitil breyttust í martröö í
gærkvöldi eftir aö brasilíski sóknar-
maðurinn Vanderlei Derlei hafði
tryggt portúgalska liðinu Porto
dramatískan sigur eftir framlengdan
úrslitaleik í Evrópukeppni félagsliða
í gærkvöld.
Leikurinn, sem fór frarn í Sevilla á
Spáni, var taumlaus skemmtun frá
upphafi til enda. Porto hafði í tvígang
náð forystu í venjulegum leiktíma
með mörkum frá áðumefndum Der-
lei og hinum rússneska Dimitri Alen-
ichev en sænska markamaskínan hjá
Celtic, Henrik Larson, jafnaði metin
jafnóðum með tveimur góðum skalla-
mörkum.
Fljótlega eftir að framlengingin
hófst var Bobo Balde, hinrnn öfluga
vamarmanni Celtic, vikið af leikvelli
eftir að hafa hlotið sina aðra áminn-
ingu. Skoska liðið varðist hetjulega
með klóm og kjafti en þegar allt benti
til þess að úrslitin myndu ráðast í
vítaspymukeppni olli augnabliks
einbeitingarleysi í vamarmúr Celtic
því að Derlei skoraði sitt annað mark
í leiknum.
Celtic reyndi hvað það gat að jafna
í þriðja skiptið en varð ekki ágengt,
jafnvel þótt Nuno Valente fengi að
fjúka út af í blálok framlengingarinn-
ar. Porto fagnaði gríðarlega í leiks-
lok, enda fyrsta portúgalska liðið í
sögunni sem vinnur Evrópukeppni
félagsliða. Celtic sat eftir með sárt
ennið og mátti sjá á andlitstilburðum
leikmanna eftir leikinn hversu gríð-
arlega mikil vonbrigði úrslitin vom.
Ótrúlega sárt
„Þetta hefur verið frábær upplifun
fyrir liðið að komast þetta langt í
þessari keppni og reynslan sem við
höfum hlotið er mikil. Leikmenn
mínir gáfu allt sem þeir áttu í leikinn
og ég hefði ekki getað beðið um
meira,“ sagði Martin O'Neill, fram-
kvæmdastjóri Celtic, eftir leikinn.
Hann sagði brottvísun Balde hafa
verið vendipunktinn í leiknum.
„Ef við hefðum haft fullskipað lið
alla framlenginguna hefðu úrslitin
sennilega verið á annan veg. Við vor-
rnn betur stemmdir fyrir framleng-
inguna en þeir en rauða spjaldið
braut liðið niður,“ sagði O'Neill.
Henrik Larsson, sem með fyrra
marki sínu skoraði sitt 200. mark fyr-
ir Celtic frá upphafi, gat ekki leynt
vonbrigðum simun að leik loknum.
„Að koma aftur eftir að hafa
tvisvar lent undir var hreinlega ótrú-
legt. En óheppnin elti okkur á rönd-
um í leiknum og þetta var einfaldlega
ekki okkar dagur. Við töpuðum ein-
um stærsta leik sem hægt er að spila
á ferlinum og ég get ekki lýst því
hversu sárt það er,“ sagði Larsson.
Þýska úrvalsdeildin í handknattleik í gærkvöld:
ílafur skoraði tíu
mörk gegn Hamburg
- meistarar Lemgo töpuöu sínum þriðja leik á tímabilinu
Ólafur Stefánsson skoraði tíu
mörk, þar af sex úr vítaköstum, fyr-
ir Magdeburg þegar liðið sigraði
Hamburg, 37-33, á heimavelli í
þýsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik. Sigfús Sigurðsson skoraði
fimm mörk af línunni. Sjö þúsund
áhorfendur voru á leiknum í Mag-
deburg í gærkvöld.
Magdeburg hefur þegar tryggt sér
sæti í meistaradeild Evrópu á
næstu leiktíð. Þetta var síðasti leik-
ur Ólafs á heimavelli en hann geng-
ur í raðir spænska liðsins Ciudad
Real i sumar.
Patrekur Jóhannsson skoraði
fjögur mörk fyrir Essen sem sigraði
Pfullingen, 29-31, á útivelli. Guðjón
Valur Sigurðsson lék aö nýju með
Essen og skoraði þrjú mörk. Hann
hafði verið frá vegna meiðsla í þrjár
vikur en hefur náð sér að fullu.
Róbert Sighvatsson skoraði fimm
mörk af línunni fyrir Wetzlar sem
sigraði Grosswaldstadt, 24-21.
Wallau Massenheim sigraði
Eisenach, 26-23, og var Einar Öm
Jónsson ekki á meðal markaskorara
Wallau Massenheim í leiknum.
Kiel vann Wilhelmshavener,
37-28, og skoraði Gylfi Gylfason eitt
mark fyrir Wilhelmshavener í
leiknum.
Lemgo, sem þegar hefur tryggt
sér þýskalandstitilinn í handknatt-
leik, beið ósigur fyrir Flensburg á
útivelli, 40-32. Þetta var þriðja tap
meistaranna í deildinni í vetur.
Daninn Boldsen skoraði sjö mörk
fyrir Flensburg en hjá Lemgo var
Marc Baumgartner markahæstur
með níu mörk.
TuS Lúbbecke og Will-
statt-Schutterwald eru þegar fallin
en flest bendir til að það verði ann-
að hvort Pfullingen eða Eisenach
sem fara í umspil um sæti í úrvals-
deildinni.
Þegar einni umferð er ólokið er
Lemgo með 60 stig og titillinn kom-
in í hús, Flensburg er í öðru sæti
með 55 stig og Magdeburg í þriðja
sæti með 53 stig. Essen er síðan í
fjórða sæti með 47 stig en liöið hef-
ur þegar áunnið sér sæti í Evrópu-
keppni bikarhafa.
-JKS
Sport
„Það er langt síðan ég þjáðist jafn
mikið og í kvöld,“ sagði forsætisráð-
herra Portúgal, Jose Barroso, eftir að
úrslitin lágu fyrir og átti þá við hin-
ar rafmögnuðu lokamínútur og
hversu erfitt hefði verið að horfa á
þær.
Stjómarformaður Porto, Jorge
Pinto, þurfti á læknisaðstoð að halda
skömmu eftir að framlengingin hófst
og kvartaði um verk fyrir hjarta. En
um leið og flautað var til leiksloka
stökk hann á fætur og fagnaði.
„Ég lét mér batna til að geta
fagnað sigrinum," sagði Pinto,
skælbrosandi. -vig
Celtic-Porto . . . 2-3
0-1 Derlei (25.), 1-1 Larsson (47.), 1-2
Alenichev (54.), 2-2 Larsson (57.), 2-3
Derlei (25.).
Lið Celtic (3-5-2): Robert Douglas;
Joos Valgaeren, Bobo Balde, Johan
Mjallby; Alan Thompson, Neil
Lennon, Paul Lambert, Stilian Petrov,
Didier Agathe; Alan Thompson,
Sutton, Larsson
Lið Porto (4-3-3): Vitor Baia; Fer-
reira, Jorge Costa, Richardo Carval-
ho, Nuno Valante, Francisco Cost-
hinha, Dimitri Alenichev, Deco, Man-
iche, Nuno Caphucho, Vanderlei Der-
lei
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!
B0NUSVIDE0