Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Síða 6
6
Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
DV
'-'y&x
Andrúmsloftid var rafmagnað aö loknum
þingflokksfutidi Framsóknarflokksins. JóníftW*^'
Bjanmarz gat ekki leyntjuornl&t0um sínum og
strunsaði út. Aó bakt nenm er Hjálmar W. Árnason
sem einnig hafði gert sér vonir utn ráðherraembœtti
Fremstur á myndinni er yngsti þingmaður
irkirjón Jónsson.
Framsóknarflokksins, B
Árni Magnússon verður félagsmálaráðherra:
Eldri þmgmenn slegnir
Árni Magnússon félagsmálaráðherra:
Mun breyta hús-
næflislánakerfinu
Það var rafmagnað andrúms-
loft í Alþingishúsinu í gærkvöldi
þegar fundi þingflokks Fram-
sóknarflokksins lauk þar um tíu-
leytið og Halldór Ásgrímsson, for-
maður flokksins, tilkynnti niðxu--
stöðu um skipan þeirra ráðherra-
embætta í ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar fram til 15. september
2004 sem koma í hlut Framsókn-
arflokksins. Áður hafði miðstjórn
Framsóknarflokksins samþykkt
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar á fundi á Grand-hóteli með
öllum greiddum atkvæðum gegn
einu.
Árni Magnússon, nýr þingmað-
ur Reykjavíkur, verður félags-
málaráðherra í stað Páls Péturs-
sonar sem er hættur á þingi. Hall-
dór sagði ákvörðun um Árna
byggjast á því að honum væri
ákaflega vel treystandi fyrir þess-
um málaflokki, hefði miklu
reynslu og þekkingu af honum
sem framkvæmdastjóri flokksins
með góðum árangri og hann væri
sveitarstjórnarmaður í Hvera-
gerði. Hann hefur auk þess verið
aðstoðarmaður bæði í utanríkis-
ráöuneytinu og iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu.
„Við höfum lagt mikla áherslu
á unga fólkið og teljum Árna vera
sérstakan fulltrúa þess í nýjum
þingflokki Framsóknarflokksins.
Það er ekki algengt að nýr þing-
maður verði ráðherra en taka
verður tillit til þess hvað hann
hefur mikla reynslu þegar hann
kemur inn á Alþingi. Það var góð-
ur hugur og mikill meirihluti að
baki vali á Árna en það fengu
aðrir atkvæði, enda njóta margir
trausts til þess að gegna ráð-
herraembætti. Ég upplýsi ekki
hverjir þaö voru. Þetta var mín
tillaga til þingflokksins auk þess
sem ég lagði til að aðrir ráðherr-
ar gegndu áfram sínum ráðherra-
embættum. Það verða engar aðr-
ar breytingar nú, en það kann að
vera að það verði aðrar breyting-
ar þegar forsætisráðuneytið kem-
ur í hlut Framsóknarflokksins i
september 2004. Þá verður sam-
bærileg atkvæðagreiðsla um skip-
an í ríkisstjórn og var í kvöld,“
sagði Halldór Ásgrímsson.
Engin umræða var í þing-
flokknum um að núverandi ráö-
herrar tækju að sér önnur ráðu-
neyti en þeir skipa nú. Stjórn
þingflokksins verður kosin á
mánudag og síðan skipað í nefnd-
ir að hefðbundnum hætti.
Bæði slegnir og glaðir þing-
menn
Eftir fund Halldórs með fjöl-
miðlum I anddyri Alþingis komu
aðrir ráðherrar eða þingmenn
ekki út úr þingflokksherbergi fyrr
en Björn Ingi Hrafnsson, skrif-
stofustjóri Framsóknarflokksins,
sótti þá. Greinilegt var að mörg-
um eldri þingmönnum flokksins
var brugðið, það mátti greinilega
sjá á andlitum Magnúsar Stefáns-
sonar, Hjálmars W. Árnasonar og
Jónínu Bjartmarz, en síðastnefndi
þingmaðurinn strunsaði út úr
þinghúsinu án þess að svara
spurningu blaðamanns sem að
henni var beint. Ljóst var af við-
brögðum að niöurstaða fundarins
var fjarri því að vera henni að
skapi. Ekki náðist í Jónínu Bjart-
marz í síma í gærkvöldi.
„Þetta var niðurstaða sem við
komumst að,“ var það eina sem
Siv Friðleifsdóttir vildi segja að
loknum þingflokksfundinum.
Dagný Jónsdóttir var spurð
hvort það hefðu verið samantekin
ráð ungu þingmannanna í Fram-
sóknarflokknum að standa að
baki Árna í ráðherraembætti.
„Nei, ég heyrði fyrst af þessu á
þingflokksfundinum. En ég er af-
skaplega glöð yfir þessari niður-
stöðu. Ég minni á að þetta var til-
laga formannsins. Það var nokk-
uð góð sátt um þetta og ég er viss
um að Árni á eftir að standa sig
mjög vel,“ segir Dagný Jónsdóttir.
- Sóttist þú eftir ráöherraemb-
cetti?
„Nei, það gerði ég ekki.“
Er ekki í fýlu
Hjálmar W. Ámason sagðist
síðar um kvöldið í síma ekki vera
ósáttur við val þingflokksins á
Árna.
„Árni er mjög frambærilegur
maður og reyndur pólitíkus, lang-
reyndur í sveitarstjórnarmálum,
og verðrn- málefnunum mjög til
sóma í félagsmálaráðuneytinu.
Tillaga formannsins kom mér
sumpart á óvart og ég gerði mér
vissar vonir, taldi að við værum
þrjú á hliðarlínunni. En ég tek
Árna fagnandi, er vaxinn upp úr
því að fara í fýlu, enda er ekki
um mann að ræða sem ég treysti
ekki fyrir félagsmálaráðuneytinu.
Ámi var einn af þeim sem talaði
mjög fyrir svokölluðum 90% hús-
næðislánum,“ sagði Hjálmar W.
Árnason.
Átti von á öðrum nöfnum
„Ég vil ekki tjá mig um það
hvort ég sé ósáttur við niðurstöð-
una en þetta er niðurstaða. Ég
var tilbúinn að taka þetta ráð-
herraembætti að mér ef það hefði
komið til. Ég vissi ekki um til-
lögu formannsins fyrirfram og
þess vegna kom hún á óvart, ég
átti von á öðmm nöfnum," sagði
Magnús Stefánsson. -GG
Ámi Magnússon, sem tekur við
embætti félagsmálaráðherra í dag
eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum,
er ungur maður, verður 38 ára 4.
júní nk. og er líklega yngsti þing-
maðurinn til að taka við ráðherra-
embætti sem nýr þingmaður. Siv
Friðleifsdóttir varð umhverfisráð-
herra 37 ára gömul en hún hafði þá
setið á þingi í 4 ár og Ámi M.
Mathiesen varð sjávarútvegsráð-
herra 40 ára gamall en hann hafði þá
setiö á þingi í 8 ár. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir veröur menntamála-
ráðherra 38 ára gömul og hefur þá
setið á þingi í liðlega 4 ár.
Ámi Magnússon segist ekki hafa
sóst sérstaklega eftir því að gerast fé-
lagsmálaráðherra en hann hafl verið
viðbúinn því að taka við ráðherra-
embætti félli það honum í skaut.
Þegar fólk hasli sér völl verði þaö að
vera viðbúið því að axla aukna
ábyrgð og taka við þeim verkum
sem flokksfélagar feli þeim. Árni
sagði of snemmt að segja til um það
hver yrðu helstu áhersluatriði hans
sem félagsmálaráðherra.
„Við Framsóknarmenn lögðum
upp í þessa kosningabaráttu með
það sem eitt af markmiðunum að
breyta almenna húsnæðislánakerf-
inu og að lánshlutfallið yrði hækkað
í allt að 90%: Þaö verður eitt af þeim
verkefnum sem ég mun beita mér
sérstaklfega fyrir og leggja áherslu á
næstu mánuði og misseri. Það gerist
Nýr félagsmálaráöherra
Árni Magnússon tekur wð embætti
félagsmálarábherra á ríkisráösfundi í dag.
í áfóngum og verður eitt af brýnni
verkefnum sem ég tekst á viö. Ég hef
mikinn áhuga á sveitarstjómarmál-
um, er sveitarstjómarmaður og því
em þessi mál mér mjög hugleikin,
sem og málefhi fatlaðra og framtíð-
arskipan íbúðalánasjóðs, en við
lögðum mikla áherslu á húsnæðis-
mál í okkar kosningabaráttu. Auð-
vitað er þetta svolítið brött atburða-
rás að vera oröinn ráðherra en ég
ætla virkilega að vanda mig,“ sagði
Ámi Magnússon, nýr félagsmálaráð-
herra.
- Hvert veróur fyrsta verkefni nýs
félagsmálaráöherra?
„Að lesa mér til.“ -GG