Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
I>V
Fréttir
9
Þorgerður Katrín:
Afskaplega mikil
áskorun
„Þetta eru óvænt en mjög
ánægjuleg tíöindi,“ segir Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
sem verður menntamálaráð-
herra um næstu áramót. „Það
er afskaplega mikil áskorun að
taka við menntamálaráöuneyt-
inu. Það er búið að gera stór-
kostlega hluti þar á síðast liðn-
um árum undir forystu okkar
sjálfstæðismanna og það er um
að gera að reyna að halda
áfram því góða starfi og bæta
við það.“
Þorgerður Katrín er lögfræð-
ingur að mennt. Hún verður 38
ára í október og sest því í ráð-
herrastól ívið eldri en Árni
Magnússon og Siv Friöleifs-
dóttir en tveimur árum yngri
en Árni Mathiesen. Hún hefur
setið á þingi í fjögur ár og
gegnt formennsku í allsherjar-
nefnd allan þann tíma.
Sem kunnugt er á Þorgerður
Katrín von á barni í sumar og
því liggur beint við að spyrja
hvort ekki verði erfitt að
takast á við þetta krefjandi
starf með ungt barn. „Ég held
að þetta sé bara nútíminn og
sem betur fer höfum við þessa
stórkostlegu fæðingarorlofslög-
gjöf sem hefur einmitt gert
okkur konum kleift að takast á
við ögrandi og skapandi verk-
efni. Þetta er bara eitt dæmi
um það,“ segir tilvonandi
menntamálaráðherra.
Tómas Ingi sendiherra:
Ekkent svekktun
„Þetta leggst ágætlega í
mig,“ segir Tómas Ingi Olrich
sem hættir sem menntamála-
ráðherra um árámótin eftir
tæplega tveggja ára starf. Hann
verður sendiherra í París á
vormánuðum á næsta ári.
„Við forsætisráðherra vor-
um búnir að ræða þetta mál
áður en þessi fundur hófst,"
sagði Tómas Ingi eftir þing-
flokksfundinn í gær spurður
um hvort niðurstaðan kæmi
sér á óvart, og bætti við: „Ég
hef aldrei talið mig eiga neitt
gefið í pólitík og tek þeim verk-
efnum sem þarf að vinna.“
Hann var spurður hvort hann
væri ekki „svolítið svekktur"
og svaraði: „Nei, ekki nokkurn
skapaðan hlut. Ég geng til
þeirra verka sem þarf að vinna
og geng yfirleitt glaður til
verks.“
Tómas Ingi hefur setið á Al-
þingi í tólf ár, frá 1991, og var
formaður utanríkismálanefnd-
ar í fimm ár, 1995-2002, fram að
því að hann tók við Birni
Bjarnasyni sem menntamála-
ráðherra. Arnbjörg Sveinsdótt-
ir tekur sæti á Alþingi í stað
Tómasar Inga um áramótin.
Björn um ráðherradóm:
Verö ekki oddviti í
borgarstjórn
Björn Bjarnason, nýr dóms-
og kirkjumálaráðherra, segir
að það fari ekki saman að vera
ráðherra og oddviti minnihlut-
ans í borgarstjórn Reykjavíkur
en heldur því opnu hvort hann
hættir sem borgarfulltrúi.
„Þetta ber svo brátt að að ég
hef ekki haft tima til annars en
að borða frá því að ég frétti
þetta,“ sagði Björn eftir þing-
flokksfundinn í Valhöll í gær.
„En það fer náttúrlega ekki
saman að vera oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn
og dóms- og kirkjumálaráð-
herra. Það þarf að leysa það
með einhverjum hætti.“ Björn
segir að ekki blasi við hver
taki við stöðu oddvita enda sé
ekkert sjálfkrafa í stjórnmál-
um.
Björn segist ekki hafa sóst.
eftir ráðherrastólnum en er
sáttur við ráðuneytið. „Ég er
lögfræðingur og hef mikinn
áhuga á öryggismálum og ör-
yggi borgaranna. Ég er gamall
starfsmaður Landhelgisgæsl-
unnar og hef áhuga á almanna-
vörnum óg öllu því sem undir
dómsmálin heyrir. Síðan er ég
líka mikill kirkjunnar maður
þannig að ég kvíði því ekki að
sinna þessum verkefnum," seg-
ir Björn.
Þess má geta að faðir hans,
Bjarni Benediktsson, fór með
ráðuneyti dómsmála í fjórum
ríkisstjórnum, ávallt samhliða
einu eða fleiri ráðuneytum.
Sigríður Anna:
Ég átti ekki von á
þessu
„Mér líst mjög vel á þetta. Ég
tel að þetta sé mjög skemmti-
legt verkefni og margt áhuga-
vert sem liggur þar fyrir. Um-
hverfismálin eru vaxandi
málaflokkur og skipta gríðar-
lega miklu máli,“ segir Sigríð-
ur Anna Þórðardóttir, sem
verður umhverfisráðherra 15.
september á næsta ári. Hún
segist ekki hafa átt von á þess-
ari niðurstöðu.
Sigríður Anna hefur verið al-
þingismaður í tólf ár, frá 1991,
og formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins í funm ár, frá
1998. Hún var formaður
menntamálanefndar í ellefu ár,
frá 1991-2002. Hún þótti því
koma sterklega til greina þegar
Tómas Ingi Olrich tók við
menntamálaráðuneytinu af
Birni Bjarnasyni í fyrra en
varð í staðinn formaður utan-
ríkismálanefndar. Hún segist
sannfærð um að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir eigi eftir
að gera mjög góða hluti sem
menntamálaráðherra.
Sigríður Anna segir eftirsjá
að þeim ráðherrum sem hyeifa
á braut. „Svo sannarlega. Ég sé
náttúrlega mjög mikið eftir
Sólveigu Pétursdóttur sem hef-
ur staðið sig mjög vel í sínu
starfi en ég er líka viss um að
þingforsetastarfið mun henta
henni afskaplega vel.“ -ÓTG
ST0RSYNING
Sumarhúsið og garðurinn 2003
fhróttamiðstððinni í Mosfellsbæ 22.-25. maí
Yfir ÍOO fyrirtœki
og þjónustuaðilar
kynna vörur sínar
og þjónustu.
Ekki tnissa
afþessu!
• Allt þab nýjasta sem tengist sumartiúsinu
og garöinum í bland vib afþreyingu og
ferbaþjónustu
• Allt sem þú þarft aö vita um garöyrkju . . .
en vissir ekki hvern þú aettir ab spyrja!
• Tvó stór sýmngartjöld og stórt útisvæöi.
• í boöi eru 25 stuttir fyrirlestrar frá föstudegi
til sunnudags um altt millí himins og jaröar
• Sutwfrá, tanríttaO • Irairétttngar » Gutubað
• flrnsr og srlnvðrur • Málnbig • Dalur
• Kominur • SólarrafhlöDur • Matndýravarnlr
• Hanmögn * Ralmagnstskl • Bafcur og tímartt
• PnBír • RatbraH’ • GrUl
• Garðshönnun • Vatnstankar • Gaxkútar
• NytJalurtagarOur • Varmatklptar • Úttvtatarvörur
• Gluggar • HreliUæfis- • Öryggiamál
• b&ponu8{]ugn og biöndunartækl • Örygglxnátnar
• Húsgögn ♦ Ugnauim • LaBaækl
• Garðplðntur • Fjorhjöl • Föndur
• Baröhús • Korrur • Sktttl
• Heltír pottai* • JBppar • Vetðl
• HeimUistæld • VörubiD með krana • Ferðalög
TCOGI sa HBLUMTavmiiVJI 12*4 ð
é VIIKUfjH
IStENSK CIARÐYRKJA SKORRi ■PM FUNI aLIKKSMWMA
Tupperware
• Sýnikennsla í ýmsum verklegum þátium,
t.d. garöyrkju, föndri, hjálp i' viölögum o.fl.
• Fagfóik í græna gciranum svarar spurningum
gesta.
• Jeppar, tjaldvagnar, kerrur og Ijórhjól,
vóiubíll ineö krana ... citthvaö fyrir
karlana líka!
• Keppni um titilinn „Blómaskreytir ársins
2003"
Abeins 15. mfn. akstur frá mlöborg Reykjavíkur
Sýnlngin er opln sem hér seglr:
Flmmtudaglnn 22/5 kl. 17:00-19:00
Fiisudaglnn 23/5 kL 15:00-21:00
Laugardaglnn24/5 kl. 12:00-19:00
Sunnudaglnn 25/5 kl. 12:00-21:00
A&gangseyrir kr. 800.- pr. mann
frítt fyrir 12 ára og yngri
Tveggja daga verö kr. f.200,
Helgarverö kr. 1.SOO.- pr. mann
Sumarhúsið,
og garðurinn 2003'
www.rlLls • sfml 586 8003
Meðal efnis:
FerSir fyrir fjölskylduna ■ Tjaldvagnar - fellihýsi - hjólhýsi - húsbílar • Afþreying og
skemmtun • Hápunktar • HvaS er að gerast í sumar? • Utivist ■ GönguferSir • Leiðsögn •
HestaferSir - bátsferSir - fjalla- og jeppaferSir og margt annaS fróSlegt og skemmtilegt.
Auglýsendur
athugið
Sérblað um ferðir
innanlands fyigir
Magasíni fimmtu-
daginn 5. júní
- 82 þús. eintök.
Skilafrestur auglýsinga er 2. júní
Við erum tilbúin að aðstoða ykkur:
Inga, b. s. 550-5734, inga@dv.is
Kata, b. s. 550-5733, kata@dv.is
Margrét, b. s. 550-5730, margret@dv.is
Ransý, b. s. 550-5725, ransy@dv.is
Sigrún, b. s. 550-5722, sigruns@dv.is
Auglýsingadeild
550 5720