Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2003, Blaðsíða 18
34 SKOÐUN MÁNUDAGUR 16.JÚNÍ2003 4 Skoðun Innsendar greinar ■ Lesendabréf Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í síma: 550 5035, sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlið 24,105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sértil birtingar. Listin og kapítalið Gísli Magnússon skrifar: „Þetta, sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann" má segja um fyrirbærið Leikfélag Reykjavíkur, sem löngum hefur staðið gegn því að utanaðkom- andi gætu gerst félagsmenn. Aðeins starfsmenn félagsins voru í stjórn. Nú sækir Leikfélag- ið fast að fjársterkum aðilum sem félagsmönnum, einstak- lingum sem áhuga hafa á leik- list eða bara fjárfestingum al- mennt.Áður voru það borgar- búar,skattgreiðendursem heild, sem eingöngu máttu upp á dekk hjá þessu menningarfyrir- bæri. Nú mega fleiri koma - ef þeir eiga peninga til að leggja í púkkið. Nú er gott að leita til kapítalistanna sem sjaldan er hátt á loft haldið í sýningum LR. Á liðið að ganga laust? Kristín Ragnarsdóttir skrifar: Furðulegt er réttarkerfið. Mis- indismenn sem sekir eru um að ógna fólki með hnífum á göt- um eða í bönkum landsins ganga óðar lausir ef þeir játa sekt. Einnig brenglaðir menn á kynferðissviðinu, sem og barnaníðingar. Hins vegar eru menn í gæsluvarðhaldi dögum saman finnist þeir með nokkur grömm af fíkniefnum á sér. Auðvitað eru glæpir misjafn- lega alvarlegir.Fáir hafa með- aumkun með þessum manni sem síðast varð uppvís að því að tæla til sín börn og unglinga til myndbandaframleiðslu með klámi. Og almenningur krefst verndar gegn ofbeldinu. KJALLARI Geir Andersen gra@dv.is Enginn íslendingur er í þeirri aðstöðu að geta gefið sér fyr- ir fram niðurstöðuna úr þeim viðræðum sem eftir eigá að fara fram á milli bandarískra stjórnvalda og íslenskra um varnarsamninginn milli ríkja þeirra. > Það er ekki til bóta að halda leynd yfir efni þeirra bréfa sem gengið hafa á milli forseta Banda- ríkjanna og ríkisstjórnar Islands. Umræða um málið á að vera opin- ber og frjáls til skoðanaskipta. Hún liðkar fyrir varanlegri niðurstöðu og flýtir henni. Köpuryrði vegna veru varnarliðs- ins bandaríska eða létt glens og grín, þegar best lætur, um varnar- mál landsins, leiða ekki til vænlegar ■jr niðurstöðu. Slíkt skaðar málstað ís- lands út á við og gefur þá hugmynd erlendis að íslendingar séu hálfvit- ar sem ekki þekki neitt til varnar- mála eigin lands, líti þau jafnvel hornauga. í flestum löndum eru eigin her- varnir og herskylda um einhvern tíma ævinnar. Þetta er óþekkt fyrir- bæri á Islandi og því taka lands- menn varnarmálin ekki alvarlega. - Nema þeir sem verða fyrir atvinnu- missi vegna niðurskurðar varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli. Stórt samgöngufyrirtæki eins og Flugleiðir lætur t.d. ekki orð frá sér fara þótt niðurskurður hjá varnar- liðinu kunni að skilja þetta eina al- vöruflugfélag landsmanna eftir í lamasessi með því að þurfa að taka á sig ómældan viðbótarkostnað á Keflavíkurflugvelli. Engin fullvissa er fyrir því að ríkið muni reka tvo flugvelli hér í þéttbýlinu í náinni framtíð, og alls ekki ef niðurskurð- ur verður verulegur hjá bandaríska varnarliðinu. „íflestum löndum eru eigin hervarnir og her- skylda um einhvern tíma ævinnar. Þetta er óþekkt fyrirbæri á ís- landi og því taka lands- menn varnarmálin ekki alvarlega." Lítið hefur verið gert að því að fræða íslendinga um varnarlið Bandaríkjanna hér á landi og kostnað við veru þess hér, t.d. í al- þjóðlegum samanburði. Hún var þvível þegin sú vandaða úttekt sem Ólafur Teitur Guðnason, blaða- maður DV, gerði á þessum málum og birt var í blaðinu sl. fimmtudag. Margir hafa hringt til að þakka blaðinu fyrir þessa úttekt. Það er skoðun þess er hér skrifar að besta lausnin væri að óbreytt ástand héldist um varnir landsins og íslendingar kæmu sjálfir mun meira að þeim störfum sem vörn- unum fylgja. Það var Jónas Péturs- son, alþm. þeirra Austlendinga, sem fyrstur manna bar upp þá til- lögu að koma á þegnskylduvinnu hér á landi, sem sneri að vörnum landsins. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og fáir hafa viljað gera skoðanir Jónasar að sfnum. Aðeins einn stjórnmálamaður, Björn Bjarnason, hefur hins vegar haldið uppi vömum fyrir því að ís- lendingar taki aukinn þátt í vörn- um landsins. Það hefur hins vegar aldrei komið fram hjá honum, svo ég minnist, að hann hafi lagt til að hervæða íslendinga, eins og sumir vilja halda á lofti og skmmskæla hugmyndir hans í pólitískum til- gangi. Eitt er þó hægt að fullyrða, án þess að skammast sín; íslendingum er ekkert vandara um en öðrum þjóðum - fámennum sem fjöl- mennum - að inna af hendi þegn- skylduvinnu með hvaða hætti sem er, svo sem nokkra mánuði á æv- inni. Einn hluti hennar gæti verið að taka þátt í varnarliði sem væri tiltækt við hvers konar björgunar- og hjálparstörf þegar hamfarir eða hætta steðjar að. Að öðru leyti eru störf sem nú tilheyra erlendu varn- arliði hér innan þess ramma sem íslendingar ættu að sinna, og ekk- ert síður þótt varnarsamningurinn milli Bandaríkjanna og íslands gildi áfram. Það er enginn grundvöllur fyrir áframhaldandi raunverulegu sjálf- stæði okkar íslendinga án þess að gera ráðstafanir til þess að landið hafi á að skipa varnarliði, hversu fá- mennt sem það er. Það kostar auð- vitað fjármuni en það fé liggur víða á lausu, svo sem með sparnaði í ut- anríksþjónustu í fjarlægum lönd- um og heimsálfum, að ekki sé minnst á tugmilljarða króna að- gangseyrinn fyrir þátttöku í Evr- ópusambandinu. Eru kirkjur landsins tómar? Sr. Þórhaiiur Heimisson, Hafnarfjaröar- > kirkju, skrifar: í leiðara DV 10. júní sl. er því haldið fram í umfjöllun um hvítasunnulokun verslana, að kirkjur landsins séu tómar og landsmenn almennt áhugalausir um allt það sem þar fer fram. Þessi skrif leiðarahöfundar lýsa mikilli vanþekkingu. Þvert á móti eru kirkjur og kirkjulegt starf ákaflega vel sótt um landið allt. Starf kirkjunnar fer fram alla daga vikunnar, ekki bara á sunnudögum. Starfið er mjög fjölbreytilegt og þúsundir sækja barnastarf, æskulýðsstarf, nám- skeið, fræðslu, tónlistarfélög og ,i kórastarf, tíu til tólf ára starf, for- eldramorgna, sálgæsluviðtöl, hjónaviðtöl, fjölskyldustarf og sorgarstarf, bara svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa heldur kirkjan úti fjölsóttu menningarstarfi hvers konar, heimsóknarþjónustu og sérþjónustuprestum og sumar- búðastarfi. Þá er ónefnt guðs- þjónustuhald, fermingarstarf og allar athafnir á vegum kirkjunn- ar. Svo dæmi sé tekið af minni sókn höfum við haldið skrá yfir alla sem til safnaðarheimilis og * kirkju koma. Að vetri til sækja að meðaltali um 1500 manns starfið í hverri viku. Margfalt fleiri koma að sjálfsögðu kringum hátíðir og í athafnir kirkjunnar. Svipaða sögu er að segja frá söfnuðum víða um land og öðru kirkjulegu starfi. Konráö Rúnar Friöfinnsson skrifar: Ákveðnar reglur gilda í landinu um starfrækslu líknarfélagsins. Líknarfélagið sjálft er laust undan byrðum skattsins. Starfar það enda án vonar um hagnað. Vel þarf samt að halda utan um allar nótur og blöð því gjafarar og styrktaraðilar hafa rétt á að fylgjast með hvernig framlaginu var varið. Reynt er að láta tekjurnar duga fyrir útlögðum kostnaði. Fjárþörf líknarfélagsins fer síðan eftir umfangi og stærð. Líknarfélagið leitar til almenn- ings, fyrirtækja, ríkis og sveitarfélaga um stuðning. Oft og tíðum með „Byrgið er hin vegar kristilegt líknarfélag sem var stofnað fyrir rúmlega sjö og hálfu ári. Það einbeitir sér að neyð þeirra sem hafa ánetjast áfengi og eit- urlyfjum. Þessi hópur er fjölmennur." þokkalegum árangri. Fyrirtæki sem styrkja hafa lagalega heimild til að draga hluta styrksins frá skatti. Á íslandi eru ekki starfrækt mörg slík félög. Ef grannt er leitað og öll sanngimi brúkuð má segja að að- eins eitt líknarfélag sé starfandi í landinu sem virkilega stendur undir nafninu líknarfélag. Sem er að hlúa að bágstöddum sem einhverra hluta vegna verða útundan í samfélaginu. Byrgið er hins vegar kristlegt líkn- arfélag sem var stofnað fyrir rúm- lega sjö og hálfu ári. Það einbeitir sér að neyð þeirra sem hafa ánetjast áfengi og eiturlyfjum. Þessi hópur er fjölmennur, samanber tölur um lyf sem tollgæslunni og lögreglunni tekst sameiginlega að koma úr um- ferð á hverju ári. Frá stofndegi hafa að jafnaði dvalið í Byrginu um sjötíu manns og töluvert gegnumstreymi fólks. Stundum komast færri að en vilja. Ekki þó þannig að fólk komi að læstum dymm í Byrginu og komist af þeirri ástæðu ekki inn, heldur er hvert rúm einfaldlega skipað. En hvers vegna þarf að stofha líknarfélag í landi sem er búið að vera „kristið" í þúsund ár? Líknarfé- lagið var stofhað vegna þess, fyrst og sfðast, að kirkjan stendur sig ekki í stykkinu. Og skiptir þá ekki máli hvort hún heitir þjóðkirkja eða eitt- hvað annað. Ef kirkjan stæði sig í samfélaginu þyrfti enga Mæðra- styrksnefnd til að útbýta matargjöf- um, engan Rauða kross, með sína færanlegu starfsemi í löndum sem neyð er í, og heldur ekkert Byrgi. Kirkjan myndi einfaldlega sjá um þessa hluti sem hin og þessi félög, til dæmis lflcnarfélög, sinna nú. En vegna þess að kirkjan hefur ekki þessa sýn og hnakkrífst öðru hvoru um „keisarans skegg“, allt og ekkert, kemur fram fólk sem hleypur í þessi verk og vinnur á skjön - stundum við blinda kirkjuna - sem er hryggilegt, en er engu að síður það sem hefur gerst í gegnum tíð- ina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.