Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2003, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2003, Qupperneq 30
46 TILVERA MÁNUDAGUFt 16.JÚNÍ2003 4 * Sex Pistols á tónleikaferðalag Öldnu pönkhetjurnar ÍThe Sex Pistols munu fara á hljómleika- ferðalag um Bandaríkin seinna ( sumar.Tvennir tónleikar hafa verið bókaðir og búast má við fleiri á næstunni.Söngvarinn John Lydon (Johnny Rotten) tók það þó skýrt fram í nýlegu viðtali að ekki standi til að semja eða taka upp nýtt efni. Allir upprunalegu meðlimir sveitarinnar verða með á þess- um tónleikum, þar á meðal Glen Matlock bassaleikari sem var í sveitinni áður en Sid Vici- ous gekk í hana. Sex Pistols var endurvakin árið 1996 og fór þá í hljómleikaferðalag um Bret- land og í fyrra komu þeirfram á tónleikum sem voru á sama tíma og valdaafmæli Breta- drottningar var fagnað. Zwan aflýsir Queen með fiðring í tánum Nýja bandið hans Billy Corgan hefur hætt við alla tónleika sem fyrirhugaðir voru í Evrópu á næstunni.Zwan átti meðal annars að koma fram á Hró- arskelduhátíðinni og Glaston- bury en af því verður ekki. Einu ástæðurnar,sem til þessa hafa verið gefnar fyrir þessari ákvörðun,eru að hún hafi verið tekin af„fjölskylduástæðum". Eftirlifandi meðlimir Queen hafa undanfarið unnið að því að setja saman DVD-útgáfu af Live at Wembley-plötunni frá 1986.Það virðist hafa kveikt í þeim því Bri- an May gítarleikari sagði í sam- tali við Rolling Stone að ekki væri útilokað að sveitin myndi fara á tónleikaferðalag á næst- unni.„Við nálgumst þá hug- mynd," sagði RogerTaylor trommari og May tók undir það og sagði þá hugsa um það dag- lega. Það verður augljóslega erfitt fyrir þá að finna eftirmann Freddy Mercury sem lést af völd- um alnæmis árið 1992.Segjast þeir félagar væntanlega myndu notast við nokkra söngvara og hafa nöfn eins og Robbie Willi- ams,George Michael og Elton John heyrst í því sambandi. ÁHUGASAMAR: Það leynir sér ekki áhuginn í svip Díönu Bjarnadóttur og á. Evu Daggar þar sem þær skoða bók á sýningunni í Hafnarhúsinu. SKÁLAÐ: Halldóra Geirharðsdóttir og Rebekka Sigurðardóttir voru í hópi fjöl- margra sýningargesta í Hafnarhúsinu. Humar eða frægð Síðastliðið föstudagskvöld voru opnaðar þrjár sýningar á vegum Listasafns Reykja- víkur í Hafnarhúsinu. Nefndust þær Humar eða frægð - Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í al- þjóðlega samtímalist á íslandi og Erró - Stríð. Aldrei þessu vant var það ekki Erró-sýningin sem vakti hvað mesta forvitni hjá sýningar- gestum heldur Smekkleysusýning- in, sem var skemmtilega uppsett og forvitnileg. Það hefur margt drifið á dagana sem er í frásögur færandi á þeim 16 árum sem Smekkleysa hef- i* ur starfað og minningarnar eru margar. Á sýningunni var hægt að fá innsýn í líf þeirra sem segja má að hafi skapað framsækna popptónlist á íslandi og margir af þeim voru mættir á sýninguna og eflaust rifjuðust upp margar minn- ingar. ÞRÍR GÓÐIR SAMAN: Þeir Ingi Sigurðsson, Hlynur Stefánsson og Birkir Kristinsson voru í aðalhlutverkum á Hásteinsvelli um helgina en þó ekki í sama liðinu eins og oft áður því Hlynur leikur nú með KFS. DV-myndÓmar Ættarmót í Eyjum Liði IBV héldu engin „fjöl- skyldu“bönd á föstudagskvöld þegar liðið mætti hinu Eyjalið- inu KFS í VISA bikarnum. Loka- tölur urðu 4-0 fyrir því sem kalla má nýju kynslóðinni í Eyjum en KFS er að mestu skipað gömlum leikmönnum ÍBV. Þá má segja að um hálfgert ættarmót hafi verið að ræða þar sem í leiknum mættust bræð- urnir Steingrímur (IBV) og Lúð- vfk Jóhannesson (KFS), en bræður þeirra Hjalti (ÍBV) og Sæþór (KFS) léku ekki með lið- um sínum í þessum leik. Þá mættust einnig bræðurnir Bjarni Geir (ÍBV) og Sindri (KFS) en faðir þeirra, Viðar Elíasson, er formaður knattspyrnudeildar ÍBV. Fyrirliðar liðanna voru þeir Birkir Kristinsson (ÍBV) og Hlyn- ur Stefánsson (KFS) en saman mynduðu þeir eina sterkustu varnarlínu landsins á sínum tíma. í leikmannahópi KFS voru tólf fyrrverandi leikmenn ÍBV en níu þeirra voru í byrjunarliðinu. Þá lék bæjarstjórinn sjálfur, Ingi Sigurðsson, sinn fyrsta leik fyrir ÍBV í sumar. ypptSsmtn l slia 519 ZSZS RðVtfil, 283 OG 284 vmnmsstfiiur 14. júní 2) 13) 18) 26) 33i -w/ Jökertölur vlkunnar 6 | 2 I 6 i 5 I 0 TROMPETLEIKARINN: Snemma beyg- ist krókurinn er setning sem kom upp í hugann þegar sonur Einars Arnar Bene- diktssonar, Hrafnkell Flóki, dró upp trompet föður síns og hóf leik. TILBÚINN: Myndin er tekin fyrir utan Hotel Dangelterre þegar Bruce Soringsteen hélt til Parken þar sem tónleikarir voru DV-mynd Eggert. nnwWl IAVM Allial * llw ■ ■ niíflilkudoguro Eyrnagöt Nýjung Framþróun í eyrnagatagerð Rakarstofan s Klapparstíg f Sími 551 3010 I Brúsi í Kaupmannahöfn Ein stærsta poppstjarna samtím- ans, Bruce Springsteen, hefur end- urvakið hljómsveit sína- E Street Band og er nú á tónleikaferð um Evrópu og Bandaríkin. Þó langt sé um liðið frá því Springsteen hélt tónleika í Evrópu hafa aðdáendur hans ekki gleymt honum og flykkj- ast á tónleika hans. í rúman mánuð hefur hann verið á ferð um Evrópu, leikið á Spáni, Ítalíu, Bretlandseyj- um og Þýskalandi. Til Danmerkur kom hann frá Hamborg þar sem rigndi á kappann. Það kom þó ekki í veg fyrir að tónleikarnir þættu takast vel. Það var ekkert slíkt til fyrirstöðu í Kaupmannahöfn þegar Springsteen hélt tónleika fyrir 46.000 manns í Parken í gærdag. Blíðskaparveður var og Springsteen renndi sér í gegnum lagasafn sitt, byijaði á Born in the USA og síðan kom hver smell- urinn á fætur öðrum. í lok tónleik- anna sagðist hann því miður ekki getað leikið öll óskalögin en hér koma tvö sem þið hafið mikið verið að biðja um og síðan renndi hann sér í gegnum Dancing in the Dark og endaði á Glory Days. Höfðu þá tón- leikarnir staðið í rúma þrjá klukku- tíma. í kvöld og annað kvöld heldur Springsteen tónleika í Helsinki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.