Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 19.JÚNI2003 TILVERA 27
*
HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15.
OLD SCHOOL: Sýnd kl. 8. |[nÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.45 og 10. B.i. 12 ára.
KRINGLAN
ALFABAKKI
Larií'jh
Siew' Mariin
Stcve Martín
í, ★★★
ikmyndir.com
& Þaðborgar
K sig að £■
■ kynnast
Wf fólki vel
áður en þú
ferð á blint
Brstefnumót á
Netinu. 1
tatJÚorgSV sig að kynnastTðlki veh
áður en þú ferð á blint stefnumót á
Netinu.
Queen Latifah fer á kostum og
Steve Martin slær í gegn í sinni
stærstu gamanmynd frá upphafi!
Sýnd kl. 3.45,5.50,8,9.05 og 10.15.
POWERSÝNING.B.Í. 12 ára.
SAMtUO
ÁLFABAKKl tS 587 8900
KRINGLAN tS 588 0800
THE MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. KANGAROO JACK: Sýnd kl.4,6,8 og 10.
SKÓGARLÍF: Sýnd m.ísl.tali kl.3.45. JOHNNY ENGLISH: Sýnd kl.4 og 6.
Sýnd kl.5.50,8og 10.10. Forsýnd kl. 8.
KANGAROOJACK: Sýnd kl.6og 10.
THE MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 12 ára.
<
■l FJÖLMIÐLAVAKTIN
Geir A. Guðsteinsson
skrifarumljölmiðla
_*L______________________________
Víða leitað fanga
Ægir, tfmarit um sjávarútvegsmál,
og sjómannablaðið Víkingur fjalla
um aðalatvinnuveg Islendinga, sjáv-
arútveg, og þá sem sjóinn stunda.
Þessi blöð eru bráðnauðsynleg þeim
sem vilja fylgjast með í sjávarútvegi
af einhverju viti, enda fjalla þau iðu-
lega um þá þætti sjávarútvegsins
sem ekki er fjallað daglega um í fjöl-
miðlum, s.s. að nýliðun þorsks í
Norðursjó sé minni en nokkru sinni
fyrr, eða aðeins 8% af meðaltalsný-
liðun áranna 1978 dl 2002. Rann-
sóknarleiðangur norsku Hafrann-
sóknastofnunarinnar hafi dregið
þennan sannleika fram í dagsljósið.
Þessar greinar eru yfirleitt vel unnar
og víða leitað fanga um öflun og
staðfestingar á fféttunum sem auð-
vitað er viss gæðastimpill.
Það vekur hins vegar athygli að
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segir íÆgi
að sjómannadagurinn hafi þann
virðingarsess sem hann hafi haft á
árum áður þrátt fýrir að t.d. hafi ekk-
ert verið haldið upp á hann vestur á
Isafirði, því mikla útgerðarplássi. 65
ár eru liðin síðan fyrst var haldið
upp á daginn. Sævar miðar reyndar
þessa afstöðu sína við Grindavík þar
sem alltaf er mikið um að vera á sjó-
mannadaginn, eiginlega menning-
arháú'ð, og enginn fiskur undir steini
eins og sagt var einu sinni um
menningarneyslu Grindvíkinga.
Ámi Bjarnason, formaður Far-
manna- og fiskimannasambands fs-
lands, segist í Víkingi vera hæfilega
bjartsýnn á að samningar náist í
næstu kjarasamningum. Við hvaða
svari bjóst blaðið eftir lausn síðustu
deiina með dómi?
STJÖRNUGJÖF DV
★ ★★★
Nói albínói ★ ★★★
Respiro ★ ★★
Identity ★ ★★
Narc ★ ★★
X-Men 2 ★ ★★
Johnny English ★ ★★
Anger Management ★ ★
2 Fast 2 Furious ★ ★
Kangaroo Jack ★ ★
Matrix Reloaded ★ ★
Bringing Down
the House ★ ★
Viewfrom theTop ★ ★
Darkness Falls ★ ★
How to Lose a Guy
in 10 Days ★★
Old School ★
HRÆÐSLA:Marc Bucas og Laura Regan (hlutverkum sínum.
Fortíðin ber að dyrum
KVIKMYNDAGAGNRÝNI
HILMAR KARLSSON
hkart@dv.is
Hryllingsmyndir þurfa ekki alltaf
' að byggjast á brellum svo að hárin rísi
á áhorfandanum. Það nægja oft ein-
faldar lausnir til að fá ímyndunaraflið
til að virka. Þannig kvikmynd er They.
Hún er hvorki frumleg sögulega séð
né hlaðin dýmm brellum heldur gerir
hún út á ímyndunarafiið með sniðug-
um lausnum.
Satt best að segja er sagan ekki
frumlegri en svo að upp í hugann
kemur Darkness Falls sem verið er að
sýna í kvikmyndahúsum á höfuð-
borgarsvæðinu. Það sem er líkt með
þessum tveimur kvikmyndum er að
verið er að fást við atburði í fortíðinni,
atburði sem engin skýring fæst á. Það
sem They hefur fram yfir Darkness
Fails er að einfaldleikinn er nýttur á
áhrifameiri hátt með færri persónum
og óhugnaðurinn er enn fjarlægari.
Þá verður að segjast eins og er að
endirinn í They er snilldarbragð gegn
ímyndunarafli áhorfandans.
Regnboginn
They
Fjórar aðalpersónur eru í They.
Þær standa að vísu mismunandi stutt
við í sögunni. Allar höfðu þær í æsku
orðið fyrir reynslu sem lýsti sér á
þann veg að þau töldu sig verða fyrir
áreitni frá „þeim". Foreldrar þeirra
sögðu þetta myrkfælni sem myndi
eldast af þeim. Sönn orð að hluta. Það
er ekki fýrr en ein persónan fremur
sjálfsmorð á fúllorðinsárum að hinar
þrjár upplifa aftur að verið sé að ná
tangarhaldi á þeim. Julia (Laura Reg-
an) er að ljúka námi í sálfræði og get-
ur ekki sætt sig við að eitthvað óskýr-
anlegt sé að banka á dyr hjá henni.
Hún gengur því til sama sálfræðings
og hún gekk til þegar hún var barn að
aldri. Hann segir henni að sálgreina
sjálfa sig. Þegar vísindin gera ekki ráð
fýrir hinu óútskýranlega vill hún
hvorki viðurkenna það sem kemur
fyrir hana né sámþykkja það sem hin
tvö eru að segja henni.
„They er hvorki frumleg
sögulega séð né hlaðin
dýrum brellum heldur
gerir hún út á ímyndun-
araflið með sniðugum
lausnum
Leikstjóri They, Robert Harmon,
gerði sig að „culthetju" þegar hann
sendi frá sér The Hitcher fyrir einum
sautján ámm. Hann hefur lítið gert
síðan, en engu gleymt. Lausnir hans
er vel útfærðar og hann passar sig að
iáta aldrei beint uppi hver óvinurinn
er eða hvaðan hann kemur. Við verð-
um að leiða líkum að því að hann sé
annars heims. Þetta ásamt vel út-
færðri atburðarás gerir það að verk-
um að They er vel heppnuð hryllings-
mynd þó alls ekki sé hún gallalaus, en
gaílana má yfirleitt kenna peninga-
skorti um.
Leikstjóri: Robert Harmon. Handrit: Brendan
Wood. Kvikmyndataka: René Ohashi. Tónlist:
Elia Cmiral. ABalleikarar: Laura Regan, Marc
Blucas, Ethan Embry og Dagmara Dominciyk.
ROGER MOORE er orðinn Sir.
Þessi fyrrum James Bond-leikari var
aðlaðuraf Elísabetu Englands-
drottningu um helgina . Aðrir leik-
arar og poppstjörnur voru heiðruð,
meðal annars Helen Mirren.sem
hér eftir má kalla sig Dame Helen
Mirren ef hún kærir sig um. Þá
fengu Kristin Scott Thomas, Sting,
Dave Gilmore, Jamie Oliver og
Gerry Marsden viðurkenningu og
geta bætt við nafn sitt CBE, MBE
eða OBE eða hvað þetta nú allt
heitir.
NICK NOLTE þarf enn einu sinni
að mæta fyrir dómara vegna eitur-
lyfja- og áfengislagabrota. Þessi 62
ára gamli leikari hefir löngum verið
í vandræðum og ekki skánar það
með aldrinum. Nú var það vegna
brots á skilorði en í september var
hann tekinn drukkinn og undir
áhrifum eiturlyfja við stýrið. Hann
sást víst svo í sama ástandi í síð-
ustu viku.
MEL GIBSON hefur fengið af-
sökunarbeiðni frá kaþólskum bisk-
upi sem hafði fordæmt nýjustu
kvikmynd hans,The Passion, þar
sem fjallað er um aftöku Jesú
Krists. Biskupinn hafði ekki séð
myndina áður en hefur nú séð
hana og segist hafa fengið rang-
hugmyndir um hana. Þetta eru
góðar fréttir fyrir Gibson, sem hefur
verið undir miklu álagi,sérstaklega
þar sem hann þykir ekki fara mjúk-
um höndum um gyðinga og þeirra
þátt í krossfestingu Krists í mynd
sinni.
Beinútsending á Sýn
frá Álfukeppninni í knattspyrnu:
Heimsmeistar-
ar í eldlínunni
Sýn heldur áfram að vera með
beinar útsendingar frá heims-
viðburðum í íþróttum.
Flestum er í minni skemmtileg
útsending frá Opna bandaríska
golfmótinu og úrslitakeppninni í
ameríska körfuboltanum. Þessum
atburðum er lokið og nú tekur fót-
boltinn við bæði innlendur og er-
lendur.
Sýn hefur hafið beinar útsend-
ingar frá Álfukeppninni í Frakklandi
og eru á dagskrá tveir leikir í kvöld,
kl. 16.45 og 19. Þeir verða síðan
endursýndir eftir miðnætti
í B-riðli mætast fyrst Tyrkir og
Bandaríkjamenn í St. Etienne og í
síðari leiknum eigast við Brasilíu-
menn og Kamerúnar í París. Búast
má við mjög spennandi keppni í B-
riðli. Allar þjóðirnar eru í fremstu
röð og aðeins Kamerún er ekki í
hópi tíu bestu landsliða heims að
mati styrkleikalista FIFA en Afríku-
þjóðin er samt í 18. sæti á umrædd-
BRASILÍA: Flestir spá þeim sigri (Álfukeppninni.
um lista. Enginn efast um styrk
heimsmeistaranna frá Brasilíu en
Tyrkland og Bandaríkin slógu bæði
í gegn á HM í fyrra.
Á morgun er svo einn leikur á
dagskrá sem verður í beinni útsend-
ingu, er það viðureign Frakka og
Japana. Á laugardag verða svo tveir
leikir í beinni útsendingu, Kamer-
ún-Tyrkland og Bandaríkin-Brasil-
ía.
v